Morgunblaðið - 29.01.2019, Page 15

Morgunblaðið - 29.01.2019, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2019 Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is Honeywell keramik hitarar Kalt? Hitaðu uppmeðHoneywell Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma Greiddir reikningar allra stofnana í A- hluta ríkissjóðs eru nú komnir inn á vefinn opnirreikningar.is en stofn- unum hefur verið bætt við í áföngum síðan verkefninu var hleypt af stokk- unum fyrir rúmu ári. Innleiðingunni er nú lokið. Birtir reikningar eru nú um 169.000 talsins en frá því í október 2018 hefur fjöldi þeirra tvöfaldast, að því er segir í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. Undanfarna mánuði hafa upplýsingar stórra stofnana, svo sem Landspítala, verið birtar á opnum reikningum. Gera má ráð fyrir að heildarumfang upplýsinga sem finna má á vefnum nemi árlega um 45 milljörðum króna. Opnum reikningum var komið á fót í samræmi við stefnu stjórnvalda um bætt viðmót og aðgengi að stjórn- sýslu. Þeim er ætlað að veita einfalda og skýra mynd af viðskiptum stofn- ana með því að birta yfirlit yfir greidda reikninga. Markmiðið er að hægt sé að skoða greidda reikninga nálægt rauntíma, en vefurinn er upp- færður mánaðarlega. Hægt er að skoða viðskiptin út frá stofnunum, birgjum, tegund kostnaðar og tíma- setningu. 132 stofnanir á vef um opna reikninga  Fjöldi reikninga hefur tvöfaldast Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stjórnarráðið Gera má ráð fyrir að heildarumfang upplýsinga sem finna má á vefnum Opnir reikningar nemi árlega um 45 milljörðum króna. Áður en langt um líður verður lokið við að gera upp við þá sem skilað hafa veglyklum og afsláttarmiðum til Spalar. Reiknað er með að um leið verði allar inneignir á áskriftar- reikningum greiddar út. Þetta kem- ur fram í frétt á heimasíðu Spalar. Búið var að gera upp við tæplega 23 þúsund viðskiptavini Spalar þann 18. janúar síðastliðinn og endur- greiða þeim samtals um 330 milljónir króna. Þá höfðu 72% inneigna hjá fé- laginu verið greidd út. Viðskiptavin- irnir höfðu ýmist átt inneign á áskriftarreikningum hjá Speli eða fengu endurgreitt fyrir veglykla og afsláttarmiða. Þeir sem enn eru með veglykla eða afsláttarmiða eiga áfram kröfu á Spöl. Tilkynnt verður um formlegan kröfulýsingar- og innköllunarfrest síðar á árinu í tengslum við ákvörðun og tilkynningu um að slíta Speli ehf. Hlutafélagið Spölur var stofnað 25. janúar 1991 á Akranesi. Speli hf. var breytt í eignarhaldsfélag 1995 sem síðan hafði það hlutverk að eiga eina hlutabréfið í Speli ehf. Þetta var gert til að auðvelda veðsetningu hlutafjár. Hluthafar héldu upp á 28 ára afmæli Spalar með því að renna eignarhaldsfélaginu inn í einkahluta- félagið Spöl. Eitt Spalarfélag verður því starfandi þar til yfir lýkur. Hlut- hafar í eignarhaldsfélaginu eignast allt hlutafé í einkahlutafélaginu í sömu hlutföllum. Umferð um göngin hefur aukist Umferð í Hvalfjarðargöngum hef- ur aukist frá því að gjaldheimtu var hætt. Þetta kom fram í skýrslu stjórnar Spalar á hluthafafundinum. Alls fóru liðlega tvær milljónir öku- tækja í gegnum göngin á fyrstu níu mánuðum ársins 2018, þ.e. til loka rekstrartíma Spalar, og var 2% meiri en sömu mánuði 2017. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni um umferðina í október-desember 2018 var heildarumferðin í fyrra 2.625.206 ökutæki en var 2.545.625 ökutæki ár- ið 2017. Umferðin í fyrra var því um 3,1% meiri í fyrra en í hittifyrra. Ljóst er að umferðin jókst þegar gjaldheimtu var hætt um mánaða- mót september og október 2018. Það þótti vera fyrirsjáanlegt, að sögn Spalar, og í samræmi við reynsluna t.d. frá Noregi. gudni@mbl.is Slit Spalar ehf. undirbúin  Búið að gera upp við um 23.000 viðskiptavini  Enn er hægt að skila veglyklum og afsláttarmiðum  Umferð um göngin jókst eftir að gjaldheimtu var hætt Ljósmynd/Spölur Hluthafafundur Spalar 2019 Unnið er að því að leggja félagið niður. Á þingfundi í dag verður lagt fram frumvarp um að sálfræðiþjónusta verði færð undir greiðsluþátt- tökukerfi Sjúkratrygginga Íslands, en sálfræðiþjónusta er nú undan- skilin almennri greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga. Í greinargerð frumvarpsins segir að markmiðið með frumvarpinu sé að þjónustan verði veitt á sömu for- sendum og önnur heilbrigðisþjón- usta. Því sé ætlað að tryggja aðgengi einstaklinga að sálfræðiþjónustu. Þar er enn fremur greint frá mikilvægi þess að tryggja að þeir sem séu með virk einkenni fái lausn á vanda sínum sem fyrst til að koma í veg fyrir víta- hring lyfja, þunglyndis og óvirkni. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, er fyrsti flutn- ingsmaður og í fréttatilkynningu seg- ir að að minnsta kosti 21 þingmaður muni flytja frumvarpið með Þor- gerði. Sálfræði- þjónusta færist til SÍ  Nýtt frumvarp

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.