Morgunblaðið - 29.01.2019, Síða 16

Morgunblaðið - 29.01.2019, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2019 Sólóhúsgögn ehf. Gylfaflöt 16-18 112 Reykjavík Sími 553 5200 solohusgogn.is Retro borð Hringlaga eldhúsborð með ryðfríum stálkanti og harðplastlagðri plötu. Stærð og litur að eigin vali. Einnig fáanlegt í ferkantaðri útfærslu. Verð frá kr. 102.700 E60 orginal stóll, verð kr. 32.100 E-60 Bekkur Fáanlegur í mismunandi lengdum. Verð frá kr. 71.200 Íslensk framleiðsla Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Nær öll árleg aukning útgefins reiðufjár Seðlabanka Íslands á árinu 2018 átti sér stað í desembermánuði , samkvæmt upplýsingum frá Stefáni Jóhanni Stefánssyni, ritstjóra á skrifstofu seðlabankastjóra. Aukn- ing reiðufjár í umferð í desember síðastliðnum nam tæpum 4,4 millj- örðum króna, sem er svipað og í desember árið 2017, en þá jókst reiðufé í umferð um tæpa 4,3 millj- arða. Í desember árið 2016 var um minni aukningu að ræða, eða rúma 3,6 milljarða, og í desember árið 2015 jókst reiðufé í umferð um tæp- lega 3,2 milljarða króna í mánuð- inum. „Aðalástæðan fyrir þessu út- streymi í mánuðinum er aukið um- fang í þjóðfélaginu í desember. Stór hluti útstreymis í desember kemur svo að jafnaði til baka í janúar. Það er einnig reyndin nú það sem af er þessum mánuði,“ segir Stefán í sam- tali við Morgunblaðið. Aðeins 375 milljónir hina 11 mánuði ársins Athygli vekur hve lítið reiðufé í umferð jókst fyrstu ellefu mánuði síðasta árs til samanburðar við aukn- inguna í desember, eða aðeins 375 milljónir króna. Það er umtalsverð breyting frá árunum á undan, en árið 2017 jókst reiðufé í umferð um tæp- lega 1,4 milljarða fyrstu ellefu mán- uði ársins, um þrjá milljarða fyrstu 11 mánuði 2016 og 2,5 milljarða árið 2015. Þegar allt er talið saman varð aukningin á milli áranna 2017 og 2018 minni en árin á undan. Í fyrra jókst reiðufé í umferð um tæpa 4,8 milljarða króna, sem er 16% minni aukning á milli ára en árið á undan. Reiðufé í umferð jókst þó um 7% milli ára og voru samtals 72,8 millj- arðar í umferð allt árið í fyrra, samanborið við 68,0 milljarða árið 2017. Ferðamenn ástæða Eins og kom fram í frétt í Morgun- blaðinu síðasta haust eru ferðamenn hluti af ástæðu þess að reiðufé er að aukast en reiðufé meðal Íslendinga hefur einnig aukist. Þegar seðlar og mynt í umferð eru skoðuð í samhengi við verga lands- framleiðslu sést að í nokkuð langan tíma var hlutfallið um 1%, en í kjölfar áfallsins sem íslenskir viðskipta- bankar urðu fyrir í októbermánuði 2008 hækkaði hlutfallið og í lok árs 2017 var það um 2,4%, að því er fram kemur á vef SÍ. Jókst mest í desember  Reiðufé í umferð jókst um 7% á milli ára og var 73 milljarðar í fyrra  Aukning ársins 2018 kom nær öll í desembermánuði  Aukið umfang í þjóðfélaginu Seðlar og mynt í umferð í lok desember 2018 Milljónir króna 68.740.000.000 kr. var heildarverðgildi seðla í umferð 4.033.138.000 kr. var heildarverð-gildi myntar í umferð Heimild: Seðlabanki Íslands 6.000 4.000 2.000 0 3.178 2.539 3.617 3.040 4.295 1.384 4.391 4.766 5.717 6.657 5.679 2015 2016 2017 2018 Aukning fyrstu 11 mánuði ársins Aukning í desember 375 Aukning í reiðufé útgefnu af Seðlabanka Íslands Verðgildi seðla í umferð utan SÍ, milljarðar króna Verðgildi myntar í umferð utan SÍ, milljónir króna 38,9 57% 21,6 31% 0,2 0,3% 584 15% 6,3 9,2% 128 3,2% 2.521 62% 1,7 2,5% 120 3,0% 680 17% skamms á nýjan leik,“ segir Páll Harðarson. Kauphöllin hætti að birta lista yfir tuttugu stærstu hluthafa í skráðum félögum vegna nýrra persónuverndarlaga sem tóku gildi síðasta sumar. Töldu forsvarsmenn Kauphallar- innar að ekki væri ljóst hvort birting hluthafalistans uppfyllti skilyrði nýrra laga um persónu- vernd og hættu því birtingu. Að undanförnu hafa mörg félög kos- ið að birta þessar upplýsingar sjálf. Vonir standa til þess að Kaup- höllin geti á ný birt lista yfir stærstu hluthafa skráðra félaga á heimasíðu sinni. Beiðni þess efnis hefur verið send til Persónu- verndar og búast má við af- greiðslu hennar innan skamms tíma. Þetta segir Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, í sam- tali við Morgunblaðið. „Persónuvernd er með erindi frá okkur til skoðunar og við ger- um okkur vonir um að geta hafið birtingu á þessum yfirlitum innan Vilja birta hluthafalista á nýjan leik  Persónuvernd skoðar erindi þess efnis Morgunblaðið/Árni Sæberg Hluthafalistar Páll vonast til þess að geta birt hluthafalista innan skamms. ● Hlutabréf Arion banka hækkuðu um 3,2% í viðskiptum í Kauphöll Íslands í gær. Var það mesta hækkunin sem sást meðal félaga á aðallista hennar. Námu viðskipti með bréf í bankanum 85 millj- ónum krón. Næst mest var hækkunin með bréf Sjóvár en þau hækkuðu um ríflega 1% í 88 milljóna króna við- skiptum. Skammt á hæla Sjóvár komu svo bréf Icelandair Group sem hækk- uðu um 1,04% í 102 milljóna króna við- skiptum. Mesta lækkun á markaðnum kom fram í viðskiptum með bréf Regins. Þau lækkuðu um 1,79% í 197 milljóna króna viðskiptum. Þá lækkuðu bréf Skeljungs um 1,63% í takmörkuðum viðskiptum upp á 35 milljónir króna. Arion banki hækkar mest í Kauphöllinni 29. janúar 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 119.44 120.02 119.73 Sterlingspund 156.08 156.84 156.46 Kanadadalur 89.57 90.09 89.83 Dönsk króna 18.121 18.227 18.174 Norsk króna 13.939 14.021 13.98 Sænsk króna 13.151 13.229 13.19 Svissn. franki 119.89 120.55 120.22 Japanskt jen 1.087 1.0934 1.0902 SDR 166.15 167.15 166.65 Evra 135.32 136.08 135.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.3707 Hrávöruverð Gull 1282.95 ($/únsa) Ál 1865.5 ($/tonn) LME Hráolía 61.13 ($/fatið) Brent ● Eva Sóley Guð- björnsdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæm,dastjóra fjármálasviðs Ice- landair Group. Hún tekur við stöðunni af Boga Nils Bogasyni, sem ráðinn var for- stjóri félagsins í byrjun desember síðastliðins. Eva Sól- ey kemur til Icelandair frá Advania þar sem hún hefur verið framkvæmdastjóri þjónustu- og rekstrarsviðs frá maímánuði í fyrra. Þar áður var hún framkvæmda- stjóri fjármála- og rekstrarsviðs Advania á Íslandi frá 2015. Eva Sóley er með B.Sc. í hagverkfræði og hagfræði sem aukagrein og M.Sc. í fjármálaverkfræði frá Col- umbia-háskólanum í New York. Tekur við fjármálasviði Icelandair Group Eva Sóley Guðbjörnsdóttir STUTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.