Morgunblaðið - 29.01.2019, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2019
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Síðustu dagar útsölunnar
• Hlýir og vatnsheldir
• Rennilás að framan
• Stamur grófur sóli
skór
verð
0
14.995
38-42
30-70%
afsláttu
r
Útsölu
.
Stærðir
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Frans páfi kvaðst í gær óttast blóðs-
úthellingar í Venesúela vegna valda-
baráttunnar milli Nicolás Maduros,
leiðtoga sósíalistastjórnarinnar, og
Juans Guaidós, leiðtoga stjórnar-
andstöðunnar, sem hefur lýst því yfir
að hann hafi tekið við embætti for-
seta landsins. Páfi hefur ekki tekið
afstöðu til deilunnar þótt kaþólska
kirkjan í Venesúela hafi verið mjög
gagnrýnin á ríkisstjórn sósíalista
vegna efnahagshruns sem hefur leitt
til óðaverðbólgu og mikils skorts á
lífsnauðsynjum.
Guaidó hefur hvatt til allsherjar-
verkfalls í Venesúela á morgun til að
„krefjast þess að herinn taki afstöðu
með þjóðinni“ í deilunni. Hann hvatti
einnig til fjöldafunda á laugardaginn
kemur til að láta í ljós stuðning við
„úrslitakosti“ sex Evrópuríkja sem
kröfðust þess á laugardag að boðað
yrði til forsetakosninga í Venesúela
innan átta daga, ella myndu þau
styðja embættistöku Guaidós.
Vaxandi óánægja í hernum
Herinn hefur stutt stjórn sósíalista
frá því að þeir komust til valda undir
forystu Hugos Chavez fyrir rúmum
20 árum. Þó hafa komið fram vís-
bendingar um vaxandi óánægju með-
al hermanna með sósíalistastjórnina
vegna efnahagshrunsins.
Sósíalistastjórnin hefur einnig not-
ið stuðnings hæstaréttar og yfir-
kjörstjórnar landsins sem hafa hafn-
að kröfu stjórnarandstöðunnar um
að efnt verði til þjóðaratkvæða-
greiðslu um hvort Maduro eigi að
láta af embætti forseta. Stjórnarskrá
landsins heimilar slíka þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
Maduro tók við forsetaembættinu
árið 2013, eftir að Chavez lést, og hélt
embættinu eftir sýndarkosningar í
maí á síðasta ári þegar stjórnar-
andstaðan sniðgekk þær til að mót-
mæla pólitískri kúgun. Sósíalista-
flokkurinn missti meirihluta sinn á
þinginu í janúar 2016 en hæstiréttur
landsins hefur gert löggjafarvald
þingsins óvirkt með því að ógilda lög
þess og Maduro hefur stjórnað land-
inu með forsetatilskipunum.
Juan Guaidó er 35 ára og hefur
verið forseti þingsins frá 5. janúar.
Hann tilkynnti í vikunni sem leið að
hann hefði nýtt ákvæði í stjórnar-
skránni sem heimilar forseta þings-
ins að taka við embætti forseta Vene-
súela ef það er laust og hann
skírskotaði til þess að Maduro var
ekki endurkjörinn með lýðræðis-
legum hætti. Guaidó hét því að
mynda ríkisstjórn til bráðabirgða og
efna til frjálsra og lýðræðislegra
kosninga.
Mörg lönd, þeirra á meðal Banda-
ríkin, hafa lýst yfir stuðningi við
Guaidó í deilunni en Kína, Rússland
og fleiri ríki styðja Maduro.
Norway
Maduro gegn Guaidó í Venesúela
Heimild: AFP
Lönd sem
viðurkenna
Juan Guaidó
sem bráðabirgða-
leiðtoga Venesúela
Lönd sem
viðurkenna
eða styðja
Nicolás Maduro
sem forseta
Hvetja til viðræðna eða kosninga
Mexíkó
Evrópusambandið
Sameinuðu
þjóðirnar
Noregur
Rússland
Tyrkland
Kína
Bandaríkin
Sex Evrópuríki kröfðust þess á laugardag að Maduro
boðaði til kosninga innan átta daga og sögðust ella
ætla að viðurkenna embættistöku Guaidós.
Maduro hafnaði kröfunni
Frakkland
Þýskaland
Portúgal
Bretland
Grikkland
Ísrael
Spánn
Holland
Íran
Norður-Kórea
Paragvæ
Kúba
Bolivía
Kanada
Perú
Chile
Argentína
Úrúgvæ
Kólumbía
Ekvador
Kostaríka
Gvatemala
Hondúras
Brasilía
VENESÚELA
Panama
Níkaragva
Páfi óttast blóðsút-
hellingar í Venesúela
Leiðtogi andstæðinga sósíalista hvetur til verkfalla Noregi. AFP. | Háhyrningum hefur
fjölgað mjög í Norður-Noregi og
er það rakið til þess að aðalfæða
þeirra, síldin, hefur fært sig norð-
ar vegna hlýnunar sjávar.
Ferðaþjónustufyrirtæki hafa notið
góðs af þessu og hvalaskoðunar-
ferðir hafa notið mikilla vinsælda á
svæðinu, meðal annars meðal
áhugakafara. Ekki er óalgengt að
nokkrir bátar með tugi ferða-
manna séu samtímis í sama firð-
inum og að bátar og kafarar séu
aðeins nokkra metra frá háhyrn-
ingum.
„Norsk stjórnvöld stefna að því
að setja reglur sem lagðar hafa
verið til um hvalaskoðunina,“ sagði
Tore Haug, sérfræðingur í sjávar-
spendýrum við Hafrannsókna-
stofnun Noregs í Tromsø. „Hvala-
skoðun er góð leið til að fræða fólk
um dýrin og líf þeirra í höfunum
en of margir hvalaskoðarar geta
valdið vandamálum,“ sagði Pierre
Robert de Latour, sérfræðingur í
háhyrningum. Hann telur að um
1.500 háhyrningar séu við strendur
Norður-Noregs, tvöfalt fleiri en
fyrir tveimur áratugum.
Hann rekur fjölgunina til þess
að síldin hafi fært sig norðar á vet-
urna vegna hlýnunar sjávar.
„Þegar horft er til langs tíma má
gera ráð fyrir því að hún færi sig
enn norðar. Ef síldarstofnarnir
minnka hefur það mjög alvarlegar
afleiðingar fyrir hvali, sjófugla og
þorskinn.“
AFP
Eltir síldina Háhyrningur í firði í Norður-Noregi, nálægt landamærunum
að Rússlandi. Háhyrningum hefur fjölgað mjög á þessum slóðum síðustu ár.
Hvalaskoðun
í sókn í Noregi
Síldin færir sig
norðar og háhyrn-
ingum fjölgar
Veisla Háhyrningur eltir síldar-
torfu í firði nyrst í Noregi.
Atli Steinn Guðmundsson
skrifar frá Ósló
Tíu manna kviðdómur í máli fyrrver-
andi yfirlögregluþjóns í Ósló, Eiriks
Jensens, kvað í gærmorgun upp
þann úrskurð að Jensen skyldi vera
sýkn af hlutdeild í innflutningi á 14
tonnum af hassi sem hann hafði hlot-
ið 21 árs dóm fyrir í Héraðsdómi
Óslóar haustið 2017. Kviðdómur vildi
hins vegar sakfella Jensen fyrir stór-
fellda spillingu þar sem refsiramm-
inn er tíu ár.
Kristel Heyerdahl dómsformaður
tók sér tveggja stunda frest ásamt
meðdómurum sínum til að taka af-
stöðu til úrskurðar kviðdóms og var
niðurstaðan lögð fram klukkan 14 að
norskum tíma, 13 að íslenskum.
Niðurstöðu kviðdóms var þar vikið
til hliðar hvað fíkniefnahlutann
snertir. „Dómurinn telur það hafið
yfir vafa að Jensen er sekur um
fíkniefnabrot og víkur niðurstöðu
kviðdóms til hliðar. Málið verður
rekið á nýjan leik frá grunni.“
Í 659 áfrýjunarmálum frá 2013 til
þessa dags hefur dómari hundsað úr-
skurð kviðdóms 37 sinnum, eða í 5,6
prósentum tilvika, 38 sinnum að
meðtöldum úrskurðinum í gær.
Átján sinnum vék dómari til hliðar
sýknuúrskurði kviðdóms, nú 19 sinn-
um, og 19 sinnum sektarúrskurði.
„Þarna segja þrír löglærðir ein-
staklingar bókstaflega „Þetta kunn-
um við betur en þið,“ og traðka þar
með á valdi þjóðarinnar til að dæma í
málum meðbræðra sinna. Svona
virkar réttarríki ekki sem á að eiga
rætur sínar hjá þjóðinni og vera fyrir
þjóðina,“ sagði John Christian
Elden, verjandi Jensens, við mbl.is í
gær.
Sýknuúrskurði
kviðdóms hafnað
Morgunblaðið/Atli Steinn Guðmundsson
Dæmdur Jensen gengur í sal Hér-
aðsdóms Óslóar í september 2017.
Mál fyrrverandi
yfirlögregluþjóns
verður rekið á ný