Morgunblaðið - 29.01.2019, Side 21

Morgunblaðið - 29.01.2019, Side 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2019 Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is Láttu drauminn rætast. Þegar menn sjá til- efni til að gera viðmæl- endum sínum upp af- stöðu, þá er umræðan farin að snúast um til- finningar. Það virkar stundum. Sérstaklega þegar menn hafa áunnið sér virðingu í störfum sínum og eiga því málefnalega inn- eign. Tómas Ingi Olrich var einn tólf þingmanna sem stóðu bæði að setn- ingu laga um að meginmál EES- samningsins skyldi hafa lagagildi hér á landi árið 1993 og um innleið- ingu frelsis í raforkuviðskiptum árið 2003. Það er því eðlilegt að hlustað sé, þegar hann mælir. Það hryggir mig því að Tómas Ingi Olrich hafi í grein sinni í þessu blaði þann 23. janúar sl. séð tilefni til að gera mig að sérstökum Evrópu- sambandssinna, þegar hann á að vita betur. Hryggir mig meira en að hann hafi í reynd sagt mig latan eða í það minnsta verklausan. Tómas Ingi tekur útgangspunkt í orðum mínum í grein sem birtist í Bændablaðinu um garðyrkjubænd- ur og „fjórða“ orkupakka Evrópu- sambandsins. Nú er ekki víst að lesendur Morgunblaðsins hafi lesið Bænda- blaðið. Í grein minni sagði: Ég hygg að vetrarpakkinn svokallaði, sem einnig er kallaður hreini orkupakk- inn og er í raun fjórði orkupakki Evrópusambandsins, komi með vísa að reglum sem henti garðyrkju- bændum. Geri kröfur til dreifiveitna vegna þeirrar þróunar að sam- blöndun hugtakanna neytandi og framleiðandi er orðin að veruleika með nýju hugtaki, sem er á ensku: producer + consumer = prosumer. Geri ráð fyrir smáum orku- samfélögum. Nái utan um tækninýj- ungar um geymslu rafmagns. Sú byltingarkennda þróun sem virðist yfirvofandi í orkumálum felur í sér tækifæri. Evrópa er í forystu þess- arar þróunar. Forystuhlutverk Evr- ópu er afleiðing af þeirri þróun sem orðið hefur í regluverki Evrópu í orkumálum síðustu áratugina. Ég tel líklegt að fyrir garðyrkjubændur og landeigendur almennt, sé yfirvof- andi þróun Evrópuréttarins í orku- málum tækifæri miklu frekar en ógnun. Þeir hafi því sérstaklega mikla hagsmuni af málefnalegri um- ræðu um þessi mál. Með þessu var hvatt til málefna- legrar umræðu og kannast ég ekki við að hafa setið aðgerðarlaus á bið- stofunni í þeim efnum. Kom meðal annars að stofnun ÁORKU, félags lögfræðinga með áhuga á orkurétti, á síðasta ári og gegni nú formennsku í því félagi. Tilgangur félagsins er m.a. að efla málefnalega umræðu um orkurétt. Þar er af mörgu að taka. Þriðji orkupakkinn er bara eitt þeirra atriða. Það er erfitt að sitja hjá, þegar ítrekað er logið upp á hann og hann sagður snúast um eitt- hvað allt annað en hann gerir í reynd. Þess vegna steig ég fram í þessa umræðu með skrifum í Bændablaðið. En aftur að málefninu. Ef hafna á þriðja orkupakkanum, gerum það þá vegna raunverulegs hagsmunamats. Í umræðum á Alþingi 1992-93 rök- studdi Tómas Ingi lögfestingu EES- samningsins með því að hann teldi ávinninginn meiri en ágallana. Þá fór fram valdframsal sem svo sann- anlega reyndi á stjórnarskrá okkar. Síðan þá hefur nokkrum sinnum far- ið fram valdframsal sem teygir enn frekar á stjórnarskrá okkar, s.s. í tengslum við Schengen-samkomu- lagið, lögfestingu núgildandi sam- keppnislaga árið 2005, þátttöku okk- ar í Flugöryggisstofnun Evrópu árið 2011, innleiðingu reglna um fjár- málamarkaðinn árið 2012 og við inn- leiðingu persónu- verndarlöggjafarinnar árið 2018. Er þetta óheillaþróun eða óhjá- kvæmileg afleiðing þess að vera þátttakandi í samfélagi þjóðanna? Sú umræða er mikilvæg. Tökum hana. Slík umræða hefur vissulega eitthvað með orkumál að gera, enda eru þau hluti af EES- samningnum. En það er ómálefnalegt að spila á tilfinningar þjóðarinnar til orkuauðlinda sinna og gera þriðja orkupakkann að vopni í þeirri umræðu. Það sjáum við þeg- ar við gefum okkur tíma til að íhuga hvað raunverulega felst í þriðja orkupakkanum. Í honum er einkum verið að breyta reglum um eftirfarandi at- riði: 1) sjálfstæði landsbundinna eftirlitsaðila (Orkustofnun), 2) eft- irlit með raforkuflutningi milli landa (ACER/ESA), 3) uppskiptingu raf- orkufyrirtækja (og Ísland hefur samið sig frá þeim kröfum), 4) val- kosti við kröfuna um sjálfstæð flutn- ingsfyrirtæki raforku, sem ekki eiga við á Íslandi. Ef andstaða við þriðja orkupakk- ann snýst í reynd um að vinda ofan af ákvörðunum sem teknar voru við innleiðingu fyrsta orkupakkans árið 2003, viðurkennum það þá. Eins og fram kemur í frumvarpi er varð að raforkulögum árið 2003, þá byggðist frumvarpið á tilskipun Evrópusam- bandsins og vinnu stjórnvalda frá 1996. Á árinu 1998 var samþykkt þingsályktunartillaga um framtíðar- skipan orkumála (122. löggjafar- þing) þar sem Alþingi fól iðnaðar- ráðherra að ráðast í vinnu með það að markmiði taka upp að evrópskri fyrirmynd markaðsumhverfi á sviði raforkuviðskipta. Það var vandað til verks og meðvitað verið að innleiða frelsi í viðskiptum með raforku. Lögfesting eða höfnun þriðja orku- pakkans mun engu breyta um þá stöðu. Við búum við þetta frelsi hvernig sem þriðja orkupakkanum reiðir af. Úr biðstofu 2009 gerðanna liggja nokkrar leiðir. Sumar troðnar, aðrar ekki. Sjálfstæði og fullveldi snúast um að geta tekið ákvörðun sem hentar okkar hagsmunum best. Tökum ákvörðun á grundvelli stað- reynda og hagsmunamats. Ræðum málefnin. Ekki fólkið. Snýst málið um þriðja orkupakkann? Eftir Hilmar Gunnlaugsson Hilmar Gunnlaugsson » Lögfesting eða höfn- un þriðja orkupakk- ans mun engu breyta um þá stöðu. Við búum við þetta frelsi hvernig sem þriðja orkupakk- anum reiðir af. Höfundur er lögmaður og LLM í orkurétti. Mikil umræða hefur átt sér stað um málefni hjúkrunarheimila undanfarin ár og færist sífellt í aukana. Upp úr stendur viðvarandi skortur á hjúkrunar- rýmum og hins vegar fjölþættur vandi sem af því leiðir, en einnig fjárhagslegur rekstrar- vandi þeirra heimila sem starfandi eru. Ráðandi stjórn- völd á hverjum tíma bera við skorti á hjúkrunarrýmum; mjög sérkennilegt vandamál því fjölgun þeirra er al- gjörlega undir sömu stjórnvöldum komin. Ekki hjálpar að stjórnvöld virðast sjá það sem vanda einhvern tíma í framtíðinni að öldruðum fjölgi umfram aðra aldurshópa. En sú framtíð er núna. Það má best marka á því að þrátt fyrir þá fjölgun hjúkr- unarrýma sem þó hefur orðið hafa biðlistarnir ekki tæmst nema síður sé. Það á fullkomlega við um Brákarhlíð í Borgarnesi. Brákarhlíð (DAB) var upphaflega byggt sem dvalarheimili og heim- ilisfólk alls 55 þegar flest var enda gert ráð fyrir tvíbýli í sumum her- bergjanna sem þó voru lítil. Fyrir réttum 30 árum voru fyrstu hjúkr- unarrýmin þar samþykkt, 12 alls, sem komu í stað jafn margra dvalarrýma. Þarna var eingöngu um að ræða við- urkenningu á þeirri staðreynd að margt heimilisfólk var í brýnni þörf fyrir hjúkrunarþjónustu og naut hennar við erfiðar aðstæður því hús- næðið sjálft var hið sama. Það gat ekki gengið til lengdar en samt og þrátt fyrir ítrekaða eftirgangsmuni stjórnenda dvalarheimilisins liðu tutt- ugu ár þar til heimild fékkst til ný- framkvæmda og þá skv. svokallaðri leiguleið. Eigi að síður fjölgaði hjúkrunarrýmum nokkuð á þessu tímabili á kostnað dvalarrýma en eftir sem áður við alls óviðunandi að- stæður. Satt bezt að segja er þetta ekki falleg lesning þegar horft er til baka en mestu réð gott og hæft starfs- fólk um að allt lánaðist. Svo kom að því fyrir tæpum fimm árum að tekin var í notk- un ný álma búin 33 full- komnum hjúkrunar- rýmum og í kjölfarið fylgdu breytingar og endurbætur á eldra hús- næðinu. Þannig eru nú alls yfir fimmtíu íbúð- arrými í Brákarhlíð sem öll uppfylla skilyrði hjúkrunarrýma. Þar af eru 17 rekin sem dvalar- rými og 35 sem hjúkr- unarrými. Tvö rými hafa nú á annað ár verið nýtt sem biðrými tímabundið í þágu bráðabirgðalausnar svonefnds fráflæðisvanda Landspít- alans. Stjórnendur Brákarhlíðar hafa ítrekað leitað eftir því við stjórnvöld að fá þessi rými samþykkt varanlega og að fjölga hjúkrunarrýmum á kostn- að dvalarrýma en án árangurs. Stjórn- völd bjóða hins vegar eitt hjúkrunar- rými á móti hverjum tveimur dvalar- rýmum. Með öðrum orðum: að loka jafnframt einu dvalarrými á móti hverju hjúkrunarrými sem yrði sam- þykkt. Svona lagað „meikar ekki sens“, sagt á nútíma gullaldaríslensku. Að leggja það til að loka íbúðarrýmum sem uppfylla öll skilyrði hjúkrunar- rýma, já láta þau standa auð, er eins og að menn hafi ekki heyrt ákall sam- félagsins eftir úrræðum fyrir þá ein- staklinga sem eru í brýnni þörf fyrir sólarhringsumönnun á sínum efstu dögum. Stjórn Brákarhlíðar hefur ekki og mun ekki ganga að slíkum til- boðum. Rétt er að minna á í þessu samhengi að kostnaðarauki Sjúkra- trygginga Íslands við að gera hvert dvalarrými sem þegar er fyrir hendi að hjúkrunarrými er aðeins rúmlega helmingur þess sem það kostar að reka nýtt rými í nýju húsnæði og framkvæmdakostnaður enginn. Stjórnendur Brákarhlíðar telja að vísu nauðsynlegt að heimilið hafi upp á nokkur dvalarrými að bjóða en þau séu óþarflega mörg við núverandi að- stæður. Þeim mætti fækka til muna og samþykkja sem hjúkrunarrými í staðinn. Með því að leggja eitt dvalar- rými á móti hverju hjúkrunarrými sem samþykkt væri má fjölga þeim síðarnefndu um 8-10 í Brákarhlíð Og Brákarhlíð býr yfir fleiri mögu- leikum. Í nýju álmunni eru nokkur vannýtt sameiginleg rými. Þau eru þannig tilkomin að þegar nýja álman var byggð var það sögð afdráttarlaus stefna stjórnvalda að heildarrými fyrir hvern heimilismann á hjúkr- unarheimilum skyldi vera 75 m2, þar af u.þ.b. helmingur einkarými. Nú hefur þetta heildarrýmisviðmið verið lækkað í 65 m2. Það skapar svigrúm til fjölgunar hjúkrunarrýma í nýju álmunni um fjögur með nokkurra vikna fyrirvara. Fyrir Brákarhlíð væri það sanngirnismál að orðið yrði við ósk um þá breytingu sem hér er nefnd í ljósi lækkaðs viðmiðs stjórn- valda um heildarrými fyrir hvern heimilismann. Nú miða Sjúkratrygg- ingar húsnæðisframlagið við lægra viðmiðið og taka því engan þátt í kostnaði við þá 10 m2 sem út af standa fyrir hvert rými. Hér hefur verið vakin athygli á möguleikum til fjölgunar hjúkrunar- rýma í Brákarhlíð um ein 10-14 rými með skjótum hætti og ýmist með eng- um eða litlum stofnkostnaði. Það virðist ekki ná eyrum þeirra sem eiga að heyra. Um það vitnar nýlegt svar heilbrigðisráðuneytisins við tveggja ára gömlu erindi stjórnar Brákar- hlíðar. Að beita því sem rökum að ekki séu biðlistar eftir hjúkrunar- rýmum í fjarlægum héruðum eru léttvæg rök gegn því að verða við óskum um fjölgun hjúkrunarrýma í Brákarhlíð þar sem eru viðvarandi biðlistar. Sama má segja um það að beita fyrir sig fjárskorti. Ef það eru heilindi að baki fyrirheitum um fjölg- un hjúkrunarrýma í hundraðavís er óhjákvæmilegt að gera ráð fyrir rekstrarfé til þeirra. Hjúkrunarrýmaskorturinn og sérstakar myndir hans Eftir Jón G. Guðbjörnsson » Að loka íbúðar- rýmum sem uppfylla öll skilyrði hjúkrunar- rýma, já láta þau standa auð, er eins og að menn hafi ekki heyrt ákall samfélagsins … Jón G. Guðbjörnsson Höfundur er formaður stjórnar Brákarhlíðar í Borgarnesi. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.