Morgunblaðið - 29.01.2019, Side 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2019
NÝTT – Veggklæðning
Rauvisio Crystal
• Mikið úrval lita og áferða
• Auðvelt í uppsetningu og umgegni
• Framleiðum eftir óskum hvers og eins
• Hentar fyrir heimili, vinnustaði og almenningssvæði
Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987.
Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Í dag gætir þú fengið skemmtilega
gjöf eða fé sem kemur sér vel. Orðspor
þitt er samt mikilvægara en peningar í
banka.
20. apríl - 20. maí
Naut Að bíða eftir og hlakka til léttir lund-
ina. Líttu á broslegu hliðarnar á tilverunni
og brettu upp ermarnar til athafna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Peningum sem þú eyðir í dag til
að fegra heimilið er vel varið. Vertu
óhræddur við að leita svara, jafnvel þótt
þú vitir að einhver þeirra séu ekki eins og
þú hefðir kosið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert einstaklega frjó/r í hugsun
í dag. Ekki taka mikilvægar ákvarðanir á
meðan þú ert uppfull/ur af reiði.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Rifrildi við maka og fjölskyldumeðlimi
eru líkleg í dag. Þú gleðst yfir góðum
fréttum af ættingja. Losaðu þig við óþarfa
hluti.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur mun meiri áhrif á um-
hverfi þitt en þú sjálf/ur heldur. Þú átt
nóg af samúð fyrir alla þá sem til þín
leita. Gamall vinur mun leita ráða hjá þér í
viðkvæmu máli.
23. sept. - 22. okt.
Vog Skiptu þér ekki af öðrum í of miklum
mæli og reyndu ekki að bjarga heiminum.
Þér finnst of mikill hægagangur á ýmsu
en ekki þrýsta um of á fólk.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Skilaboð sem þér berast
kunna að reynast áhrifamikil ef þú
ákveður að fara eftir þeim. Axlaðu ábyrgð
í vissu máli.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vináttan er peningum mikil-
vægari. Þú átt alltaf síðasta orðið í öllum
rimmum. Værir þú til í að breyta því?
Mundu að enginn er fullkominn, ekki einu
sinni þú.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er áhugamál hjá þér að
vera ávallt á réttum tíma. Læstu veskið
niður og krítarkortin með og náðu ekki í
þau aftur hvað sem tautar og raular.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þeir sem valdið hafa virðast
eitthvað viðkvæmir í samskiptum í dag. Þú
hefur ekki roð við unga fólkinu.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú munt hugsanlega játa ein-
hverjum ást þína í dag. Ekki setja aðra á
stall, fallið af honum verður þér svo sárt.
Barnabörnum fjölgar á árinu.
Guðmundur Arnfinnsson yrkirá Boðnarmiði:
Á Klaustri einn kátur legáti
og klámfenginn saup á mungáti,
hann fékk sér einn, tvo
og fjölmarga svo
loks fullur hann sprakk í Blakkáti.
Skemmtileg orðaskipti voru á
Boðnarmiði nú um helgina vegna
öldrykkju á Klausturbar og hóf-
ust með því að Indriði á Skjald-
fönn rifjaði upp vísu sem Jóhann
bróðir hans kenndi honum en Jó-
hann var í Bændaskólanum á
Hvanneyri 1965-1967. Nokkrir
Skagfirðingar voru þar við nám
og slösuðu tveir þeirra sig þar
við smíðar. Um það orti Bragi
Húnfjörð Kárason eftirfarandi
vísu:
Hefluðu á sér beinin ber,
báðir af því státa.
Skagfirðingar skemmta sér
á skelfilegan máta.
Indriði spurði síðan hvort ekki
gæti verið að Gunnar Bragi væri
eitthvað skyldur þessum Hvann-
eyringum.
Ofstuðlun kom einnig til um-
ræðu. Dagbjartur Dagbjartsson
rifjaði upp stöku sem Einar á
Reykjarhóli orti:
Féll um hnjóta hjörð úr hor
hún ei fóta gáði.
Þetta ljóta lambskinnsvor
loksins þrjóta náði.
Dagbjartur lét þess síðan getið
að lambskinn voru þá í einhverju
verði – hann vissi ekki hverju en
munaði um allt í harðindum. Þá
var ort (Jónas í Hróarsdal?):
Ég er frá og ekkert veit
óðarskrá að hnuðla
þó þeir fái framm í sveit
fjögur H í stuðla.
Sigurlín Hermannsdóttir segir
frá því á fésbók að móðir sín hafi
farið með þessa hugljúfu vísu fyr-
ir sig í den. Sér finnist hún passa
ágætlega í byrjun þorra og spyr
hvort nokkur viti um höfundinn:
Sittu, stattu, sértu og vertu í sýrukeri
undir þér og yfir veri
úldin húð af grárri meri.
Víst vildu margir geta tekið
undir með Pétri Stefánssyni
þegar hann segir:
Ég er léttur, lundin góð,
ljóð og glettur rita.
Í mig skvetti, elsku fljóð,
allir þetta vita,
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Enn af klaustri
og um ofstuðlun
„Bíllinn er gjörónýtur. hvernig á
ég aÐ komast heim?”
„hann vill fá þessa bók um galdra.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að fljúga í snatri
til hennar þegar hún
biður.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞETTA REYNIR
MJÖG MIKIÐ Á
EÐA, KANNSKI EKKI
MJÖG MIKIÐ
BARA NÓGU
MIKIÐ
VEIDDIRÐU
EITTHVAÐ Í
KVÖLDMATINN?
NEI!
ÉG GAT ÞAÐ
EKKI! ÞAÐ ER
SVO MISK-
UNNAR LAUST!!
HVAÐ MEINARÐU! MENN
HAFA VEITT FISK FRÁ
ÓMUNATÍÐ!
MÁ VEL VERA, EN ÉG VINGAÐIST
VI Ð ÁNAMAÐKANA!
Það leynist ýmislegt á alnetinu ogsjálfsagt misgáfulegt eins og
gengur. Víkverja rak í rogastans um
helgina þegar hann var að lesa sér til
um hinn fornfræga klúbb í enska
boltanum, Arsenal. Liðið leikur
heimaleiki sína á Emirates-vellinum í
Lundúnum og á wikipedia-síðu
vallarins má lesa að hann tekur
60.260 í sæti. Á sömu síðu var stað-
hæft að eigandi vallarins væri Jesse
nokkur Lingard. Víkverji vissi ekki
betur en sá hefði í sig og á með knatt-
sparki norður í landi, nánar tiltekið
hjá Manchester United. Jú, það stóð
heima. Í ljós kemur að hér var bara
um að ræða sprell einhverra net-
verja. Lingard á ekkert í vellinum
sjálfum en frammistaða hans í leik
Arsenal og Manchester United á
téðum velli á föstudagskvöld ku hafa
verið með þeim hætti að viðkomandi
töldu hann geta gert tilkall til vallar-
ins.
x x x
Sama hversu ánægjulegur sigurnorðanmanna í höfuðstaðnum
var þá gekk nú eitt og annað á í öðr-
um bikarleikjum um helgina. Ever-
ton tapaði fyrir Millwall og Totten-
ham-menn voru sendir í kalda sturtu
af Roy Hodgson og Crystal Palace.
Um helgina mátti einnig sjá dæmi
þess hvernig nútímafótbolti virkar.
Chelsea mætti liði Sheffield Wednes-
day, sem er neðarlega í næstefstu
deild. Í lið Wednesday vantaði mið-
vörðinn Michael Hector, en hann
mátti ekki spila þar eð hann er í láni
frá Chelsea. Hector hefur aldrei spil-
að eina einustu mínútu fyrir Chelsea
og mun sjálfsagt aldrei gera það.
Hann er orðinn 26 ára og lánssamn-
ingurinn við Wednesday er sá fimm-
tándi sem hann gerir á ferlinum.
Þátttaka hans hefði að líkindum ekki
breytt miklu fyrir úrslitin en þar eð
Hector er fastamaður í liðinu er galið
að hann hafi ekki mátt spila. Þess má
geta að Chelsea á núna 42 leikmenn
sem eru í láni hjá öðrum liðum.
x x x
Það er margt furðulegt í þessariveröld. Nú heitir til að mynda
veðurspá frá Veðurstofu Íslands ekki
lengur veðurspá heldur hugleiðingar
veðurfræðings. vikverji@mbl.is
Víkverji
Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því
að hann hefur vitjað lýðs síns og búið
honum lausn.
(Lúk: 1.68)