Morgunblaðið - 29.01.2019, Side 33

Morgunblaðið - 29.01.2019, Side 33
AF LISTUM Nína Hjálmarsdóttir ninahjalmars@gmail.com Gjörningurinn Mengi Takeover: Konulandslag fór fram síðastliðið föstudagskvöld í listarýminu Mengi og var hann hluti af gjörningaröð rannsóknarverkefnis Önnu Kol- finnu Kuran. Anna er menntaður dansari en það var í meistaranámi hennar í performansfræðum við New York-háskóla sem hugmyndin að Konulandslagi kviknaði og hefur verkefnið tekið á sig ýmis form síð- an með mismunandi gjörningum. Með verkefninu spyr Anna spurn- inga um kvenlíkamann og rými, hvar er rými fyrir konur og hvar þurfa þær að gera innrás til að fá pláss? Rannsóknir sýna að konur eru félagsmótaðar til að taka minna pláss en karlmenn í almennings- rými, líkamlega og andlega. Sem dæmi þá víkja þær frekar undan karlmönnum á troðnum gang- stéttum. Lokaverk Önnu í skól- anum tengist þessu, en það fólst í því að hún fékk hóp af ólíkum kon- um til að mynda fylkingu úti á breiðgötu og ganga síðan hægt og þétt saman eftir götunni. Gjörning- urinn var síðan endurtekinn á göt- um Rio de Janeiro í Brasilíu. Hug- myndin um hvernig konur skapa sér pláss í almannarými vekur áhugaverðar spurningar. Minnti á upphafinn englakór Í Mengi á föstudaginn kom fram hópur kvenna á öllum aldri, en þó í meirihluta ungir dansarar. Þær voru klæddar í rautt, sem kall- ar fram tengsl við blóð, blæðingar, eld, reiði, byltingu, Rauðahafið, o.s.frv. Gjörningurinn fór þannig fram að konurnar leiddu áhorf- endur með sér í eins konar hug- leiðsluathöfn með seiðandi söng sem magnaðist í gegnum verkið. Í fyrstu minnir söngurinn á upphaf- inn englakór en þegar á líður vekur hann hjá manni nostalgíu eða sökn- uð, eins og um sé að ræða bergmál úr fortíðinni. Þar sem konurnar ganga á milli áhorfenda eru þær blíðar og kurteisar gagnvart okkur áhorfendum, og minna á sírenur Ódysseifskviðu, fljótandi um rýmið með dreymandi augnaráð. Afstaða þeirra er þannig fremur óræð, per- sónuleikalaus, sem skapar tilfinn- ingu fyrir heild og samstöðu þeirra á milli. Allt tempóið í gjörningnum er hægt og flæðið samfellt frá upphafi til enda, kærkomin tilbreyting í heimi hraða og áreitis. Í athöfn sem þessari skapast tími til að spyrja sig ótal spurninga: hvernig eru þær að taka pláss núna, voru áhorfendur ekki þegar búnir að gefa þeim plássið með því að mæta á gjörning- inn – og í ljósi fyrri verka Önnu Kolfinnu vaknar sterkt spurningin um hvernig áhrifin núna í lokuðu listarými eru öðruvísi en þau væru í almenningsrými á götu í stórborg. Óður til samstöðu kvenna Í umfjöllun um verkið kemur fram að bak við það búi hugmyndin um samstöðu og systraást. Í því samhengi vakna enn fleiri spurningar: hvað þýðir það að leika hlutverkið „kona“, eða að vera tákn fyrir „systur“, undir því yfirskini að þær eigi að þurfa að taka pláss, hvað eru konurnar að líkamna með því að búa til svona persónuleika- lausa heild, er systraheild kannski enn önnur staðalímynd yfir konur, – og ekki síst: ef flytjendur og áhorfendur upplifa valdeflingu kvenna, hvers vegna? Það er magnað hvað tiltölulega einföld athöfn eins og hér um ræðir nær að vekja margar spurningar. Kannski er það einmitt ætlunar- verk höfundar að með fagurri nær- veru og blíðum söng, sem oft er tengt við „hið kvenlæga“, myndu flytjendurnir valdeflast í rýminu. Í staðinn fyrir að leita í „aggressjon“ sé hægt að endurheimta hið blíða, og notfæra sem kraft til breytinga. Konulandslag er óður til samstöðu kvenna, og óður til femínisma og byltinga, og fjallar um efni sem er samfélaginu öllu afar hugleikið á þessum tímum, eins og á fyrri tím- um og í framtíðinni. Konur sem taka pláss » Það er magnaðhvað tiltölulega ein- föld athöfn eins og hér um ræðir nær að vekja margar spurningar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gjörningurinn Konurnar sem komu fram í verki Önnu Kolfinnu Kuran voru „klæddar í rautt, sem kallar fram tengsl við blóð, blæðingar, eld, reiði, byltingu, Rauðahafið, o.s.frv.“ skrifar dansrýnir Morgunblaðsins. MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 2019 ICQC 2018-20 Ofurhetjumyndin Black Panther, Svarti pardusinn, hlaut aðal- verðlaun SAG, samtaka leikara í kvikmyndum og sjónvarpi í Banda- ríkjunum, um nýliðna helgi. Hlaut myndin verðlaun fyrir besta hóp leikara í kvikmynd, sem þykir jafn- ast á við verðlaun fyrir bestu kvik- mynd á öðrum verðlaunahátíðum. Myndin hlaut einnig verðlaun fyrir bestan hóp áhættuleikara. Enska leikkonan Emily Blunt hlaut verðlaun fyrir leik sinn í A Quiet Place, sem besta leikkona í aukahlutverki, þótt hún sé í einu af aðalhlutverkum kvikmyndarinnar, en líklega var hún sett í þann flokk þar sem hún var tilnefnd fyrir best- an leik í aðalhlutverki fyrir Mary Poppins Returns. Hún hlaut þau verðlaun hins vegar ekki, heldur Glenn Close fyrir The Wife. Á vef breska ríkisútvarpsins, BBC, segir að verðlaunin hafi breytt stöðunni hvað Óskarsverðlaunin varðar því nú eigi Black Panther virkilega möguleika á að hljóta verð- laun sem besta kvikmyndin. Af öðrum verðlaun SAG eru þau helst að Rami Malek var valinn besti leikari í aðalhlutverki fyrir leik sinn í Bohemian Rhapsody og Ma- hershala Ali hlaut verðlaun sem besti leikari í aukahlutverki fyrir Green Book, þótt hann sé í öðru tveggja aðalhlutverka þeirrar myndar. Besti leikarahópur dramatískrar þáttaraðar var sá sem leikur í This Is Us og í gamanþáttaflokki leikar- arnir í The Marvellous Mrs Maisel. Besti leikari í dramaþáttum varð Jason Bateman fyrir Ozark og besta leikkona Sandra Oh fyrir Killing Eve. Þá hlaut Patricia Arquette verðlaun fyrir Escape at Danne- mora í flokki stuttra þáttaraða og Darren Criss fyrir The Assassin- ation of Gianni Versace. Svarti pardusinn sig- ursæll á SAG-hátíð  Leikarar verðlauna kollega sína AFP Glaður Chadwick Boseman, sá sem leikur Svarta pardusinn, þakkar fyrir sig og sína á SAG-verðlaunum. Heiti virtustu bókmenntaverð- launa sem veitt eru í Bretlandi ár hvert, Man Booker-verð- launanna, mun breytast eftir að stjórnendur Man-fjárfest- ingarsjóðsins ákváðu að hætta að styrkja verðlaunin. Sjóðurinn hefur styrkt framkvæmdina og greitt verðlaunaféð undanfarin 18 ár og þann tíma hefur heiti fyrir- tækisins verið í heiti verðlaunanna. Í The Guardian er haft eftir tals- manni The Booker Prize-stofnunar- innar að viðræður séu þegar hafnar við vænlegan styrktaraðila fyrir næsta ár en áður verði að venju veitt hin hefðbundnu Booker- verðlaun – fyrir höfunda sem skrifa á ensku og einnig hin alþjóðlegu Booker-verðlaun – í síðasta sinn með Man-forskeytinu. Man fer af Booker- verðlaununum Anna Burns hreppti „Bookerinn“ í fyrra. Aðeins viku fyrir frumsýningu Óp- erunnar í Malmö á Hollendingnum fljúgandi eftir Wagner hurfu hljómsveitarnót- urnar sporlaust þegar verið var að flytja þær milli staða á hjóli. Frá þessu er greint á vef sænska ríkis- útvarpsins. Torgny Nilsson, tals- maður óperunnar, vísar því á bug að frumsýningin sé í hættu þrátt fyrir að sex mánaða vinna liggi í glötuðu nótunum í formi fyrirmæla um túlk- unarleiðir og styrkleikabreytingar. „Við þurfum að hafa hraðar hendur við að útvega nýjar nótur og margir munu þurfa að leggja hart að sér til að þetta náist.“ Hurfu sporlaust Richard Wagner

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.