Morgunblaðið - 29.01.2019, Page 36

Morgunblaðið - 29.01.2019, Page 36
Helga Rós Indr- iðadóttir sópran og Bjarni Frí- mann Bjarnason píanóleikari koma fram á fyrstu Kúnst- pásu-tónleikum Íslensku óper- unnar í Norður- ljósum í dag kl. 12.15. Helga Rós flytur aríur úr óp- erum eftir Wagner og Verdi. Helga Rós þreytti frumraun sína hjá Ís- lensku óperunni 2014 í hlutverki El- isabettu í Don Carlo. Hún á að baki farsælan feril við óperuhúsið í Stutt- gart, þar sem hún fór með fjölmörg hlutverk auk þess sem hún var gesta- söngvari við óperuhúsin í m.a. Bonn og Wiesbaden. Aðgangur er ókeypis. Helga Rós og Bjarni Frímann á Kúnstpásu ÞRIÐJUDAGUR 29. JANÚAR 29. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr. Þórsarar frá Þorlákshöfn eiga tvo fulltrúa í liði mánaðarins í Dom- inos-deild karla í körfuknattleik í Morgunblaðinu. Kinu Rochford var geysilega öflugur og hefur tekið flest fráköst allra í deildinni. Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Þórs, segir í samtali við blaðið að Rochford hafi gott nef fyrir fráköstum og sé með langa handleggi. »2-3 Rochford hefur gott nef fyrir fráköstum ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Kári Jónsson, landsliðsmaður í körfuknattleik úr Hafnarfirði, er í góðum höndum hjá stórliði Barce- lona þar sem hann er í endurhæf- ingu eftir aðgerðir á báðum fótum í lok nóvember. Kári segist í sam- tali við Morgun- blaðið vera á réttri leið, en gert var ráð fyrir að þrjá mánuði tæki, hið minnsta, að komast aftur inn á völlinn. „Ég er nú kominn á það stig að geta hlaupið og fæ að skjóta aðeins á körf- una,“ segir Kári meðal annars. »1 Kári Jónsson í góðum höndum í Katalóníu Kaupmannahöfn 2003 og sá engan annan en hann með 50.000 manns fyrir aftan mig. Tveimur dögum seinna voru aðrir tónleikar í Globen í Stokkhólmi, ég sat framarlega og eftir tvö eða þrjú lög gaf hann sér tíma til þess að heilsa mér. Eftir það hef ég gætt þess að vera alltaf fremstur og hann heilsar mér í hvert sinn sem hann gengur inn á sviðið.“ Á tónleikum 2004 fékk Davíð eiginhandaráritun frá listamann- inum. „Hann gaf eina eiginhandar- áritun og ég fékk hana,“ segir hann stoltur. Bætir við að hann hafi líka fengið Paul til þess að syngja óskalag, „Ram On“, á tón- leikum í Antwerpen 2012. „Hann er ekki vanur að flytja óskalög en sagðist gera það fyrir mig.“ Davíð hefur einu sinni hitt Paul McCartney. „Ég var á gangi rétt hjá heimili hans í London, þegar ég mætti honum með syni sínum. Ég heilsaði honum og fékk að faðma hann, en vildi ekki vera uppáþrengjandi.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Tónlistarmaðurinn Paul McCart- ney fer í tónleikaför til Ameríku í lok mars, byrjar í Chile og endar í Los Angeles 13. júlí. „Ég verð hugsanlega í Bandaríkjunum, þeg- ar tónleikarnir verða þar, og reyni að fá miða á tvenna eða þrenna tónleika en annars bíð ég bara eft- ir næsta túr í Evrópu,“ segir Davíð Steingrímsson, sem hefur farið á 52 tónleika með goðinu, síðast í Glasgow í Skotlandi 13. desember síðastliðinn. „Áhuginn á Bítlunum er með- fæddur og sérstaklega á Paul,“ heldur Davíð áfram. Hann segir að þegar hann hafi verið sjö ára hafi hann farið akandi með föður sínum norður í land. „Hann spilaði Venus and Mars, nýútkomna plötu með Wings, alla leiðina fram og til baka og eftir það varð ekki aftur snúið. Ég féll algerlega fyrir hljómsveit- inni og Paul, byrjaði að kaupa plöt- urnar og smátt og smátt tengdist ég Bítlunum.“ Áhugi Davíðs á tónlist Pauls hef- ur haldist óslitinn frá 1975. Hann segist alltaf bíða spenntur eftir hverri nýrri plötu enda leggi mað- urinn sig alltaf vel fram. „Til að byrja með var „Let It Be“ lagið en sennilega er „Maybe I’m Amazed“ besta tónleikalagið hans.“ Fyrst í Bandaríkjunum Davíð, sem rak skemmtistaðinn Obladi Oblada á Frakkastíg en er nú með bar á Benidorm á Spáni, fór fyrst á tónleika með Paul McCartney í Staples Center í Los Angeles 2002. „Ég hafði búið í Bandaríkjunum í nokkur ár og unnið við golfkennslu og fleira, en áður en við fluttum heim fór ég á þessa tónleika og hvílík upplifun! Þetta var miklu meira en ég hafði búist við og því hélt ég áfram að sækja tónleika með Paul.“ Ekki leið á löngu þar til Davíð komst nánast í snertingu við tón- listarmanninn frá Liverpool. „Ég var fremst við sviðið á Parken í Hefur farið á 52 tónleika með goðinu  Davíð Steingrímsson hefur elt Paul McCartney frá 2002 Á tónleikum Davíð Steingrímsson fylgist vel með Paul McCartney. BORGHESE model 2826 L 220 cm Leður ct. 15 Verð 489.000,- Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla SAVOY model V458 L 223 cm Áklæði ct. 70 Verð 305.000,- L 223 cm Leður ct. 10 Verð 435.000,- ESTRO model 3042 L 164 cm Leður ct. 15 Verð 325.000,- L 198 cm Leður ct. 15 Verð 355.000,- RELEVE model 2572 L 250 cm Áklæði ct. 70 Verð 315.000,- L 250 cm Leður ct. 15 Verð 459.000,- MENTORE model 3052 L 162 cm Áklæði ct. 83 Verð 335.000,- L 201 cm Áklæði ct. 83 Verð 365.000,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.