Morgunblaðið - 17.01.2019, Qupperneq 1
VILL UPPGÖTVA NÝJAVINKLAAUKNAR KRÖFUR GERÐAR
kór frá Nike sem stækka og minnka eftir þörfum 4
Hlutfallslegur vöxtur fiskeldis frá árinu
2013 hefur verið álíka hraður og
hlutfallsleg fjölgun ferðamanna. 7
VIÐSKIPTA
Íþróttas
Unnið í samvinnu við
Krafan um meiri tíðni í flutningi á ferskum afurðum
svo þær komist sem fyrst á erlendan markað er ein
helsta áskorun í starfi hjá Samskipum. 4
FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019
Skilmálar líklega samþykktir
Líklegt þykir að þeir fjárfestar
sem lögðu fé í skuldabréfaútgáfu
flugfélagsins WOW air upp á 50
milljónir evra sem lauk hinn 18.
september síðastliðinn muni sam-
þykkja þær breytingatillögur sem
gerðar hafa verið á skilmálum
skuldabréfanna. Þrátt fyrir það er
upplýsingagjöf félagsins í tengslum
við útgáfuna enn til skoðunar hjá
skuldabréfaeigendum sem er óháð
samþykkt á breyttum skilmálum.
Þetta segja heimildamenn Við-
skiptaMoggans sem vilja ekki láta
nafns síns getið. Atkvæðagreiðslu
skuldabréfaeigenda lýkur í dag.
Fallið er frá töluvert mörgum af
fyrri skilmálum skuldabréfsins en á
móti kemur hins vegar inn mjög
fjárhagslega sterkur aðili, Indigo
Partners, sem ætti að veita fjár-
festum ró. Ekki er farið fram á
nein afföll á höfuðstól og vextir af
bréfunum verða þeir sömu. Eru
það atriði sem skipta höfuðmáli að
mati heimildamanna Viðskipta-
Moggans.
Betri fjárfesting en í haust
„Í ljósi þess að skuldabréfa-
eigendur þurfa ekki að samþykkja
neina niðurfellingu á höfuðstól eða
lækkun vaxta þá hefði ég haldið,
eftir athuganir, að menn ættu að
geta sætt sig við það í ljósi þess að
það eru umtalsvert meiri líkur á
því að fá bréfið endurgreitt að
fullu með vöxtum eftir þessar
breytingar og eftir að nýr eigandi
kom inn en að WOW myndi halda
sjálfstætt áfram, með óljósum af-
leiðingum,“ sagði einn heimildar-
manna ViðskiptaMoggans.
Að auki segja viðmælendur
blaðsins að fjárfestingin sé að lík-
indum betri í dag en í haust að
mati heimildarmanna í ljósi þess að
búið sé að skala félagið niður, inn
sé kominn fjárhagslega sterkur
eigandi og skýr stefna hafi verið
mótuð.
Á meðal þess sem kallað hefur
verið eftir í viðræðum samnings-
aðila var einmitt staðfesting á því
hversu mikið fjármagn Indigo
myndi koma með inn í félagið. Í til-
kynningu til sænsku kauphall-
arinnar staðfesti Skúli Mogensen,
eigandi og stofnandi WOW air, að
Indigo hygðist setja nægilegt fjár-
magn í félagið til þess að snúa
rekstri þess við. Þá var þar einnig
ítrekað að fallið yrði frá öllum
kauprétti færi svo að félagið yrði
skráð á markað og tekið var fyrir
möguleika þess efnis að halda inni
kaupréttum að hluta til.
Á meðal helstu breytinga á skil-
málum felur í sér að bréfið verður
lengt um tvö ár og afskráð úr
kauphöll. Þá er fallið frá öllum
kauprétti eins og áður segir auk
þess sem skuldabréfaeigendur eru
færðir aftar í kröfuhafaröð.
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Kröfuhafar WOW air, sem
ViðskiptaMogginn hefur
rætt við, telja miklar líkur á
að breytingatillögur við
skuldabréfaútgáfu félags-
ins verði samþykktar í dag.
Frestur til þess rennur út í
dag.
Morgunblaðið/Eggert
Atkvæðagreiðslu skuldabréfaeigenda lýkur í dag og talið er líklegt að
breyttir skilmálar skuldabréfaútgáfunnar verði samþykktir.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
1.400
17.7.‘18
17.7.‘18
16.1.‘19
16.1.‘19
1.630,33
1.646,49
140
135
130
125
120
124,25
138,35
Gríðarlegar breytingar hafa átt
sér stað í alþjóðlegri skatta-
samvinnu eftir efnahagshrunið ár-
ið 2008. Sérstaklega eftir fund
G20-ríkjanna árið 2009 í Lund-
únum þar sem því var lýst yfir að
„tímabili bankaleyndar“ væri lok-
ið. Á árunum 2008-2015 gerði Ís-
land 44 upplýsingaskiptasamn-
inga við lágskattaríki og hefur
tekið þátt í fjölda verkefna sem
OECD hefur haldið á lofti í lang-
an tíma. Þar á meðal er endur-
skoðun á samningsfyrirmynd
tvísköttunarsamninga. Að mati
Bryndísar Kristjánsdóttur skatt-
rannsóknarstjóra markar sameig-
inlegur OECD-staðall um upplýs-
ingaskipti þáttaskil þar sem
upplýsingaskyldum aðilum er
skylt að veita upplýsingar um
fjáreignir sem erlendir skattaðilar
hafa í vörslu. „Þessar reglur eru
eitt af því sem markar þáttaskil.
En það þýðir ekki að þetta sé
bara komið. Við eigum aðeins eft-
ir að sjá hvar skórinn
kreppir.“
Breyttur heimur skattrannsókna
Morgunblaðið/Hari
Reglur um upplýsingaskipti marka
þáttaskil í heimi skattrannsókna.
Hrunið breytti heimi skatt-
rannsókna að mati Bryn-
dísar Kristjánsdóttur
8
Síðasti ársfjórðungur JP-
Morgan var undir væntingum
markaðsgreinenda. Risabank-
inn stefnir samt í
rétta átt.
Slær ekki Dimon
út af laginu
10
Framleiðendur ópíóðalyfja
gætu þurft að greiða tugi
milljarða dala í bætur. Hart
verður barist fyrir
dómstólum.
LEX: Verkjalyf
sem ber að varast
11
Endurskoðun | Skattur | Ráðgjöf
Ernst & Young ehf. Borgartúni 30, 105 Reykjavík
ey.is
Alþjóðleg þekking - persónuleg þjónusta
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.