Morgunblaðið - 17.01.2019, Page 8

Morgunblaðið - 17.01.2019, Page 8
það hvernig við tökum á málum og hvort við tökum á málum eða ekki. Ég fullyrði það og stend og fell með því. Það eru engin svona af- skipti sem hafa áhrif á það hvernig við tökum á málum,“ segir Bryndís ákveðin. Herjað á skattkerfin Að sögn Bryndísar þarf embætti skattrann- sóknarstjóra að vísa fjölda mála út af borðinu en 30 manns starfa hjá stofnuninni. „Það munar um hvern mann hér og það liggur fyrir að við förum ekki í öll mál sem við teljum að rétt væri að fara í. Við getum það ekki. Málum er forgangsraðað og það er unnið eftir því. Síðan til viðbótar eru mál almennt séð orðin miklu flóknari en þau voru og skipu- lagðari. Sérstaklega í kjölfar hrunsins.“ Bryndís segir að mögulega sé um botnlausa hít að ræða. Það verði aldrei mannskapur til þess að rannsaka hvert einasta mál en að huga þurfi meira að fyrirbyggjandi aðgerðum innan skattkerfisins. „En að mínu viti mætti kannski vera aðeins meira sett í þetta. Af því að það skilar sér auðvitað til baka. Aukinheldur tel ég æskilegt að það væri meiri áhersla á greiningarvinnu og fyrirbyggjandi þætti. Innan skattkerfisins mætti leggja meiri áherslu á það.“ Alls staðar í hinum vestræna heimi er meira verið að herja á skattkerfin sem möguleika á því að ná út fjármunum og þá sem hluta af skipulagðri glæpastarfsemi. Jafnvel hefur ver- ið sagt að það sé einfaldara að reyna að fara einhverjar slíkar leiðir heldur en að flytja inn fíkniefni eða eitthvað slíkt. Þetta er orðin auð- lind sem glæpamenn sækja í. Undanfarna þrjá áratugi hefur umfang skattsvika verið metið á bilinu 3-7% af landsframleiðslu. Það eru um 10% af heildartekjum hins opinbera, eins og fram kemur í skýrslu starfshóps um umfang skattundanskota frá 2017. Bryndís segir þó allar slíkar tölur velta á þeim forsendum sem gefnar eru. Spurð um það hvort einhver mál séu al- gengari en önnur á borði skattrannsóknar- stjóra segir Bryndís að nú sé oft ríkari ásetn- ingur á bak við brotin. „Það er ríkari ásetningur myndi ég telja og við höfum um hríð haft áhyggjur af þessum innskattssvikum. Meðal annars í byggingar- starfsemi,“ segir Bryndís en um svokölluð keðjumál er að ræða þar sem rekja má um- fangsmikil skattsvik til undanskota undir- verktaka þar sem fyrirtæki nýta sér glufur í virðisaukaskattskerfinu. „Þetta er alveg augljós tilhneiging og við sjáum dæmi um það að ríkissjóður sé að verða af verulegum fjármunum vegna þessa,“ segir Bryndís og bætir því við að fólk sé í auknum mæli að setja upp tilhæfulausa starfsemi til þess að fá fjármuni greidda úr ríkissjóði. Reglur sem marka þáttaskil Talið berst nú að þeim gríðarlegu breyt- ingum sem hafa átt sér stað í alþjóðlegri skattasamvinnu á síðustu árum. Árið 2014 undirritaði Ísland samkomulag um að taka upp sameiginlegan OECD-staðal, Common Reporting Standard (CRS). Í honum felast regluleg upplýsingaskipti, án beiðni, þar sem upplýsingaskyldum stofnunum á borð við vörslustofnanir og banka er skylt að veita upplýsingar um fjáreignir sem erlendir skatt- aðilar hafa í vörslu hjá þeim. Þannig eiga því upplýsingar um m.a. raunverulega eigendur reikninga og hlutdeild í hlutafélagi, að geta flætt til skattyfirvalda í því ríki þar sem skatt- aðilinn er heimilisfastur. Að sögn Bryndísar hafði OECD talað lengi fyrir aukinni sam- vinnu á milli ríkja en fjármálahrunið árið 2008 varð þess valdandi að pólitískur vilji og þrýst- ingur varð nægjanlegur til þess að hrinda þeim stefnumálum í framkvæmd. Sú þróun er enn á fleygiferð en einn af upphafspunktunum var að mati Bryndísar, fundur G20-ríkjanna í Lundúnum í apríl árið 2009. Á þeim fundi var t.a.m. fullyrt að „tímabili bankaleyndar“ væri lokið. „Þessar reglur eru eitt af því sem markar þáttaskil. En það þýðir ekki að þetta sé bara komið. Við eigum aðeins eftir að sjá hvar skórinn kreppir. Þú þarft ekki annað en að gúggla „how to avoid CRS“ og þá færðu alls konar misábyggilegar upplýsingar. Aukin- heldur eru ekki öll ríki í þessu,“ segir Bryndís og nefnir að Ísland sé búið að ganga frá sam- komulagi við 64 ríki. „En þetta skiptir miklu máli og er einn lið- ur í þessari þróun sem hefur orðið.“ Bryndís nefnir einnig önnur atriði í þessari þróun. Ís- land hefur t.a.m. ásamt öðrum löndum á Norð- urlöndum gert upplýsingaskiptasamninga við lágskattaríki en á árunum 2008-2015 voru 44 slíkir samningar gerðir. Þá er Ísland einnig þátttakandi í BEPS-aðgerðaáætluninni frá 2013 sem hefur það að markmiði að stemma stigu við þeirri þróun sem átt hefur sér stað hjá alþjóðafyrirtækjum þar sem skattaskipu- lagning verður þess valdandi að skattgreiðslur eru mjög lágar. Að lokum mætti hér einnig nefna Multi Lateral Instrument (MLI) sem snýr að tvísköttunarsamningum þar sem skýr afstaða er tekin um að þeir eigi ekki að vera notaðir til þess að lágmarka eða komast hjá skattgreiðslum. Bryndís segir allt þetta vinna saman og tek- Bryndís Kristjánsdóttir hefur verið skattrann- sóknarstjóri ríkisins frá árinu 2007 og hefur stundum upplifað ýmislegt skrautlegt í sínu starfi. Bryndís útskrifaðist lögfræðingur frá Háskóla Íslands árið 1993 og hefur nánast all- an sinn starfsferil unnið í skattrannsóknum en hóf starfsferilinn hjá Skattstofu Vesturlands árið 1995. Fáir þekkja því heim skattrann- sókna betur en hún. Bryndís segir starf skattrannsóknastjóra vera áhugavert en snúið. Henni hefur verið hótað oftar en einu sinni og tilraunir hafa ver- ið gerðar til að múta henni sem og öðrum starfsmönnum stofnunarinnar. „Þetta er stundum snúið en ég hef svolítið gaman af því að það þarf að spila hvert ein- asta mál eftir eyranu. Þó að það þurfi að passa upp á að allar reglur séu virtar. Þetta er krefjandi starf og stundum er það erfitt.“ Aðspurð hvort það reyni stundum á per- sónulega, í ljósi þess að oftar en ekki er um lífsviðurværi fólks að ræða segir Bryndís það vissulega vera tilfellið. Verið hótað og reynt að múta „Ég hef fengið hótanir og það hefur líka verið reynt að múta mér. Það eru dæmi um það. Þeir sem sæta rannsókn koma ekki sjálf- viljugir hingað. Það er allt undir. Allir þínir peningar, fjármunir og þetta reynir auðvitað á alla. Fjölskyldu og maka og tekur oft langan tíma. Við reynum að vera meðvituð um þetta. Ég held reyndar að það sé eitt af því sem við höfum almennt séð gert nokkuð vel. Að sýna þeim sem koma hingað þá virðingu sem hver og ein manneskja á skilið þar sem reynt er að fara eins varlega í hlutina og hægt er. Og sem dæmi um það eru fleiri en eitt atvik þar sem starfsmönnum hér hefur verið hrósað fyrir vinnubrögð, eða aðkomu, af aðilum sem eru hér í rannsókn. Fyrir að sýna góða framkomu í skýrslutökum og vera ekki með einhvern yfirgang. Það er auðvitað hægt að vera með hörkuna í þessu öllu saman. Í húsleitum og yfirheyrslum en það er ekki það sem skilar ár- angri.“ Ég bið Bryndísi um að segja mér aðeins nánar frá því í hverju þessar hótanir fólust sem borist hafa starfsmönnum skattrann- sóknastjóra. „Það var eitt mál sem tók nokkuð á sem var hérna til rannsóknar í kjölfar hrunsins sem beindist að starfsmönnum. Þar var jafnvel ættingjum starfsmanns hótað atvinnumissi. Það fannst mér svolítið langt gengið. En það er oft erfitt með sönnun og annað í slíkum málum. Það er nú sjaldnast þannig að slíkar hótanir séu gerðar í vitna viðurvist eða settar á blað. En þetta er auðvitað bara svona og hluti af þessu. En stofnuninni sem slíkri hefur verið hótað, og okkur hefur verið hótað póli- tískum afskiptum í einstökum málum. Ég er ekki að segja að það hafi átt sér stað. En því hefur verið hótað,“ segir Bryndís og nefnir síðan dæmi um það hvernig var reynt að múta henni. „Það eru reyndar svolítið mörg ár síðan það var en þá var það þannig að mér var boðið að drekka frítt á einum bar niðri í bæ í eitt ár gegn því að mál yrði fellt niður. Einhverjir hefðu kannski freistast til þess. Þetta er nátt- úrlega bara hluti af þessu starfi. Það er auð- vitað mitt starf og okkar hérna að láta þetta ekkert á okkur fá. Þetta hefur engin áhrif á Það er erfiðara að ley Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Bryndís Kristjánsdóttir segir gríðarlegar breytingar hafa orðið í alþjóðlegri skattasamvinnu eftir hrun sem gjörbreytt hafi umhverfi til skattrannsókna. Hún hefur staðið í hringiðunni í málum sem fylgdu fjármálahruninu árið 2008 og verið í forsvari hjá embætti sem aldrei hefur mætt meira á en á síðustu ár- um. Einkum í tengslum við leka á borð við Panama-skjölin en hún stóð einn- ig í forsvari er íslenska ríkið ákvað að veita skattrannsóknarstjóra fjármagn til kaupa á gögnum sem tengdu Íslendinga við skattaskjól. 8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019VIÐTAL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.