Morgunblaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019FRÉTTIR
©The Financial Times Limited 2014. Öll réttindi áskilin. Ekki til endurdreifingar, afritunar eða endurritunar með neinum hætti. Öll ábyrgð á þýðingum er Morgunblaðsins og mun Financial Times ekki gangast við ábyrgð á þeim.
Af síðum
Ólga á mörkuðum hefur orðið þess
valdandi að tekjur JPMorgan
Chase af skuldabréfa- og gjald-
miðlaviðskiptum hafa dregist
skarpt saman. Jamie Dimon,
stjórnandi bankans, varar við því að
með því að hafa látið fjárheimildir
ríkisstofnana renna út kunni
bandarísk stjórnvöld að skapa fleiri
vandamál og stuðla að því að hag-
kerfið staðni.
Freistaði Dimon þess að hvetja
pólitíska leiðtoga Bandaríkjanna til
að vinna saman „og ræða málin með
uppbyggilegum hætti og með sam-
starfsvilja“. Sagði hann að sú patt-
staða sem komin væri upp í Wash-
ington myndi reynast bæði
bandaríska hagkerfinu og bank-
anum hans dýrkeypt.
„Ef þetta ástand varir í heilan
ársfjórðung þá gæti það valdið því
að hagvöxtur færi niður í núll,“
sagði hann um hugsanleg efnahags-
áhrif lokunar ríkisstofnana sem
núna hefur varað í þrjár vikur. „Við
þurfum einfaldlega að fást við þann
veruleika, og er fyrst og fremst um
pólitískt vandamál að ræða. Þetta
er það sem það er.“
JPMorgan er stærsti banki
Bandaríkjanna og upplýsti á dög-
unum að tekjur af skuldabréfum og
skyldum fjármálaafurðum hefðu
dregist saman um 16% á fjórða árs-
fjórðungi. Er það minni samdráttur
en keppinauturinn Citigroup greindi
frá fyrr í þessari viku. Tiltölulega lítil
viðskipti urðu til þess að í fyrsta
skipti í fjögur ár var árangur
JPMorgan lakari en markaðs-
greinendur höfðu vænst.
Segir lítið um horfurnar
„Einn fjórðungur þýðir ekki að
þetta sé það sem koma skal,“ sagði
Marianne Lake fjármálastjóri bank-
ans á fundi með blaðamönnum þar
sem fjallað var um rekstrartölurnar.
„Þetta svið bankans er að árangri
töluvert yfir fjármögnunarkostnaði,
og við munum halda viðskiptunum
áfram af fullum krafti ... Að svo
stöddu er engra sérstakra aðgerða
þörf.“
Hún bætti því við að „janúar hafi
byrjað ágætlega, og viðskiptin geng-
ið vel eins og algengt er á þessum
árstíma.“ Hún varaði þó við að of
snemmt væri að segja til um hvernig
skuldabréfaviðskiptin eiga eftir að
ganga nú þegar aðeins tvær vikur
eru liðnar af ársfjórðungnum.
Dimon vildi ekki gera of mikið úr
því að samdráttur hafi orðið á við-
skiptum með skuldabréf, og kvaðst
hann „fullkomlega ánægður“ með
frammistöðuna á síðasta fjórðungi.
„Við erum ekki ónæm fyrir áhrifum
af veðurfari, umfangi viðskipta, og
sveiflum, eignaverði og mörkuðum
sem eru ýmist á upp- eða niðurleið,“
sagði hann. „Ég reyni að hafa ekki of
miklar áhyggjur af [skammtíma-
sveiflum] ... ef veltan er minni en
venjulega síðustu þrjár vikurnar í
desember þá veldur það mér ekki
neinu hugarangri.“
Tekjuafgangur JPMorgan á
fjórða ársfjórðungi jókst um 34%
þegar einskiptisáhrif eru undan-
skilin og nam 7,07 milljörðum dala,
sem er öllu minna en þeir 7,49 millj-
arðar sem markaðsgreinendur
höfðu spáðu í könnun S&P Global
Intelligence.
Greiðslukortum fjölgar
„Það er sjaldgæft að JPMorgan
sé undir væntingum, og hefur raun-
ar ekki gerst síðan 2014,“ segir Bri-
an Forban, bankamarkaðsgreinandi
hjá Autonomous. Hann bendir á
„litlar tekjur af þóknunum, og lítið
mótvægi í gegnum árangurstengdar
greiðslur,“ auk „stærri fjárfestinga-
forða en búist var við“ sem helstu
vandamálin í rekstri bankans.
Tekjur bankans fóru upp í 26,8
milljarða dala, sem er ögn undir
væntingum. Greiðslur til starfs-
manna bankans hækkuðu um 4% á
fjórðunginum. Lake segir að
greiðslur á fjárfestingabankasviðinu
hafi „lækkað hóflega“ í samræmi við
þróun markaðarins.
Bankinn hefur hækkað þá fjárhæð
sem tekin er frá vegna tapaðra
krafna um 240 milljónir dala, upp í
1,5 milljarða og skýrist það að hluta
af auknum umsvifum í útgáfu kredit-
korta. Þá hefur bankinn fjárfest í
nýrri tækni og er það ein af ástæð-
unum fyrir því að útgjöld ótengd
vaxtagreiðslum hækkuðu um 7%.
Dimon segir bankann vera að bæta
„góðum kostnaðarliðum“ við bók-
haldið og að „ekkert gæti stöðvað
okkur í því.“
Glenn Schorr, markaðsgreinandi
hjá Evercore ISI kveðst myndu
„vara við því að bregðast of harka-
lega við [tölunum] enda tekjur bank-
ans að mestu leyti í lagi og í samræmi
við áætlanir“. Hlutabréfaverð bank-
ans náði sér fljótlega aftur á strik eft-
ir að hafa lækkað í upphafi dags á
þriðjudag og hafði hækkað um 1,3%
við lokun markaða.
Vaxa á neytendamarkaði
Tekjur almennrar bankaþjónustu
JPMorgan hækkuðu um 13% á árs-
grundvelli og námu 13,7 milljörðum
dala á fjórðunginum. Segir Dimon að
tíu nýopnuðum útibúum bankans
hafi „gengið stórvel“.
Chase, viðskiptabankankaarmur
JPMorgan, opnaði fyrir skemmstu
útibú í ríkjum þar sem bankinn hefur
ekki starfað áður, og er það í fyrsta
skipti í nærri áratug sem bankinn
heldur inn á ný markaðssvæði. Var
það hluti af 20 milljarða dala fjárfest-
ingaráætlun bankans sem tilkynnt
var um eftir að bandaríkjastjórn
lækkaði skatta á fyrirtæki.
Tekjur fyrirtækja- og fjárfestinga-
bankastafsemi JPMorgan lækkuðu
um 4% miðað við sama fjórðung ári
áður en hagnaður dróst saman um
15%, og munaði þar einkum um
áhrifin af skuldabréfaviðskiptum
bankans. JPMorgan stóð sig samt
betur en Citigroup, sem upplýsti á
mánudag að þar hefðu tekjur skulda-
bréfaviðskiptasviðs dregist saman
um 21% á fjórðungnum.
Fjárfestingabankastarfsemi
JPMorgan skilaði 3% hærri tekjum
miðað við sama tímabil fyrir ári eða
1,8 milljörðum dala, m.a. vegna þess
að 38% hærri tekjur af ráðgjafar-
starfsemi bættu upp fyrir 18% og 4%
samdrátt í tekjum af sölutryggingum
vegna skuldabréfaútgáfu annars
vegar og hlutabréfaútgáfu hins veg-
ar.
Tekjur viðskiptabankasviðs lækk-
uðu um 2% miðað við sama tímabil
árið áður en hjá eignastjórnunarsviði
lækkuðu tekjurnar um 5%.
Hreinar tekjur bankans á ársfjórð-
unginum hækkuðu um 67% miðað við
sama tímabil fyrir ári, en 34% án ein-
skiptisáhrifa vegna tæknilegra af-
skrifta að upphæð 2,4 milljarðar dala
sem komu til vegna skattalækk-
ana Donalds Trumps.
JPMorgan líður fyrir sveiflur á markaði
Eftir Lauru Noonan í New York
Þó síðasti ársfjórðungur
stærsta banka Bandaríkj-
anna hafi ekki verið sá
glæstasti er Jamie Dimon
sallarólegur.
AFP
Jamie Dimon, forstjóri JPMorgan Chase virðist nokkuð rólegur þrátt fyrir minnkandi umsvif og minni tekjur bankans.
Halldór Már Sverrisson
Viðskiptafræðingur
Löggiltur fasteignasali
Löggiltur leigumiðlari
898 5599
halldor@atvinnueign.is
Síðumúli 13 - 108 Reykjavík - S. 577 5500 - atvinnueign.is
Verslunar- og þjónustuhúsnæði – Urðahvarf 4, 203 Kópavogi.
Til leigu 720m2 verslunar- og þjónustuhúsnæði við Urðarhvarf. Húsnæðið er á jarðhæð, opið stórt rými með
flísum á gólfi og góðu loftræstikerfi. Fundarherbergi, skrifstofuherbergi, eldhúsaðstaða og starfsmannaaðstaða.
Lagerrými er rúmgott, hátt til lofts og öflug innkeyrsluhurð. Góð aðkoma og næg bílastæði. Laust fljótlega.
Allar nánari upplýsingar veitir Halldór Már Sverrisson lögg. fasteignasali, gsm 898 5599, halldor@atvinnueign.is.
Fasteignamiðlun
TIL LEIGU URÐAHVARF 4 – 203 KÓP