Morgunblaðið - 17.01.2019, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2019 11FRÉTTIR
Af síðum
Hinn dæmigerði Bandaríkjamaður er í meiri hættu á að deyja af völd-
um of stórs skammts af ópíóðalyfjum en að láta lífið í bílslysi. Að sögn
samtakanna National Safety Council valda ópíóðalyfin einu af hverjum
96 dauðsföllum vestanhafs. Er ekki skrítið að alríkisdómarinn sem hef-
ur á sinni könnu 1.500 mál sem hafa verið höfðuð gegn lyfjaframleið-
endum og lyfjaheildsölum skuli hafa lýst ópíóðavandanum sem „mann-
gerðri drepsótt“. Á síðasta ári hafnaði hann beiðni um að vísa frá
kröfum málshöfðenda, og greiddi þannig leiðina fyrir dómsmál sem
réttað verður í næstkomandi haust. Milljarðar dala eru í húfi.
Sams konar flaumur dómsmála varð til þess að tóbaksfyrirtækin
sömdu um 206 milljarða dala bótagreiðslu fyrir nærri tuttugu árum
síðan. Mælt í umfangi er salan á ópíóðalyfjum mun minni en sala á tób-
aksvörum. En það er margt líkt með þeim, og þá ekki síst að í báðum
tilvikum gáfu framleiðendur það í skyn að framleiðsla þeirra væri ekki
hættuleg. Lögfræðingur í einu ópíóðamáli segist hafa sönnunargögn
sem muni tryggja 100 milljarða dala úrskurð skjólstæðingum sínum í
hag. Markaðsgreinendur hjá Berenberg telja að framleiðeindur
ópíóðalyfja gætu þurft að punga út allt að 50 milljörðum dala.
Fyrirtækið Purdue, sem ekki er skráð í kauphöll, er í mestri hættu
enda með stærstu markaðshlutdeildina. Er áætlað að Purdue þurfi að
greiða um 27 milljarða dala. Næst í röðinni er Endo Intl., sem er á
bandarískum hlutabréfamarkaði, og gæti setið uppi með 10 milljarða
dala dóm, að mati Bloomberg Intelligence. Hinir framleiðendurnir, s.s.
Johnson & Johnson, Teva og Insys eiga yfir höfði sér að greiða samtals
13 milljarða til viðbótar. Þetta eru stórar tölur. Talið er að bæturnar
sem Purdue og Insys standa frammi fyrir gætu jafngilt þrettánföldum
sölutekjum þeirra.
Það er skiljanlegt að þetta geri markaði órólega. Undanfarna þrjá
mánuði hefur hlutabréfaverð Teva lækkað um 15% en nærri því helm-
ingast í tilvikum Endo og Insys. Á sama tíma hefur lyfjafyrirtækja-
vísitala S&P 500 lækkað um 4%.
Fyrirtækin hyggjast halda upp ýtrustu vörnum. Þau benda á að
eftirlitsstofnanir hins opinbera hafi samþykkt notkun lyfjanna, og að í
mörgum tilvikum voru þeir sem létust af of stórum skammti að nota
pillur sem þeir keyptu á svörtum markaði. Málaferlin verða langdregin
og erfið. En í ljósi þess að 130 Bandaríkjamenn láta lífið hvern einasta
dag vegna of stórs skammt af ópíóðum er vissara að láta þennan geira
alveg í friði.
Mikilvægasta lexían af þessu máli ætti að vera öllum ljós. En öllu
erfiðara er að koma auga á aðra mikilvæga lexíu, um að byltingar á
sviði lyfja og lækninga – s.s. verkjalyf sem eru kröftug en ekki ávana-
bindandi – reynast oft vera eitthvað annað en lofað var. Fjárfestar geta
prísað sig sæla að sitja aðeins uppi með fjárhagslega skaðann
sem af því hlýst.
LEX
Ópíóðavandinn:
staðnir að verki
Fyrirtækjahópurinn sem hyggst
kaupa Flybe hefur breytt tilboði
sínu með þeim hætti að strax verði
hægt að beina meiri fjármunum í
rekstur flugfélagsins. Að sögn fólks
sem þekkir til kaupanna er ástæðan
„mjög dökkar horfur“ í veltufjár-
magnsstöðu Flybe.
Connect Airways, sem sett var á
laggirnar af Virgin Atlantic, Stobart
Aviation og fjárfestingafélagi féllst á
það í síðustu viku að greiða 2,2 millj-
ónir punda fyrir Flybe.
En á þriðjudag tilkynnti hópurinn
að hann hygðist greiða eignarhalds-
félagi Flybe 2,8 milljónir punda fyrir
flugreksturinn, Flybe Limited og
fyrir netsöluvefinn Flybe.com, eftir
að ekki tókst að fullnægja þeim lána-
skilyrðum sem fyrra tilboðið var
háð.
Innspýting strax
Nýi samningurinn felur í sér að
eignir og rekstur Flybe færast yfir
til Connect hinn 22. febrúar, en fyrri
samningurinn gerði ráð fyrir sölu fé-
lagsins í heild sinni síðar á árinu.
Með þessum breytingum getur nýi
eigendahópurinn strax lagt félaginu
til aukið fé.
Upphaflegt tilboð til hluthafa
stendur þó óbreytt í 1 pensi á hlut,
sem jafngildir því að Flybe sé metið
á 2,2 milljónir punda. Munurinn á
þeirri upphæð og upphæðinni í nýja
samningnum verður greiddur í
formi launa, þóknana og annarra út-
gjaldaliða af þeim toga.
Hlutabréfaverð Flybe lækkaði um
45% á þriðjudag, niður í 2,3 pens
sem er hærra en tilboð Connect
hljóðar upp á, en engu að síður 90%
lægra verð en fékkst fyrir bréfin fyr-
ir ári. Miðað við núverandi hluta-
bréfaverð er markaðsvirði flug-
félagsins um 9 milljónir punda. Í lok
september 2018 námu hreinar
skuldir félagsins samtals 82 millj-
ónum punda.
Útlit var fyrir að veltufjármagns-
staða félagsins myndi halda áfram
að versna, að því er heimildarmenn
greina frá, því Flybe tókst ekki að
fullnægja þeim skilyrðum sem
fylgdu 20 milljóna punda brúarláni
frá Connect. Varð því ekki hjá því
komist að breyta kauptilboðinu.
Með nýja tilboðinu er ákvæðunum
um brúarlánið breytt, þannig að
flugfélaginu verði lagðar til 10 millj-
ónir punda strax á þriðjudag og aðr-
ar 10 milljónir seinna meir. Þá hald-
ast ákvæði úr fyrri samningi um
lántöku upp á 80 milljónir punda til
viðbótar.
Í tilkynningu frá Flybe sagði:
„Stjórn Flybe telur að með breytt-
um skilmálum fái félagið það rekstr-
aröryggi sem það þarf til að halda
áfram að starfa með góðum árangri.
Með því móti er hægt að gæta hags-
muna viðskiptavina, starfsmanna,
samstarfsaðila, handhafa lífeyr-
isréttinda og annarra hags-
munaaðila.“
Í gíslingu kortafyrirtækja
Þau skilyrði sem upphaflega voru
gerð fyrir láninu frá Connect kváðu
á um að Flybe tækist að gera betri
samninga við greiðslukortafyrir-
tækin sem hafa verið að þjarma að
flugfélaginu að undanförnu.
Greiðslukortafyrirtækin hafa
reynst Flybe óþægur ljár í þúfu því
þau hafa tekið upp á því að halda eft-
ir greiðslum sem tryggingu ef ske
kynni að flugfélagið geti ekki staðið
við skuldbindingar sínar.
Í lok september 2018 voru 16,4
milljónir punda af óaðgengilegu fé á
bókum Flybe – eða 8,1 milljónum
punda hærri upphæð en hálfu ári áð-
ur – og þar af var stórum hluta hald-
ið eftir af greiðslukortafyrirtækjum.
Í uppgjöri fyrstu sex mánaða yfir-
standandi rekstrarárs sagði Flybe:
„Ef greiðslukortafyrirtækin myndu
gera umtalsvert hærri trygg-
ingakröfu þá hefði flugfélagið ekki
lengur nægilega góða lausafjárstöðu
og væri þá óvíst hvort reksturinn
gæti haldið áfram.“
Vetrarmánuðirnir eru erfiðasti
tími ársins hjá flugfélögunum enda
fækkar þá farþegum og flugvélar
sitja óhreyfðar frekar en að skapa
tekjur. Að sögn heimildarmanna
hafa þessi árstíðabundnu áhrif aukið
á veltufjárvanda Flybe.
Upplýst var um breytingarnar á
kauptilboðinu sama dag og Andrew
Tinkler, fyrrverandi forstjóri Stob-
art Group, móðurfélags Stobart Avi-
ation, tilkynnti að hann hefði eignast
12% hlut í Flybe.
Talsmaður Tinkler, sem hefur
staðið í hatrömmum málaferlum
gegn Stobart síðastliðið ár, sagði að
kaupin „væru ótengd málarekstr-
inum, og væri [einfaldlega] fjárfest-
ingarákvörðun]“.
Í síðustu viku staðfesti Flybe að
félagið hefði selt flugfélaginu Vuel-
ing flugtíma sína á Gatwick fyr-
ir 4,5 milljónir punda.
Virgin og Stobart
breyta Flybe-tilboði
Eftir Josh Spero
samgöngufréttaritara
Kortafyrirtækin hafa
haldið eftir greiðslum og
lausafjárstaða flugfélags-
ins kallar á skjót viðbrögð.
Flybe hefur átt í miklum rekstrarerfiðleikum að undanförnu. Nauðsynlegt hefur verið að tryggja meira fé til rekstursins.
Ert þú í
sambandi?
V E R K F RÆÐ I S T O F A
R
áð
gj
öf
ve
gn
a
hr
að
hl
eð
sl
us
tö
ðv
a
fy
rir
fy
rir
tæ
ki
og
sv
ei
ta
rfé
lö
g