Morgunblaðið - 17.01.2019, Síða 16

Morgunblaðið - 17.01.2019, Síða 16
VIÐSKIPTA Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Stefán Einar Stefánsson fréttastjóri, ses@mbl.is Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. VIÐSKIPTI Á MBL.IS Matstöðum Le Kock og Deigi lokað Eigendur harma niðurstöðuna Bílanaust gjaldþrota Jón Ásgeir býður sig fram í stjórn Tiger-verslanakeðjan í vanda Mest lesið í vikunni INNHERJI RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON SKOÐUN Verslun Dogma í Kringlunni hefur verið lokað. Verslunin var stofnuð árið 2002 og var lengi vel á Lauga- vegi en nú fást vörur Dogma ein- göngu á netinu. Að sögn Jóns Andr- ésar Valberg, framkvæmdastjóra Bolasmiðjunnar ehf. sem rekur Dogma, svarar rekstur verslunar- innar í Kringlunni ekki kostnaði og því var gripið til þessara aðgerða. Erfiður rekstur 11 mánuði á ári „Kostnaðurinn var of mikill. Það var ekkert að gera í 11 mánuði á ári. Íslendingar versla bara í desember,“ segir Jón Andrés en hann segir einnig að markaðurinn fyrir slíka búð sé breyttur og meiri samkeppni sé komin í sölu á gjafavöru. „Það er erfitt að reka svona verslun í versl- unarmiðstöð í dag í 11 mánuði á ári. Ef allir mánuðir væru eins og des- ember væri þetta lítið mál,“ segir Jón Andrés við ViðskiptaMogga. Dogma er nokkuð þekkt hér á landi, sér í lagi fyrir boli með skondnum tilvísunum, en sá hluti verslunarinnar skipaði sífellt minni sess og gjafavara varð fyrirferðar- meiri, eða allt að 70% af sölunni. Jón Andrés segir að um stóra ákvörðun sé að ræða. „Það eru komin 17 ár síðan við stofnuðum þetta. Þetta hefur verið frábær tími og nú er þetta búið, eða svona allt að því,“ segir Jón Andrés. Bolasmiðjan rekur einnig átta ferðamannaverslanir á hér landi, meðal annars undir merkjum Ís- bjarnarins og Woolcano. Mikill gangur er á þeim verslunum en rekstrartekjur ársins 2017 voru um 735 milljónir og skilaði félagið hagn- aði upp á 43 milljónir króna. Morgunblaðið/Ásdís Verslunin Dogma var stofnuð árið 2002 og er í dag eingöngu til á netinu. Loka síðasta útsölustaðnum Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Verslun Dogma í Kringlunni hefur verið lokað og eru vörur verslunarinnar í fyrsta skipti í 17 ár eingöngu fá- anlegar á netinu. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Íslendingar státa af árangri viðsjálfbærar veiðar við strendur landsins. Nytjastofnar við landið hafa sjaldan verið í eins góðu ásig- komulagi og það er vegna þess að framsýnt fólk tók ákvörðun um að takmarka veiðar og taka á stundum sársaukafullar ákvarðanir um nið- urskurð veiðiheimilda. Um allan heim er íslenskur sjávarútvegur nýttur sem skólabókardæmi um hvernig ganga skuli um auðlindir hafsins. Hin sjálfbæra nýting felst m.a. í tilraun til þess að viðhalda jafnvægi milli stofna. Vaxi einn stofn eða sé hann nytjaður of mikið er sennilegt að myndast geti ójafn- vægi í fæðukeðju hafsins. Þess vegna er óráðlegt að taka ákvarð- anir um að útiloka nytjar á einum stofni en ekki öðrum, sé kostur á því að viðhalda sem mestu jafn- vægi. Það á m.a. við um hvalveiðar semum aldir hafa skipt sköpum við fæðuöflun og gjaldeyrisöflun Ís- lendinga. Hvalir eru stórar skepnur og hafa víða áhrif í lífkeðju hafsins, bæði tann- og skíðishvalir. Nú hefur ný skýrsla, sem Hag-fræðistofnun Háskóla Íslands vann, varpað ljósi á að þjóðhagsleg áhrif hvalveiða séu jákvæð. Það er gott að þær skuli vera það, rétt eins og þær eru skynsamlegar út frá kröfunni um sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins og mikilvægi þess að viðhalda jafnvægi þar. Sjálfbærni alla leiðMeðfram vegum landsins standastór skilti sem hafa að geyma tölur á borð við 50, 70 og 90. Allir þeir sem um vegina fara ættu að vita hvert þær vísa. Hámarkshraði er settur og gefur það ökumönnum til kynna að við bestu aðstæður sé leyfi- legt að þenja bílvélarnar og svífa eft- ir vegakerfinu á allt að þeim hraða. En þar er miðað við bestu og trygg- ustu aðstæður og bílstjórar, sem til- skilin leyfi hafa til aksturs, verða að dæma um það í hvert og eitt sinn hvort rétt sé að slá af og hægja ferð- ina. Þar er betra að hafa varann á, ekki síst í landi þar sem aðstæður geta breyst eins og hendi sé veifað. ÍKína búa 1.400 milljónir manna.Sá hópur stendur undir 30% af öllum bílamarkaði heimsins. Nýlega var greint frá því að í fyrra hefði samdráttur orðið á kínverskum bíla- markaði í fyrsta sinn í 28 ár. Sú stað- reynd kemur ekki beint við íslenska bílamarkaðinn þótt ýmsum þyki gestir okkar frá fyrrnefndu risaríki fara helst til óvarlega á hinum ótryggu íslensku vegum, þá þegar þeir leggja leið sína hingað á norð- urhjara. En dæmið af bílasölunni í Kína, ásamt minnkandi sölu Iphone og lækkandi markaðsvirði Apple, gefa okkur skýr merki um að heims- hagkerfið fari kólnandi. Það er ekki óeðlilegt en þá staðreynd þarf að taka inn í reikninginn hér á landi eins og annarsstaðar. Þetta er nefnt vegna þess að áundanförnum árum hefur hag- kerfið íslenska verið á blússandi siglingu. Það hefur að mestu lánast vel, enda verið á vegferð við „bestu mögulegu aðstæður.“ Það hefur reynst öruggt, þrátt fyrir allt, að aka á hámarkshraða. Jafnvel hafa ákveðnar atvinnugreinar ekið aðeins yfir hámarkshraða og kemur ferða- þjónustan þar upp í hugann. Tugprósenta vöxtur milli ára telst í flestum greinum talsvert glæfraspil. Kólnandi hagkerfi nýmark-aðsríkja, sem sum hver eru í hópi hinna fjölmennustu í heimi, eru ekki til marks um að allt stefni í kalda kol. En nú verður að biðja þá að staldra við sem sigla vilja á fullri ferð, við hámarkshraða eða jafnvel hraðar, og biðja þá um leið að hafa varann á. Það yrði þyngra en tárum tæki ef íslenska hagkerfið endaði út í skurði vegna glæfraaksturs fárra ökuþóra sem ekki kunna fótum sín- um forráð. Mikilvægt er að þeir sem við stjórnvölinn eru á hverjum tíma þekki mun á bensíngjöf og bremsu. Aka skal eftir aðstæðum Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 193,6 stig í des- ember 2018 og lækk- aði um 0,7%. Vísitala leigu- verðs lækkaði 1 2 3 4 5 SKEMMTILEGA HAGKVÆMT WOWAIR.IS FLJÚGÐUOFTAR FYRIRMINNA MEÐWOWAIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.