Morgunblaðið - 06.02.2019, Page 1

Morgunblaðið - 06.02.2019, Page 1
M I Ð V I K U D A G U R 6. F E B R Ú A R 2 0 1 9 Stofnað 1913  31. tölublað  107. árgangur  VILL HÁMARKA HAGSÆLD ÞJÓÐARINNAR GÓÐ ORKA OG MIKIL LEIKGLEÐI HEIMSPEKINGUR, ÞÝÐANDI OG LJÓÐSJÓÐUR LEIKDÓMUR 33 MÓHEIÐUR HLÍF 12RAGNAR ÁRNASON 14  Íbúar við Furugerði í Reykjavík áskilja sér rétt til að krefja Reykja- víkurborg um skaðabætur ef fyrir- huguð tillaga um þéttingu byggðar við götuna verður að veruleika. Þetta kemur fram í greinargerð lögmanns íbúa til borgarinnar. Telja íbúarnir áformin „bera vott um hreina græðgi á kostnað íbúa í nágrenninu og þeirra sem eiga eftir að búa í viðkomandi húsi“. Þá telja þeir að fasteignir í ná- grenninu muni falla í verði um leið og tillagan verður samþykkt. Því áskilja þeir sér rétt til bóta. »18 Tillögur gætu bakað borginni bótaskyldu Vegagerðin lokaði fjallvegum á Suðvesturlandi síðdegis í gær vegna óveðurs. Einnig hringveg- inum um Hellisheiði og Þrengsli, austan við Hvolsvöll og í Öræfasveit. Hafði þetta áhrif á áætlanir ferðafólks. Þannig sat hópur erlendra ferðamanna fastur á Hvolsvelli í gærkvöldi en fékk húsaskjól í afgreiðslu ferðaþjónustunnar Midgard. Ekki var sála á ferð við Litlu kaffistof- una á Sandskeiði, þar sem myndin var tekin. »2 Hringveginum lokað vegna óveðurs Morgunblaðið/Hari Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is „Það veldur okkur miklum áhyggj- um, sé það raunin,“ segir Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri Handknattleikssambands Íslands, HSÍ, um að dæmi séu þess að leik- menn hér á landi hafi veðjað á eigin leiki. Ný BS-rannsókn Guðmundar Sig- urðssonar við sálfræðideild Háskóla Íslands um spilavanda handbolta- fólks á Íslandi bendir til þess að fjöldi þeirra sem stunda veðmál í tengslum við íþróttina sé umtalsverður. Þar kom fram að tæplega 47% leikmanna úr félagsliðum Íslandsmótsins hafi tekið þátt í peningaspilum. Af þeim sem veðjuðu á handboltaleiki höfðu 38% veðjað á leiki í eigin deild og rúmlega 10% veðjað á eigin leik. Þá kom einnig fram í rannsókninni að 56% þátttakenda vissu ekki hvort það væri ákvæði í samningi þeirra sem bannaði þeim að taka þátt í veð- málum vegna úrslita handboltaleikja. Róbert Geir segir að lög HSÍ séu ef til vill of almenn og vonast til þess að málið verði tekið fyrir á ársþingi sambandsins í vor. Veðmál vaxandi vandamál  Ný rannsókn tekur fyrir spilavanda handboltafólks  Dæmi um að veðjað sé á eigin leiki  Framkvæmdastjóri HSÍ vill að málið verði tekið fyrir á ársþingi í vor MÞekkist að veðjað sé á … »11 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Veðmál Myndin tengist efni fréttar- innar ekki með beinum hætti.  Margvíslegar fyrirspurnir hafa borist utanríkisráðuneytinu vegna útgöngu Breta úr Evrópusamband- inu og þá sérstaklega eftir að út- göngusamningur Bretlands úr ESB var felldur á breska þinginu. Þess- ar fyrirspurnir hafa verið frá al- menningi, fyrirtækjum og öðrum sem eiga hagsmuna að gæta, en Bretland er meðal mikilvægustu viðskiptalanda Íslendinga. Unnið er að gerð samnings á milli Íslands, Noregs og Bretlands hvað varðar vöruviðskipti sem myndi fela í sér að núverandi tollkjör héldu í grundvallaratriðum áfram að gilda fyrir inn- og útflutning til og frá Bretlandi. Vinna við gerð samningsins er vel á veg komin og stefnt er á að hægt verði að beita honum ef til þess kemur að Bret- land gangi úr ESB án samnings í lok næsta mánaðar. »10 AFP Fylkingar Tekist hefur verið á um mál sem tengjast Brexit í Bretlandi að undanförnu. Margvíslegar fyrirspurnir vegna útgöngu Breta Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins hefur innkallað ENOX- snjallúr sem ætluð eru börnum. Er þetta í fyrsta skipti sem rannsókn og ákvörðun yfirvalda neytenda- mála á Íslandi leiðir til svo róttækra aðgerða í Evrópu. Ákvörðun Neytendastofu frá 19. desember um sölubann og innköllun á ENOX Safe-Kid-One snjallúrum grundvallaðist á skoðun og prófun á úrinu sem leiddi í ljós alvarlega ör- yggisgalla. Auðvelt er að hakka sig inn í úrin og sjá þar allar upplýs- ingar sem úrið safnaði, þar á meðal staðsetningu barnsins og raunar 180 þúsund barna um allan heim. Sá sem þetta gerði með illum hug gæti tekið stjórn á úrinu, þar á meðal hlerað það eða breytt símanúmerum sem barnið hefur heimild til að hringja í. Hópkaup hafa áfrýjað sölubanni Sölubann var síðar sett á Wonlex- krakkasnjallúr en þau ekki innköll- uð þar sem öryggisgallar voru ekki eins alvarlegir. Tryggvi Axelsson, forstjóri Neyt- endastofu, segir að tilkynning hafi verið send til Evrópusambandsins um niðurstöðu stofnunarinnar, eins og skylt sé, og það hafi leitt til þess- arar ákvörðunar. Hann segir að þetta sé í fyrsta skipti sem tölvu- tengdar vörur séu innkallaðar af ör- yggisástæðum í Evrópu. Hópkaup sem seldu úrin hér á landi hafa skotið ákvörðun Neyt- endastofu til áfrýjunarnefndar neyt- endamála. Barnasnjallúr innkölluð í Evrópu  Í fyrsta skipti sem rannsókn á öryggi vöru hér leiðir til róttækra aðgerða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.