Morgunblaðið - 06.02.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Hvert slökkvilið og sveitarfélag fyrir
sig ber ábyrgð á að hafa sinn við-
búnað til taks, en Mannvirkja-
stofnun hefur eftirlit með fram-
kvæmd laga um brunavarnir og
gróðurelda. Ef stórir gróðureldar
myndu brjótast út sem yrði viðkom-
andi slökkviliði ofviða á almanna-
varnakerfið hins vegar að grípa inn í.
Eins og kom fram í Morgunblaðinu í
gær telja slökkvilið sig sum hver al-
mennt illa í stakk búin til að takast á
við mikla gróðurelda.
Davíð Snorrason, fagstjóri eld-
varna hjá Mannvirkjastofnun, situr í
stýrihópi sem tók til starfa í vetur
um forvarnaaðgerðir gegn gróður-
eldum á Íslandi. Davíð segir að
varnarorð Trausta Jónssonar, sér-
fræðings í veðurfarsrannsóknum, í
Morgunblaðinu um helgina um
aukna hættu á stórum gróðureldum
hafi verið mikilvægt innlegg í um-
ræðuna. Hann muni viðra það að fá
fulltrúa frá Veðurstofunni í hópinn.
„Ég geri ráð fyrir því að strax á
næsta fundi verði það rætt. Það væri
mjög gagnlegt, því samstillt átak er
langlíklegast til þess að bera árang-
ur,“ segir Davíð.
Tækjabúnaður hefur batnað
Aukin meðvitund um hættuna á
gróðureldum hefur vaknað eftir
Mýraeldana árið 2006, sem nefndir
voru mestu sinueldar Íslandssög-
unnar. Í kjölfar þeirra hafi Bruna-
málastofnun, forveri Mannvirkja-
stofnunar, byrjað að vinna meira í
þessum málum. Lögð hafi verið
áhersla á að fræða bæði sumarhúsa-
eigendur og viðbragðsaðila, unnið að
áhættumati vegna gróðurelda og
gefin út bók um málið. Breytingar á
loftslagi síðustu ár hafi hins vegar
aukið enn frekar hættuna.
Davíð bendir á að almannavarnir
séu nú með betri tækjabúnað til um-
ráða. Meðal þess er þúsund lítra
slökkviskjóða sem hengd er í þyrlu.
Þá hafi sérsveit ríkislögreglustjóra
nú öfluga dróna með hitamynda-
vélum. Slík tækni yrði virkjuð ef
stórir gróðureldar brytust út.
Samstillt átak nauðsyn
Meiri meðvitund um auknar líkur á gróðureldum en áður
Ný og betri tækni bætir viðbúnað almannavarna ef illa fer
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Myndarleg viðbót bættist við safn-
gripi Þjóðminjasafnsins þegar fólk
kom færandi hendi í síðustu viku
með marga muni sem það hafði
fundið í Þjórsárdal. Dalurinn hefur
reynst mikil náma forngripa og á
Þjóðminjasafnið um 2.000 hluti sem
þar hafa fundist. Munirnir hafa bæði
fundist við fornleifarannsóknir og
eins hefur fólk rekist á þá þar sem
landið hefur blásið upp.
Lilja Árnadóttir, sviðsstjóri
munasafns Þjóðminjasafnsins, og
Hrönn Konráðsdóttir fornleifafræð-
ingur sýndu ljósmyndara Morgun-
blaðsins nokkra af mununum sem
afhentir voru í síðustu viku.
„Þetta eru alls konar munir,“
sagði Lilja um hlutina sem safnið
fékk á dögunum. „Hér eru þrír
hringprjónar og það er líka mikið af
brýnum sem hefur blásið ofan af í
gegnum tíðina eða þar sem gras-
svörðurinn hefur horfið. Þá afhjúp-
ast þetta. Það fannst líka hamars-
haus úr járni, hversdagslegur hlutur
en fáséður frá þessum tíma. Hlutir
úr járni varðveitast venjulega ekki
svona vel. Sumt fannst nálægt stöð-
um þar sem vitað er um bæjarrústir
en annað eru lausafundir.“
Fyrirrennarar nælunnar
Lilja segir að hringprjónarnir, eða
klæðisprjónarnir, séu langir og úr
bronsi. Þeir voru fyrirrennari næl-
unnar og notaðir til að festa saman
föt. Tveir prjónanna sem fundust nú
eru heillegir en af þeim þriðja eru
bara hringurinn og hausinn eftir.
Þessir hlutir eru líklega frá 10. öld.
Einnig fannst myndarlegt brot úr
kljásteinsgrýtu eða -potti. Pottarnir
voru notaðir til að sjóða í þeim yfir
opnum eldi.
„Það er svo ánægjulegt að þessir
hlutir skuli skila sér til Þjóðminja-
safnsins,“ sagði Lilja. „Það á að skila
jarðfundnum munum til safna, sam-
kvæmt lögum.“ Sem kunnugt er
fannst gamalt bæjarstæði í Þjórs-
árdal í fyrra og var bærinn nefndur
Bergsstaðir eftir finnandanum,
Bergi Þór Björnssyni. Það var við-
bót við áður þekkt bæjarstæði í
Þjórsárdal. Umfjöllun um þann
fornleifafund, m.a. í Morgunblaðinu,
varð til þess að vekja athygli fólks á
því að það á ekki sjálft að varðveita
svona forngripi heldur eiga þeir best
heima á söfnum. Lilja sagði mikil-
vægt að gripir sem þessir skiluðu
sér til Þjóðminjasafnsins. Munirnir
sem skilað var í síðustu viku fara nú
til rannsóknarteymis safnsins sem
mun rannsaka þá og skrá. Svo verða
þeir aðgengilegir til rannsókna.
Forngripir fundust í Þjórsárdal
Fólk kom færandi hendi til Þjóðminjasafnsins með á annað hundrað hluta Mikilvægt að skila
fornmunum til safna þar sem þeir eru rannsakaðir og varðveittir Þjórsárdalur er náma fornmuna
Morgunblaðið/Eggert
Þjóðminjasafnið Hrönn Konráðsdóttir fornleifafræðingur (t.v.) og Lilja Árnadóttir sviðsstjóri með á
annað hundrað fornra gripa sem fundust í Þjórsárdal og var skilað til safnsins í síðustu viku.
Brýni Mörg brýni úr skífer eða flögubergi, sem er innflutt, fundust. Pottur Brot úr nokkuð stórum klébergspotti sem eldað var í á hlóðum.
Hringprjónn Langur klæðisprjónn til að næla saman föt, líkt og næla.
Hálsskraut Líklega hafa þessir 2-3 cm breiðu
steinar verið mótaðir til að nota í hálsmen.
Heinbrýni Fingurlöng brýni, eins og hér sjást,
voru líklega borin í belti og notuð til að ydda
nálar eða brýna hnífseggjar.
Fornt Möguleg hulsa neðst á sverðslíðri og haus af hringprjóni.