Morgunblaðið - 06.02.2019, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019
Áramótaskaup Ríkisútvarpsinsfær þá einkunn hjá lands-
mönnum að hafa verið afskaplega
hlutdrægt. Þetta má lesa út úr
nýrri könnun MMR þar sem sam-
fylkingarflokkarnir Píratar og
Samfylking eru
mjög ánægðir með
skaupið og í þeirra
röðum eru sárafáir
óánægðir.
Svipaða sögu erað segja um hina vinstri flokk-
ana, VG og samfylkingarflokkinn
Viðreisn.
Sjálfstæðismenn hafa mun meiriefasemdir um skaupið, 34%
þeirra leiddist það en aðeins 8% af
kjósendum Samfylkingarinnar.
Þá voru miðflokksmenn afarósáttir, 56% þeirra leiddist
skaupið, flestum mjög.
Þessi niðurstaða er í góðu sam-ræmi við mælingar á hlut-
drægni Rúv. almennt, sem Fjöl-
miðlanefnd lét gera fyrir nokkrum
misserum.
Sú könnun sýndi að sjálfstæð-ismenn og framsóknarmenn
töldu Rúv. hlutdrægt en vinstri
flokkarnir töldu það ekki hlut-
drægt.
Niðurstöður þessara kannanaeiga sér þær augljósu skýr-
ingar að Rúv. dregur taum vinstri
flokkanna, ekki aðeins í fréttaflutn-
ingi sínum heldur í dagskránni í
heild.
Rúv. tekst jafnvel að vera hlut-drægt í áramótaskaupinu,
sem ætla mætti að ætti að kæta alla
landsmenn, ekki bara alla vinstri-
menn.
Brosað til vinstri
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Umferð um vegi landsins virðist hafa
umtalsverð áhrif á fuglalíf og benda
nýjar niðurstöður rannsóknar til þess
að sumum tegundum mófugla fækki
um meira en helming við vegi þar sem
umferðin er frá því að vera lítil og upp
í um 4.000 bíla á sumardögum. Þetta
má lesa út úr niðurstöðum rannsókn-
ar eða forkönnunar þriggja höfunda á
áhrifum umferðar á fuglalíf, sem birt
er á vef Vegagerðarinnar. Kannaður
var þéttleiki algengra mófugla við
vegi með mismikla umferð og vökt-
unargögnum safnað við vegi á Suður-
landi 2011-2018. „Niðurstöður benda
til að vegir minnki þéttleika sumra
mófugla langt út fyrir veginn. Flestir
vaðfuglarnir eru sjaldgæfari nær veg-
um og sumum þeirra fækkar meira
nær umferðarþyngri vegum,“ segir
þar. Höfundarnir benda á að vegir
geta haft áhrif á þéttleika og út-
breiðslu fugla þegar þeir leggja undir
sig búsvæði og umferðin getur haft
áhrif á fugla í grennd. Full ástæða sé
til að rannsaka þetta því íslenski út-
haginn er heimili margra fuglastofna
sem eru einstakir á heimsvísu. Með
frekari gagnaöflun sé hægt að smíða
líkön sem sýna tengsl vega og fugla og
áhrif þess á fuglategundir að leggja
vegi um búsvæði þeirra sem myndi
nýtast vel við t.d. umhverfismat.
omfr@mbl.is
Mikil fækkun mófugla við vegi
Birta rannsókn á áhrifum umferð-
arþunga á vegum landsins á fuglalíf
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Jaðrakan Vegir eru stundum lagðir
um búsvæði fugla og raska fuglalífi.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Hópur tólf aðstoðarsáttasemjara,
sem ríkissáttasemjari tilnefndi á
dögunum til að aðstoða sig við lausn
vinnudeilna, hefur þegar fengið
fræðslu og upplýsingar á tveimur
námskeiðum sem fram hafa farið
vegna undirbúningsins fyrir sátta-
störfin.
Á morgun hefst svo síðasti hluti
undirbúningsins þegar haldið verður
þriggja daga námskeið í sáttamiðlun
með sérfræðingi frá Danmörku, sem
fenginn er af þessu tilefni hingað til
lands.
Það er dr. Vibeke Vindeløv, pró-
fessor í lögum við Kaupmannahafn-
arháskóla, sem annast kennsluna.
Að sögn Bryndísar Hlöðversdóttur
ríkissáttasemjara er Vindeløv sér-
fróð um sáttamiðlun í kjaradeilum og
hefur hún kennt um langt skeið við
Kaupmannahafnarháskóla og skrif-
að fræðibækur á þessu sviði. „Hún
hefur séð um sambærilegan undir-
búning fyrir aðstoðarsáttasemjara-
hópinn í Danmörku þannig að hún er
vön að halda svona námskeið fyrir
fólk til þessara verka,“ segir hún.
Fastlega er reiknað með að miklar
annir verði í húsnæði Ríkissátta-
semjara þegar líður á árið. Nú þegar
eru 82 kjarasamningar lausir og 152
bætast svo við í lok marsmánaðar.
Hugmyndin er sú að framvegis verði
einn eða fleiri úr þessum hópi að-
stoðarsáttasemjara kallaðir til að-
stoðar í hverju sáttamáli ásamt ríkis-
sáttasemjara. Markmið breyting-
anna er að bæta þjónustu
embættisins við aðila vinnumarkað-
arins, með því að efla sáttamiðlun og
stuðla að aukinni skilvirkni embætt-
isins við kjarasamningagerðina.
Nema sáttamiðl-
un á námskeiði
Danskur sérfræðingur kennir hópnum
Morgunblaðið/Golli
Kjaradeilur Búast má við miklum
önnum í húsakynnum sáttasemjara.
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
BATTERY
Borðlampi – fleiri litir
Verð frá 21.900,-
LOUIS GHOST
Stóll – fleiri litir
Verð 39.900,- stk.
CINDY
Borðlampi – fleiri litir
Verð 32.900,-
Glæsileg gjafavara frá
COMPONIBILI
Hirslur 3ja hæða
Verð frá18.900,-
KABUKI
lampi – fleiri litir
Verð 129.000,-
TAKE
Borðlampi – fleiri litir
Verð 12.900,-
BOURGIE
Borðlampi – fleiri litir
Verð frá 39.900,-