Morgunblaðið - 06.02.2019, Page 15

Morgunblaðið - 06.02.2019, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019 Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Samkvæmt drögum að siðareglum starfsmanna Samgöngustofu verður lögð skylda á starfsmenn til að til- kynna „siðferðislega ámælisvert“ at- hæfi til yfirmanna. Þórhildur Elín Árnadóttir, sam- skiptastjóri Samgöngustofu, segir engin viðurlög við því ef starfsmenn brjóta þessa tilkynningaskyldu, enda séu siðareglurnar settar á til að koma á umræðu og bæta vinnu- staðamenningu. „Ég held það séu engin viðurlög við þessu, það er engin siðanefnd eða neitt slíkt. Þetta er í rauninni bara tilraun til þess að ræða opinskátt um hvernig við viljum hafa okkar sam- eiginlegu útgangspunkta. Hvað okk- ur finnst eðlilegt og hvað okkur finnst að við eigum að forðast. Í raun efla sameiginlegu gildin okkar, sem voru sett í upphafi og hafa reynst okkur mjög vel,“segir Þórhildur. Hún bendir á að siðareglurnar séu byggðar á siðareglum starfs- manna Stjórnarráðsins en þar sé að finna sambærilegt ákvæði. Umræð- an um að koma á siðareglum hjá Samgöngustofu spratt upp í tengslum við fimm ára afmæli stofn- unarinnar. Samgöngustofa var sett saman úr ólíkum opinberum stofn- unum og því þótti tilefni til á þeim tímamótum að efla sameiginlegu gildin. „Þetta er í raun bara fram- hald af þeirri umræðu, hver viljum við vera og hvernig viljum við koma fram við hvert annað, það var ekkert annað sem bjó að baki,“ segir Þór- hildur. Skyldur starfsmanna í lögum Hún bendir á að skyldur opin- berra starfsmanna í starfi sé að finna í lögum um opinbera starfs- menn. „Allir starfsmenn undirgang- ast þau með því að vinna hjá hinu op- inbera. Siðareglurnar koma ofan á það og þær eru í rauninni bara vilji okkar til að skilgreina ákveðna vinnustaðamenningu. Það var ekk- ert atvik sem leiddi til setningar þeirra.“ Síðastliðinn mánudag var fundað um siðareglurnar og gátu starfsmenn Samgöngustofu komið sínum sjónarmiðum á framfæri þar. Skylt að tilkynna siðferðisleg atvik  Samgöngustofu gerir drög að siðareglum  Sett „til að skilgreina ákveðna vinnustaðamenningu“ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Rannsóknanefnd samgönguslysa, siglingasvið, leggur til að Mann- virkjastofnun geri sérstakar verk- lagsreglur um aðkomu og fram- kvæmd slökkviliða á slökkvi- störfum við eldsvoða í skipum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í lokaskýrslu nefndarinnar vegna elds í tvígang í ljósavélarými um borð í Agli ÍS 77 í ágúst 2017. Þá leggur nefndin til að Mann- virkjastofnun geri faglegt mati á því hvernig til tókst. Skiptust á að handstýra Rannsóknanefndin telur senni- lega orsök fyrri eldsupptakanna að kvöldi 27. ágúst vera að hlífðar- fatnaður hafi fallið af þili vegna veltings og hafi lagst yfir raf- geymasambönd við fremri ljósavél, en þá var skipið á dragnótaveiðum vestur af Sléttanesi. Talsverður eldsmatur var í ljósavélarýminu þ.e.a.s. fyrir utan fatnað voru t.d. olíuóhreinindi undir göngugrind- um. Fjórir voru í áhöfn Egils og skiptust þeir á við að handstýra skipinu til Þingeyrar en vegna sterkrar lyktar í stýrishúsinu var erfitt að hafast þar við. Mikill við- búnaður var vegna eldsins og héldu nærstödd skip, björgunar- sveitir og -bátar til aðstoðar, auk þyrlu Landhelgisgæslunnar og slökkviliðsmanna frá Þingeyri og Ísafirði. Öryggi ekki tryggt Klukkan 01.13 var Egill ÍS kom- inn að bryggju á Þingeyri og slökkviliðsmenn frá Slökkviliði Ísa- fjarðar tóku við slökkvistarfi. Klukkan rúmlega fimm um nóttina bárust boð um að eldur væri kom- inn upp aftur í Agli. Það er mat nefndarinnar að seinni eldsupptök- in við bryggju á Þingeyri hafi or- sakast af því að ekki var tryggilega gengið úr skugga um að allar glóð- ir hefðu verið slökktar og elds- matur fjarlægður. Við seinni brunann urðu miklar skemmdir á skipinu. Nefndin telur að skipið hafi ekki verið vaktað sem skyldi af fagaðilum sem og að stjórnendur vettvangs hafi yfirgef- ið hann áður en tryggt var að ekki gæti komið upp eldur á ný. Mjög mikilvægt sé fyrir aðila að draga lærdóm af þessu atviki og óþarfa afleiðingum þess. Skorti á aðstoð við skipverja Það er mat nefndarinnar að ekki hafi verið vel staðið að aðgerðum gagnvart áhöfn skipsins með því að koma henni ekki undir læknishend- ur eftir að hafa verið um borð í reykfylltu skipinu í lengri tíma sem og að hlutast ekki til um að kalla til áfallateymi fyrir hana. Ljósmynd/RNSA-Sævar Helgi Eldur Egill ÍS 77 við bryggju á Þingeyri eftir seinni brunann. Vilja verklags- reglur vegna elds í skipum  Eldur um borð í Agli ÍS í tvígang  Skipið ekki vaktað sem skyldi Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Lang- vinsælastur hollusta í hverjum bita Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur Roby leðursófi Lengd 172 cm. Verð 270.000 kr. Lengd 194 cm. Verð 295.000 kr. Lengd 214 cm. Verð 310.000 kr. fyrir heimilið Sendum um land allt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.