Morgunblaðið - 06.02.2019, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
silestone.com
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
6. febrúar 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 119.57 120.15 119.86
Sterlingspund 156.08 156.84 156.46
Kanadadalur 91.3 91.84 91.57
Dönsk króna 18.324 18.432 18.378
Norsk króna 14.122 14.206 14.164
Sænsk króna 13.173 13.251 13.212
Svissn. franki 119.84 120.5 120.17
Japanskt jen 1.0875 1.0939 1.0907
SDR 166.89 167.89 167.39
Evra 136.82 137.58 137.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.4703
Hrávöruverð
Gull 1311.0 ($/únsa)
Ál 1871.5 ($/tonn) LME
Hráolía 62.83 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Níu fyrirtæki
hafa verið tilnefnd
til nýrra UT-
verðlauna sem
veitt verða á UT-
messunni næsta
föstudag í Hörpu.
Samkvæmt til-
kynningu frá
Skýrslutæknifélagi
Íslands, Ský, sem
veitir verðlaunin,
var ákveðið að
bæta nýju verðlaunaflokkunum við í til-
efni af 50 ára afmælisári félagsins.
Nýju flokkarnir eru UT-fyrirtækið, UT-
stafræna þjónustan og UT-sprotinn.
Í flokknum UT-fyrirtækið 2018 eru
Nox Medical, Meniga og Marel tilnefnd.
Í flokknum UT-stafræna þjónustan 2018
eru tilnefnd fyrirtækin Leggja.is, Men-
tor.is og Dohop. Þá eru tilnefnd í flokkn-
um UT-Sprotinn 2018 fyrirtækin Medi-
lync, Syndis og Sidekick Health.
Níu fyrirtæki tilnefnd
til nýrra UT-verðlauna
Verðlaun Nox Medi-
cal er tilnefnt sem
UT-fyrirtækið 2018.
STUTT
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Þýska flugfélagið Germania hefur
lagt fram beiðni um gjaldþrotaskipti.
Allar 37 flugvélar félagsins voru
kyrrsettar síðastliðið mánudags-
kvöld en félagið hefur boðið upp á
ferðir til Íslands frá minni flugvöll-
um í Þýskalandi. Germania átti við
mikinn lausafjárvanda að stríða og í
því samhengi bentu forráðamenn fé-
lagsins á aukinn eldsneytiskostnað,
veikingu evrunnar gagnvart banda-
ríkjadal og seinkanir á því að inn-
leiða nýjar þotur í rekstur félagsins
sem helstu skýringar.
Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur
hjá Landsbankanum segir gjaldþrot
Germania vera til marks um þá gríð-
arlegu samkeppni sem er í flug-
rekstri um þessar mundir og segir
það viðurkenningu fyrir WOW air að
fjárfestingafélagið Indigo Partners
sé að íhuga að fjárfesta í íslenska
flugfélaginu.
Gjaldþrot Germania er nokkurt
högg fyrir þýska flugreksturinn í
ljósi þess að aðeins er rúmt hálft ár
frá því að Air Berlin fór sömu leið.
Til marks um það hversu erfiður
flugrekstur í Evrópu er, er einnig sú
staðreynd að lággjaldarisinn Ryana-
ir skilaði tapi á fjórða ársfjórðungi
síðasta árs í fyrsta sinn síðan í mars
2014.
Of mikið framboð
„Það er framboðsvandi. Og það er
bara ein leið þegar það er of mikið
framboð, sem er að lækka verðið til
þess að fylla vélarnar. Og þá lenda
mörg flugfélög í vandræðum,“ segir
Sveinn í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir þessa störukeppni flug-
félaga um að halda verði lágu vera af
hinu góða því flugfélög séu of mörg
og eitthvað þurfi út af að bregða.
Sveinn segir það vera WOW air til
hróss að hafa fundið mögulega kaup-
endur og það sé í sjálfu sér viður-
kenning fyrir viðskiptamódel félags-
ins.
Trú á Íslandi sem áfangastað
„Það eru mörg flugfélög í vand-
ræðum og mörg þeirra eru til sölu.
Ef félag nær í nýja fjárfesta eða nær
að finna kaupendur áður en það fer í
þrot þá er það mjög góð yfirlýsing
um það hversu gott viðskiptamódel
félag er með,“ segir Sveinn.
„Það er auðvitað viðurkenning að
þeir séu að skoða félagið og það verð-
ur ennþá meiri viðurkenning ef þeir
fjárfesta í því. Sérstaklega í hörðum
heimi flugrekstursins. Og það er
einnig viðurkenning fyrir Ísland sem
áfangastað. En á móti kemur að In-
digo er ekki búið að lofa neinu,“ segir
Sveinn.
Haft var eftir Bill Franke, stjórn-
arformanni Indigo Partners, á dög-
unum að félagið sæi augljóslega
möguleika í WOW air án þess að út-
lista nánar hvaða fyrirætlanir hann
hefði fyrir flugfélagið. „Auðvitað
vonar maður að hann fjárfesti, og þá
í sjálfum rekstrinum og breyti ekki
viðskiptamódelinu,“ segir Sveinn.
Viðurkenning fyrir WOW
air að fjárfestar íhugi kaup
AFP
Gjaldþrot Allar flugvélar Germania voru kyrrsettar á mánudagskvöld. Félagið fór sömu leið og Air Berlin í fyrra.
Harður flugrekstur
» Germania lagði fram
beiðni um gjaldþrotaskipti í
gær. Air Berlin varð gjald-
þrota í ágúst. Ryanair skilaði
tapi á fjórða ársfjórðungi
síðasta árs í fyrsta skipti í
fimm ár.
» Sérfræðingur segir það
vera WOW air til hróss að fé-
lagið hafi fundið hugsanlega
fjárfesta í Indigo Partners á
tímum sem þessum.
Enn tínist úr hópi lággjaldaflugfélaga í Evrópu Germania gjaldþrota
Stoðtækjafyrirtækið Össur hf. hagn-
aðist um 613 milljónir bandaríkjadala,
eða jafnvirði 8,6 milljarða íslenskra
króna, á síðasta ári, sem er 38% aukn-
ing frá fyrra ári, en þá nam hagnaður-
inn 58 milljónum dala eða jafnvirði 6,9
milljörðum króna. Þetta kemur fram í
tilkynningu félagsins til Kauphallar.
Þar kemur einnig fram að heildar-
eignir félagsins í lok ársins hafi numið
jafnvirði tæpra 110 milljarða króna og
hafi aukist um 15% milli ára. Þær
voru 95 milljarðar á sama tíma á síð-
asta ári.
Eigið fé félagins nam 538 milljón-
um bandaríkjadala í lok tímabilsins
en 500 milljónum dala á sama tíma ár-
ið áður.
Eiginfjárhlutfall var 59% í lok 2018,
en var 63% í lok 2017.
Söluvöxtur í hátæknivörum
Í fréttatilkynningunni segir að sala
ársins 2018 hafi numið 613 milljónum
bandaríkjadala, eða 66 milljörðum ís-
lenskra króna. Söluvöxtur var einna
helst drifinn áfram af hátæknivörum
félagsins, að því er segir í tilkynning-
unni.
EBITDA fyrir einskiptisliði ársins
2018 nam 115 milljónum Bandaríkja-
dala eða 12 milljörðum íslenskra
króna sem eru 19% af sölu.
Jón Sigurðsson, forstjóri félagsins,
segir í tilkynningunni að allir liðir
fjárhagsáætlunar félagsins hafi stað-
ist og söluvöxtur í stoðtækjum hafi
verið yfir áætluðum markaðsvexti
þriðja árið í röð. „Söluvöxtinn má að-
allega rekja til sölu á hátæknivörum
sem gengur vel í báðum vöruflokk-
um,“ segir Jón. tobj@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Afkoma Hátæknivörur drifu áfram
söluvöxt Össurar árið 2018.
Össur hagnaðist
um 8,6 milljarða
Eignir jukust
um 15 Salan
var 66 milljarðar