Morgunblaðið - 06.02.2019, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 06.02.2019, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019 FOSSBERG Dugguvogi 6 • 104 Reykjavík • www.fossberg.is • 5757600 Vandaðir vinnuhanskar í öll verk Bandarísk vopn, sem seld voru Sádi- Aröbum og bandamönnum þeirra, hafa komist í hendur hópa vígamanna sem tengjast hryðjuverkanetinu al- Qaeda og fleiri fylkinga sem berjast í Jemen, að sögn fréttasjónvarpsins CNN sem hefur rannsakað málið. Bandarískar vígvélar hafa m.a. kom- ist í hendur uppreisnarmanna, sem njóta stuðnings klerkastjórnarinnar í Íran, og leyniþjónustumenn hennar geta rannsakað þær til að afla tækni- legra upplýsinga sem gætu stefnt lífi bandarískra hermanna á átakasvæð- um í hættu, að sögn CNN. Samkvæmt vopnasölusamningum við Sádi-Arabíu, Sameinuðu arabísku furstadæmin og fleiri samstarfsríki Bandaríkjanna mega þau ekki koma bandarískum vopnum í hendur ann- arra nema með sérstöku samþykki Bandaríkjastjórnar. CNN hefur eftir talsmanni bandaríska varnarmála- ráðuneytisins að slík heimild hafi ekki verið veitt og Bandaríkjastjórn hafi hafið rannsókn á málinu. Í höndum leyniþjónustu Írans CNN segir að Sádi-Arabía og Sam- einuðu arabísku furstadæmin hafi notað bandarísk vopn „sem nokkurs konar gjaldmiðil til að kaupa hollustu vopnaðra hópa eða ættbálka“ í barátt- unni við uppreisnarmenn Húta sem njóta stuðnings klerkastjórnarinnar í Íran. Sum vopnanna hafi verið gefin, seld eða skilin eftir á átakasvæðum en öðrum hafi verið stolið. Á meðal vígvéla sem hafa komist í hendur stuðningsmanna Írana eru brynvagnar sem þola sprengingar af völdum jarðsprengna og heimatilbú- ins sprengibúnaðar sem m.a. hefur oft verið beitt gegn bandarískum her- mönnum í Írak og Afganistan. Hermt er að íranska leyniþjónustan hafi rannsakað vagnana, m.a. til að leita að hugsanlegum veikleikum. bogi@mbl.is Bandarísk vopn í höndum óvina  Vígvélar sem seldar voru bandamönnum hafa komist í hendur hryðjuverkahópa og stuðningsmanna Írana í Jemen Abú Dabí. AFP. | Talið er að allt að 170.000 manns hafi sótt sögulega messu sem Frans páfi hélt í gær á íþróttaleikvangi í Abu Dabí, höfuð- borg Sameinuðu arabísku fursta- dæmanna. Þetta er í fyrsta skipti í sögunni sem páfi heimsækir land á Arabíuskaganum. Frans páfi hefur lagt áherslu á að styrkja tengsl kristinna manna og múslíma og einnig gefið sérstakan gaum að farandmönnum og flótta- fólki. Í yfirlýsingum sínum í fursta- dæmunum hefur hann lagt áherslu á að binda þurfi enda á stríðsátökin í Mið-Austurlöndum, m.a. í Jemen og Sýrlandi, og vernda réttindi allra íbúanna, þ.á m. kristinna manna, farandmanna og fólks án ríkisfangs. Um einn af hverjum tíu íbúum Sameinuðu arabísku furstadæm- anna er kaþólskrar trúar, eða um milljón manna, og margir þeirra eru farandmenn frá Filippseyjum. Um 65% íbúanna eru frá Asíulöndum og innflytjendur hafa mikla þýðingu fyrir atvinnulífið, m.a. í byggingar- iðnaði og hvers konar þjónustu. AFP Um 170.000 manns sóttu messu páfa París. AFP. | Að minnsta kosti tíu manns létu lífið í eldi í fjölbýlishúsi í París í fyrrinótt og einn íbúanna var handtekinn vegna gruns um íkveikju. 30 manns voru fluttir á sjúkrahús vegna brunasára eða reykeitrunar, þeirra á meðal sex slökkviliðsmenn. Eldur logaði í efstu hæðum fjöl- býlishússins sem er átta hæða og í sextánda hverfi Parísar. Birt voru myndskeið þar sem slökkviliðsmenn sáust klífa stiga til að bjarga skelf- ingu lostnum íbúum sem voru sumir aðeins klæddir náttfötum. „Kona sem býr í byggingunni hef- ur verið handtekin. Hún er fertug og hafði áður átt við geðræn vandamál að stríða,“ sagði Remy Heitz, sak- sóknari í París. Hafin hefur verið sakamálarannsókn vegna gruns um að konan hafi gerst sek um íkveikju og manndráp. Nokkrir íbúanna röktu íkveikjuna til deilu milli nágranna í fjölbýlishús- inu. Erfitt að komast að húsinu Eldurinn kviknaði klukkan eitt í fyrrinótt og um 200 slökkviliðsmönn- um tókst að ráða niðurlögum hans rúmum fimm klukkustundum síðar. „Við héldum í fyrstu að þetta væru slagsmál, við heyrðum konu hrópa mjög hátt,“ sagði einn íbúanna. „Hún hélt áfram að hrópa, við fórum út og húsið var þegar í ljósum logum. Slökkviliðsmennirnir voru nýkomnir en það sem mér fannst furðulegast var að þeir gátu ekkert aðhafst. Þeir voru með slökkvibíla, stóra stiga, en gátu ekkert gert.“ Hermt er að slökkviliðsmenn hafi ekki getað hafið slökkvistarfið fyrr en þeir höfðu lengt brunastiga með framlengingum sem þeir þurftu að bera að byggingunni. „Það var mjög erfitt að komast að húsinu,“ sagði Emmanuel Gregoire, aðstoðar- borgarstjóri Parísar. Fjölbýlishúsið er í grennd við leik- vang fótboltafélagsins Paris Saint- Germain, og tennisvelli þar sem Opna franska tennismótið fer fram. Margar bygginganna í hverfinu eru gamlar, þær elstu frá sextándu öld, en húsið sem brann var reist á átt- unda áratug aldarinnar sem leið. Þetta er mannskæðasti bruni í París frá árinu 2005 þegar íkveikja í þrettánda hverfi borgarinnar kostaði sautján manns lífið, þar af fjórtán börn. AFP Mannskæður bruni Eldur logar í fjölbýlishúsi í sextánda hverfinu í París í fyrrinótt. Einn íbúa hússins var handtekinn vegna gruns um íkveikju. Tíu létu lífið vegna meintrar íkveikju  Eldur rakinn til nágrannakryts Börn leika sér á Kim Il Sung-torgi í Pjongjang, höfuð- borg Norður-Kóreu, þar sem nýju tunglári var fagnað í gær. Kim Jong-il, þáverandi leiðtogi landsins, endur- vakti árið 1989 þann sið að fagna nýju ári samkvæmt tungltímatalinu. Síðan þá hafa norðurkóreskar fjöl- skyldur komið saman á nýársdeginum til að fara í hefð- bunda kóreska leiki. Meðal annars er efnt til flugdreka- keppni á Kim Il Sung-torgi. AFP Nýju ári fagnað í Norður-Kóreu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.