Morgunblaðið - 06.02.2019, Side 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019
Fullt tungl Kveikt er á risatungli eftir listamanninn Luke Jerram í Hörpu og er það hluti UT-messunnar 2019. Áhugasamir þurfa því ekki að norpa úti til 11. febrúar í þeirri von að sjá tunglið.
Kristinn Magnússon
Í baráttu fyrir fram-
gangi hugmynda er
nauðsynlegt að láta sig
dreyma en til að ná ár-
angri er skynsamlegt
að átta sig á pólitískum
raunveruleika. Þetta á
til dæmis við þegar
kemur að því hvernig
best sé að tryggja
rekstur og fjárhagslegt
sjálfstæði fjölmiðla.
Sá stjórnmálamaður er varla til
sem ekki segist hafa áhyggjur af
stöðu frjálsra fjölmiðla. Höfð eru
uppi stór orð um hve nauðsynlegt
það sé að hlúa að fjölmiðlum enda
séu þeir ein grunnstoð frelsis og lýð-
ræðis. Fæstir eru hins vegar tilbúnir
að taka til hendinni og koma bönd-
um á alvarlegt mein; ríkisrekstur
fjölmiðla, sem blómstrar nú sem
aldrei fyrr.
Þetta er svipað og læknirinn sem
kemur sér hjá því að skera sjúkling-
inn upp til að koma honum til heilsu
en velur fremur að gefa honum
verkjalyf til að halda honum á lífi
þótt lífsgæðin séu ekki mikil eða
framtíðin björt.
Ég hef lengi átt mér þann draum
að ríkið dragi sig með öllu út úr fjöl-
miðlarekstri. Í frjálsu samfélagi er
ákveðin þversögn fólgin í því að ríkið
stundi miðlun frétta og upplýsinga
og taki að sér það hlutverk að veita
stjórnvöldum, atvinnulífinu og
helstu stofnunum samfélagsins
nauðsynlegt aðhald. Slíkt hlutverk
er betur komið í höndum frjálsra
fjölmiðla sem eiga að vera farvegur
fyrir lýðræðislega um-
ræðu, uppspretta upp-
lýsinga og frétta, en
síðast en ekki síst vera
varðmenn almennra
borgara. Samfélag sem
tryggir ekki starfsemi
frjálsra fjölmiðla lendir
fyrr eða síðar á villigöt-
um, eins og sagan hef-
ur sannað aftur og aft-
ur.
Loka augum og
halda fyrir eyrun
Lögvarin forréttindi Rík-
isútvarpsins hafa leitt til þess úti-
lokað er að tryggja heilbrigða sam-
keppni á jafnræðisgrunni. Þannig er
grafið undan sjálfstæðum fjöl-
miðlum á hverjum degi. Afleiðingin
er veikburða fjölmiðlun. Frjálsir
fjölmiðlar berjast í bökkum en fjár-
hagslegur hagur Ríkisútvarpsins
styrkist með hverju ári og dag-
skrárvaldið verður sífellt öflugra (og
að lokum algjört, verði leikurinn
ekki jafnaður).
Löggjafinn mótar lögin og þær
leikreglur sem eru í gildi á hverjum
tíma. Forréttindi Ríkisútvarpsins og
ójöfn og erfið staða sjálfstæðra fjöl-
miðla, er ákvörðun sem nýtur stuðn-
ings meiri hluta þingmanna.
Varnarmúrinn sem umlykur Rík-
isútvarpið er þéttur – svo þéttur að
ríkisfyrirtækið hefur komist upp
með að brjóta lög sem um starfsemi
þess gilda. Þegar vakin er athygli á
þessari staðreynd í sölum Alþingis,
loka flestir augunum, halda fyrir
eyrun og þegja.
Líkt og læknirinn sem vill ekki
takast á við mein sjúklingsins forð-
ast þingmenn að takast á við verk-
efnið og vilja fremur tengja einka-
rekna fjölmiðla við ríkisrekna
súrefnisvél.
Fátt hættulegra
Í júní á síðasta ári lýsti ég and-
stöðu við hugmyndir um að koma á
fót einhvers konar millifærslu- og
styrktarsjóði til að styðja við sjálf-
stæða fjölmiðla. Þá skrifaði ég hér á
þessum stað:
„Fátt er hættulegra fyrir frjálsa
fjölmiðlun en að vera háð opinberum
styrkjum og nefndum á vegum hins
opinbera sem skammta úr hnefa
fjármuni til að standa undir ein-
stökum þáttum í rekstrinum. Fjöl-
miðlun sem er háð hinu opinbera
með beinum hætti verður aldrei
frjáls nema í orði.
Ég hef ekki lagt það í vana minn
að nota stóryrði en nauðsyn brýtur
regluna. Það er galin hugmynd að
reyna að stuðla að frjálsri og óháðri
fjölmiðlun með umfangsmiklum
millifærslum og ríkisstyrkjum.
Verst er að með millifærslum og
styrkjum er í raun verið að réttlæta
ranglætið á fjölmiðlamarkaði og
komast þannig hjá því að fjarlæga
meinið sjálft.“
Í síðustu viku kynnti mennta-
málaráðherra tillögur um endur-
greiðslur á hluta ritstjórnarkostn-
aðar einkarekinna fjölmiðla.
Frumvarpið hefur verið kynnt í sam-
ráðsgátt stjórnvalda.
Ég efast ekki um að góður hugur
liggur að baki frumvarpi ráðherra
og einlægur ásetningur að grípa til
aðgerða til styrkja sjálfstæða fjöl-
miðla. Frumvarpið nær því miður
ekki tilgangi sínum og gengur raun-
ar þvert á hugmyndir um að tryggja
fjárhagslegt sjálfstæði fjölmiðla.
Fjölmiðill sem byggir tilveru sína á
ríkisstyrkjum, sem eru auk þess
undir yfirumsjón ríkisstofnunar,
getur aldrei talist fjárhagslega sjálf-
stæður.
Þá eru líkur á því að styrkjakerfið
í ætt við það sem kynnt hefur verið,
skekki samkeppnisstöðu sjálfstæðra
fjölmiðla þar sem þeir miðlar sem
geta ekki uppfyllt kröfur sem gerðar
verða, standa hlutfallslega veikari að
vígi gagnvart öðrum. Það hljómar
þversagnakennt, en sú hætta er
raunverulega fyrir hendi að fjöl-
miðlaflóran verði fátækari eftir að
ríkisstyrkir verða teknir upp.
Lækkun skatta og gjalda
Á umliðnum árum hef ég ítrekað
vakið athygli á nauðsyn þess að
tryggja stöðu frjálsra fjölmiðla. Það
verði ekki gert án þess að skilgreina
að nýju hlutverk og skyldur Rík-
isútvarpsins. Óásættanlegt sé að rík-
isreksturinn ryðji sjálfstæðum miðl-
um úr veginum í krafti forréttinda.
Engar líkur eru á því að pólitísk
samstaða náist um að draga ríkið út
úr fjölmiðla- og afþreyingarrekstri.
Draumur minn rætist því ekki á
komandi árum. Þess vegna hef ég
sætt mig við að nauðsynlegt sé að
leita annarra leiða til að byggja und-
ir sjálfstæða fjölmiðla. Styrktar- og
millifærslukerfi er versta leiðin.
Skilvirkasta leiðin til að styrkja
rekstrarumhverfi fjölmiðla er lækk-
un skatta. Ég hef varpað fram þeirri
hugmynd að afnema virðisaukaskatt
af áskrift fjölmiðla. Hugmyndin er
langt í frá fullkomin og helsti gallinn
er að stór hluti einkarekinna fjöl-
miðla nýtur í engu slíkrar ívilnunar.
Nauðsynlegt er að skattaívilnanir
séu samræmdar og gegnsæjar. Allir
– í þessu tilfelli einkareknir fjöl-
miðlar – eiga að sitja við sama borð
og fá hlutfallslega sömu ívilnun.
Þetta er hægt með því að fella trygg-
ingagjaldið niður. Með því næst
hlutfallslega sama lækkun á hvern
fjölmiðil miðað við launakostnað.
Skattaívilnunin er þannig byggð á
rekstri einstakra fjölmiðla. Hægt er
að setja þak á ívilnunina þannig að
hún nái aðeins til launa sem skatt-
lögð eru í neðra þrepi tekjuskatts,
en laun í efra þrepi beri trygginga-
gjaldið.
Með þessu verður engin nefnd eða
opinber stofnun sem metur hvort
umsókn fjölmiðils fullnægi til-
teknum skilyrðum heldur er skatt-
kerfið sniðið að rekstrarformi hvers
og eins fjölmiðils án þess að um-
sýslukostnaður stofnist af hálfu ríkis
og fjölmiðils við úthlutun fjármuna.
Niðurfelling tryggingagjalds er
leið til að rétta sjálfstæðum fjöl-
miðlum vopn þegar þeir reyna að
verjast áhlaupi fílsins í stofunni –
Ríkisútvarpsins.
Eftir Óla Björn
Kárason » Skilvirkasta leiðin til að styrkja rekstr-
arumhverfi einkarek-
inna fjölmiðla er lækkun
skatta. Styrktar- og
millifærslukerfi er
versta leiðin.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Einkareknir fjölmiðlar fái vopn til að verjast