Morgunblaðið - 06.02.2019, Page 23

Morgunblaðið - 06.02.2019, Page 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019 ✝ Haraldur Val-garður Har- aldsson fæddist í Reykjavík 3. ágúst 1932. Hann lést á Hrafnistu í Reykja- vík 16. janúar 2019. Foreldrar hans voru hjónin Val- gerður Steinunn Gísladóttir, f. 2.1. 1907 á Sölvabakka, Engihlíðarhreppi, Húnaþingi, d. 3.6. 1975, og Har- aldur Valdimar Ólafsson, f. 3.6. 1901 í Reykjavík, d. 18.9. 1984, forstjóri Fálkans hf. í Reykjavík. Systkini Haralds samfeðra eru: Ólafur Haraldsson, f. 15.7. 1946, kona hans er Gerður Bald- ursdóttir, f. 26.1. 1953; Kolbrún Björk Haraldsdóttir, f. 13.1. 1948, maður hennar er Hubert Seelow, f. 3.9. 1948. Haraldur kvæntist 1957 Vig- dísi Ragnheiði Garðarsdóttur, f. 24.1. 1936 í Hafnarfirði. Dóttir þeirra var Sigríður Vala Har- aldsdóttir, f. 1.8. 1958, d. 29.6. 2012. Börn Sigríðar Völu eru: a) Katla Rós Völudóttir, f. 5.10. 1980, barn Kötlu Rósar er Áróra Alba Ragnarsdóttir, f. 1.12. 2016; b) Síta Björk Rúnars- dóttir, f. 1.2. 1987; c) Una Val- rún Rúnarsdóttir, f. 10.9. 1988, og d) Sigtryggur Ómi Freyr Technische Hochschule í Stutt- gart í Þýskalandi 1954-1963. Hann starfaði hjá skipulags- deild borgarverkfræðings 1964, og rak eigin teiknistofu 1965- 1967. Sem arkitekt starfaði hann hjá Íslenska álfélaginu við framkvæmdir í Straumsvík 1967-1972. Hann starfaði eftir það sem arkitekt í Stuttgart 1972-1974. Hann var forstöðu- maður tæknideildar Húsnæðis- málastofnunar ríkisins 1974- 1977 og rak teiknistofu á Akur- eyri árin 1977-1982 ásamt Svani Eiríkssyni og Davíð Arnljóts- syni. Hann starfaði aftur í tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins 1983-1985. Hann var í samstarfi við Hauk Viktorsson 1987-1990 og við arkitekta í Þýskalandi 1990-1997. Að lok- um starfaði hann sem bygging- arfulltrúi á Hvammstanga 1997- 2002. Helstu verk Haralds eru: Hús Fálkans hf. við Suðurlandsbraut 8 í Reykjavík; Áskirkja í Reykjavík, ásamt Helga og Vil- hjálmi Hjálmarssonum; mið- bæjarskipulag á Akureyri, ásamt Svani Eiríkssyni; Spari- sjóður Ólafsfjarðar; fjölbýlishús í Nürnberg í Þýskalandi. Auk þess teiknaði Haraldur fjölda íbúðar- og atvinnuhúsa víðs vegar um landið. Haraldur starfaði um árabil í Frímúrarareglunni og var einn- ig mjög áhugasamur laxveiði- maður. Útför Haralds fer fram frá Áskirkju í dag, 6. febrúar 2019, klukkan 13. Völuson Hansen, f. 15.2. 1999. Har- aldur og Vigdís Ragnheiður skildu 1961. Haraldur kvænt- ist 1965 Elsu Lene Hoe Hermanns- dóttur, f. 2.5. 1938 í Reykjavík. Synir þeirra eru: 1) Har- aldur Christian Hoe Haraldsson, f. 14.5. 1964. Kona hans er María Sædís Baldursdóttir, f. 12.3. 1974. Sonur þeirra er Hermann Christian Hoe Haraldsson, f. 5.2. 2004. 2) Hermann Valur Hoe Haraldsson, f. 9.1. 1966. Kona hans er Toril Haraldsson, f. 28.6. 1968. Börn Hermanns eru: a) Magnus Haraldsson, f. 16.6. 1994, b) Malene Haraldsson, f. 25.3. 1998, c) Freya Haraldsson, f. 12.10. 2006. Hermann og fjöl- skylda búa í Danmörku. 3) Hörð- ur Valdimar Hoe Haraldsson, f. 29.10. 1970. Dóttir hans er Hilda Elsa Viktoria Haraldsson Hagerman, f. 9.5. 2011. Hörður býr í Svíþjóð. 4) Hinrik Hoe Har- aldsson, f. 19.4. 1972. Dóttir hans er Agnes Hinriksdóttir, f. 12.3. 2002. Haraldur og Elsa skildu 1983. Haraldur varð stúdent frá MR 1954. Hann nam arkitektúr við Haraldur Valgarður Haralds- son bróðir minn er látinn. Við Haraldur erum samfeðra, en hann var sonur föður okkar, Har- alds Valdimars Ólafssonar, og fyrri konu hans, Valgerðar Gísla- dóttur. Valgerður veiktist alvar- lega þegar Haraldur var í frum- bernsku og var honum þá komið í fóstur – fyrst til móðursystur sinnar Rakelar Sigríðar og manns hennar en síðan til föðurforeldra sinna, Þrúðar Guðrúnar Jónsdótt- ur og Ólafs Magnússonar, kaup- manns í Fálkanum. Á heimili þeirra Ólafs bættist Haraldur við stóran hóp föðursystkina sinna, en hin yngri voru þá enn í for- eldrahúsum. Ólst hann þar upp uns Þrúður lést árið 1949. Síðla sama ár fluttist hann til föður síns og síðari konu hans, Þóru Finn- bogadóttur, í nýbyggt hús þeirra í Skaftahlíð 5, en þau Þóra höfðu gengið í hjónaband fjórum árum áður og eignast okkur systkinin, Ólaf, f. 1946, og undirritaða Kol- brúnu, f. 1948. Á bernskuárum mínum var Haraldur unglingur- inn á heimilinu, sem hlustaði bæði á dægurtónlist, klassík og djass og spilaði sjálfur á fiðlu; litum við litlu systkinin heldur betur upp til hans. Að loknu stúdentsprófi 1954 hélt Haraldur til Þýskalands til náms í arkitektúr við Tæknihá- skólann í Stuttgart og lauk þaðan prófi 1963. Þótt fjarlægðin hafi þá verið mikil milli okkar systkina þótti okkur Haraldur aldrei vera langt í burtu: Hann skrifaði okkur reglulega; í Íslandsheimsóknum á sumrin sýndi hann litskyggnur á tjaldi með myndum af mannlífinu í Þýskalandi; loks flutti hann okk- ur kveðjur í útvarpinu á jóladag, eins og þá tíðkaðist. Á háskólaár- unum kvæntist Haraldur Vigdísi Ragnheiði Garðarsdóttur og eign- uðust þau eina dóttur; þau hjónin skildu eftir skamma sambúð. Heimkominn frá námi starfaði Haraldur fyrst við aðalskipulag Reykjavíkur, rak síðan eigin teiknistofu og vann í fimm ár hjá Ísal við framkvæmdir í Straums- vík. Á þessum árum kvæntist Haraldur Elsu Hermannsdóttur og eignuðust þau fjóra syni. En hugur Haralds leitaði aftur til Þýskalands: Árið 1972 tók hann sig upp með fjölskyldu sinni og réðst til starfa á teiknistofu í Stuttgart. Dvöldust þau þar í tvö ár. Eftir það var Haraldur for- stöðumaður tæknideildar Hús- næðismálastofnunar í þrjú ár, en fluttist þá ásamt fjölskyldu sinni til Akureyrar. Rak hann þar teiknistofu um fimm ára skeið í fé- lagi við tvo starfsbræður sína. Og enn á ný hélt Haraldur til Þýskalands, í þetta sinn fráskilinn og einn síns liðs: Haustið 1990, þegar Þýskaland var nýsameinað, réðst Haraldur til starfa á teikni- stofu sem sinnti verkefnum í Aust- ur-Þýskalandi. Ári síðar færði hann sig um set á stofu í Nürn- berg og varð þar með nágranni minn. Á Nürnberg-árunum kom hann oft til okkar hjónanna og var hrókur alls fagnaðar á góðra vina fundum, enda mannblendinn og sögufróður, og hélt skemmtilegar tækifærisræður, hvort sem var í stórafmælum eða stúdentsveislu systursonarins. Á þeim árum kynntist hann konu að nafni Elisa- beth Dussl, og héldu þau tryggð hvort við annað til hans hinsta dags. Eftir að hann fluttist heim til Íslands 1997 dvöldust þau lang- dvölum hvort hjá öðru, hann hjá henni í Þýskalandi eða hún hjá honum – fyrst á Hvammstanga og síðar í Reykjavík. Ég minnist Haralds bróður míns með hlýju og virðingu. Við Hubert Seelow bóndi minn og synir okkar vottum sonum Har- alds og öðrum aðstandendum inni- lega samúð. Kolbrún Haraldsdóttir, Erlangen, Þýskalandi. Nú þegar Valli vinur hefur kvatt kemur upp í hugann minn- ing um góðan vin, skólafélaga frá árunum í Stuttgart, samstarfs- og veiðifélaga. Eins og sjá má höfum við Valli brallað ýmislegt saman, en Valla kölluðum við vin okkar Harald Valgarð Haraldsson. Fyrstu kynni okkar hófust í Stutt- gart þar sem við stunduðum nám í arkitektúr. Valli hóf nám nokkrum árum fyrr og var öllum hnútum kunnugur og því gott að leita til hans og fá leiðsögn um gang mála innan skólans. Strax tókst með okkur góður vinskapur, sem hélst alla tíð síðan þó að nokkuð hafi dregið úr samverustundum hin síðari ár. Í skólanum var m.a. námsefni sem var fólgið í því að mæla upp gamlar byggingar. Á þessum tíma höfðum við kynnst frábærum þýskum og skemmti- legum skólafélaga, Ulrich Stahr, sem við kölluðum þá og alla tíð síð- ar Ulla og tók hann þátt í þessu verkefni með okkur. Ulli gerðist síðar íslenskur ríkisborgari, sem var happafengur. Nú spurðum við prófessor Hanson hvort kæmi til greina að mæla upp og teikna byggingu á Íslandi og lögðum til að Bustarfell í Vopnafirði yrði fyr- ir valinu og tók hann vel í það. Ferð okkar félaga í Vopnafjörð var ógleymanleg og félagsskapur við Methúsalem bónda og heim- ilisfólk hans. Þegar stund gafst frá mælingunum skruppum við Valli til veiða í Hofsá, en við vor- um báðir haldnir mikilli veiði- dellu. Í þessari ferð okkar lögðum við Valli með Guðmundi Sig- tryggssyni vini mínum, sem slóst í ferðina með okkur, grundvöll að Veiðiklúbbnum Streng, sem stofnaður var svo formlega með 16 félögum árið 1959. Þá minn- umst við félagar á Teiknistofunni góðs samstarfs með Valla í þátt- töku í samkeppnum, sem var gef- andi og skemmtilegt. Þetta sam- starf leiddi til þess að okkur félögum á Teiknistofunni Óðins- torgi og Valla var falið að teikna kirkju í Ásprestakalli og tók Valli að sér að leiða innanhússfrágang kirkjunnar, sem hann leysti með vandvirkni og alúð. Á starfsferli sínum sinnti Valli mörgum stærri verkefnum, m.a. uppbyggingu ÍSAL í Straumsvík. Þá vann hann mörg ár í Þýskalandi hjá þekktum arkitektastofum. Þá er ljúft að minnast félagsskapar okkar Maí með Elsu konu hans, en við vorum frumbyggjar í Fossvogi og var þá oft glatt á hjalla. Valli og Elsa slitu svo sambúð síðar. Að leiðar- lokum kveðjum við góðan vin og minnumst ánægilegra samveru- stunda. Við vottum sonum Har- aldar og fólkinu hans samúð við fráfall hans. Maí og Helgi Hjálmarsson. Ógleymanlegar veiðiferðir eru mér efst í huga þegar ég minnist vinar míns og veiðifélaga til margra ára, Haralds Valgarðs Haraldssonar, eða Valla, eins og hann var oftast kallaður meðal veiðifélaganna. Það var ávallt á vísan að róa ef hann var með í veiðihópnum, að eitthvað óvænt og skemmtilegt myndi gerast í veiðiferð þeirri sem fram undan var. Veiðiferðirnar urðu margar, vítt um land, um margra ára skeið og alltaf var Valli hrókur alls fagnaðar, með skemmtilegum frá- sögnum eða skondnum vísna- stúfum og frásagnargáfu hans var við brugðið. Meðlimur var hann í veiði- klúbbunum Streng og Þistlum, og best leið honum á bökkum stór- fljótanna þar sem von var á þeim stóra og lýsingarnar voru oft mergjaðar eftir stórlaxaviður- eignirnar. Sá stærsti sem ég vissi um að hann landaði var 28 punda hængur úr Sandá. Þá var hann ekki síður áhuga- samur um skotveiði og var í fé- lagsskap sem kallaði sig „Lands- liðið“, vel skipað stórskyttulið með Adda Barðdal í Seglagerð- inni Ægi í fararbroddi. Nokkuð oft gengum við saman til rjúpna. Holtavörðuheiðin heillaði, enda er þar mjög skemmtilegt og krefj- andi rjúpnaland. Mér er minnis- stæður einn dagur þar, þar sem öll skilyrði voru hin bestu og í birtingu ákváðum við að ganga hátt, sem við gerðum og náðum upp í Tröllakirkju um hádegi. Þarna var líka gnótt af fugli og höfðum við nálægt 50 rjúpur á til- tölulega skömmum tíma. Skall nú skyndilega á ofankoma með muggu sem knúði okkur til brott- farar. Héldum við sem leið lá nið- ur heiðina í bílinn og beint í Fornahvamm, þar sem aðsetur okkar var. Margar eru þær minningarnar sem ég á með Valla og fyrnast þær seint, en þakklæti ber ég í brjósti fyrir að hafa fengið að eiga samleið með þessum einstaka og skemmtilega manni sem við kveðjum nú. Handan árinnar er annar heimur. Blessuð sé minning góðs vinar. Hilmar Hafstein Svavarsson. Fundum okkar Haraldar bar fyrst saman þegar ég var við nám í Stuttgart, en á þeim árum var töluvert um Íslendinga við nám þar. Menn hittust gjarnan í mötu- neyti stúdenta í hádeginu og þar heyrði ég fyrst af Valla, eins og hann var oft kallaður meðal félaga sinna og vina. Fyrsta vísbending um manninn var að greifinn hefði komið í gær. Þegar ég spurði hvaða greifi það væri var mér sagt að hann væri Íslendingur, héti Haraldur og væri að læra arki- tektúr. Þetta með greifann væri að vísu svolítill misskilningur, til- kominn frá prófessornum sem kenndi honum. Haraldur hét fullu nafni Haraldur Valgarður Har- aldsson, en skrifaði sig Haraldur V. Haraldsson. Prófessorinn skildi þetta svo að V væri stytting fyrir „von“ (sem á þýsku er lesið „fon“ og er ávarpsorð fyrir greifa) og ávarpaði prófessorinn hann því von Haraldsson, og sá Haraldur enga ástæðu til að flækja málið. Við töluðum gjarnan um greifann til að undirstrika við hvern væri átt. Það kom fljótt í ljós að við Har- aldur áttum gott skap saman, sér í lagi varðandi gamanmál. Heim komnir, með nám að baki, héldum við síðan góðu sambandi þótt oft væri langt milli okkar sakir bú- setu. Ef ég ætti að lýsa mannkostum Haraldar í fáum orðum þá er mér efst í huga að hann var mann- blendinn og átti gott með að um- gangast fólk, laus við fordóma og hroka, orðvar, glaðvær og hafði næmt auga fyrir því spaugilega í lífinu, bjartsýnn, áræðinn og hafði gott hjartalag. Úttekt á honum sem fagmanni eftirlæt ég öðrum, enda ekki fagmaður á hans sviði. Persónulega fannst mér hann bjóða upp á fallegar og mjög praktískar lausnir varðandi þau verkefni sem ég hef séð og gott dæmi þar um er Áskirkja, þar sem útför hans fer nú fram. Það þurfti áræðni til að taka sig upp með lítil börn og sækja atvinnu er- lendis, eins og Haraldur gerði, en hann átti alla tíð auðvelt með að laga sig að aðstæðum. Prúð- mennska var honum í blóð borin og kom það sterkt í gegn í hans erfiða sjúkdómi. Haraldur var fæddur veiðimað- ur og lunkinn sem slíkur. Gilti þá einu hvort bráðin var fiðruð eða hreistruð. Sjálfur á ég margar góðar minningar varðandi hreistraða flokkinn, og sumar hverjar afar spaugilegar. Af nógu er að taka en ég læt nægja að minnast á eina slíka, þar sem ég var nú reyndar ekki þátttakandi. Veiðiferðin hófst með flugferð frá Reykjavík og skyldi síðan haldið áfram með bíl frá Akureyri. Allt var á síðustu stundu þegar þeir veiðifélagar renndu í hlað flugstöðvarinnar, rifu upp skott- lokið á bílnum og ruddust inn með farangurinn. Það stóð á endum að allt var frágengið þegar kallað var út í flugvélina. Alsælir og afslappaðir lentu þeir félagar síðan á Akureyri, en þá uppgötvaðist að bíllyklarnir væru „týndir“. Menn horfðust í augu. Enginn kannaðist við að hafa gengið frá bílnum og símtal við flugafgreiðsluna í Reykjavík staðfesti að við aðalinnganginn stæði bíll, með opið skott og vélina í gangi! Kæri vinur. Ég kveð þig með þakklæti fyrir allar þær ánægju- legu stundir sem við áttum saman. Ættingjum votta ég inni- lega hluttekningu. Kolbeinn Pétursson. Haraldur Valgarð- ur Haraldsson Ástkær eiginkona, móðir, dóttir, systir, mágkona og tengdadóttir, JÓNÍNA HELGA ÞÓRÓLFSDÓTTIR, andaðist á líknardeild Landspítalans sunnudaginn 27. janúar. Útförin fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 8. febrúar klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarkort Ljóssins. Orri Hallgrímsson Loftur Snær Orrason Lena Líf Orradóttir Þorbjörg Júlíusdóttir Þórólfur Magnússon Júlíus Björn Þórólfsson Rebekka Rós Þorsteinsdóttir Aðalheiður Dóra Þórólfsd. Ásgeir Freyr Ásgeirsson Guðrún Ófeigsdóttir Hallgrímur Arason Lena Hallgrímsdóttir Einar Steinsson Ari Hallgrímsson Rut Viktorsdóttir Högni Hallgrímsson Perla Konráðsdóttir og börn ANNA GUNNLAUG EGGERTSDÓTTIR, Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ, lést á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi miðvikudaginn 30. janúar. Hún verður sungin til moldar frá Áskirkju klukkan 15 fimmtudaginn 7. febrúar. Magnea Jóhannsdóttir Sölvi Sveinsson Eggert Jóhannsson Friðrik Jóhannsson Hildur Guðnadóttir Guðrún Jóhannsdóttir Jóhanna Jóhannsdóttir Kjartan R. Guðmundsson Ingibjörg Jóhannsdóttir Einar Falur Ingólfsson Þórný Jóhannsdóttir Peter Lund barnabörn, barnabarnabörn, systkin og aðrir vinir og vandamenn Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓRA C. ÓSKARSDÓTTIR bókasafnsfræðingur, Sæbraut 8, Seltjarnarnesi, verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn 8. febrúar klukkan 15. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta líknarfélög njóta þess. Ari Ólafsson Magnús Arason Áslaug Jónsdóttir Ragnheiður Aradóttir Kári Steinar Karlsson Óskar Ólafur Arason Ingibjörg S. Sigurðardóttir og barnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, mágkona og amma, KRISTRÚN PÁLSDÓTTIR, Miðholti 11, Mosfellsbæ, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 31. janúar. Útförin fer fram í Fossvogskirkju föstudaginn 8. febrúar klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið, endurhæfingu fyrir krabbameinsgreinda. Sigríður Ellen Arnardóttir Kári B. Þorsteinsson Erna Sif Arnardóttir Hlynur Ómarsson Arndís Arnardóttir Sigurjón Jónsson Ásgerður Pálsdóttir Einhildur I. Pálsdóttir Páll Ásmundsson Eyjólfur Pálsson Ingibjörg Þ. Gunnarsd. Marta Pálsdóttir Guðmundur Hannesson Guðni Freyr, Þorsteinn Ingi, Fannar Örn, Ómar Örn, Dagur Jan, Sara Líf og Camilla Rún

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.