Morgunblaðið - 06.02.2019, Síða 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019
✝ Haraldur Val-garður Har-
aldsson fæddist í
Reykjavík 3. ágúst
1932. Hann lést á
Hrafnistu í Reykja-
vík 16. janúar 2019.
Foreldrar hans
voru hjónin Val-
gerður Steinunn
Gísladóttir, f. 2.1.
1907 á Sölvabakka,
Engihlíðarhreppi,
Húnaþingi, d. 3.6. 1975, og Har-
aldur Valdimar Ólafsson, f. 3.6.
1901 í Reykjavík, d. 18.9. 1984,
forstjóri Fálkans hf. í Reykjavík.
Systkini Haralds samfeðra
eru: Ólafur Haraldsson, f. 15.7.
1946, kona hans er Gerður Bald-
ursdóttir, f. 26.1. 1953; Kolbrún
Björk Haraldsdóttir, f. 13.1.
1948, maður hennar er Hubert
Seelow, f. 3.9. 1948.
Haraldur kvæntist 1957 Vig-
dísi Ragnheiði Garðarsdóttur, f.
24.1. 1936 í Hafnarfirði. Dóttir
þeirra var Sigríður Vala Har-
aldsdóttir, f. 1.8. 1958, d. 29.6.
2012. Börn Sigríðar Völu eru: a)
Katla Rós Völudóttir, f. 5.10.
1980, barn Kötlu Rósar er Áróra
Alba Ragnarsdóttir, f. 1.12.
2016; b) Síta Björk Rúnars-
dóttir, f. 1.2. 1987; c) Una Val-
rún Rúnarsdóttir, f. 10.9. 1988,
og d) Sigtryggur Ómi Freyr
Technische Hochschule í Stutt-
gart í Þýskalandi 1954-1963.
Hann starfaði hjá skipulags-
deild borgarverkfræðings 1964,
og rak eigin teiknistofu 1965-
1967. Sem arkitekt starfaði
hann hjá Íslenska álfélaginu við
framkvæmdir í Straumsvík
1967-1972. Hann starfaði eftir
það sem arkitekt í Stuttgart
1972-1974. Hann var forstöðu-
maður tæknideildar Húsnæðis-
málastofnunar ríkisins 1974-
1977 og rak teiknistofu á Akur-
eyri árin 1977-1982 ásamt Svani
Eiríkssyni og Davíð Arnljóts-
syni. Hann starfaði aftur í
tæknideild Húsnæðisstofnunar
ríkisins 1983-1985. Hann var í
samstarfi við Hauk Viktorsson
1987-1990 og við arkitekta í
Þýskalandi 1990-1997. Að lok-
um starfaði hann sem bygging-
arfulltrúi á Hvammstanga 1997-
2002.
Helstu verk Haralds eru: Hús
Fálkans hf. við Suðurlandsbraut
8 í Reykjavík; Áskirkja í
Reykjavík, ásamt Helga og Vil-
hjálmi Hjálmarssonum; mið-
bæjarskipulag á Akureyri,
ásamt Svani Eiríkssyni; Spari-
sjóður Ólafsfjarðar; fjölbýlishús
í Nürnberg í Þýskalandi. Auk
þess teiknaði Haraldur fjölda
íbúðar- og atvinnuhúsa víðs
vegar um landið.
Haraldur starfaði um árabil í
Frímúrarareglunni og var einn-
ig mjög áhugasamur laxveiði-
maður.
Útför Haralds fer fram frá
Áskirkju í dag, 6. febrúar 2019,
klukkan 13.
Völuson Hansen, f.
15.2. 1999. Har-
aldur og Vigdís
Ragnheiður skildu
1961.
Haraldur kvænt-
ist 1965 Elsu Lene
Hoe Hermanns-
dóttur, f. 2.5. 1938 í
Reykjavík. Synir
þeirra eru: 1) Har-
aldur Christian
Hoe Haraldsson, f.
14.5. 1964. Kona hans er María
Sædís Baldursdóttir, f. 12.3.
1974. Sonur þeirra er Hermann
Christian Hoe Haraldsson, f. 5.2.
2004. 2) Hermann Valur Hoe
Haraldsson, f. 9.1. 1966. Kona
hans er Toril Haraldsson, f.
28.6. 1968. Börn Hermanns eru:
a) Magnus Haraldsson, f. 16.6.
1994, b) Malene Haraldsson, f.
25.3. 1998, c) Freya Haraldsson,
f. 12.10. 2006. Hermann og fjöl-
skylda búa í Danmörku. 3) Hörð-
ur Valdimar Hoe Haraldsson, f.
29.10. 1970. Dóttir hans er Hilda
Elsa Viktoria Haraldsson
Hagerman, f. 9.5. 2011. Hörður
býr í Svíþjóð. 4) Hinrik Hoe Har-
aldsson, f. 19.4. 1972. Dóttir
hans er Agnes Hinriksdóttir, f.
12.3. 2002. Haraldur og Elsa
skildu 1983.
Haraldur varð stúdent frá MR
1954. Hann nam arkitektúr við
Haraldur Valgarður Haralds-
son bróðir minn er látinn. Við
Haraldur erum samfeðra, en
hann var sonur föður okkar, Har-
alds Valdimars Ólafssonar, og
fyrri konu hans, Valgerðar Gísla-
dóttur. Valgerður veiktist alvar-
lega þegar Haraldur var í frum-
bernsku og var honum þá komið í
fóstur – fyrst til móðursystur
sinnar Rakelar Sigríðar og manns
hennar en síðan til föðurforeldra
sinna, Þrúðar Guðrúnar Jónsdótt-
ur og Ólafs Magnússonar, kaup-
manns í Fálkanum. Á heimili
þeirra Ólafs bættist Haraldur við
stóran hóp föðursystkina sinna,
en hin yngri voru þá enn í for-
eldrahúsum. Ólst hann þar upp
uns Þrúður lést árið 1949. Síðla
sama ár fluttist hann til föður síns
og síðari konu hans, Þóru Finn-
bogadóttur, í nýbyggt hús þeirra í
Skaftahlíð 5, en þau Þóra höfðu
gengið í hjónaband fjórum árum
áður og eignast okkur systkinin,
Ólaf, f. 1946, og undirritaða Kol-
brúnu, f. 1948. Á bernskuárum
mínum var Haraldur unglingur-
inn á heimilinu, sem hlustaði bæði
á dægurtónlist, klassík og djass
og spilaði sjálfur á fiðlu; litum við
litlu systkinin heldur betur upp til
hans.
Að loknu stúdentsprófi 1954
hélt Haraldur til Þýskalands til
náms í arkitektúr við Tæknihá-
skólann í Stuttgart og lauk þaðan
prófi 1963. Þótt fjarlægðin hafi þá
verið mikil milli okkar systkina
þótti okkur Haraldur aldrei vera
langt í burtu: Hann skrifaði okkur
reglulega; í Íslandsheimsóknum á
sumrin sýndi hann litskyggnur á
tjaldi með myndum af mannlífinu
í Þýskalandi; loks flutti hann okk-
ur kveðjur í útvarpinu á jóladag,
eins og þá tíðkaðist. Á háskólaár-
unum kvæntist Haraldur Vigdísi
Ragnheiði Garðarsdóttur og eign-
uðust þau eina dóttur; þau hjónin
skildu eftir skamma sambúð.
Heimkominn frá námi starfaði
Haraldur fyrst við aðalskipulag
Reykjavíkur, rak síðan eigin
teiknistofu og vann í fimm ár hjá
Ísal við framkvæmdir í Straums-
vík. Á þessum árum kvæntist
Haraldur Elsu Hermannsdóttur
og eignuðust þau fjóra syni.
En hugur Haralds leitaði aftur
til Þýskalands: Árið 1972 tók hann
sig upp með fjölskyldu sinni og
réðst til starfa á teiknistofu í
Stuttgart. Dvöldust þau þar í tvö
ár. Eftir það var Haraldur for-
stöðumaður tæknideildar Hús-
næðismálastofnunar í þrjú ár, en
fluttist þá ásamt fjölskyldu sinni
til Akureyrar. Rak hann þar
teiknistofu um fimm ára skeið í fé-
lagi við tvo starfsbræður sína.
Og enn á ný hélt Haraldur til
Þýskalands, í þetta sinn fráskilinn
og einn síns liðs: Haustið 1990,
þegar Þýskaland var nýsameinað,
réðst Haraldur til starfa á teikni-
stofu sem sinnti verkefnum í Aust-
ur-Þýskalandi. Ári síðar færði
hann sig um set á stofu í Nürn-
berg og varð þar með nágranni
minn. Á Nürnberg-árunum kom
hann oft til okkar hjónanna og var
hrókur alls fagnaðar á góðra vina
fundum, enda mannblendinn og
sögufróður, og hélt skemmtilegar
tækifærisræður, hvort sem var í
stórafmælum eða stúdentsveislu
systursonarins. Á þeim árum
kynntist hann konu að nafni Elisa-
beth Dussl, og héldu þau tryggð
hvort við annað til hans hinsta
dags. Eftir að hann fluttist heim til
Íslands 1997 dvöldust þau lang-
dvölum hvort hjá öðru, hann hjá
henni í Þýskalandi eða hún hjá
honum – fyrst á Hvammstanga og
síðar í Reykjavík.
Ég minnist Haralds bróður
míns með hlýju og virðingu. Við
Hubert Seelow bóndi minn og
synir okkar vottum sonum Har-
alds og öðrum aðstandendum inni-
lega samúð.
Kolbrún Haraldsdóttir,
Erlangen, Þýskalandi.
Nú þegar Valli vinur hefur
kvatt kemur upp í hugann minn-
ing um góðan vin, skólafélaga frá
árunum í Stuttgart, samstarfs- og
veiðifélaga. Eins og sjá má höfum
við Valli brallað ýmislegt saman,
en Valla kölluðum við vin okkar
Harald Valgarð Haraldsson.
Fyrstu kynni okkar hófust í Stutt-
gart þar sem við stunduðum nám í
arkitektúr. Valli hóf nám nokkrum
árum fyrr og var öllum hnútum
kunnugur og því gott að leita til
hans og fá leiðsögn um gang mála
innan skólans. Strax tókst með
okkur góður vinskapur, sem hélst
alla tíð síðan þó að nokkuð hafi
dregið úr samverustundum hin
síðari ár. Í skólanum var m.a.
námsefni sem var fólgið í því að
mæla upp gamlar byggingar. Á
þessum tíma höfðum við kynnst
frábærum þýskum og skemmti-
legum skólafélaga, Ulrich Stahr,
sem við kölluðum þá og alla tíð síð-
ar Ulla og tók hann þátt í þessu
verkefni með okkur. Ulli gerðist
síðar íslenskur ríkisborgari, sem
var happafengur. Nú spurðum við
prófessor Hanson hvort kæmi til
greina að mæla upp og teikna
byggingu á Íslandi og lögðum til
að Bustarfell í Vopnafirði yrði fyr-
ir valinu og tók hann vel í það.
Ferð okkar félaga í Vopnafjörð
var ógleymanleg og félagsskapur
við Methúsalem bónda og heim-
ilisfólk hans. Þegar stund gafst
frá mælingunum skruppum við
Valli til veiða í Hofsá, en við vor-
um báðir haldnir mikilli veiði-
dellu. Í þessari ferð okkar lögðum
við Valli með Guðmundi Sig-
tryggssyni vini mínum, sem slóst í
ferðina með okkur, grundvöll að
Veiðiklúbbnum Streng, sem
stofnaður var svo formlega með
16 félögum árið 1959. Þá minn-
umst við félagar á Teiknistofunni
góðs samstarfs með Valla í þátt-
töku í samkeppnum, sem var gef-
andi og skemmtilegt. Þetta sam-
starf leiddi til þess að okkur
félögum á Teiknistofunni Óðins-
torgi og Valla var falið að teikna
kirkju í Ásprestakalli og tók Valli
að sér að leiða innanhússfrágang
kirkjunnar, sem hann leysti með
vandvirkni og alúð. Á starfsferli
sínum sinnti Valli mörgum stærri
verkefnum, m.a. uppbyggingu
ÍSAL í Straumsvík. Þá vann hann
mörg ár í Þýskalandi hjá þekktum
arkitektastofum. Þá er ljúft að
minnast félagsskapar okkar Maí
með Elsu konu hans, en við vorum
frumbyggjar í Fossvogi og var þá
oft glatt á hjalla. Valli og Elsa
slitu svo sambúð síðar. Að leiðar-
lokum kveðjum við góðan vin og
minnumst ánægilegra samveru-
stunda. Við vottum sonum Har-
aldar og fólkinu hans samúð við
fráfall hans.
Maí og Helgi Hjálmarsson.
Ógleymanlegar veiðiferðir eru
mér efst í huga þegar ég minnist
vinar míns og veiðifélaga til
margra ára, Haralds Valgarðs
Haraldssonar, eða Valla, eins og
hann var oftast kallaður meðal
veiðifélaganna. Það var ávallt á
vísan að róa ef hann var með í
veiðihópnum, að eitthvað óvænt
og skemmtilegt myndi gerast í
veiðiferð þeirri sem fram undan
var. Veiðiferðirnar urðu margar,
vítt um land, um margra ára skeið
og alltaf var Valli hrókur alls
fagnaðar, með skemmtilegum frá-
sögnum eða skondnum vísna-
stúfum og frásagnargáfu hans var
við brugðið.
Meðlimur var hann í veiði-
klúbbunum Streng og Þistlum, og
best leið honum á bökkum stór-
fljótanna þar sem von var á þeim
stóra og lýsingarnar voru oft
mergjaðar eftir stórlaxaviður-
eignirnar. Sá stærsti sem ég vissi
um að hann landaði var 28 punda
hængur úr Sandá.
Þá var hann ekki síður áhuga-
samur um skotveiði og var í fé-
lagsskap sem kallaði sig „Lands-
liðið“, vel skipað stórskyttulið
með Adda Barðdal í Seglagerð-
inni Ægi í fararbroddi. Nokkuð
oft gengum við saman til rjúpna.
Holtavörðuheiðin heillaði, enda er
þar mjög skemmtilegt og krefj-
andi rjúpnaland. Mér er minnis-
stæður einn dagur þar, þar sem
öll skilyrði voru hin bestu og í
birtingu ákváðum við að ganga
hátt, sem við gerðum og náðum
upp í Tröllakirkju um hádegi.
Þarna var líka gnótt af fugli og
höfðum við nálægt 50 rjúpur á til-
tölulega skömmum tíma. Skall nú
skyndilega á ofankoma með
muggu sem knúði okkur til brott-
farar. Héldum við sem leið lá nið-
ur heiðina í bílinn og beint í
Fornahvamm, þar sem aðsetur
okkar var.
Margar eru þær minningarnar
sem ég á með Valla og fyrnast
þær seint, en þakklæti ber ég í
brjósti fyrir að hafa fengið að eiga
samleið með þessum einstaka og
skemmtilega manni sem við
kveðjum nú. Handan árinnar er
annar heimur.
Blessuð sé minning góðs vinar.
Hilmar Hafstein
Svavarsson.
Fundum okkar Haraldar bar
fyrst saman þegar ég var við nám
í Stuttgart, en á þeim árum var
töluvert um Íslendinga við nám
þar. Menn hittust gjarnan í mötu-
neyti stúdenta í hádeginu og þar
heyrði ég fyrst af Valla, eins og
hann var oft kallaður meðal félaga
sinna og vina. Fyrsta vísbending
um manninn var að greifinn hefði
komið í gær. Þegar ég spurði
hvaða greifi það væri var mér sagt
að hann væri Íslendingur, héti
Haraldur og væri að læra arki-
tektúr. Þetta með greifann væri
að vísu svolítill misskilningur, til-
kominn frá prófessornum sem
kenndi honum. Haraldur hét fullu
nafni Haraldur Valgarður Har-
aldsson, en skrifaði sig Haraldur
V. Haraldsson. Prófessorinn
skildi þetta svo að V væri stytting
fyrir „von“ (sem á þýsku er lesið
„fon“ og er ávarpsorð fyrir greifa)
og ávarpaði prófessorinn hann því
von Haraldsson, og sá Haraldur
enga ástæðu til að flækja málið.
Við töluðum gjarnan um greifann
til að undirstrika við hvern væri
átt.
Það kom fljótt í ljós að við Har-
aldur áttum gott skap saman, sér í
lagi varðandi gamanmál. Heim
komnir, með nám að baki, héldum
við síðan góðu sambandi þótt oft
væri langt milli okkar sakir bú-
setu.
Ef ég ætti að lýsa mannkostum
Haraldar í fáum orðum þá er mér
efst í huga að hann var mann-
blendinn og átti gott með að um-
gangast fólk, laus við fordóma og
hroka, orðvar, glaðvær og hafði
næmt auga fyrir því spaugilega í
lífinu, bjartsýnn, áræðinn og hafði
gott hjartalag. Úttekt á honum
sem fagmanni eftirlæt ég öðrum,
enda ekki fagmaður á hans sviði.
Persónulega fannst mér hann
bjóða upp á fallegar og mjög
praktískar lausnir varðandi þau
verkefni sem ég hef séð og gott
dæmi þar um er Áskirkja, þar
sem útför hans fer nú fram. Það
þurfti áræðni til að taka sig upp
með lítil börn og sækja atvinnu er-
lendis, eins og Haraldur gerði, en
hann átti alla tíð auðvelt með að
laga sig að aðstæðum. Prúð-
mennska var honum í blóð borin
og kom það sterkt í gegn í hans
erfiða sjúkdómi.
Haraldur var fæddur veiðimað-
ur og lunkinn sem slíkur. Gilti þá
einu hvort bráðin var fiðruð eða
hreistruð. Sjálfur á ég margar
góðar minningar varðandi
hreistraða flokkinn, og sumar
hverjar afar spaugilegar. Af nógu
er að taka en ég læt nægja að
minnast á eina slíka, þar sem ég
var nú reyndar ekki þátttakandi.
Veiðiferðin hófst með flugferð frá
Reykjavík og skyldi síðan haldið
áfram með bíl frá Akureyri. Allt
var á síðustu stundu þegar þeir
veiðifélagar renndu í hlað
flugstöðvarinnar, rifu upp skott-
lokið á bílnum og ruddust inn með
farangurinn. Það stóð á endum að
allt var frágengið þegar kallað var
út í flugvélina.
Alsælir og afslappaðir lentu
þeir félagar síðan á Akureyri, en
þá uppgötvaðist að bíllyklarnir
væru „týndir“. Menn horfðust í
augu. Enginn kannaðist við að
hafa gengið frá bílnum og símtal
við flugafgreiðsluna í Reykjavík
staðfesti að við aðalinnganginn
stæði bíll, með opið skott og vélina
í gangi!
Kæri vinur. Ég kveð þig með
þakklæti fyrir allar þær ánægju-
legu stundir sem við áttum
saman. Ættingjum votta ég inni-
lega hluttekningu.
Kolbeinn Pétursson.
Haraldur Valgarð-
ur Haraldsson
Ástkær eiginkona, móðir, dóttir, systir,
mágkona og tengdadóttir,
JÓNÍNA HELGA ÞÓRÓLFSDÓTTIR,
andaðist á líknardeild Landspítalans
sunnudaginn 27. janúar. Útförin fer fram
frá Seljakirkju föstudaginn 8. febrúar
klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á minningarkort Ljóssins.
Orri Hallgrímsson
Loftur Snær Orrason
Lena Líf Orradóttir
Þorbjörg Júlíusdóttir Þórólfur Magnússon
Júlíus Björn Þórólfsson Rebekka Rós Þorsteinsdóttir
Aðalheiður Dóra Þórólfsd. Ásgeir Freyr Ásgeirsson
Guðrún Ófeigsdóttir Hallgrímur Arason
Lena Hallgrímsdóttir Einar Steinsson
Ari Hallgrímsson Rut Viktorsdóttir
Högni Hallgrímsson Perla Konráðsdóttir
og börn
ANNA GUNNLAUG EGGERTSDÓTTIR,
Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ,
lést á Landspítala-Háskólasjúkrahúsi
miðvikudaginn 30. janúar. Hún verður
sungin til moldar frá Áskirkju klukkan 15
fimmtudaginn 7. febrúar.
Magnea Jóhannsdóttir Sölvi Sveinsson
Eggert Jóhannsson
Friðrik Jóhannsson Hildur Guðnadóttir
Guðrún Jóhannsdóttir
Jóhanna Jóhannsdóttir Kjartan R. Guðmundsson
Ingibjörg Jóhannsdóttir Einar Falur Ingólfsson
Þórný Jóhannsdóttir Peter Lund
barnabörn, barnabarnabörn, systkin
og aðrir vinir og vandamenn
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
ÞÓRA C. ÓSKARSDÓTTIR
bókasafnsfræðingur,
Sæbraut 8,
Seltjarnarnesi,
verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn 8. febrúar
klukkan 15. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á að láta líknarfélög njóta þess.
Ari Ólafsson
Magnús Arason Áslaug Jónsdóttir
Ragnheiður Aradóttir Kári Steinar Karlsson
Óskar Ólafur Arason Ingibjörg S. Sigurðardóttir
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir,
mágkona og amma,
KRISTRÚN PÁLSDÓTTIR,
Miðholti 11, Mosfellsbæ,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 31. janúar.
Útförin fer fram í Fossvogskirkju föstudaginn 8. febrúar
klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið, endurhæfingu fyrir
krabbameinsgreinda.
Sigríður Ellen Arnardóttir Kári B. Þorsteinsson
Erna Sif Arnardóttir Hlynur Ómarsson
Arndís Arnardóttir Sigurjón Jónsson
Ásgerður Pálsdóttir
Einhildur I. Pálsdóttir Páll Ásmundsson
Eyjólfur Pálsson Ingibjörg Þ. Gunnarsd.
Marta Pálsdóttir Guðmundur Hannesson
Guðni Freyr, Þorsteinn Ingi, Fannar Örn,
Ómar Örn, Dagur Jan, Sara Líf og Camilla Rún