Morgunblaðið - 06.02.2019, Síða 25
vera viðstaddir doktorsvörnina,
sem í mínum [Gylfa] huga er
miklu meira afrek en þegar
Kjartan Ólafsson kaffærði Ólaf
konung Tryggvason í Niðarósi
fyrir um 1050 árum“. Skemmti-
legri kveðju er vart hægt að fá.
Í fjársjóði minninganna eru
samverustundir og ferðir með
Gylfa, Ásu og dætrum. Gylfi og
Ása hafa jafnan verið höfðingjar
heim að sækja og heiðursgestir
þangað sem þau eru boðin. Ásu,
Gylfadætrum og fjölskyldum
vottum ég og fjölskylda mín ein-
læga samúð okkar.
Gylfi, frændi minn, lifir í hjarta
og minni okkar allra sem hann
þekktum. Það birtir til í huga
okkar við minningu hans líkt og
nærvera hans hleypti skýjum frá
sól. Gylfa kveðjum við hlýjum
huga með orðum sem hann lagði í
bréf með vísan í að langafi Krist-
ján, afi Gylfa, hefði þannig endað
öll sín bréf til vina og ættingja.
Gylfi Guðmundsson, ávallt kært
kvaddur og Guði falinn.
Fjóla Guðrún
Sigtryggsdóttir.
„Nei … eru Keflvíkingarnir
komnir,“ sagði Gylfi frændi skæl-
brosandi með útbreiddan faðm-
inn þegar við Helgi Matthías og
Lubbi heimsóttum hann á Grund
fyrir nokkrum vikum. Jafnvel
þótt minnið væri aðeins farið að
bregðast þekkti hann okkur og
fagnaði komu okkar jafn vel og
endranær.
Gylfa þótti nefnilega svo vænt
um fólkið sitt og var sennilega
frændræknasti maður í heimi.
Víðimelurinn var öllum opinn og
þau hjónin voru dugleg að halda
fjölskyldunni saman með fjöl-
mennum jólaboðum og öðrum
stórveislum. Gylfi hafði einlægan
áhuga á því hvað við vorum að
gera og var mikill ættarhöfðingi.
Hann fylgdist vel með mér á sín-
um tíma í pólitíkinni og hvatti mig
áfram og studdi. Ég minnist ótal
símtala frá frænda þar sem hann
oftar en ekki vildi bara segja mér
hvað hann væri stoltur af frænku.
Gylfi var litli bróðir móður
minnar og það var alltaf kært á
milli þeirra systkina. Ég á honum
margt að þakka, jafnvel lífið
sjálft, þar sem það var ekki síst
fyrir hans milligöngu að foreldrar
mínir urðu par á sínum tíma. Gylfi
og pabbi voru vinir og skóla-
bræður í Menntaskólanum í
Reykjavík. Pabbi, sem er úr
Keflavík, leigði herbergi úti í bæ
og oftar en ekki bauð Gylfi pabba
með sér heim til ömmu og afa í
mat, þar sem hann kynnist
mömmu.
Nú eru þau systkinin saman á
ný, en jarðarför Gylfa fer einmitt
fram á dánardegi móður minnar,
sem lést úr sama sjúkdómi þenn-
an dag fyrir 16 árum. Á þeim tíma
hafa þau kvatt eitt af öðru; Siggi,
Dista, Ása og nú Gylfi og er Gerð-
ur ein eftir af systkinunum sex.
Ég votta elsku frænku mína inni-
legustu samúð.
Ég á eftir að sakna Gylfa
frænda og kveð hann með mikilli
virðingu. Hann var góður maður,
sannkallaður heiðursmaður.
Missir Ásu, Monnu og Millu er þó
mestur – það duldist engum
hversu sterkt samband þeirra
var. Við Guðjón og synir okkar
sendum þeim mæðgum og Jónínu
og Sólveigu, dætrum Gylfa af
fyrra hjónabandi, okkar kærustu
samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning elsku Gylfa
frænda.
Ragnheiður Elín Árnadóttir.
Látinn er góðvinur okkar,
Gylfi Guðmundsson. Blessuð sé
minning hans. Þeir hverfa nú óð-
um af vettvangi kæru förunaut-
arnir á lífsins vegi.
Gylfi var hamingjumaður.
Hann naut ástríkis og einstakrar
umhyggju Ásu Hönnu, eiginkonu
sinnar, og dætra þeirra, Helgu
Maureen og Ástu Camillu. Á
menningarheimili þeirra nutum
við, lítill hjónahópur, reglubund-
inna samverustunda um áratuga
skeið. Fagrar minningar og hlýj-
ar þakkir sameinast þaðan og
glæða hug.
Gylfi var fölskvalaus ráðdeild-
armaður þar sem fastlyndi og
glaðlyndi voru farsællega samof-
in í skapferli hans. Menningar-
lega sinnaður var hann. Unnandi
tónlistar og bókmennta. Gylfi
hafði til að bera gáfur skýrar,
minnið traust og tal hans jafnan
skörulegt og skemmtilegt. Fé-
lagslyndi var honum í blóð borið
og kom hann víða við í félögum og
félagsstörfum. Vildi hafa glatt á
hjalla og jákvæð áhrif á umhverfi
sitt. Þótt hann hafi hluta ævinnar
lifað og starfað erlendis var hann
tengdur Íslandi rammri taug alla
tíð. Þessi reynsla nýttist honum
vel á síðari árum er hann gerðist
leiðsögumaður valinna þýskra
ferðamanna hér á landi við góðan
orðstír enda afburða fjölfróður og
mikill sagnamaður. Skilningur
Gylfa var næmur, lundin hress og
hjartað heitt. Manni varð hlýtt í
návist hans. Slíkir menn lifa með
okkur þótt þeir deyi.
Gylfi var trúmaður. Hann elsk-
aði Guð og guðsneistann í manns-
sálinni, en kreddumaður var hann
ekki. Að lyktum kveðjum við kær-
an vin okkar sem nú hefur lagt út
á ókunna stigu.
Dæm svo mildan dauða,
Drottinn þínu barni
eins og léttu laufi
lyfti blær frá hjarni,
eins og lítill lækur
ljúki sínu hjali,
þar sem lygn í leyni
liggur marinn svali.
(Matthías Jochumsson)
F.h. hjónahópsins okkar,
Alda Halldórsdóttir,
Árni Þ. Árnason.
Gylfi Guðmundsson var í hópi
þeirra stúdenta sem útskrifuðust
úr Menntaskólanum í Reykjavík
1952. Hjá flestum okkar lauk þar
með fjögurra ára samfylgd. Á
þessum árum kynntumst við
Gylfa, hans léttu lund og ljúfa fasi
sem settu svip á alla framkomu
hans. Hann var góður námsmað-
ur, en gaf sér einnig tíma til að
sinna áhugamálum utan námsins.
Gylfi var í stærðfræðideild og
bekkjarbræður okkar í máladeild
kölluðu stærðfræðideildina
stundum leikfimideild í stríðni og
gáfu þá í skyn að áhugi okkar
beindist einkum að íþróttum en
menningin sæti á hakanum. Þetta
átti þó ekki við um Gylfa. Hans
áhugasvið voru fjölbreyttari en
svo, m.a. var hann virkur í leik-
listarstarfi skólans.
Menntaskólaárin eru mikill
mótunartími og hin mikla sam-
vera í leik og starfi myndar að
einhverju leyti sameiginlega lífs-
reynslu sem þróast í sameiginleg-
ar minningar þegar árin líða. Við
útskrift skilja leiðir, stúdentar
dreifast í nám eða störf og eru
jafnframt að leita að sínum stað í
tilverunni. Gylfi hélt til Þýska-
lands til náms í rekstrarhagfræði
og lauk því 1958. Næsta hálfan
annan áratuginn starfaði hann
ýmist hér heima eða fyrir íslensk
fyrirtæki í Þýskalandi.
Á þessu skeiði ævinnar eru
verkefnin ærin og almennt ekki
mikil þörf fyrir tengsl við gamla
bekkjarfélaga úr menntaskóla.
Hún birtist þó aftur þegar frá líð-
ur og fer bara vaxandi. Árgangur
MR-52 hefur um langt skeið hald-
ið samkomu einu sinni í mánuði
yfir veturinn. Jafnan er eitthvað
efni á dagskrá og í seinni tíð ber
einhver úr árganginum ábyrgð á
efninu. Gylfi sótti þessa fundi
ákaflega vel á meðan heilsa hans
leyfði, síðustu árin með aðstoð
Ásu konu sinnar og dætra, og
lagði sitt til dagskrárefnis. Stutt
var þá enn í kímnina og léttleik-
ann sem við kynntumst forðum.
Árgangur MR-52 sendir inni-
legar samúðarkveðjur til Ásu og
fjölskyldunnar allrar á kveðju-
stund.
Guðmundur Árnason,
Helgi Hallgrímsson.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019 25
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Brýt grýlukerti
af húsum
Ath. forðist slys
og tjónahættu
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Eystri-Grund lóð, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 225-1224, þingl. eig.
Sævar Ástmundsson, gerðarbeiðendur Landsbankinn hf. og Sveitar-
félagið Árborg, mánudaginn 11. febrúar nk. kl. 09:35.
Eystri-Grund, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 219-9367, þingl. eig. Sævar
Ástmundsson, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., mánudaginn 11.
febrúar nk. kl. 09:40.
Selvogsbraut 33, Sveitarfélagið Ölfus, fnr. 221-2768, þingl. eig. Ágúst
Arnar Sigurðsson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf.,
mánudaginn 11. febrúar nk. kl. 10:20.
Oddabraut 10, Sveitarfélagið Ölfus, fnr. 221-2574, þingl. eig. Magnús
Georg Jensen, gerðarbeiðandi Sveitarfélagið Ölfus, mánudaginn 11.
febrúar nk. kl. 10:30.
Faxabraut 4, Sveitarfélagið Ölfus, fnr. 221-2284, þingl. eig. Koltinna
ehf., gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., mánudaginn 11. febrúar nk. kl.
10:40.
Bjarnastaðir 2, Sveitarfélagið Ölfus, fnr. 221-1298, þingl. eig. Gunnar
Þór Hjaltason, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi, mánu-
daginn 11. febrúar nk. kl. 11:10.
Austurmörk 4, Hveragerði, fnr. 220-9819, þingl. eig. Athafnagleði ehf.,
gerðarbeiðandi Íslandspóstur ohf., mánudag 11. febrúar nk. kl. 11:35.
Kirkjuferjuhjáleiga I, Sveitarfélagið Ölfus, fnr. 234-3566 þingl. eig.
Ólafur Hafsteinn Einarsson, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf.,
mánudaginn 11. febrúar nk. kl. 12:05.
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
5. febrúar 2019
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Lambeyri ehf landnr. 201899, Svfél. Skagafjörður, fnr. 214-1262, þingl.
eig. Árhvammur ehf, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Norðurlandi
vestra og Sveitarfélagið Skagafjörður, þriðjudaginn 12. febrúar nk. kl.
14:00.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
5. febrúar 2019
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30, allir velkomnir. Foreldra-
morgnar kl. 9.30-11.30. Jóga með Grétu 60+ kl. 12.15 og 13.30. Söng-
stund kl. 13.45. Kaffi kl. 14.30-15.20. Bókaspjall með Hrafni kl. 15.
Árskógar Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin smíðastofa
kl. 9-16. Stóladans með Þóreyju kl. 10. Ganga um nágrennið kl. 13.
Opið hús, t.d. vist og brids kl. 13-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur
kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Sími 535 2700.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Botsía kl. 10.40-11.20. Spiladagur, frjáls spilamennska kl. 12.30-
15.50. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Breiðholtskirkja Eldri borgara starf Breiðholtskirkju er kl. 13.15
,,Maður er manns gaman" er alla miðvikudaga. Byrjum með kyrrðar-
stund kl. 12, eftir hana er súpa og brauð. Allir hjartanlega velkomnir.
Bústaðakirkja Félagsstarfið er á sínum stað kl. 13, spil, handavinna
og kaffið góða frá Sigurbjörgu. Gestur dagsins er séra Arndís Linn,
hún ætlar segja okkur frá Kristinni íhugun. Hlökkum til að sjá ykkur
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.10. Botsía kl. 13.30.
Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir!
Garðabær Vatnsleikfimi, Sjálandi kl. 7.30/15. Kvennaleikfimi, Sjálandi
kl. 9.30. Liðstyrkur, Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi, Ásgarði kl. 11.30.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11. Brids í Jónshúsi
kl. 13. Leir í smiðju, Kirkjuhvoli kl. 13. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gerðuberg 3-5 111 RVK Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Útskurð-
ur með leiðbeinanda kl. 9-12. Leikfimi, línudans kl. 11-12, Helgu Ben
kl. 11-11.30. Útskurður / pappamódel með leiðbeinanda kl. 13-16.
Félagsvist kl. 13-16. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, opinn tími, kl. 9.30 glerlist, kl.
13 félagsvist, kl. 13 postulínsmálun.
Grensáskirkja Samvera eldri borgara kl. 14-15.30. Helgistund, bingó
(fyrsta miðvikudag í mánuði), fræðsla, söngur og kaffiveitingar. Verið
hjartanlega velkomin.
Guðríðarkirkja Þorrablót Félagsstarfs eldri borgara miðvikudaginn
6. febrúar kl. 12. Helgistund í kirkjunni og söngur. Hrönn og Erlingur
Snær Guðmundsson koma með harmonikkuna, spila saman undir
borðhaldi. Jóhannes Kristjánsson eftirherma kemur í heimsókn til
okkar og fer með gamanmál. Þorramatur kostar kr. 2000. Allir hjartan-
lega velkomnir. Hlökkum til að sjá ykkur. sr. Karl, Hrönn og Lovísa.
Gullsmári Myndlist kl. 9. Postulínsmálun/kvennabridge /silfursmíði
kl. 13. Línudans lengra komnir kl. 16. Línudans fyrir byrjendur kl. 17.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Boccia kl.10-11. Útskurður með leiðbeinanda, kl. 9-12, 500 kr skiptið,
allir velkomnir. Opin handavinna kl. 9-14. Hádegismatur kl. 11.30.
Hraunsel Kl. 8-12 ganga í Kaplakrika, kl. 10 bókmenntaklúbbur aðra
hverja viku, kl. 11 línudans, kl. 13 Bingó, kl. 13 handverk, kl. 9-12
fjölstofan, Hjallabraut, kl. 10-11.30 pútt í Hraunkoti.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, zumba og leikfimi með Carynu kl. 10 og
hádegismatur kl. 11.30. Handavinna kl. 13, liðleiki á stólum og slökun
með Önnu kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50. Við hringborðið kl.
8.50, boðið upp á kaffi. Upplestrarhópur Soffíu kl. 9.45-11.45, línudans
kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30. Eftirmiðdagskaffi kl. 14.30, tálgun
með Valdóri kl. 14.30-17. Allir velkomnir, óháð aldri. Nánari upp. í
síma 411 2790.
Korpúlfar Glerlist og Qigong fellur niður í dag. Gönguhópar kl. 10 frá
Borgum og inni í Egilshöll. Keila kl. 10 í Egilshöll. Þorrablót Korpúlfa í
Borgum, húsið opnar kl. 18, þorramatur, skemmtiatriði, heiðursgestir,
minni karla, minni kvenna, dans og gleði. Uppselt. Muna taka með
sér aðgöngumiða og drykki. Góða skemmtun.
Langholtskirkja Samvera eldri borgara hefst á helgistund í kirkjunni
kl. 12.10, því næst er snæddur hádegisverður í safnaðarheimilinu.
Söngur, spil eða handavinna og að lokum miðdegiskaffi. Verið
hjartanlega velkomin.
Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45, Lesið upp úr blöðum kl.
10.15. Viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, tréútskurður kl. 9-12.
Upplestur kl. 11-11.30. Félagsvist kl. 14-16. Bónusbíllinnkl. 14.40, Opin
samvera kl. 16, bókasafnshópur kl. 14
Seltjarnarnes Gler og bræðsla á neðri hæð Félagsheimilisins kl. 9.
og 13. Leir, Skólabraut kl. 10. Botsía, Skólabraut kl. 10. Kaffispjall í
króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn,
Valhúsaskóla kl. 13. Handavinna, Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í
sundlauginni kl. 18.30. Á morgun fimmtudag verður félagsvist í sal-
num á Skólabraut kl. 13.30.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Göngu-hrólfar ganga frá Ásgarði,
Stangarhyl 4, kl. 10. Kaffi og rúnstykki eftir göngu. Söngfélag FEB
kóræfing kl. 16.30 stjórnandi Gylfi Gunnarsson.
Félagslíf
Rað- og smáauglýsingar
Samkoma kl. 20
Sögusamkoma kl. 20 í Kristni-
boðssalnum. Málfríður Finn-
bogdóttir: Guðrún Lárusdóttir og
kristniboðið. Hugvekja: María
Ágústsdóttir. Allir velkomnir.
Nú þú það sem
þú eia að
FINNA.is