Morgunblaðið - 06.02.2019, Side 27

Morgunblaðið - 06.02.2019, Side 27
óreglulegrar dagskrár sem fylgir ábyrgðarstöðu í sveitarstjórnar- málum. Samstarf og samvinna sveit- arfélaga á fjórðungs- og landsvísu, sem og hagsmunir sveitarfélagsins á ýmsum vettvangi, taka drjúgan tíma. Það er bæði það skemmtileg- asta sem ég hef gert um ævina, en einnig á köflum það erfiðasta. Það getur verið krefjandi að láta vinnu og einkalíf ganga upp, sérstaklega þegar verkefnin krefjast mikilla ferðalaga. Þá er nú eins gott að vera sérfræðingur í að lesa veðurspá og óhræddur við að ferðast einn milli landshluta. Ég held ég sé nú bara orðin ansi sjóuð í því eftir árin hérna fyrir vestan.“ Fríða situr fyrir hönd Vestur- byggðar í stjórn Eignarhaldsfélags Brunabótafélags Íslands. Var stjórnarmaður í stjórn Fjórðungs- sambands Vestfirðinga 2010-2016, varaformaður 2010-2014 og formað- ur um tæplega tveggja ára skeið 2014-2016. Fríða situr í stjórn Orkubús Vest- fjarða og er í stjórn Félags ferða- þjónustubænda, sem er félags- skapur ferðaþjóna á landsbyggðinni sem bjóða fram sína afurð undir merkjum Hey Iceland. Hún hefur verið félagi í Sjálfstæðisfélagi Arnarfjarðar um árabil. „Undanfarin ár hef ég sinnt eigin rekstri. Við hjónin eigum saman fyrirtæki sem rekur Gistihúsið við höfnina og fjölbýlishús með íbúða- leigu á Bíldudal. Við eigum einnig jörðina Kirkjuból í Bjarnardal í Ön- undarfirði og rekum þar sumargist- ingu undir merkjum Hey Iceland. Svo bjóðum við upp á bátsferðir á Arnarfirði í samvinnu við aðra aðila. Alla jafna taka félagsstörf ýmiss konar og samfélagsmálefni drjúgan tíma og hafa gert undanfarinn ára- tug eða svo. Ferðaþjónusta á lands- byggðinni er lífsstíll og tekur mest- allan frítímann, en ef stundir gefast vil ég helst vera á skíðum, ýmist á hinum fögru fjöllum Vestfjarða eða í frönsku Ölpunum með fjölskyld- unni. Við sveitarstjórnarkosningar í vor tók við nýr meirihluti í Vest- urbyggð og hef ég þá meiri tíma til að einbeita mér að fjölskyldunni og uppbyggingu í mínum rekstri.“ Fjölskylda Eiginmaður Fríðu er Guðmundur Valgeir Magnússon, f. 2.8. 1968, vél- fræðingur og tæknistjóri Arnarlax. Þau gengu í hjónaband 1998. For- eldrar hans eru hjónin Magnús Hringur Guðmundsson, fyrrv. bóndi og skipstjóri, og Jensína Ebba Jóns- dóttir, fyrrv. bóndi, bús. á Flateyri. Fyrri sambýlismaður Fríðu var Kol- beinn Gunnarsson, bús. í Reykjavík. Börn: 1) Eva Lind Guðmunds- dóttir, f. 7.9. 1987, dóttir Guð- mundar frá fyrra hjónabandi. Nem- andi í líftækni og sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri, bús. á Bíldudal. Eiginmaður: Jón Ragnar Gunnarsson, þau eiga þrjú börn; 2) Ólafur Helgi Kolbeinsson, sonur Friðbjargar úr fyrra sambandi, f. 22.10. 1990, er við nám í hljóð- blöndun og upptökustjórn í Amst- erdam; 3) Matthías Karl Guðmunds- son, f. 25.4. 1998, stundar nám í Vélskóla Íslands; 4) Magnús Hring- ur Guðmundsson, f. 12.5. 2003, nemi í grunnskólanum á Bíldudal. Bræður sammæðra: Guðmundur Karl Gíslason, f. 27.6. 1979, látinn júní 2004, háskólanemi, og Theódór Ragnar Gíslason, f. 5.9. 1980, tækni- stjóri Syndis, bús. í Hafnarfirði. Bróðir samfeðra: Kristian Brandser Matthíasson, f. 30.8. 1982, fyrrv. for- stjóri Arnarlax, bús. á Bíldudal. Al- systir: María Matthíasdóttir, f. 14.9. 1971, tölvunarfræðingur, bús. í Nor- egi. Sonur Gísla Ragnarssonar er Björgvin, f. 18.5. 1972, bús. í Seattle í Bandaríkjunum. Foreldrar Fríðu eru Kolbrún Karlsdóttir, f. 16.2. 1950, fyrrv. starfsmaður Íslandspósts, bús. í Reykjavík, og Matthías Garðarsson, f. 10.6. 1947, sjávarútvegsfræðingur, lengst af með eigin rekstur. Eigin- kona Matthíasar er Elisabeth Brandser, þau eru búsett í Noregi. Kolbrún og Matthías skildu. Stjúp- faðir Fríðu er Gísli Ragnarsson, nú- verandi eiginmaður Kolbrúnar, f. 13.3. 1948, M.Sc. í heilbrigðisvís- indum, starfar hjá DeCode og er fyrrverandi skólameistari Fjöl- brautaskólans við Ármúla. Friðbjörg Matthíasdóttir Jörundur Bjarnason bátsformaður og skipstjóri á Bíldudal Steinunn Halldóra Guðmundsdóttir húsfreyja á Bíldudal Garðar Jörundsson sjómaður og verkamaður á Bíldudal Una Thorberg Elíasdóttir húsfreyja á Bíldudal Matthías Garðarsson fv. framkvstjóri og fjárfestir, bús. í Noregi, einn stofnenda Arnarlax á Bíldudal Elías Ingjaldur Bjarnason bóndi og sjómaður á Vaðli á Barðaströnd Kristjóna Lárusdóttir húsfreyja á Vaðli, síðar í Otradal, frá Snæfjallaströnd Hjálmar Guðjónsson fiskmatsmaður á Seyðisfirði, frá Stóru-Laugum í Reykjadal Kristbjörg Elísabet Baldvinsdóttir húsfr. á Seyðisfirði, frá Stakkahlíð í Loðmundarfirði Karl Hjálmarsson póst- og símstöðvarstjóri í Borgarnesi Friðbjörg Davíðsdóttir hjúkrunarkona og húsfreyja í Borgarnesi Davíð Kristján Einarsson verslunarmaður í Flatey á Breiðafirði og síðar Ólafsvík Sigríður Eyjólfsdóttir húsfreyja í Flatey á Breiðafirði og síðar Ólafsvík Úr frændgarði Friðbjargar Matthíasdóttur Kolbrún Karlsdóttir fv. starfsmaður Íslandspósts, búsettur í Reykjavík ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019 95 ára Högni Þórðarson 90 ára Sigurjón Guðmundsson 85 ára Guðrún Jóna Jónmundsd. Guðrún Sigurðardóttir 80 ára Anna Jensdóttir Sigurður Rúnar Jónasson 75 ára Ágústa Þorkelsdóttir Ásdís Þorvaldsdóttir Guðný Sverrisdóttir Loftveig Sigurgeirsdóttir Margrét Ósk Árnadóttir 70 ára Ásdís Anna Johnsen Halldór Sigurðsson Linda Barbara Björnsson Ragnar Árnason Rós Óskarsdóttir Sigríður St. Guðmundsd. Sigrún Ásthildur Franzd. Unnur Hauksdóttir 60 ára Birgir Sveinsson Davíð Ölver Jónsson Guðni Vignir Sveinsson Guðrún Lóa Jónsdóttir Guðrún Þórisdóttir Hallfríður Þórarinsdóttir Hjalti Aðalsteinn Júlíusson Ingibjörg Jónsdóttir Lárus Jóhann Guðjónsson Magnea Gógó Þórarinsd. Magnea Guðmundsdóttir Magni Björn Sveinsson Margrét Þórarinsdóttir Ólafur Guðnason Trausti G. Björgvinsson 50 ára Árni Róbert Sigurðsson Bjarki Þór Bjarnason Bjarney Harðardóttir Dorota Maria Stefanczyk Eiríkur Bergm. Einarsson Friðbjörg Matthíasdóttir Haraldur Óli Ólafsson Kolbrún Hrund Víðisdóttir Kristín Bjargey Gunnarsd. Magnea Helga Sigurjónsd. Robert Leszek Zielinski Sabine Leskopf Sigrún Sævarsdóttir Sigurður Þ. Guðmundsson 40 ára Algirdas Grigaliunas Elísabet Árný Þorkelsdóttir Guðfinna Hlín Björnsdóttir Guðni Kristinn Einarsson Jón Kristján Magnússon Ólafur Jónsson Sigmar Ingi Ágústsson Stefán Örn Jónsson Víðir Gylfason Þórður Guðmundsson 30 ára Adrian Robert Gorski Alma Hrönn Ágústsdóttir Ásmundur Ásmundsson Daniel Cwalina Erna Hólm Kristmundsd. Eva María Örnólfsdóttir Fjóla Huld Sigurðardóttir Guðjón Örn Sigtryggsson Halla Bryndís Hreinsdóttir Inga Heinesen Iulian Vasile Jón Þór Sigurðsson Magnús Þór Jónsson Mariusz Salapatek Marías Þór Skúlason Sigurður Lúther Lútherss. Sindri Már Kárason Þórður Ármann Lúth- ersson Til hamingju með daginn 30 ára Rúna er Reykvík- ingur og er í doktorsnámi í íþrótta- og heilsufræði við Háskóla Íslands og fótboltakona í Fjölni. Maki: Pablo Punyed, f. 1990, fótboltamaður í KR og vinnur hjá Icelandair. Foreldrar: Stefán Stef- ánsson, f. 1958, dúklagn- inga- og veggfóðrameist- ari, og Erla Gunnarsdóttir, f. 1962, íþróttakennari í Hamraskóla. Þau eru bús. í Reykjavík. Rúna Sif Stefánsdóttir 30 ára Margrét er úr Hafnarfirði en býr á Akra- nesi. Hún er lærður mat- sveinn og vinnur í mötu- neytinu hjá Elkem. Maki: Fannar Freyr Sveinsson, f. 1987, háseti hjá Landhelgisgæslunni. Sonur: Óttar Már, f. 2016. Foreldrar: Óskar Steinar Jónsson, f. 1967, vinnur hjá ABC barnahjálp, og Þórhildur Ásgeirsdóttir, f. 1969, vinnur við ræst- ingar á Egilsstöðum. Margrét Hlíf Óskarsdóttir 30 ára Kamilla er frá Sandgerði en býr í Mos- fellsbæ. Hún er aðstoð- arm. á tannlæknastofu. Maki: Helgi Guðjónsson, f. 1982, rafvirki. Börn: Tristan Ásgeir, f. 2009, Baltasar Breki, f. 2011, og Rúrik, f. 2018. Stjúpsynir eru Þorbjörn, f. 2006, og Birkir, f. 2010. Foreldrar: Guðjón Vil- hjálmur Reynisson, f. 1960, og Gunnhildur Ása Sigurðardóttir, f. 1962. Kamilla Ösp Guðjónsdóttir Saharalsadat Rahpeyma hefur varið doktorsritgerð sína í byggingarverk- fræði við Háskóla Íslands. Ritgerðin heitir Greining á staðbundnum jarð- skjálftaáhrifum út frá þéttum hröð- unarmælanetum í byggð á Íslandi. Leið- beinandi var dr. Benedikt Halldórsson, rannsóknarprófessor við umhverfis- og byggingarverkfræðideild HÍ, for- stöðumaður rannsókna við Rannsókn- armiðstöð HÍ í jarðskjálftaverkfræði, og sérfræðingur við Veðurstofu Íslands. Í doktorsverkefninu voru staðbundin mögnunaráhrif efstu jarðlaga á jarð- skjálftabylgjur greind með jarðskjálfta- og jarðsuðsgögnum frá hröð- unarmælafylkingum í Hveragerði og á Húsavík. Hlutfallsgreining tíðnirófa sýndi að kerfisbundin mögnunaráhrif á tveimur sveiflutíðnum eru til staðar á þeim hluta Hveragerðis sem stendur á hrauni vegna viðsnúnings bylgjuhraða í mýkri setlögum sem liggja undir hraun- lögum. Greining á mögnun út frá hefð- bundnu tveggja frígráðu sveiflukerfi sýnir að sveiflutíðnirnar eru bein afleið- ing þessa viðsnúnings í hraða. Í rann- sókn Sahar hefur nýjum eðlisfræðileg- um og tölfræði- legum líkönum einnig verið beitt við greiningu á jarðskjálftahreyf- ingum og breyti- leika þeirra yfir stuttar vegalengd- ir. Þannig var breytileikinn í jarð- skjálftahreyfingum í Hveragerði í jarð- skjálftunum á Suðurlandi árið 2008 rakinn til jarðskjálftaupptakanna fyrst og fremst. Umfang niðurstaðna fyrir Hveragerði var minna en fyrir Húsavík vegna jarðskjálftanna undan Norður- landi 2012-2013, einkum sökum þess að jarðfræðilegar aðstæður voru fjöl- breyttari á Húsavík og höfðu því meiri áhrif. Niðurstöðurnar sýna því að hve miklu leyti fjölbreytt jarðfræði og jarð- skjálftaupptök hafa áhrif á breytileika jarðskjálftahreyfinganna, hvaða líkön henta best hverju sinni eftir tegund jarðlaga, og greiningaraðferðirnar skil- greina óvissu betur en áður hefur verið gert. Slíkt er forsenda bætts mats á jarðskjálftavá í byggð á Íslandi. Saharalsadat Rahpeyma Sahar Rahpeyma er fædd í Íran og lauk grunnprófi í byggingarverkfræði árið 2009 og meistaraprófi með hæstu einkunn í jarðskjálftaverkfræði árið 2012 frá Arak-háskólanum í Íran. Doktorsnám hennar við HÍ var hluti af öndvegisverkefni Rannís sem hófst árið 2014 og snýr að jarðskjálftum á brotabeltum Suður- og Norðurlands og vöktun jarðskjálftahreyfinga innan þéttbýlis s.s. Hveragerðis og Húsavíkur. Að auki hefur hún hlotið viðurkenningu fyrir framúrskarandi framlag nemanda árið 2016 á ráðstefnu jarðskjálftafræðafélags Bandaríkjanna og dokt- orsstyrk Eimskipafélags Háskóla Íslands árið 2017. Hún hefur nýhlotið styrk frá Rannís til að halda rannsóknum sínum áfram á Íslandi. Doktor

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.