Morgunblaðið - 06.02.2019, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019
Smásögur heimsins er afar vellukkuð og forvitnileg ritröð.Og ekki missir hún damp-inn hér í þessu þriðja riti en
þau sem áður hafa komið út hafa
veitt lesendum fína innsýn í fjöl-
breytileg smásagnaskrif Norður- og
Rómönsku Ameríku.
Ætlunin með ritröðinni er að
kynna í alls fimm bindum fyrir Ís-
lendingum úrval smásagna frá öllum
heimshornum. Lögð er áhersla á
fjölbreyttar raddir, jafnt sögur eftir
þekkta smásagna-
höfunda síðustu
aldar sem minna
þekkta. Hafi sög-
urnar komið út á
íslensku áður eru
þær þýddar á ný
eða þýðingarnar
endurskoðaðar.
Þá er leitast við að
þýða úr frum-
málum þar sem því verður við komið.
Það má kallast æði metnaðarfullt
verkefni að setja saman í eina bók
úrval sagna frá Asíu, fjölmennustu
heimsálfunni með 48 löndum þar
sem meira en helmingur jarðarbúa
býr – og bæta svo við sögum frá
Eyjaálfu! Valið hefur verið að þýða
20 sögur frá jafn mörgum löndum og
endurspegla þær þann mikla fjöl-
breytileika sem finna má í menning-
arheimum álfanna, „allt frá arabísku
og persnesku ríkjunum í vestri, til
Indlands og Japans í austri og Ástr-
alíu og Nýja-Sjálands í suðri“, svo
vitnað sé til inngangs Rúnars Helga
Vignissonar, eins þriggja ritstjóra.
Athyglisvert er að lesa að til að
hamla gegn svokölluðum óríental-
isma, þar sem átt er við þá tilhneig-
ingu Vesturlandabúa að draga upp
sína eigin mynd af Austurlöndum og
sýna menningu þar eystra yfirlæti,
hafi ritstjórar ráðfært sig við bók-
menntafólk þar við val á sögum. Og
valið er vel lukkað. Sögurnar eru æði
fjölbreytilegar og ólíkar í stíl sem
efnistökum. Í sumum er tekist á við
örlagaríka viðburði í sögu þjóðar
höfundarins en aðrar eru persónu-
legar og gætu gerst svo til hvar sem
er. Eins og Rúnar Helgi bendir líka á
eru sumar sögurnar tilraunakenndar
en aðrar sverja sig í ætt við fantasíu-
bókmenntir og flokkast jafnvel sem
táknsögur, eins og athyglisverð stutt
saga Zakaria Tamer frá Sýrlandi,
„Tígrísdýr á tíunda degi“, um það
hvernig sjálfstæður tígur í búri er
brotinn niður og breytt í hlýðinn
þjóðfélagsþegn.
Saga indverska höfundarins Bhis-
hams Sahni, „Við erum komin til
Amritsar“, er ein þeirra sem fjalla
um sögulega atburði en í henni er
horft til blóðugs aðskilnaðar Ind-
lands og Pakistans árið 1947 á
áhrifaríkan hátt. Pakistanskur koll-
egi hans, Saadat Hasan Manto,
fjallar í „Toba Tek Singh“ á ekki síð-
ur hugvekjandi hátt um aðskilnaðinn
í sögu geðsjúks manns sem skilur
ekki hvað hefur gerst. Nokkrir höf-
undanna eru þekktari í vestrænum
bókmenntaheimi en aðrir og þar má
nefna hinn nýlátna ísraelska höfund
Amoz Oz. Saga hans, „Sambönd“, er
lítið meistaraverk þar sem lýst er
erfiðu sambandi eldri konu við syst-
urson sinn. Önnur af bestu sögum
safnsins er „Amerískir draumar“
eftir ástralska stjörnuhöfundinn
Peter Carey. Og vissulega er smekk-
ur lesenda misjafn og allir ættu að
finna hér eitthvað við sitt hæfi en
meðal annarra höfunda sem hrifu
þennan lesanda má nefna Mai Al-
Nakib frá Líbanon, sem skrifar sögu
um konu sem snýr aftur úr tíu ára
fangavist í Írak; Faribu Vafi frá Íran
sem skrifar um samskipti ungrar
móður við afskiptasaman leigusala;
saga norðurkóreska höfundarins
sem kallar sig Bandi er átakanleg en
hún fjallar um grimmd stjórnarherr-
anna í hinu lokaða einræðisríki; og
Beth Yahp frá Malasíu fjallar um ör-
lög móður í borgarastyrjöld í landinu
árið 1969. Og vissulega eru margar
fleiri merkar sögur í þessu úrvali,
sem lesendur eru hvattir til að kynna
sér – og óhætt er að hlakka til að lesa
þau tvö hefti sem ókomin eru, með
úrvali smásagna frá Evrópu og Afr-
íku.
Fjölbreytilegar smásögur
úr ólíkum söguheimum
Smásögur
Smásögur heimsins –
Asía og Eyjaálfa bbbbn
Smásögur eftir tuttugu höfunda frá jafn
mörgum löndum í Asíu og Eyjaálfu. Tólf
þýðendur. Útgáfuna önnuðust Rúnar
Helgi Vignisson, Kristín Guðrún Jóns-
dóttir og Jón Karl Helgason.
Bjartur, 2018. Kilja, 312 bls.
EINAR FALUR
INGÓLFSSON
BÆKUR
Beth Yahp Peter Carey Fariba Vafi Amos Oz
Mai Al-Nakib Zakira Tamer S. Hasan Manto Bhisham Sahni
1945
HELGI HALLGRÍMSSON
Snyrtiborð í módernískum stíl sem er hluti
af svefnherbergishúsgögnum eftir Helga
Hallgrímsson (1911-2005) frá því um 1945.
Helgi var ásamt Skarphéðni Jóhanns-
syni (1914-1979) fyrstur Íslendinga starf-
andi húsgagnateiknari og innanhúss-
arkitekt. Hann og Skarphéðinn lærðu við
Kunsthaandværkerskolen í Kaupmanna-
höfn og útskrifuðust þaðan árið 1938. Við
heimkomu vöktu þeir athygli og fengu
sterk viðbrögð við greinaskrifum í
Morgunblaðið þar sem þeir gagnrýndu
þann stíl íslenskra húsgagna sem þá var
ríkjandi og þótti þeim hann fremur
ósmekklegur. Húsgögn Helga bera sterk
einkenni frá módernismanum og norrænni
hönnun eftirstríðsáranna þar sem nota-
gildi, efnisnotkun og tímalaus stíll skiptu
höfuðmáli.
Íslensk hönnun – Hönnunarsafn Íslands
Módernískt snyrtiborð
Ljósmynd/Hönnunarsafn Íslands/Þóra Sigurbjörnsdóttir skráði
Hlutverk Hönnunarsafns Íslands er að safna og varðveita þann þátt íslenskrar menningarsögu sem lýtur að hönnun,
einkum frá aldamótunum 1900 til samtímans. Safnið á og geymir um 900 íslenska og erlenda muni, sem margir
hafa mikla menningarsögulega þýðingu. Safnkosturinn fer sístækkandi, enda æ fleiri hönnuðir sem hasla sér völl og
koma fram með vandaða gripi sem standast alþjóðlegan samanburð
og eru hvort tveggja nytjamunir og/eða skrautmunir.
Í tilefni af aldarafmæli fullveldis Íslands setti safnið upp
sýninguna 100 ár100 hlutir á Instagram þar sem 100
færslur eru birtar á jafnmörgum dögum af hönnunar-
gripum í eigu safnsins frá árunum 1918 til 2018.
Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið)
Sun 10/2 kl. 13:00 38.sýn Sun 10/3 kl. 13:00 46.sýn Sun 7/4 kl. 13:00 50.sýn
Sun 10/2 kl. 16:00 39.sýn Sun 10/3 kl. 16:00 47.sýn Sun 7/4 kl. 16:00 51.sýn
Sun 17/2 kl. 13:00 40.sýn Sun 17/3 kl. 13:00 Aukas. Sun 14/4 kl. 13:00 52.sýn
Sun 17/2 kl. 16:00 41.sýn Sun 17/3 kl. 16:00 48.sýn Sun 14/4 kl. 16:00 53.sýn
Sun 24/2 kl. 13:00 42.sýn Sun 24/3 kl. 13:00 Auka Sun 28/4 kl. 13:00 Aukas.
Sun 24/2 kl. 16:00 43.sýn Sun 24/3 kl. 16:00 Auka Sun 28/4 kl. 16:00 Aukas.
Sun 3/3 kl. 13:00 44.sýn Sun 31/3 kl. 13:00 Auka Sun 5/5 kl. 13:00 Aukas.
Sun 3/3 kl. 16:00 45.sýn Sun 31/3 kl. 16:00 49.sýn Sun 5/5 kl. 16:00 Aukas.
Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna!
Einræðisherrann (Stóra Sviðið)
Fös 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 16/2 kl. 19:30 13.sýn Lau 2/3 kl. 19:30 15.sýn
Lau 9/2 kl. 19:30 12.sýn Fös 22/2 kl. 19:30 Auka Fös 8/3 kl. 19:30 Aukas.
Fös 15/2 kl. 19:30 Aukas. Lau 23/2 kl. 19:30 14.sýn
Siggi Sigurjóns mætir Charlie Chaplin!
Jónsmessunæturdraumur (Stóra sviðið)
Mið 27/2 kl. 19:30 Fors. Fös 15/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 7.sýn
Fim 28/2 kl. 19:30 Fors. Lau 16/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 12/4 kl. 19:30 8.sýn
Fös 1/3 kl. 19:30 Frums Fös 22/3 kl. 19:30 5.sýn
Fim 7/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn
Fyndinn og erótískur gamanleikur
Þitt eigið leikrit (Kúlan)
Fim 7/2 kl. 18:00 Aukas. Fös 1/3 kl. 18:00 11.sýn Lau 23/3 kl. 15:00 16.sýn
Fös 8/2 kl. 18:00 4.sýn Lau 2/3 kl. 15:00 12.sýn Lau 23/3 kl. 17:00 17.sýn
Lau 9/2 kl. 15:00 5.sýn Lau 2/3 kl. 17:00 Auka Sun 24/3 kl. 15:00 18.sýn
Fim 14/2 kl. 18:00 6.sýn Fös 8/3 kl. 18:00 Auka Sun 24/3 kl. 17:00 19.sýn
Fös 15/2 kl. 18:00 7.sýn Lau 9/3 kl. 15:00 14.sýn Lau 30/3 kl. 15:00 20.sýn
Lau 16/2 kl. 15:00 8.sýn Lau 9/3 kl. 17:00 Auka Sun 31/3 kl. 15:00 21.sýn
Fim 21/2 kl. 18:00 9.sýn Sun 17/3 kl. 15:00 15.sýn Sun 31/3 kl. 17:00 22.sýn
Lau 23/2 kl. 15:00 10.sýn Sun 17/3 kl. 17:00 Auka
Það er þitt að ákveða hvað gerist næst!
Súper - þar sem kjöt snýst um fólk (Kassinn)
Lau 16/3 kl. 19:30 Frums Fim 28/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 6/4 kl. 19:30 8.sýn
Mið 20/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/3 kl. 19:30 6.sýn Fim 11/4 kl. 19:30 9.sýn
Fim 21/3 kl. 19:30 3.sýn Mið 3/4 kl. 19:30 Aukas. Fös 12/4 kl. 19:30 10.sýn
Fös 22/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 4/4 kl. 19:30 7.sýn
Velkomin heim (Kassinn)
Lau 9/2 kl. 19:30 3.sýn Sun 10/2 kl. 19:30 4.sýn Fös 15/2 kl. 19:30 5.sýn
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 6/2 kl. 20:00 Mið 20/2 kl. 20:00 Mið 6/3 kl. 20:00
Mið 13/2 kl. 20:00 Mið 27/2 kl. 20:00 Mið 13/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 7/2 kl. 19:30 Fös 15/2 kl. 19:30 Fös 22/2 kl. 22:00
Fös 8/2 kl. 19:30 Fös 15/2 kl. 22:00 Lau 23/2 kl. 19:30
Fös 8/2 kl. 22:00 Lau 16/2 kl. 19:30 Lau 23/2 kl. 22:00
Lau 9/2 kl. 19:30 Lau 16/2 kl. 22:00 Sun 24/2 kl. 21:00
Lau 9/2 kl. 22:00 Fim 21/2 kl. 19:30 Mán 25/2 kl. 22:00
Fim 14/2 kl. 19:30 Fös 22/2 kl. 19:30 Fim 28/2 kl. 19:30
Bara Góðar - Uppistandssýning (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 17/2 kl. 20:00
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
BORGARLEIKHÚSIÐ
Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins
á borgarleikhus.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Matthildur (Stóra sviðið)
Fös 15/3 kl. 19:00 Frums. Sun 24/3 kl. 19:00 8. s Mið 10/4 kl. 19:00 17. s
Lau 16/3 kl. 19:00 2. s Mið 27/3 kl. 19:00 9. s Fös 12/4 kl. 19:00 18. s
Sun 17/3 kl. 19:00 3. s Fim 28/3 kl. 19:00 10. s Lau 13/4 kl. 13:00 19. s
Mið 20/3 kl. 19:00 4. s Sun 31/3 kl. 19:00 12. s Sun 14/4 kl. 19:00 20. s
Fim 21/3 kl. 19:00 5. s Mið 3/4 kl. 19:00 13. s Þri 16/4 kl. 19:00 21. s
Fös 22/3 kl. 19:00 6. s Fös 5/4 kl. 19:00 15. s Mið 24/4 kl. 19:00 22. s
Lau 23/3 kl. 19:00 7. s Sun 7/4 kl. 19:00 16. s Fim 25/4 kl. 19:00 23. s
Miðasalan er hafin!
Elly (Stóra sviðið)
Fim 7/2 kl. 20:00 199. s Lau 16/2 kl. 20:00 202. s Fös 1/3 kl. 20:00 205. s
Lau 9/2 kl. 20:00 200. s Fös 22/2 kl. 20:00 203. s Lau 2/3 kl. 20:00 206. s
Fös 15/2 kl. 20:00 201. s Lau 23/2 kl. 20:00 204. s
Sýningum lýkur í mars.
Ríkharður III (Stóra sviðið)
Sun 10/2 kl. 20:00 11. s Fim 21/2 kl. 20:00 13. s
Sun 17/2 kl. 20:00 12. s Sun 3/3 kl. 20:00 14. s
5 stjörnur - ÞT. Morgunblaðið / 5 stjörnur - SJ. Fréttablaðið
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Mið 13/2 kl. 20:00 33. s Fös 22/2 kl. 20:00 38. s Fös 1/3 kl. 20:00 43. s
Fim 14/2 kl. 20:00 34. s Lau 23/2 kl. 20:00 39. s Lau 2/3 kl. 20:00 44. s
Fös 15/2 kl. 20:00 35. s Sun 24/2 kl. 20:00 40. s Mið 6/3 kl. 20:00 45. s
Lau 16/2 kl. 20:00 36. s Mið 27/2 kl. 20:00 41. s Fim 7/3 kl. 20:00 46. s
Mið 20/2 kl. 20:00 37. s Fim 28/2 kl. 20:00 42. s Fös 8/3 kl. 20:00 47. s
Athugið, takmarkaður sýningafjöldi.
Kvenfólk (Nýja sviðið)
Mið 6/2 kl. 20:00 aukas. Sun 10/2 kl. 20:00 30. s Fös 22/2 kl. 20:00 37. s
Fös 8/2 kl. 20:00 28. s Fim 14/2 kl. 20:00 31. s Sun 24/2 kl. 20:00 38. s
Lau 9/2 kl. 20:00 29. s Sun 17/2 kl. 20:00 32. s
Drepfyndin sagnfræði með söngvum.
Kæra Jelena (Litla sviðið)
Fös 12/4 kl. 20:00 Frums. Mið 24/4 kl. 20:00 5. s Fim 2/5 kl. 20:00 9. s
Lau 13/4 kl. 20:00 2. s Fim 25/4 kl. 20:00 6. s Fös 3/5 kl. 20:00 10. s
Sun 14/4 kl. 20:00 3. s Fös 26/4 kl. 20:00 7. s Sun 5/5 kl. 20:00 11. s
Þri 16/4 kl. 20:00 4. s Sun 28/4 kl. 20:00 8. s Mið 8/5 kl. 20:00 12. s
Kvöld sem breytir lífi þínu.
Kvöldvaka með Jóni Gnarr (Litla sviðið)
Lau 13/4 kl. 20:00 aukas.
Aukasýning komin í sölu.
Ég dey (Nýja sviðið)
Fim 7/2 kl. 20:00 9. s Fös 15/2 kl. 20:00 10. s
Síðustu sýningar.
Allt sem er frábært (Litla sviðið)
Lau 4/5 kl. 20:00 aukas. Fim 9/5 kl. 20:00 aukas. Lau 11/5 kl. 20:00 aukas.
Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar!