Morgunblaðið - 06.02.2019, Blaðsíða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019
Eitt vinsælasta listasafn jarðar, Mu-
seum of Modert Art eða MoMA í
New York, verður lokað um fjög-
urra mánaða skeið í sumar og
haust, frá 15. júní til 21. október.
Mun það setja strik í reikning
margra listunnenda sem sækja
borgina heim og eru vanir að koma
við á þessu mikilvæga samtímasafni
en um þrjár milljónir gesta koma í
MoMA árlega.
Greint var frá væntanlegri lokun
safnsins í The New York Times í
gær en ástæðan er sú að opnað
verður inn í nýja viðbyggingu við
safnið, sem hönnuð var af arki-
tektastofunni Diller Scofidio +
Renfro á lóðinni þar sem American
Folk Art Museum stóð, auk þess
sem hæð í nýjum íbúðaturni við
hliðina, sem hönnuð er af stjörnu-
arkitektinum Jean Nouvel, verður
nýtt undir sýningarsali. Sýningar-
rými safnsins eykst um 4.000 fer-
metra. Áfram munu gestir geta
upplifað tímalínu myndlistar síð-
ustu aldar í meistaraverkum lista-
manna á borð við Picasso, van
Gogh, Rothko og Klimt. Stækkun
safnsins mun þó breyta áherslum
sýningarstjóra verulega en verk
eftir mun fleiri konur en áður verða
sýnileg, auk verka eftir mikilvæga
listamenn minnihlutahópa og ann-
arra heimsálfa en Evrópu og Norð-
ur-Ameríku. Þá verður miðlum
blandað meira en gert hefur verið;
málverk, ljósmyndir, skúlptúrar,
hönnunar- og myndbandsverk
munu standa hlið við hlið í sölunum
og eftir sem áður verða settar þar
upp misstórar sérsýningar.
Mannþröng Gestir í MoMA rýna í tvö lykilverka spænska súrrealistans Salvadors Dalis.
Safnið á einstakt úrval myndverka frá seinni hluta 19. aldar til dagsins í dag.
Museum of Modern Art í New York lokað
í fjóra mánuði á árinu vegna stækkunar
Snæfellsbær og Frystiklefinn hafa gert með sér sam-
starfssamning til fjögurra ára sem byggist á því að Snæ-
fellsbær greiði Frystiklefanum fasta árlega upphæð sem
nýtast skal til ýmissa viðburða og auðga menningarlíf og
auka lífsgæði íbúa Snæfellsbæjar, eins og segir á vef
bæjarins, snb.is. „Samningurinn felur í sér að Frystiklef-
inn haldi alþjóðlegar hátíðir á sviði kvikmynda-, tónlist-
ar- og götulistaverka sem íbúar Snæfellsbæjar geta sótt
sér að kostnaðarlausu. Um er að ræða kvikmyndahátíð-
ina Northern Wave Film Festival, tónlistarhátíðina
Tene-Rif og götulistahátíðina Snæfellsbær Street Art
Festival,“ segir á vefnum og að á samningstímanum fái nemendur í 8.-10.
bekk í grunnskóla Snæfellsbæjar ársmiða sem gildi á alla viðburði Frysti-
klefans og fjölbreytt námskeið verði haldin þar fyrir börn í 1.-10. bekk.
Kári Viðarsson er eigandi og listrænn stjórnandi Frystiklefans.
Samstarf til fjögurra ára
Kári Viðarsson
Tímaritið Gripla XXIX er komið út.
Ritstjórar eru Emily Lethbridge og
Rósa Þorsteinsdóttir.
Gripla er ritrýnt tímarit sem
kemur út einu sinni á ári og er al-
þjóðlegur vettvangur fyrir rann-
sóknir á sviði íslenskra og nor-
rænna fræða, einkum handrita- og
textafræða, bókmennta og þjóð-
fræða. Birtar eru útgáfur á stuttum
textum, greinar og ritgerðir og
stuttar fræðilegar athugasemdir.
Í Griplu 2018 eru m.a. níu rit-
rýndar greinar og útgáfur, fjórar á
íslensku, fjórar á ensku og ein á
frönsku. Heimir Pálsson fjallar um
tvær gerðir Skáldskaparmála
Snorra-Eddu, Anders Winroth um
íslenskan kirkjurétt hvað varðar
skemmri skírn og hjónaband, og
Brynja Þorgeirsdóttir um ritgerð-
ina „Af náttúru mannsins og blóði“
í Hauksbók. Meðal annars efnis
veltir Þórhallur Eyþórsson fyrir
sér merkingu orðsins „aldrnari“,
Árni Heimir Ingólfsson dregur
fram tvö íslensk söngbókarbrot frá
16. öld sem varðveitt eru í Kon-
ungsbókhlöðu í Stokkhólmi og
Sverrir Jakobsson ber norrænar
heimildir um Aðalstein Englands-
konung saman við aðrar.
Einn höfunda Sverrir Jakobsson.
Ýmsar greinar í nýju tölublaði Griplu
Sýning á plötusafni Sigurjóns Sam-
úelssonar á Hrafnabjörgum við Djúp
verður opnuð í Þjóðarbókhlöðunni í
dag kl. 16. Sigurjón lést árið 2017 en
hann hóf um 1950 að safna plötum,
fyrst íslenskum söngplötum og
harmonikuplötum sem sumar voru
frá því skömmu eftir aldamót og 78
snúninga, segir í tilkynningu. Plötur
Sigurjóns voru orðnar yfir 7.000
talsins þegar hann lést, flestallar
heillegar og vel með farnar, segir í
tilkynningu en auk hljómplatnanna
átti Sigurjón úrval af hljómflutn-
ingstækjum. Sigurjón óskaði þess að
plöturnar yrðu varðveittar á safni
þar sem almenningur gæti haft not
af þeim og verður plötusafnið fram-
vegis varðveitt í Landsbókasafni Ís-
lands – Háskólabókasafni og sýn-
ingin í Þjóðarbókhlöðunni er haldin
af því tilefni.
Safnari Sigurjón Samúelsson heitinn.
Sýning opnuð á plötusafni Sigurjóns
The Captain
Metacritic 67/100
IMDb 7,4/10
Bíó Paradís 20.00
Hagazussa -
A Heathen’s Curse
IMDb 6,0/10
Bíó Paradís 18.00
Damsel
Metacritic 63/100
IMDb 5,6/10
Bíó Paradís 22.20
Diablo
Metacritic 60/100
IMDb 3,7/10
Bíó Paradís 22.00
Transit
Metacritic 77/100
IMDb 7,0/10
Bíó Paradís 18.00
Shoplifters
Morgunblaðið bbbbb
Metacritic 93/100
IMDb 8,1/10
Bíó Paradís 20.00
Nár í nærmynd
IMDb 8,0/10
Bíó Paradís 22.20
Heavy Trip
Metacritic 72/100
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 20.00
Tryggð Morgunblaðið bbbbn
Smárabíó 17.40, 19.50
Háskólabíó 18.10, 21.10
Borgarbíó Akureyri 17.30
Bíó Paradís 18.00
Vice Laugarásbíó 18.00, 21.00
Smárabíó 19.00 (LÚX),
19.30, 22.00 (LÚX), 22.20
Borgarbíó Akureyri 19.30,
21.50
Mary Queen of
Scots 16
Metacritic 60/100
IMDb 6,5/10
Háskólabíó 20.50
Skýrsla 64 16
IMDb 7,8/10
Smárabíó 20.00, 22.10
Háskólabíó 17.50
Borgarbíó Akureyri 17.00,
19.30, 21.50
The Upside Metacritic 45/100
IMDb 5,5/10
Laugarásbíó 19.50, 22.25
Green Book 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 70/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Egilshöll 20.00,
22.40
Sambíóin Kringlunni 16.10,
19.00, 21.45
Sambíóin Akureyri 16.50,
19.30
Escape Room 16
Metacritic 50/100
IMDb 6,4/10
Smárabíó 19.50, 22.40
Holmes og Watson 12
Metacritic 24/100
IMDb 3,4/10
Smárabíó 22.10
Carmen
Sambíóin Kringlunni 18.00
The Favourite 12
Ath. myndin er sýnd án
texta, hvorki enskur né ís-
lenskur.
Metacritic 90/100
IMDb 7,9/10
Háskólabíó 18.00, 20.40
Aquaman 12
Metacritic 53/100
IMDb 7,9/10
Sambíóin Álfabakka 20.40
Sambíóin Egilshöll 22.30
Robin Hood 12
Sambíóin Álfabakka 22.20
Mary Poppins
Returns 12
Morgunblaðið bbbmn
Metacritic 66/100
IMDb 7,6/10
Sambíóin Álfabakka 17.50
Sambíóin Egilshöll 17.00
Bumblebee 12
Metacritic 35/100
IMDb 7,0/10
Sambíóin Álfabakka 17.00
Fantastic Beasts:
The Crimes of
Grindelwald
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 57/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Álfabakka 19.30
Bohemian
Rhapsody 12
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 49/100
IMDb 8,4/10
Laugarásbíó 19.50, 22.25
Smárabíó 16.00 (LÚX)
Háskólabíó 20.30
A Star Is Born 12
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 88/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Kringlunni 16.10,
19.00
Spider-Man: Into the
Spider-Verse Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 87/100
IMDb 8,8/10
Laugarásbíó 17.15
Smárabíó 15.00, 17.00,
17.20
Ótrúleg saga um
risastóra peru IMDb 6,2/10
Laugarásbíó 18.00
Smárabíó 15.10, 17.20
Nonni norðursins 2 Smárabíó 15.10
Ralf rústar
internetinu Metacritic 71/100
IMDb 7,6/10
Sambíóin Álfabakka 17.00
Kevin Crumb, David Dunn, og Elijah Prince,
öðru nafni hr. Glass, eru allir staddir saman á
geðspítala, og eru þar í sérstöku prógrammi
fyrir fólk sem heldur að það sé ofurhetjur.
Metacritic 41/100
IMDb 7,9/10
Sambíóin Álfabakka 19.30, 21.50 (VIP), 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.00, 20.00
Sambíóin Kringlunni 21.45
Sambíóin Akureyri 22.10
Sambíóin Keflavík 22.00
Glass 16
Instant Family
Par hefur í nógu að snúast
þegar þau ættleiða þrjú
börn. Bönnuð börnum
yngri en 9 ára.
Metacritic 57/100
IMDb 7,6/10
Sambíóin Álfabakka
17.20, 19.50, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Akureyri 17.00, 19.30
Sambíóin Keflavík 19.30
The Mule 12
90 ára plöntusérfræðingur og fyrrverandi hermaður er grip-
inn við að smygla kókaíni fyrir mexíkóskan eiturlyfjahring.
Metacritic 58/100
IMDb 7,2/10
Sambíóin Álfabakka 16.50 (VIP),
17.20, 19.20 (VIP), 19.50, 22.20
Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00,
22.40
Sambíóin Kringlunni 21.45
Sambíóin Akureyri 22.00
Sambíóin Keflavík 19.30, 22.00
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna