Morgunblaðið - 06.02.2019, Side 33

Morgunblaðið - 06.02.2019, Side 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2019 Ævar Þór Benediktssonhefur frá árinu 2014sent frá sér fimmhnausþykkar bækur í Þín eigin-seríunni auk tveggja létt- lestrarbóka með sama gangvirki. Að sögn höfundar eiga bækurnar það sameiginlegt að virka eins og tölvu- leikur vegna þess að lesandinn ræð- ur sjálfur hvað gerist, enda reglu- lega í lestrinum beðinn að velja milli ólíkra leiða sem eru margar hverjar stórhættulegar og því gott að geta flett til baka og valið aðra leið í gegnum bókina ef fyrra valið leiddi til hræðilegra endaloka. Þitt eigið leikrit – Goðsaga, sem Þjóðleikhúsið frumsýndi nýverið, á það sameiginlegt með bókinni Þín eigin goðsaga sem út kom 2015 að sögusviðið er heimur norrænu goða- fræðinnar. Þar sem bókin er tæp- lega 500 blaðsíður að lengd en leik- sýningin um klukkutími þarf höfundur eðlilega að takmarka framvinduna við nokkrar vel valdar leiðir, en í leikritinu stendur grunn- valið milli þriggja ólíkra ævintýra sem öll geta endað bæði vel og illa. Líkt og lesendur fá leikhúsáhorf- endur reglulega tækifæri til að kjósa um framvinduna en ólíkt bók- lestrinum þar sem hver og einn les- andi ræður för ræður meirihlutinn í leikhúsinu hvað gerist næst. Tækni- fólk Þjóðleikhússins hefur þróað fjarstýringar fyrir leikhúsgesti sem minna með táknum sínum um margt á Playstation-fjarstýringar sem vakti óneitanlega lukku þeirra sem til þekkja. Ekki síður vakti það al- menna gleði yngri áhorfenda þegar þeir voru beðnir að „flossa“ meðan kosningaúrslitanna var beðið í of- væni. Leikhópurinn hefur undir stjórn Stefáns Halls Stefánssonar und- irbúið ótal margar senur sem áhorf- endur velja á milli, en eftir því sem rýnir kemst næst tók um sex klukkutíma að fara í gegnum alla möguleikana á æfingum. Í ljósi þess að engar tvær sýningar verða sök- um þessa eins ákvað rýnir að skoða tvær sýningar til að fá örlítið betri hugmynd um hversu ólíkar leik- húsferðirnar geta orðið. Sýningarnar sem rýnir sá áttu það sameiginlegt að Loki Laufeyj- arson (Snorri Engilbertsson) tók á móti áhorfendum ásamt Einari (Hilmir Jensson), sem var honum innan handar við að kenna áhorf- endum á tækjabúnaðinn. Því næst upplýsti hann að áhorfendum gæfist kostur á að velja milli þriggja Mið- garðsbarna, Snorra, Eddu og Urð- ar, (Baldur Trausti Hreinsson, Lára Jóhanna Jónsdóttir og Sólveig Arn- arsdóttir) sem teldu sig vera þátt- takendur í sjónvarpskeppninni Lokasvar. Eftir að áhorfendur höfðu valið aðalpersónu verksins bauðst þeim að velja á hana klæðnað og vopn áður en Loki reisti fjórða vegginn milli leikenda og áhorfenda með bráðskemmtilegum hætti. Á frumsýningu fól val áhorfenda í sér að við fengum að sjá Miðgarðs- barnið passa börn Loka sem hann á með tröllskessunni Angurboðu, það er stúlkuna Hel (Lára Jóhanna Jónsdóttir), úlfinn Fenri og orminn Jörmungand, sem voru frábærlega útfærðir í brúðum Aldísar Davíðs- dóttur. Börnin þrjú eru enn á barns- aldri og því ekki jafn ógnvænleg og frásagnir almennt herma, en sam- kvæmt norrænni goðafræði bíður Heljar að ríkja yfir undirheimum og bræður hennar eiga samkvæmt Völuspá að gegna lykilhlutverki í Ragnarökum þar sem ásum verður tortímt. Eins og Ævars er von og vísa notar hann húmor til að undir- strika mikilvægi þess að ræða sam- an og stjórnast ekki af ótta, sem er bæði fallegur og mikilvægur boð- skapur. Yfirvofandi endalok heimsins voru leiðarstefið í þeirri sögu sem áhorfendur völdu á þriðju sýningu. Þar fékk Loki, sem er ein skemmti- legasta persóna goðafræðinnar, mun stærra hlutverk auk þess sem áhorfendum gafst tækifæri til að heimsækja Ásgarð og kynnast ás- unum Þór (Hilmir Jensson), Sif (Sólveig Arnarsdóttir) og Óðni (Baldur Trausti Hreinsson) sem öll skörtuðu þungum vopnum og voru vígamóð. Þrátt fyrir baráttugleði ás- anna völdu áhorfendur engu að síð- ur að stilla til friðar. Þegar leik var lokið bauðst okkur hins vegar óvænt sá bónus að sjá hinn endinn líka sem skemmdi ekki fyrir. Umgjörð sýningarinnar ber list- rænum hönnuðum og tæknifólki Þjóðleikhússins fagurt vitni. Leik- mynd Högna Sigurþórssonar þjónar leiknum vel og ýmis smáatriði gleðja augað, svo sem ufsagrýlurnar sem hvíla efst á flekunum og út- skorni hesturinn sem ber Loka inn á svið á leið í lokauppgjörið. Högni er ásamt Reyni Þorsteinssyni, Mat- hilde Anne Morant og Björgvini Má Pálssyni einnig höfundur bráð- skemmtilegrar sýningar í anddyri leikhússins sem leikhúsgestir eru eindregið hvattir til að skoða. Búningar Ásdísar Guðnýjar Guð- mundsdóttur voru einfaldir í grunn- inn sem hentaði leikurum vel þegar þeir stukku milli ólíkra hlutverka. Leikgervi Valdísar Karenar Smára- dóttur virkuðu vel til að teikna upp mynd af ólíkum persónum með ein- földum hætti. Flott lýsing Magn- úsar Arnars Sigurðarsonar í bland við áhrifaríka tónlist og hljóðmynd Elvars Geirs Sævarssonar og Krist- ins Gauta Einarssonar og mynd- bönd Inga Bekk minntu iðulega á tölvuleik og sjónvarpsþáttinn sem Loki var að gabba þátttakendur með. Flókin tæknileg útfærsla kall- aði skiljanlega á einfalda og skýra sögu. Báðar sýningar sem rýnir sá ein- kenndust af góðri orku og mikilli leikgleði og þar skemmdi hin mikla nánd sem Kúlan sem leiksvið býður upp á ekki fyrir. Frásögnin af börn- um Loka bauð eðli málsins sam- kvæmt ekki upp á sama hasarinn og felst í mögulegum Ragnarökum og var auk þess mun kyrrstæðari í sviðsetningu. Af viðbrögðum barnanna í salnum var samt ljóst að báðar sýningar féllu vel í kramið. Ungur fylgdarsveinn rýnis tilkynnti undir lok seinni sýningarinnar að hann langaði samstundis að upplifa ævintýri þriðja Miðgarðsbarnsins sem stendur víst til boða að reyna að veiða sjálfan Miðgarðsorminn. Þá er bara að vona að meirihluti leik- húsgesta velji þann kost þegar sú leikhúsferð verður farin. Í höndum áhorfenda Ljósmynd/Olga Helgadóttir Börn Loka Lára Jóhanna Jónsdóttir í hlutverkinu sem Hel með bræðrum sínum, Jörmungandi og Fenri. Þjóðleikhúsið Þitt eigið leikrit – Goðsaga bbbbn Eftir Ævar Þór Benediktsson. Leik- stjórn: Stefán Hallur Stefánsson. Leik- mynd: Högni Sigurþórsson. Búningar: Ásdís Guðný Guðmundsdóttir. Lýsing: Magnús Arnar Sigurðarson. Myndband: Ingi Bekk. Tónlist og hljóðmynd: Elvar Geir Sævarsson og Kristinn Gauti Ein- arsson. Leikgervi: Valdís Karen Smára- dóttir. Brúðugerð: Aldís Davíðsdóttir. Kosningakerfi og aðrar sértækar tækni- lausnir: Hermann Karl Björnsson. Sýn- ing í anddyri: Högni Sigurþórsson, Reynir Þorsteinsson, Mathilde Anne Morant og Björgvin Már Pálsson. Leik- arar: Baldur Trausti Hreinsson, Hilmir Jensson, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Snorri Engilbertsson og Sólveig Arnars- dóttir. Frumsýnt í Kúlunni fimmtudag- inn 31. janúar 2019. Rýnt í bæði frum- sýninguna og 3. sýningu, laugardaginn 2. febrúar 2019. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST Írski leikarinn Liam Neeson kom með hrollvekjandi játningu í viðtali við enska dagblaðið Independent sem birt var á vef þess fyrir um tveimur dögum og fleiri fjölmiðlar hafa vísað í í kjölfarið. Í viðtalinu segir Neeson að kona honum ná- komin hafi greint honum frá því að henni hafi verið nauðgað. Neeson segist hafa spurt hana frekar út í of- beldismanninn og þá meðal annars hver húðlitur hans hafi verið og kon- an svarað því til að maðurinn hafi verið þeldökkur. Neeson varð þá heltekinn af hefndarþorsta og segist í um viku hafa ráfað um ónefnt hverfi með barefli og beðið þess að einhver þel- dökkur karlmaður, svartur þrjótur eins og hann orðar það, abbaðist upp á hann svo hann gæti drepið hann. „Það er hræðilegt að ég hafi gert þetta,“ segir Neeson og að hann hafi lært af þessu og á endanum áttað sig á því hversu sturlaður hann væri. Leikarinn segist þekkja vel þörfina fyrir hefnd eftir að hafa alist upp á Norður-Írlandi í samfélagi þar sem ofbeldi var daglegt brauð. „Ég skil hefndarþörfina en hefnd leiðir til enn frekari hefnda og drápa og Norður-Írland er gott dæmi um það,“ segir Neeson. Tilefni viðtalsins var nýjasta kvik- mynd Neesons, Cold Pursuit, en í henni leikur hann mann í hefnd- arhug en Neeson hefur hin síðustu ár einkum leikið í spennutryllum þar sem hefnd hefur m.a. komið við sögu. Leiddi samtal hans við blaða- mann um hefndarþorstann til þess- arar merkilegu játningar sem mun eflaust draga dilk á eftir sér. Segist hafa viljað drepa blökkumann  Hrollvekjandi játning Neesons AFP Sturlun Liam Neeson í Cold Pur- suit. Hann segist hafa viljað drepa blökkumann eftir að kona honum nákomin sagði frá því að henni hefði verið nauðgað af blökkumanni. R GUNA GÓÐAR I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.