Morgunblaðið - 06.02.2019, Síða 36
Með Punktum og peningum
getur þú nýtt Vildarpunkta
Icelandair upp í hvaða flug sem
er. Líttu inn á vefinn okkar og
lækkaðu verðið á ferðinni þinni.
airicelandconnect.is
Settu punktinn
yfir ferðalagið
Djassklúbburinn Múlinn heldur
áfram með vordagskrá sína á
Björtuloftum í Hörpu í kvöld með
tónleikum nýstofnaðrar hljóm-
sveitar, Sveiflukvintettsins Old
School, sem fær til liðs við sig
söngkonuna Kristjönu Stefáns-
dóttur. Saman munu þau flytja
gamaldags sveiflutónlist í anda
tónlistar New Orleans-borgar.
Gamaldags sveiflu-
tónlist á Múlanum
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 37. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Íslandsmeistarar Fram halda áfram
að elta lið Vals í toppbaráttu Olís-
deildar kvenna í handknattleik.
Fram vann í gærkvöld öruggan sig-
ur á HK, 31:20, og er tveimur stig-
um á eftir Val. Stjarnan var nærri
sigri í heimsókn sinni til Hauka í
Schenkerhöllina á Ásvöllum. Liðin
skildu jöfn, 25:25. Haukar eru í
þriðja sæti. »3
Framkonur elta
Valsliðið á röndum
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Guðni Bergsson, formaður Knatt-
spyrnusambands Íslands, er í kosn-
ingabaráttu í annað skipti eftir að
hafa gegnt embættinu í tvö ár. Fyrr-
verandi formaður sambandsins,
Geir Þorsteinsson, sem vék fyrir
Guðna árið 2017,
vill komast að á
ný. Rætt er við
Guðna og Geir í
íþróttablaðinu í
dag og farið yfir
þeirra áherslur
og hugmyndir en
kosið verður á
milli þeirra
á ársþingi
KSÍ á
laugar-
daginn.
» 1
Kosið á milli Guðna og
Geirs á laugardaginn
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Það er gott að vera 104 ára. Ég geri
lítið annað en að sofa, borða, kíkja í
boccia og skjótast út í Kringlu á
skutlunni minni,“ segir Lárus Sigfús-
son, sem fagnaði 104 ára afmæli á
heimili sínu og Kristínar Gísladóttur,
sambýliskonu sinnar, í gær.
Lárus sem er 18. í röðinni af elstu
körlum á Íslandi telur að það fari að
styttast í annan endann en það er
stutt í metnaðinn því Lárus veðrast
allur upp þegar honum er tjáð að
hann og systir hans Anna geti slegið
aldursmet í desember. Að sögn Jón-
asar Ragnarssonar, áhugamanns um
langlífi, eru Lárus og Anna elstu
systkini sem bæði eru á lífi og yfir 100
ára á Íslandi. Metið eiga Margrét og
Filippus Hannesarbörn frá Núpsstað
sem urðu samanlagt 206 ára og 119
daga.
Í dag fagnar barnabarn Lárusar,
Hjalti Júlíusson, 60 ára afmæli. Hann
á von á barnabarnabarni um mán-
aðamótin júní/júlí
og möguleiki er á
því að þá verði sex
ættliðir á lífi á
sama tíma. Að
sögn Jónasar
Ragnarssonar
hefur það gerst
fjórum sinnum,
síðast árið 2010.
„Til þess að
verða langafi 60 ára þarf að byrja
snemma í barneignum. Ég eignaðist
mitt fyrsta barn 18 ára og fæ í staðinn
meiri tíma með langafabarninu,“ seg-
ir Hjalti sem telur að langlífi og frjó-
semi í ættinni megi rekja til þess að
þau séu sveitafólk upp til hópa. Lárus
eignaðist sex börn og eru fjögur á lífi.
Afkomendur hans eru eftir því sem
best er vitað 125 og tveir á leiðinni að
sögn Svans, yngsta sonar Lárusar,
sem er 66 ára en elstur er Sverrir, 72
ára. Lárus er frá Hvalsá í Hrútafirði í
Strandasýslu og var bóndi á Kol-
beinsá að sögn Svans. Eftir að Lárus
flutti til Reykjavíkur á sjötta ára-
tugnum fór hann að keyra leigubíl og
vann hjá SÍS meðfram því þar til
hann gerðist ráðherrabílstjóri hjá
landbúnaðarráðuneytinu.
„Ég þakka 104 árin því að ég hef
alltaf haft nóg að hugsa um og gera.
Ég hef haft ánægju af að vinna og
taka þátt í sem flestu. Ég hef tekið
þátt í æði mörgu öll þessi ár og þau
eru næstum því óteljandi störfin sem
ég hef haft með höndum,“ segir Lár-
us sem telur að mestar breytingar í
þjóðfélaginu hafi orðið þegar hann
var ungur maður fyrir 80 árum.
„Allar breytingar eru til góðs en
þjóðfélagið stefnir ekki alltaf í rétta
átt og ýmis ómenning á sér nú stað,
sem er sorglegt,“ segir Lárus og
nefnir þar samskipti kynjanna sem
búið sé að afskræma. Hann segir að
karlar og konur geta ekki hvert án
annars verið og ef samskipti gangi
eðlilega fyrir sig þá verði allt í lagi.
Hann segir að höfuðskepnurnar tvær
á jörðinni verði að finna leið til sam-
skipta til þess að hlutirnir verði eins
og þeir eiga að vera.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hress Lárus Sigfússon sem varð 104 ára gær segir að störfin sem hann hafi unnið séu næstum því óteljandi.
104 ára og á von á
sjötta ættlið í sumar
Hjalti Júlíusson
Fer í boccia og skutlast í Kringluna Elstu systkini landsins