Morgunblaðið - 04.02.2019, Síða 1
MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2019
ÍÞRÓTTIR
England Sergio Agüero skoraði sína fjórtándu þrennu fyrir Manchester City þegar liðið lagði Arsenal að velli.
Þriðja markið hefði þó ekki átt að standa. Naumt forskot Liverpool fyrir kvöldið. Arsenal niður í 6. sæti 6
Íþróttir
mbl.is
Ljósmynd/FCA_World
Markahrókur Alfreð Finnbogason fagnar marki gegn Mainz í gær en hann skoraði þrennu í snjókomunni.
ÞÝSKALAND
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Alfreð Finnbogason gerði sér lítið
fyrir og skoraði þrennu fyrir Augs-
burg í 3:0-sigri liðsins gegn Mainz í
þýsku 1. deildinni í knattspyrnu í
gær. Framherjinn öflugi hefur nú
skorað fjórar þrennur fyrir Augs-
burg síðan hann gekk til liðs við fé-
lagið árið 2016. Alfreð hefur nú skor-
að 104 mörk í erlendri deildakeppni
og er jafn Arnóri Guðjohnsen en að-
eins tveir Íslendingar hafa skorað
meira í erlendri deildakeppni, þeir
Heiðar Helguson (133) og Eiður
Smári Guðjohnsen (107).
„Ég er mjög sáttur með mína
spilamennsku mína í þessum leik og
það er í raun ekki hægt að biðja um
neitt mikið meira. Það hefur gengið
erfiðlega hjá okkur að undanförnu og
við vorum búnir að spila tíu leiki í röð
án sigurs, áður en kom að leiknum
gegn Mainz. Það hefur gengið á
ýmsu hjá liðinu í vikunni sem leið og
þessi sigur var frábært svar við öllu
því sem hefur verið í gangi að und-
anförnu. Frammistaðan var virkilega
góð hjá öllu liðinu og að lokum var
þetta bæði sanngjarn og sannfær-
andi sigur.“
Lítið hefur gengið hjá Augsburg,
undanfarnar vikur, en liðið er í fimm-
tánda sæti deildarinnar með 18 stig
en átján lið leika í þýsku 1. deildinni
en eins og staðan er í dag er Augs-
burg þremur stigum frá fallsæti.
Ekki skemmtilegasti tíminn
„Það er búið að fara vel yfir hlut-
ina undanfarnar vikur. Bæði hvað
má betur fara og hvað við höfum ver-
ið að gera vel. Hlutirnir voru ekki að
falla með okkur á tímabili og sem
dæmi töpuðum við einhverjum þrem-
ur leikjum á lokamínútunum. Þetta
hefur ekki verið neitt sérstaklega
skemmtilegt að ganga í gegnum
þetta niðursveiflutímabil en mér
fannst við stíga mjög vel upp í dag.
Eins og staðan er í dag erum við í
bullandi fallhættu en ef okkur tekst
að krækja í stig hér og þar í næstu
leikjum þá er ég nokkuð sannfærður
um að við séum á réttri leið og von-
andi gerir þessi sigur það að verkum
að við náum að snúa genginu við. Við
erum með mjög gott lið og mér finnst
að við eigum að vera í efri hluta töfl-
unnar. Núna þurfum við að finna
taktinn aftur og fara að taka þrjú
stig því það er það eina sem skiptir
máli í þessu.“
Þrátt fyrir að Augsburg hafi ekki
gengið vel á þessari leiktíð hefur Al-
freð skorað grimmt en hann er kom-
inn með 10 mörk í 13 deildaleikjum
með liðinu á tímabilinu og er í 7.-9.
sæti yfir markahæstu leikmenn
deildarinnar. Alfreð segir að einn af
fylgifiskum þess að skora reglulega
sé að varnarmenn annarra liða passi
betur upp á hann en fyrst þegar
hann kom inn í deildina árið 2016.
Sáttur með sína frammistöðu
„Okkur hefur ekki gengið vel á
tímabilinu en persónulega er ég sátt-
ur með mína frammistöðu. Ég missti
af fyrstu fimm leikjum tímabilsins
vegna meiðsla en kom svo inn af
miklum krafti. Svo kom smá niður-
sveifla hjá mér þar sem ég var ekki
að skora en það er einmitt á þannig
augnablikum sem það er mikilvægt
að standa í lappirnar og hafa trú á
því sem maður er að gera. Okkur
hefur alltaf gengið vel þegar við spil-
umm okkar leik, og það er gott að
hafa það á bak við eyrað þegar illa
gengur. Það er fylgifiskur þess að
hafa verið lengi í Þýskalandi og að
hafa staðið sig vel að það er fylgst
betur með manni. Andstæðingurinn
þekkir mann betur en að sama skapi
er ég farinn að þekkja hin liðin í
deildinni nokkuð vel. Við erum með
marga góða sóknarmenn í Augsburg
og þegar við fáum að njóta okkar á
vellinum þá gengur okkur oftast
mjög vel.“
Framherjinn var orðaður við
brottför frá Augsburg í janúar en
nokkur lið í Evrópu sýndu leikmann-
inum áhuga. Alfreð var ekki spennt-
ur fyrir því að yfirgefa félagið á þess-
um tíma en hann ætlar að skoða sín
mál í sumar.
„Það voru fyrirspurnir og ein-
hverjir möguleikar í stöðunni en ekk-
ert sem fór það langt að það sé hægt
að segja frá því. Mér fannst mjög
óraunhæft að yfirgefa liðið á þessum
tíma og ég var aldrei með hugann við
það að fara því mig langar að klára
tímabilið með Augsburg og taka eitt
gott heilt tímabil með liðinu. Mér líð-
ur mjög vel í Þýskalandi og svo
sjáum við hvað gerist í sumar. Ég er
einbeittur á að standa mig vel fyrir
Augsburg, það eina sem ég er að
hugsa um þessa stundina er að klára
tímabilið með Augsburg.“
Eins og áður sagði er Alfreð nú í
3.-4. sæti yfir markahæstu Íslend-
ingana í erlendri deildarkeppni með
104 mörk. Þá er hann þriðji marka-
hæsti Íslendingurinn í sögu Bundes-
ligunnar með 32 mörk og fór í gær
uppfyrir Eyjólf Sverrisson sem skor-
aði 30 mörk fyrir Stuttgart og
Herthu Berlín. Atli Eðvaldsson er sá
markahæsti með 59 mörk og Ásgeir
Sigurvinsson er í öðru sætinu með 39
mörk. Atli, Ásgeir og Eyjólfur léku
allir á þriðja hundrað leiki í deildinni
en Alfreð hefur spilað 62 deildaleiki
fyrir Augsburg sem gerir afrekið
ennþá stærra.
Gaman að lesa tölfræðifréttir
„Öll svona tölfræði er ákveðinn
bónus en ég væri að ljúga ef ég
myndi ekki segja að mér fyndist
þetta skemmtilegt líka. Auðvitað
gerir það mann stoltan, vitandi til
þess að maður er annaðhvort marka-
hæstur hjá sínu félagi eða á meðal
markahæstu íslensku leikmannanna
í deildarkeppni erlendis. Þetta er
ekki eitthvað sem ég er að spá í dags-
daglega en það er alltaf gaman að
lesa svona fréttir. Ég er mjög stoltur
af mínum árangri í Þýskalandi. Það
er ekki að ástæðulausu sem ég er bú-
inn að vera lengst í Þýskalandi af
þeim stöðum sem ég hef spilað á á
ferlinum. Mér líður mjög vel hjá
Augsburg og ég er að spila í topp-
deild. Við gerðum okkur væntingar
um betra gangi í upphafi tímabilsins,
sérstaklega þar sem við fórum mjög
vel af stað, og það segir mikið um
styrleika deildarinnar,“ sagði Alfreð
Finnbogason í samtali við Morg-
unblaðið.
Stoltur af tölfræðinni
Fjórða þrenna Alfreðs í Þýskalandi kom gegn Mainz Tók framherjann 62 deilda-
leiki að skora 32 mörk Orðinn þriðji markahæsti Íslendingurinn í þýsku deildinni
Körfuknattleiks-
þjálfarinn Hrann-
ar Hólm fékk silf-
urverðlaun í
dönsku bik-
arkeppninni í
kvennaflokki á
laugardag þegar
lið hans, Stevns-
gade, beið lægri
hlut fyrir Aaby-
høj í úrslitaleik
keppninnar, 59:74.
Staðan í hálfleik var 32:32 en
Aabyhøj stakk af í þriðja leikhluta
þar sem liðið skoraði 23 stig gegn
aðeins 5 stigum.
Stevnsgade, sem er frá Nørrebro í
Kaupmannahöfn, er í fimmta sæti
dönsku úrvalsdeildarinnar en Aaby-
høj er í fjórða sætinu.
Hrannar
uppskar silfur
Hrannar
Hólm
SGi Ludwigs-
burg, lið Ásgeirs
Sigurgeirssonar,
skotíþrótta-
manns og ólymp-
íufara, varð um
helgina Þýska-
landsmeistari í
loftskammbyssu.
Liðið vann 4:1-
sigur á Bruns-
wick í úrslitaleik
en átta lið tóku þátt í úrslitakeppn-
inni sem fram fór um helgina.
Ásgeir lék með Ludwigsburg
framan af keppnistímabilinu en tók
ekki þátt í úrslitakeppninni heldur
keppti á Reykjavíkurleikunum nú
um helgina, þar sem hann fagnaði
sigri. Leikir í þýsku deildinni fara
fram um helgar og hefur Ásgeir
flogið utan í leiki, og vann hann alla
sína leiki í vetur. sindris@mbl.is
Ásgeir þýskur
meistari
Ásgeir
Sigurgeirsson
Katrín Tanja Dav-
íðsdóttir tryggði
sér um helgina
sæti á heimsleik-
unum í crossfit en
þeir fara fram í
Wisconsin í
Bandaríkjunum í
ágúst. Katrín
Tanja vann sigur
á Fittest in Cape
Town-mótinu í Suður-Afríku en að-
eins sigur á mótinu gat tryggt kepp-
endum sæti á heimsleikunum.
Katrín Tanja vann fjórar af tíu
greinum mótsins og hafði mjög gott
forskot fyrir tíundu og síðustu grein-
ina þar sem hún hafnaði í 5. sæti. Hún
endaði með 856 stig eða 54 stigum á
undan Miu Akerlund og Alessöndru
Pichelli sem komu jafnar í næstu sæt-
um. Katrín Tanja fékk rúmlega hálfa
milljón króna fyrir sigurinn.
sindris@mbl.is
Katrín Tanja á
heimsleikana
Katrín Tanja
Davíðsdóttir