Morgunblaðið - 04.02.2019, Side 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2019
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
heim að lokum. Þetta var fyrsti sig-
ur Grindvíkinga í síðustu fjórum
deildarleikjum liðsins en þeir eru í
sjöunda sæti deildarinnar með 16
stig. Tindastóll var að tapa sínum
öðrum leik í röð í deildinni en Stól-
arnir eru í þriðja sætinu með 24
stig.
Níundi sigur Stjörnunnar í röð
Stjarnan lenti ekki í miklum
vandræðum þegar Valsmenn mættu
í heimsókn í Garðabæinn og unnu
öruggan 107:71-sigur. Garðbæingar
leiddu með sjö stigum í hálfleik en í
þriðja leikhluta hafði Stjarnan betur
með 44 stigum gegn 18 stigum Vals-
manna og þar með var sigurinn unn-
inn. Stjarnan er komin upp í annað
sæti deildarinnar í 26 stig, líkt og
Njarðvík sem á leik til góða, en
Valsmenn eru áfram í tíunda sæti
deildarinnar með 10 stig.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Öflugur Nikolas Tomsick (t.h.) tryggði Þórsurum sigur gegn ÍR með þriggja stiga körfu á lokasekúndum leiksins.
Tomsick hetja Þórs
Gott gengi Þorlákshafnarbúa heldur áfram eftir spennuþrungnar lokamínútur
í Breiðholti Tveir þristar Tomsick í lokin Grindavík vann sigur á Tindastóli
Í BREIÐHOLTI
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Þór Þorlákshöfn hafði betur gegn
ÍR, 96:95, í háspennuleik í Breið-
holtinu í gærkvöldi en leikurinn var
hnífjafn fram á lokasekúnduna.
Króatinn Nikolas Tomsick innsigl-
aði sigur Þórsara fimm sekúndum
fyrir leikslok þegar hann setti niður
erfiða þriggja stiga körfu af löngu
færi með jötuninn Sigurð Gunnar
Þorsteinsson ofan í sér.
Erlendu leikmennirnir í liði Þórs
létu mikið að sér kveða í kvöld. Jaka
Bodnik frá Slóveníu var drjúgur
framan af leik og Bandaríkjamað-
urinn Kinu Rochford, sem var val-
inn besti leikmaður janúarmánaðar
af Morgunblaðinu, tók 14 fráköst í
leiknum, mest allra. Þá átti Halldór
Garðar Hermannsson ævintýra-
legan þriðja leikhluta, skoraði 15
stig fyrir gestina og hreinlega hélt
þeim á floti þegar ÍR-ingar virtust
vera að finna vopnin sín. Það voru
nefnilega ÍR-ingar sem virtust vera
með pálmann í höndunum undir lok
leiks. Eftir mjög jafna og bar-
áttumikla þrjá leikhluta náðu ÍR-
ingar að koma sér í kjörstöðu. Ger-
ald Robinson var stigahæstur allra
með 25 stig og þá var Sigurður
Gunnar frekastur undir körfunni.
Þegar skammt var til leiksloka náðu
heimamenn átta stiga forystu og
mótlætið virtist ætla að fara með
Þórsara sem misstu meðal annars
Rochford af velli með fimm villur.
ÍR-ingar voru mest sjö stigum yfir
þegar fjórar mínútur voru eftir en
Þórsarar dóu ekki ráðalausir. Það
var svo títtnefndur Tomsick sem
skoraði síðustu tvær körfur gest-
anna, báðar þriggja stiga og sú síð-
asta var hreint út sagt mögnuð.
Þórsarar hafa unnið nokkra stóra
leiki eftir áramót, m.a. gegn KR og
Tindastól, og tilfinningin í gær var
að þessi sigur var ekki síður stærri,
sérstaklega eftir svekkjandi tap
gegn Stjörnunni í síðasta leik. ÍR-
ingar töpuðu einnig í umferðinni á
undan, stórt gegn Keflavík, og það
mun hafa verið ansi sárt að missa
leikinn niður í gær. Þeim tókst að
vinna þrjá í röð gegn minni spá-
mönnum deildarinnar en hafa hins
vegar tapað hinum sjö af síðustu tíu
leikjum sínum og eiga á hættu að
tímabilið þeirra hreinlega fjari út.
Grindavík skellti Stólunum
Grindavík gerði sér lítið fyrir og
vann fjögurra stiga sigur gegn
Tindastól þegar liðin mættust í
Grindavík í gær, 100:96.
Mikið jafnfræði var með liðunum
allan leikinn en Grindvíkingar tóku
frumkvæðið þegar tvær mínútur
voru til leiksloka. Ingvi Þór Guð-
mundsson kom þá Grindvíkingum
yfir, 92:91 og sigldu þeir sigrinum
Hertz-hellirinn, Dominos-deild karla,
3. febrúar 2019.
Gangur leiksins: 2:2, 11:6, 17:14,
23:25, 29:29, 36:33, 43:48, 50:44,
57:47, 63:55, 67:65, 74:73, 77:76,
85:81, 88:87, 95:96.
ÍR: Gerald Robinson 25/6 fráköst, Há-
kon Örn Hjálmarsson 15, Matthías
Orri Sigurðarson 13/5 stoðsendingar,
Sigurður Gunnar Þorsteinsson 12/12
fráköst, Kevin Capers 11/8 fráköst/4
stoðsendingar, Sigurkarl Róbert Jó-
hannesson 9, Sæþór Elmar Krist-
jánsson 8, Trausti Eiríksson 2.
Fráköst: 33 í vörn, 11 í sókn.
Þór Þ.: Nikolas Tomsick 24/9 frá-
köst/7 stoðsendingar, Halldór Garðar
Hermannsson 23, Jaka Brodnik 22,
Emil Karel Einarsson 13/5 fráköst,
Kinu Rochford 12/14 fráköst/6 stoð-
sendingar, Ragnar Örn Bragason 2.
Fráköst: 24 í vörn, 13 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Eggert
Þór Aðalsteinsson og Jóhann Guð-
mundsson
Áhorfendur: 113.
ÍR – Þór Þ. 95:96
Dominos-deild karla
ÍR – Þór Þ ............................................. 95:96
Stjarnan – Valur ................................. 107:71
Grindavík – Tindastóll ....................... 100:96
Staðan:
Njarðvík 16 13 3 1416:1356 26
Stjarnan 17 13 4 1588:1384 26
Tindastóll 17 12 5 1489:1321 24
KR 16 11 5 1414:1362 22
Keflavík 16 10 6 1372:1292 20
Þór Þ. 17 9 8 1515:1500 18
Grindavík 17 8 9 1512:1540 16
ÍR 17 7 10 1452:1522 14
Haukar 16 7 9 1351:1424 14
Valur 17 5 12 1540:1644 10
Skallagrímur 16 3 13 1365:1481 6
Breiðablik 16 1 15 1417:1605 2
1. deild kvenna
Fjölnir – Þór Ak.................................... 92:72
Grindavík – Njarðvík ........................... 85:72
ÍR – Hamar........................................... 71:60
Staðan:
Fjölnir 13 11 2 1020:821 22
Grindavík 11 8 3 827:731 16
Þór Ak. 10 7 3 669:618 14
Njarðvík 13 6 7 937:953 12
ÍR 13 5 8 765:816 10
Tindastóll 13 5 8 946:1037 10
Hamar 13 1 12 728:916 2
Spánn
Obradoiro – Murcia............................. 91:79
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 6 stig og
tók 2 fráköst á 18 mínútum fyrir Obradoiro.
B-deild karla:
Barcelona B – Melilla.......................... 60:78
Kári Jónsson hjá Barcelona er frá
keppni vegna meiðsla.
B-deild kvenna:
Celta Zorka – Ibaizabal ...................... 72:65
Hildur Björg Kjartansdóttir skoraði 11
stig, tók 3 fráköst og átti 2 stoðsendingar á
19 mínútum fyrir Celta Zorka.
Þýskaland
Alba Berlín – Bayreuth....................... 86:68
Martin Hermannsson skoraði 10 stig
fyrir Alba Berlín, tók 1 frákast og gaf 3
stoðsendingar á 30 mínútum.
Frakkland
Nanterre – Mónakó ............................. 77:82
Haukur Helgi Pálsson skoraði 12 stig,
tók 3 fráköst og gaf 4 stoðsendingar á 28
mínútum fyrir Nanterre.
B-deild:
Quimper – Evreux .............................. 68:73
Frank Aron Booker kom ekkert við sögu
hjá Evreux.
Austurríki
Flyers Wels – Kapfenberg Bulls........ 93:89
Dagur Kár Jónsson skoraði 16 stig og
gaf 3 stoðsendingar á 23 mínútum fyrir
Flyers Wels.
NBA-deildin
Detroit – LA Clippers ...................... 101:111
Washington – Milwaukee ................ 115:131
San Antonio – New Orleans ............ 113:108
Charlotte – Chicago ......................... 125:118
Cleveland – Dallas.............................. 98:111
Golden State – LA Lakers............... 115:101
Phoenix – Atlanta ............................. 112:118
Utah – Houston .................................. 98:125
Sacramento – Philadelphia.............. 115:108
Minnesota – Denver ......................... 106:107
Miami – Indiana.................................... 88:95
Orlando – Brooklyn............................ 102:89
KÖRFUBOLTI
Óðinn Þór Rík-
harðsson skoraði
sjö mörk fyrir
GOG þegar liðinu
tókst með hálf-
ævintýralegum
hætti að halda
sæti sínu á toppi
dönsku úrvals-
deildarinnar í
handbolta um
helgina, með
21:21-jafntefli við Aalborg. Einu
stigi munar því áfram á liðunum en
skyttan Lasse Møller tryggði GOG
jafntefli með skoti nokkuð utan
punktalínu í blálokin.
Ómar Ingi Magnússon skoraði
þrjú mörk fyrir Aalborg, í þessum
fyrsta leik eftir veru þeirra Óðins í
Þýskalandi vegna HM, en Janus
Daði Smárason skoraði eitt mark.
Aalborg, sem er með Arnór Atla-
son sem aðstoðarþjálfara, er þremur
stigum á undan Århus sem er í 3.
sæti deildarinnar.
Óðinn með
sjö í æsileg-
um toppslag
Óðinn Þór
Ríkharðsson SA Víkingar tryggðu sér um helgina
sigur í Hertz-deild karla í íshokkíi á
þessari leiktíð og þar með heimavall-
arréttinn í úrslitakeppninni. Akur-
eyringar hafa verið afar sannfær-
andi í vetur og aðeins tapað tveimur
leikjum, þar af öðrum eftir fram-
lengingu og vítakeppni. Því tókst
þeim að tryggja sér sigur í deildinni
á laugardag þrátt fyrir að eiga enn
eftir tvo leiki við Skautafélag
Reykjavíkur og tvo við Fjölni/
Björninn.
SA Víkingar fengu deildarmeist-
arabikarinn í hendurnar eftir 3:2-
sigur á Fjölni/Birninum á Akureyri,
eftir framlengdan leik. Kanadamað-
urinn Thomas Stuart-Dant kom SA
yfir í 1. leikhluta en Kristján Albert
Kristinsson jafnaði metin um miðjan
2. leikhluta. Hilmar Sverrisson kom
svo gestunum úr Reykjavík yfir en
Jóhann Már Leifsson jafnaði metin
þremur mínútum fyrir lok venjulegs
leiktíma. Þjálfarinn Jussi Sipponen
skoraði svo sigurmarkið á fyrstu
mínútu framlengingar.
SR og Fjölnir/Björninn berjast
um að mæta SA í úrslitunum. SA er
með 28 stig, SR 17 og Fjölnir/
Björninn 12, en tvö síðastnefndu lið-
in eiga þrjá leiki eftir hvort.
SA Víkingar fögnuðu deildarmeistaratitli
Ljósmynd/Ásgrímur Ágústsson
Meistarar Skautafélag Akureyrar bætti enn einum titlinum við safnið.
Eiga fjóra leiki eftir fram að úrslitum