Morgunblaðið - 04.02.2019, Blaðsíða 6
6 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. FEBRÚAR 2019
ENGLAND
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Aðeins markahrókurinn mikli Alan
Shearer getur státað sig af því að
hafa skorað fleiri þrennur í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu en
hinn argentínski Sergio Agüero.
Shearer mátti ellefu sinnum fara
heim með boltann sem leikið var
með, sem virðingarvott fyrir að hafa
skorað þrennu, og nú hefur Agüero
skorað tíu slíkar í deildinni. Hann
hefur raunar skorað fjórtán þrennur
í búningi Manchester City, ef horft
er til allra keppna.
Agüero stal sem sagt senunni í
3:1-sigri City á Arsenal í gær. City-
menn áttu sigurinn fyllilega skilið
þrátt fyrir að þriðja mark Agüero
hefði ekki átt að standa, en það skor-
aði hann í raun með olnboganum.
Það er kannski lýsandi fyrir leik-
manninn sem leitar hreinlega allra
leiða til að skora mörk og er nú bú-
inn að stimpla sig rækilega inn í bar-
áttuna um gullskóinn á Englandi,
með 14 mörk eða tveimur minna en
Mohamed Salah hjá Liverpool sem
er markahæstur. Agüero hefur skor-
að 157 mörk í 227 leikjum fyrir City
og á ríkan þátt í þeim þremur Eng-
landsmeistaratitlum sem liðið hefur
unnið síðan hann kom frá Atlético
Madrid árið 2011.
City er nú tveimur stigum á eftir
Liverpool í titilbaráttunni, og tveim-
ur á undan Tottenham, en Liverpool
á leik til góða gegn West Ham í
kvöld. Arsenal-menn hafa hins vegar
spilað sig út úr „elítuhópi“ fjögurra
efstu liða og eru komnir niður í 6.
sæti, eftir þrjú töp í síðustu sex leikj-
um. Chelsea er þremur stigum ofar í
4. sætinu og Manchester United
komst upp fyrir Arsenal með 1:0-
útisigri á Leicester, en United hefur
þar með unnið níu leiki og gert eitt
jafntefli í tíu leikjum sínum undir
stjórn Ole Gunnars Solskjær.
Aron lagði upp mikilvægt mark
Íslendingarnir þrír í ensku úrvals-
deildinni áttu misgóðu gengi að
fagna um helgina. Aron Einar Gunn-
arsson lagði upp seinna mark Car-
diff í afar mikilvægum 2:0-sigri á Bo-
urnemouth og fékk 7 í einkunn hjá
miðlum á borð við Sky Sports. Þetta
var fyrsti sigur Cardiff á þessu ári
en liðið er áfram í fallsæti, nú með 22
stig og aðeins tveimur stigum á eftir
þremur næstu liðum. Burnley, lið
Jóhanns Berg Guðmundssonar, er
eitt þeirra liða en Burnley krækti í
1:1-jafntefli við Southampton á laug-
ardag með marki í lokin, eftir að Jó-
hann hafði komið inn á sem vara-
maður.
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í
Everton töpuðu hins vegar leik við
Watford um að komast í 7. sæti
deildarinnar, 3:1, og eru komnir nið-
ur í 9. sæti.
AFP
Þrenna Sergio Agüero fagnar þriðja marki sínu og lætur ekki á sig fá tilraunir Arsenal-manna til að segja dómaranum að um hendi væri að ræða.
Arsenal olnbogabarn
Agüero bætti enn einni þrennunni í safnið í sigri á Arsenal og nálgast Alan
Shearer Liverpool með naumt forskot fyrir kvöldið Arsenal niður í 6. sæti
England
Everton – Wolves..................................... 1:3
Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn
fyrir Everton.
Burnley – Southampton.......................... 1:1
Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á
hjá Burnley á 58. mínútu.
Cardiff – Bournemouth .......................... 2:0
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn
fyrir Cardiff og lagði upp mark.
Tottenham – Newcastle........................... 1:0
Brighton – Watford.................................. 0:0
Chelsea – Huddersfield ........................... 5:0
Crystal Palace – Fulham ......................... 2:0
Leicester – Manchester United .............. 0:1
Manchester City – Arsenal ..................... 3:1
Staðan:
Liverpool 24 19 4 1 55:14 61
Manch.City 25 19 2 4 66:20 59
Tottenham 25 19 0 6 51:24 57
Chelsea 25 15 5 5 45:23 50
Manch.Utd 25 14 6 5 49:35 48
Arsenal 25 14 5 6 51:36 47
Wolves 25 11 5 9 33:32 38
Watford 25 9 7 9 33:34 34
Everton 25 9 6 10 36:36 33
Bournemouth 25 10 3 12 37:44 33
Leicester 25 9 5 11 30:31 32
West Ham 24 9 4 11 30:37 31
Brighton 25 7 6 12 27:36 27
Cr. Palace 25 7 5 13 26:33 26
Newcastle 25 6 6 13 21:33 24
Southampton 25 5 9 11 27:42 24
Burnley 25 6 6 13 26:46 24
Cardiff 25 6 4 15 22:46 22
Fulham 25 4 5 16 25:55 17
Huddersfield 25 2 5 18 13:46 11
B-deild:
Reading – Aston Villa ............................. 0:0
Jón Daði Böðvarsson var ekki í leik-
mannahópi Reading.
Birkir Bjarnason var ekki í leikmanna-
hópi Villa.
Birmingham – Nottingham Forest ........ 2:0
Brentford – Blackburn ............................ 5:2
Bristol City – Swansea............................. 2:0
Hull – Stoke .............................................. 2:0
Ipswich – Sheffield Wednesday.............. 0:1
Millwall – Rotherham .............................. 0:0
Sheffield United – Bolton ........................ 2:0
WBA – Middlesbrough ............................ 2:3
Wigan – QPR ............................................ 2:1
Leeds – Norwich ...................................... 1:3
Staðan:
Norwich 30 16 9 5 57:39 57
Leeds 30 17 6 7 50:34 57
Sheffield Utd 30 16 6 8 50:31 54
WBA 29 14 8 7 59:38 50
Middlesbro 29 13 11 5 34:22 50
Bristol City 29 13 8 8 37:29 47
Derby 29 13 8 8 40:35 47
Birmingham 30 10 13 7 45:36 43
Aston Villa 30 10 13 7 53:46 43
Hull 30 12 7 11 43:38 43
Blackburn 30 11 10 9 42:46 43
Nottingham F. 30 10 12 8 42:35 42
Swansea 30 11 8 11 40:37 41
QPR 29 11 6 12 35:41 39
Stoke 30 9 11 10 33:39 38
Sheffield Wed. 29 10 8 11 34:45 38
Brentford 29 9 10 10 48:41 37
Preston 30 9 10 11 45:45 37
Wigan 30 9 5 16 31:45 32
Millwall 29 7 9 13 34:44 30
Rotherham 30 5 11 14 28:48 26
Reading 30 5 10 15 32:44 25
Bolton 30 5 8 17 19:45 23
Ipswich 30 3 9 18 23:51 18
Bikarkeppni kvenna, 32ja liða úrslit
Reading – Keynsham Town............ frestað
Rakel Hönnudóttir leikur með Reading.
Þýskaland
Augsburg – Mainz ................................... 3:0
Alfreð Finnbogason skoraði þrennu fyrir
Augsburg og lék fram á 76. mínútu.
Nürnberg – Werder Bremen ................. 1:1
Aron Jóhannsson hjá Bremen er frá
keppni vegna meiðsla.
Staðan:
Dortmund 20 15 4 1 51:20 49
M’gladbach 20 13 3 4 41:18 42
Bayern Münch. 20 13 3 4 44:23 42
RB Leipzig 20 11 4 5 38:18 37
E.Frankfurt 20 9 5 6 40:27 32
Wolfsburg 20 9 4 7 29:27 31
Leverkusen 20 9 3 8 32:31 30
Hoffenheim 20 7 8 5 38:29 29
Hertha Berlín 20 7 7 6 31:31 28
Werder Bremen 20 7 6 7 32:32 27
Mainz 20 7 6 7 22:28 27
Schalke 20 6 4 10 24:29 22
Freiburg 20 5 7 8 26:34 22
Düsseldorf 20 6 4 10 22:39 22
Augsburg 20 4 6 10 29:33 18
Stuttgart 20 4 3 13 17:44 15
Nürnberg 20 2 6 12 17:44 12
Hannover 20 2 5 13 18:44 11
B-deild:
Sandhausen – Bochum............................ 3:0
Rúrik Gíslason lék allan leikinn með
Sandhausen.
Belgía
Kortrijk – Lokeren.................................. 2:1
Ari Freyr Skúlason lék ekki með Loke-
ren vegna meiðsla.
Sviss
Grasshoppers – Basel.............................. 0:4
Rúnar Már Sigurjónsson var ekki í leik-
mannahópi Grasshoppers.
KNATTSPYRNA
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, at-
vinnukylfingur úr GR, sneri aftur á
golfvöllinn eftir hvíld og lék afar vel
á góðgerðarmóti á Bahamaeyjum
um helgina. Ólafía lék hringinn á 66
höggum sem er sex högg undir pari
Ocean Club-golfvallarins, þar sem
hún hóf einmitt frumraun sína á
LPGA-mótaröðinni fyrir tveimur ár-
um síðan. Fékk hún sjö fugla á
hringnum, einn skolla og tíu pör.
Þar sem um góðgerðarviðburð var
að ræða skilar þessi frammistaða
Ólafíu engu hvað varðar styrk-
leikalista eða heimslista. Skorið gef-
ur þó góð fyrirheit fyrir nýtt ár en
Ólafíu gekk ekki vel gegn bestu kylf-
ingum heims á LPGA á síðasta ári.
Lið Ólafíu fagnaði sigri í liða-
keppni mótsins um helgina.
Ljósmynd/@GlobalGolfMgmt
Gott skor Ólafía Þórunn Kristinsdóttir á mótinu á Bahameyjum.
Ólafía byrjaði árið
vel á Bahamaeyjum
Lionel Messi bætti enn rósum í út-
troðið hnappagat sitt um helgina
þegar hann skoraði bæði mörk
Barcelona í 2:2-jafntefli við Valencia
í spænsku 1. deildinni í fótbolta. Val-
encia komst í 2:0 í leiknum en Messi
sá til þess að Barcelona fengi stig í
baráttu sinni á toppi deildarinnar,
þar sem liðið er með sex stiga for-
skot á næsta lið, Atlético Madrid.
Messi er nú búinn að skora í níu
síðustu leikjum sínum fyrir Barce-
lona, alls 12 mörk, og hann á enn eft-
ir að spila leik á árinu 2019 án þess
að skora. Messi er langmarkahæstur
í spænsku deildinni í vetur, að þessu
sinni laus við samkeppni frá Cris-
tiano Ronaldo, með 21 mark. Messi
hefur þar með skorað yfir 20 mörk á
hverju einasta tímabili síðustu ellefu
keppnistímabil.
Messi fann hins vegar fyrir minni
háttar meiðslum eftir leikinn við
Valencia en það staðfesti þjálfarinn
Ernesto Valverde. Því er óvíst að
Argentínumaðurinn geti spilað stór-
leikinn við Real Madrid í spænsku
bikarkeppninni á miðvikudagskvöld,
en um er að ræða fyrri leik liðanna í
undanúrslitum
keppninnar.
Þrátt fyrir að
meiðslin séu
minni háttar er
talið að Valverde
taki ekki neina
áhættu varðandi
fyrirliða sinn nú
þegar erfið leikja-
törn bíður og
meðal annars
styttist í að keppni í Meistaradeild
Evrópu hefjist að nýju. Ousmane
Dembélé gæti einnig misst af leikn-
um við Real eftir að hafa glímt við
smávægileg meiðsli og flensu.
Real Betis aðstoðaði Börsunga í
titilbaráttunni í gær með 1:0-sigri á
Atlético Madrid. Spánverjinn Cana-
les skoraði eina mark leiksins úr
vítaspyrnu um miðjan seinni hálf-
leik. Þetta er fyrsta tap Atlético í
spænsku deildinni síðan liðið lá á úti-
velli gegn Celta de Vigo þann 1.
september, í þriðja leik tímabilsins.
Real Madrid er í 3. sæti með 42
stig, átta stigum á eftir Barcelona,
eftir 3:0-sigur á Alavés í gærkvöld.
Messi ekki misst
marks á árinu
Lionel
Messi