Morgunblaðið - 19.02.2019, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 19.02.2019, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 2019 SMÁRALIND www.skornirthinir.is Léttir og breiðir herraskór úr mjúku leðurlíki. Teygjur á rist. Kíktu á verðið Verð 7.995 Stærðir 40-46 Herraskór Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Buxna- leggings Kr. 8.900 Str. S-XXL (36-48) Litir: svart og blátt Sími 555 2992 og 698 7999 • Við hárlosi • Mýkir liðina • Betri næringar- upptaka Náttúruolía sem hundar elska Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta. Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við mælum með Dog Nikita hundaolíu. Páll Ingi Haraldsson EldurÍs hundar Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda • Gott við exemi • Betri og sterkari fætur Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hjálmar W. Hannesson, formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga, gefur ekki áfram kost á sér á aðalfundi félagsins, sem verður haldinn í ut- anríkisráðuneytinu, Rauðarárstíg 25, fimmtudaginn 28. febrúar nk. „Ég er orðinn karla elstur í þessu embætti og nú er komið nóg,“ segir Hjálmar, en sem fyrr- verandi formaður situr hann eitt ár áfram í stjórninni. Hann bendir jafnframt á að hann hafi á einn eða annan hátt sinnt málefnum, sem tengjast Vestur-Íslendingum, frá því hann fór sem staðgengill ráðu- neytisstjóra utanríkisráðuneytisins með Ólafi Ragnari Grímssyni, þá- verandi forseta, í ferð um Íslend- ingabyggðir í Kanada og víðar sumarið 2000. Hjálmar hefur meðal annars ver- ið sendiherra í Vesturheimi í mörg ár. Hann var fyrsti sendiherra Íslands gagnvart Kanada, sem bjó í höfuðborginni Ottawa, og opn- aði sendiráð Ís- lands þar snemma árs 2001, sendiherra hjá Sameinuðu þjóðunum 2003- 2009, sendiherra gagnvart Banda- ríkjunum 2009-2011 og aðalræðis- maður í Winnipeg 2013-2016. Áður en hann fór til Winnipeg var hann í stjórn ÞFÍ í eitt ár og hefur verið formaður félagsins undanfarin tvö ár. Tímamóta minnst „Starfið hefur verið mjög skemmtilegt og spennandi og ég hef notið allra samskipta sem því fylgja,“ segir Hjálmar. Aðalfundurinn í lok mánaðarins hefst klukkan 17 og að loknum venjulegum aðalfundarstörfum og kaffihléi flytur dr. Birna Bjarna- dóttir, fyrrverandi forstöðumaður íslenskudeildar Manitobaháskóla í Winnipeg í Kanada og núverandi verkefnastjóri við Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, Háskóla Íslands, erindi um íslenskudeildina í Winni- peg. Síðan kynnir Höskuldur Þrá- insson bókina Sigurtunga - Vestur- íslenskt mál og menning, en hann er einn þriggja ritstjóra hennar. ÞFÍ er 80 ára í ár og af því til- efni verður mikið lagt í Þjóðrækn- isþingið 25. ágúst nk. Þjóðræknis- félagið í Vesturheimi fagnar 100 ára afmæli og verður þess sér- staklega minnst á þjóðræknisþingi í Winnipeg 16.-19. maí nk. ÞFÍ í samvinnu við Félag framhalds- skólakennara verður með skipu- lagða ferð á þingið í tilefni tíma- mótanna. Hjálmar allra karla elstur  Hættir sem formaður Þjóðræknisfélags Íslendinga á aðalfundinum í næstu viku  Afmælisár heima og erlendis Hjálmar W. Hannesson Verði frumvarp menntamálaráð- herra um stuðning við öflun og miðlun frétta að lögum mun að mati ritstjóra Skessuhorns auka líkur á að í flestum landshlutum verði áfram starfandi blaðamenn. Þetta kemur fram í umsögn Magnúsar Magnússonar, ritstjóra, um frumvarpið á samráðsgátt stjórnvalda. Segist Magnús þar fagna frumvarpsdrögunum og seg- ir að vandað hafi verið til verka og fylgt fordæmi annarra Norður- landaþjóða sem fyrir margt löngu hafi viðurkennt nauðsyn þess að styðja við innlenda fjölmiðlun. Þegar hafi fjölmargir fjölmiðlar hætt rekstri og skörð myndast í fréttaþjónustu víða á landsbyggð- inni. Í frétt í Morgunblaðinu í gær var ranglega sagt að Skessuhorn væri í hópi staðbundinna miðla sem þætti hlutur sinn í frumvarp- inu fyrir borð borinn. Er beðist velvirðingar á því. Einnig er áréttað að að umsögn Kjarnans um frumvarpsdrögin er ekki sam- hljóma umsögn Torgs, útgáfu- félags Fréttablaðsins, nema að því marki að áhersla verði lögð á að eitthvað sé gert til að minnka eða breyta umsvifum RÚV á markaði. Fagnar fjölmiðla- frumvarpi Mesta framboð á flugsætum verður til og frá Kaupmannahöfn að því er fram kemur í ferðaáætlunum flug- félaganna sem fljúga um Keflavík- urflugvöll á komandi sumri. Fram- boð á sætum til og frá Kaupmanna- höfn eykst um níu prósent frá því sem var í fyrra. Heildarframboð á flugsætum minnkar þó, en það fer úr 7,9 milljón flugsætum á sumaráætl- un í fyrra niður í 7,1 milljón flugsæta í ár. Er það samdráttur upp á 10 pró- sent. Hafa ber í huga að þessi flug- áætlun getur tekið breytingum. Icelandair áformar að auka sæta- framboð sitt yfir sumartímann um 14% í ár frá því sem var í fyrra. Áætl- anir gera ráð fyrir að framboð sæta hjá WOW air dragist saman um 44%. Hjá öðrum flugfélögum sem fljúga um Keflavíkurflugvöll verður sam- anlagt um 4% samdráttur. Mismun- andi er þó hvort félögin eru að minnka sætaframboð eða auka. Morgunblaðið/Eggert Keflavíkurflugvöllur Flugfélögin eru búin að kynna áætlun sína í sumar. Heildarframboð á flugsætum minnkar  Sumaráætlun í Keflavík kynnt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.