Morgunblaðið - 22.03.2019, Side 1

Morgunblaðið - 22.03.2019, Side 1
Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Sólarhringsverkfall Eflingar og VR hófst á miðnætti í nótt, en það nær til ríflega 2.000 starfsmanna á tilteknum hótelum og rútufyrirtækjum á starfs- svæði félaganna. Kl. 10 í gærmorgun hófst sáttafundur hjá Ríkissáttasemj- ara milli félaganna fjögurra, sem hafa verið í samfloti og fulltrúa Samtaka atvinnulífsins. Átti fundurinn einung- is að standa í um klukkustund, en hann dróst á langinn. Var fundi á end- anum slitið á áttunda tímanum í gær- kvöldi án þess að tekist hefði að semja. Ríkissáttasemjari setti fjölmiðla- bann á samninganefndir deiluaðila í gær, og var því ekki aflétt þrátt fyrir fundarslit. Mun sáttasemjari hafa samband við deiluaðila í dag um fram- hald viðræðna en annar fundur var ekki settur á dagskrá í gær. Mikil truflun á starfseminni Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónust- unnar, segir að fyrirtæki í geiranum hafi verið að undirbúa sig eins vel og mögulegt er, en það sé erfitt. Ljóst sé að verkföllin muni valda mikilli trufl- un á starfsemi fyrirtækjanna. Hann segir að það séu töluverð vonbrigði að öllum undanþágubeiðn- um hafi verið hafnað og nefnir sér- staklega næturvörslu á hótelum, þar sem þörf sé á fólki sem kunni rétt við- brögð ef eitthvað komi upp á. „Við teljum það mikið ábyrgðarleysi,“ seg- ir Jóhannes. Hann bætir við að áætlað hafi verið að beinn fjárhagslegur skaði af verk- föllunum verði um 250 milljónir króna á dag. Þá sé eftir að reikna með óbein- um og afleiddum áhrifum, sem séu venjulegast talin vera tvöföld á við beinu áhrifin. Þá séu fréttir af kjara- deilunum að berast út um allan heim og fyrirspurnir og afbókanir að utan hafi aukist mjög í síðustu viku. „Þannig að það er mjög margt sem er að leggjast saman til að valda mjög miklum skarkala í ferðaþjónustunni.“ Yfir 2.000 hófu verkföll í nótt  Maraþonfundi hjá Ríkissáttasemjara lauk án árangurs  Starfsmenn VR og Eflingar hjá fjölda hót- ela og rútufyrirtækja leggja niður störf  Fjárhagslegur skaði af verkföllunum um 250 milljónir á dag Morgunblaðið/Eggert Verkföll Sólveig Anna Jónsdóttir og Ragnar Þór Ingólfsson á fundi Ríkissáttasemjara í gær. MVerkföll og kjaradeilur »4 F Ö S T U D A G U R 2 2. M A R S 2 0 1 9 Stofnað 1913  69. tölublað  107. árgangur  SAGAN VARÐVEITT Í FLUGMUNA- SAFNI EIRÍKS GLUNDROÐI Í GRIMMÚÐ- LEGUM HEIMI MYNDRÆNAR GERSEMAR ÞJÓÐAR CAPERNAUM 33 DAGUERREO-TÝPUR 30DÝRGRIPIR 12 Ferðamenn í miðborginni fengu óblíðar móttökur frá veður- guðunum í gær, og minnti veðrið fremur á vetur en vor. Samkvæmt Veðurstofunni mun kröpp lægð ganga norður með austurströnd landsins í dag, og má búast við stormi á landinu austanverðu. Það mun því þurfa að huga vel að ferða- lögum víðs vegar um landið í dag. Morgunblaðið/Eggert Veðurguðirnir láta til sín taka Stefán E. Stefánsson Baldur Arnarson Í dag munu fulltrúar Icelandair Group og WOW air hefja viðræður um mögulega aðkomu fyrrnefnda fyrirtækisins að rekstri hins síðar- nefnda. Þetta var tilkynnt í gærkvöldi í kjölfar þess að upplýst var að bandaríski fjárfesting- arsjóðurinn Indigo Partners hefði slitið viðræð- um við WOW air um mögulega aðkomu að fyrir- tækinu. Þær viðræður höfðu staðið yfir frá 29. nóvember á síðasta ári. Samkvæmt tilkynningu frá Icelandair í gærkvöldi sagði að ef af aðkomu þess að WOW air yrði myndi sú aðkoma byggj- ast á þeim forsendum samkeppnisréttar að WOW air teldist á „fallanda fæti“. Þá var þar einnig áréttað að viðræðurnar færu fram í sam- ráði við stjórnvöld. Heimildir Morgunblaðsins herma að stjórnvöld hafi lagt ríka áherslu á að reynt yrði til þrautar að félögin næðu sam- komulagi. Sama dag og tilkynnt var að viðræð- urnar við Indigo væru hafnar í nóvember sl. höfðu viðræður milli WOW air og Icelandair siglt í strand. Gefa sér fjóra daga til viðræðna Samkvæmt fyrrnefndri tilkynningu er stefnt að því að ljúka viðræðum næstkomandi mánu- dag. Þá rennur upp gjalddagi á skuldabréfum sem WOW air gaf út í september síðastliðnum að fjárhæð 50 milljónir evra, jafnvirði 6,7 millj- arða króna. Þann dag þarf félagið að standa skil á 150 milljóna króna vaxtagreiðslu. Í drögum að samkomulagi sem WOW air hugðist ná við eig- endur skuldabréfanna sama dag var stefnt að því að fá vextina að fullu fellda niður. Skömmu eftir að tilkynning Icelandair var send í gegnum Kauphöll Íslands birtist tilkynn- ing á vef forsætisráðuneytisins. Þar kom fram að ríkisstjórn Íslands myndi áfram fylgjast grannt með framvindu mála og að hún byndi vonir við farsæla niðurstöðu í viðræðunum. Sérfræðingur á flugmarkaði sem þekkir vel til Icelandair benti á að í tilkynningu Icelandair væri hvergi minnst á kaup á WOW air. Útilokað væri að Icelandair keypti WOW air. Það væri alltof áhættusamt. Sjái tækifæri í þotum WOW air Taldi hann líklegra en ekki að Icelandair tæki nokkrar þotur WOW air í leiðakerfið. Tíma- setningin á því gæti verið heppileg. Þá m.a. vegna kyrrsetningar á Boeing Max 8 þotum Icelandair. Sérfræðingur á fjármálamarkaði sagði stöðu WOW air ekki hafa styrkst síðan Icelandair féll frá hugmyndum um yfirtöku. Því þyrftu grundvallarforsendur að breytast. T.d. verulegar afskriftir á skuldum WOW air. Icelandair kallað að borðinu  Indigo Partners hefur dregið sig út úr viðræðum við WOW air  Stjórn Icelandair Group sam- þykkir nýjar viðræður við WOW  Stjórnvöld segjast binda vonir við farsæla niðurstöðu viðræðna MÖnnur félög »2 og 14

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.