Morgunblaðið - 22.03.2019, Page 2
Baldur Arnarson
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Sérfræðingar á flugmarkaði voru
tregir til að koma fram undir nafni
til að ræða viðræður Icelandair og
WOW air. Þeir voru sammála um að
öll sund væru að lokast fyrir WOW
air.
Í gærkvöldi var tilkynnt að slitn-
að hefði upp úr viðræðum Indigo
Partners og WOW air. Fulltrúar
Indigo vildu ekki tjá sig um málið.
Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur
hjá Landsbankanum, leiðir líkur að
því að fulltrúar félaganna hafi verið
í viðræðum undanfarið. Erfiðleikar
Icelandair vegna Boeing Max 8-
þotnanna hafi „hugsanlega ýtt
mönnum í frekari viðræður“.
„Málinu er ekki lokið. Þótt við-
ræður séu hafnar er ekki þar með
sagt að félögin séu að sameinast.
Menn þurfa að lenda einhverju sam-
an um helgina,“ segir Sveinn og
bendir á að Icelandair hafi aðeins
helgina til að greina möguleikana og
finna rétta leikinn í stöðunni.
„Mesta áhyggjuefnið varðandi
ferðaþjónustuna er hvað við erum
komin nálægt sumrinu. Það hefði
verið best ef þetta hefði allt gerst í
nóvember og desember og klárast
þá. Núna er frekar erfitt fyrir önn-
ur flugfélög að grípa slakann. Það
verður sífellt erfiðara.“
Sem kunnugt er hafa Boeing Max
8 farþegaþotur verið kyrrsettar um
allan heim í kjölfar tveggja flug-
slysa.
Icelandair hefur stefnt að notkun
slíkra þotna við endurnýjun flotans.
MAX-vélarnar eru ástæðan
„Það að Icelandair séu tilbúnir að
taka þráðinn upp að nýju er aug-
ljóslega keyrt áfram af óvissunni í
kring um MAX-inn,“ segir Steinn
Logi Björnsson, eigandi Bluebird
og fyrrverandi forstjóri Icelandair.
„Það er búið að kyrrsetja þær og
þeir sem hafa fylgst með því sem er
að gerast í þeim málum vita að það
er alls ekki hægt að ganga út frá því
að þær fari í loftið á næstu mán-
uðum. Það þýðir, í versta falli, að
Icelandair vantar níu vélar í sumar-
áætlunina sína,“ sagði Steinn Logi.
Flugmaður hjá Icelandair sagði
mjög erfitt að meta stöðuna varð-
andi Boeing Max-þoturnar. Upplýs-
ingar í málinu væru mjög misvís-
andi. Meiri líkur en minni væru á að
vélarnar yrðu kyrrsettar í lengri
tíma. Icelandair kynni að sjá tæki-
færi í Airbus-þotum WOW air. Ice-
landair gæti rekið WOW air á eigin
flugrekstrarleyfi eitthvað áfram eða
tekið yfir flugrekstrarleyfið strax.
Síðari kosturinn væri ólíklegri að
sinni.
Þá benti flugmaðurinn á að upp-
lýsingar um sjálfvirkan öryggisbún-
að (MCAS), sem athygli hefur
beinst að vegna flugslysanna í
Indónesíu og Eþíópíu, væri ekki að
finna í handbók Max 8-véla. Það
gerði málið enn alvarlegra fyrir
Boeing.
„Flugmenn gátu ekki kynnt sér
kerfið nema viðkomandi flugfélag
hefði vitað af kerfinu,“ sagði hann.
Fram hefur komið að kaupa hefur
mátt öryggisbúnað vegna MCAS-
kerfisins sem kostar aukalega.
Ásdís Pétursdóttir, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, staðfesti að Ice-
landair hefði ekki verið með bún-
aðinn í sínum vélum. Það hefði verið
í skoðun.
Önnur flugfélög að falla á tíma
Sérfræðingur segir ferðasumarið svo nærri að erfitt sé fyrir önnur flugfélög að fylla skarð WOW air
Flugmaður hjá Icelandair segir ekki getið um umdeildan öryggisbúnað í handbók Boeing Max 8
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2019
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Eru sparifötin
hrein?
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fjárfestar hafa hægt á markaðs-
setningu nýrra íbúða í miðborg
Reykjavíkur. Með því hafa þeir
brugðist við óvissu í efnahagsmálum.
Kjaramálin og erfið staða flugfélag-
anna vega þar þungt.
Hefur á þessu ári verið dregið úr
vinnu við sum verkefnin og vinnutími
iðnaðarmanna verið skertur.
Áhrifin af þessari óvissu fóru að
birtast í byrjun hausts. Hafði þá ver-
ið umræða um vanda WOW air.
Á óvissan þátt í að íbúðir á nokkr-
um þéttingarreitum í miðborginni
fara í sölu síðar en gert var ráð fyrir.
Má þar nefna Austurhöfn og Hafnar-
torg. Þá er uppbygging Vestur-
bugtar við Slippinn ekki hafin en tvö
ár eru síðan borgin undirritaði
samning um verkið. Fjármögnun er
sögð ótryggð. Víða seljast nýjar
íbúðir hægt. Nokkuð er síðan ákveð-
ið var að hægja á uppbyggingu íbúða
á svonefndum Blómavalsreit í Sig-
túni. Fleiri reitir í jaðri miðborgar-
innar gætu farið í biðstöðu.
Fjármögnunin erfið
Fjárfestar hafa til dæmis reynt að
selja frá sér fyrirhugaða uppbygg-
ingu 86 íbúða í Borgartúni 34-36. Að-
gangur að fjármögnun hefur haft sitt
að segja um þá ákvörðun.
Uppbygging íbúða og skrifstofu-
húsnæðis á Kirkjusandi er hins veg-
ar hafin og er áformað að hefja sölu
íbúða á reitnum í vor eða sumar. Ís-
landssjóðir byggja upp reitinn.
Kjartan Smári Höskuldsson,
framkvæmdastjóri Íslandssjóða,
segir húsin verða í hæsta gæða-
flokki. Óvissan í efnahagslífinu sé
skaðleg sem birtist í neikvæðum
áhrifum á eignamarkaði. »10
Borgartún 34-36 Fjárfestar hafa
reynt að selja reitinn frá sér.
Hægja á uppbyggingunni
Fjárfestar
seinka sölu íbúða
í miðborginni
Teikning/Atelier arkitektar
Alþjóðlegi Downs-dagurinn var haldinn hátíð-
legur í gær og boðaði Downs-félagið til sam-
komu í veislusal Þróttar í Laugardalnum af því
tilefni. Var þar boðið upp á afrískan dans og
skemmtu viðstaddir sér konunglega yfir herleg-
heitunum taktföstu.
Morgunblaðið/Hari
Afrískur dans hjá
Downs-félaginu
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
ræddi meðal annars um þriðja
orkupakka Evrópusambandsins á
fundi sínum í gær. Sex þingmenn
flokksins hafa opinberlega lýst efa-
semdum vegna málsins. Samkvæmt
heimildum mbl.is er búist við því að
frumvörp vegna þriðja orkupakk-
ans verði kynnt öðrum hvorum
megin við helgi, en ekki er ljóst
hvað í þeim felst.
Ítrekaðar tilraunir mbl.is í gær
til þess að afla upplýsinga um hve-
nær kynning yrði haldin og hver
hefði orðið niðurstaða fundar sjálf-
stæðismanna voru árangurslausar.
Komið til móts við gagnrýni?
Heimildarmenn mbl.is telja að
komið hafi verið verulega til móts
við þá gagnrýni sem málið hefur
fengið. Aðstoðarmaður Guðlaugs
Þórs Þórðarsonar utanríkisráð-
herra upplýsir að ráðherrann hygg-
ist ekki tjá sig umfram það sem
kom fram í samtali hans við mbl.is í
fyrrakvöld.
Þá sagði Guðlaugur Þór að stefnt
væri að því að frumvörp vegna
þriðja orkupakkans yrðu lögð fram
áður en frestur til þess að koma
með þingmál fyrir Alþingi rennur
út þann 30. mars. gso@mbl.is
Tjá sig ekki
um orku-
pakkann
Búist við kynningu
fyrir eða eftir helgi