Morgunblaðið - 22.03.2019, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2019
TANGARHÖFÐA 13
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
kistufell.com
Það er um 80% ódýrara að
skipta um tímareim miðað við
þann kostnað og óþægindi
sem verða ef hún slitnar
Hver er staðan á tíma-
reiminni í bílnum þínum?
Hringdu og pantaðu
tíma í síma
577 1313
Veður víða um heim 21.3., kl. 18.00
Reykjavík 1 skýjað
Hólar í Dýrafirði 0 skýjað
Akureyri 2 skýjað
Egilsstaðir 3 heiðskírt
Vatnsskarðshólar 3 alskýjað
Nuuk -17 snjókoma
Þórshöfn 5 rigning
Ósló 11 heiðskírt
Kaupmannahöfn 10 þoka
Stokkhólmur 9 léttskýjað
Helsinki 3 rigning
Lúxemborg 15 heiðskírt
Brussel 13 léttskýjað
Dublin 13 skýjað
Glasgow 12 rigning
London 13 skýjað
París 15 heiðskírt
Amsterdam 10 alskýjað
Hamborg 11 skýjað
Berlín 13 skýjað
Vín 12 heiðskírt
Moskva 2 skýjað
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 14 léttskýjað
Barcelona 14 heiðskírt
Mallorca 14 skýjað
Róm 19 heiðskírt
Aþena 13 léttskýjað
Winnipeg 3 léttskýjað
Montreal 5 alskýjað
New York 7 rigning
Chicago 3 þoka
Orlando 20 heiðskírt
22. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:22 19:48
ÍSAFJÖRÐUR 7:26 19:54
SIGLUFJÖRÐUR 7:09 19:37
DJÚPIVOGUR 6:51 19:18
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á laugardag Sunnan 5-10 m/s og úrkomulítið fram-
an af degi, en gengur síðan í sunnan og suðvestan
10-15 með snjókomu eða slyddu, fyrst SV-lands. Hiti
í kringum frostmark.
Norðvestan 20-28 austantil á landinu upp úr hádegi, en annars hægari vestan- og norðvestanátt
og snjókoma eða él á köflum. Hiti víða um frostmark að deginum.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Félagsmenn í stéttarfélögunum Efl-
ingu og VR sem vinna hjá tilteknum
hótelum og rútufyrirtækjum á starfs-
svæði félaganna fóru í sólarhrings-
langt verkfall um miðnætti. Því lýkur
klukkan 23.59 í kvöld.
Síðdegis í gær hafði Efling fengið
alls um 15 undanþágubeiðnir frá
verkfallinu. Þær voru m.a. vegna
hótelstarfsmanna, móttökustjóra,
næturvarða og aksturs í skólasund.
Tryggvi Marteinsson, þjónustu-
fulltrúi Eflingar sem sér um undan-
þágubeiðnir, sagði að beiðnunum
hefði öllum verið hafnað. Ein undan-
þága var veitt í upphafi vegna aksturs
fatlaðra og ekki boðað verkfall hjá
þeim sem sinna þeim akstri. VR
ákvað einnig að veita undanþágur frá
verkfallsaðgerðum fyrir akstur með
fólk með fatlanir. Bílstjórar og fólk í
VR sem bókar slíkan akstur fer því
ekki í verkfall.
Nær til hundraða bílstjóra
Verkfallið nær til allra hópbifreiða-
fyrirtækja sem starfa á höfuðborgar-
svæðinu. Þorri þeirra er í Samtökum
ferðaþjónustunnar (SAF). Skapti Örn
Ólafsson, upplýsingafulltrúi SAF;
sagði að innan SAF væru 12-15 stór
hópbifreiðafyrirtæki og verkfall
mundi snerta þau öll. Þau stærstu eru
Kynnisferðir og Gray line. Rútufyr-
irtækin Bus Travel/Þingvallaleið og
Guðmundur Tyrfingsson eru t.d. ekki
innan SAF auk nokkurra smærri fyr-
irtækja og einyrkja. Ljóst er að bíl-
stjórar sem verkfallið nær til eru tald-
ir í hundruðum.
Verkfall tekur í
„Verkfallið snertir okkur mjög
mikið,“ sagði Björn Ragnarsson,
framkvæmdastjóri Kynnisferða. Alls
munu um 170 starfsmenn þeirra
leggja niður störf. Þar af eru um 150
bílstjórar. Ekki voru allir skráðir til
vinnu í dag því sumir eru í hlutastörf-
um og aðrir ganga vaktir. Aðrir
starfsmenn sem fara í verkfall vinna
við vaktstjórn og skrifstofustörf.
Björn sagði að samkvæmt þeirra
túlkun væru um 15 bílstjórar undan-
þegnir verkfallinu og mættu aka í
dag. „Við vinnum að því að halda
Flugrútunni gangandi og vonum að
við fáum frið til þess,“ sagði Björn.
„Fólk þarf að komast í flug. Við telj-
um að verði löglegir bílstjórar stopp-
aðir við störf sín geti stéttarfélagið
orðið skaðabótaskylt ef farþegar
missa af flugi eða annað.“ Hann sagð-
ist líta svo á að verkfallið næði ein-
ungis til þeirra sem fengu að kjósa um
verkfallsboðun í sínu stéttarfélagi.
Félagsmenn í öðrum verkalýðsfélög-
um kusu ekki um verkfall og eiga ekki
rétt á greiðslum úr verkfallssjóði.
Þeir hlytu að geta sinnt sínum störf-
um svo fremi þeir væru ekki að ganga
í störf annarra. „Við vonum að verk-
fallsvarslan verði í takti við lög svo
þeir bílstjórar sem mega vinna fái að
sinna störfum sínum óáreittir,“ sagði
Björn.
Verði verkfall munu Kynnisferðir
ekki sækja farþega á hótel eða aka
þeim þangað. Farþegar þurfa að fara
á BSÍ til að taka Flugrútuna. Fáar
dagsferðir verða í dag og var lokað
fyrir sölu í flestar dagsferðir. Fleiri
ferðum hjá Kynnisferðum var einnig
aflýst vegna verkfallsboðunarinnar.
Morgunblaðið/Eggert
Ríkissáttasemjari Fulltrúar stéttarfélaganna Eflingar, VR, VLFA,
VLFGR, LÍV og Framsýnar funduðu með fulltrúum SA lengi dags í gær.
Hefur áhrif á hótel
og rútuakstur
Efling neitaði undanþágum Akstur með fatlaða óbreyttur
Fyrirhuguð verkföll VR og Efl ingar
MARS
MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN
25 26 27 28 1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31
APRÍL
MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 1 2 3 4 5
Tímabundin vinnustöðvun: VR Efl ing Ótímabundin vinnustöðvun VR og Efl ingar Guðni Einarsson
Gunnlaugur Snær Ólafsson
„Stjórnarskrá lýðveldisins hefur að
geyma ákvæði um félagafrelsi. Í því
felst að þú getur verið í því félagi sem
þú vilt og staðið utan þess félags sem
þú vilt,“ sagði Helgi Jóhannesson,
hæstaréttarlögmaður. Hann sagði að
hluti rútubílstjóra á höfuðborgar-
svæðinu væri hvorki félagar í Efl-
ingu né VR. „Það að þeir séu bundnir
við verkfallsboðun þessara félaga er
algjörlega útilokað. Þeir eru ekki í fé-
lögunum og þurfa ekki að vera í
þeim. Auk þess hafa þeir ekki rétt-
indi í félögunum t.d. til að fá úr verk-
fallssjóðum. Sú túlkun Eflingar að
allir sem aka stórum bílum á þessu
svæði eigi að vera í verkfalli stenst
ekki skoðun.“
Helgi sagði að í 3. grein laga um
stéttarfélög og vinnudeilur segði að
boðvald stéttarfélaganna væri bara
yfir félagsmönnum en ekki öðrum.
„Ég skil ekki hvernig fólki getur
dottið í hug að það geti ráðskast með
allt og alla svona,“ sagði Helgi.
Hann kvaðst vita að hópbifreiða-
fyrirtæki ætluðu að láta reyna á
skaðabótakröfur gegn verkalýðs-
félaginu ef verkfallsverðir þess mein-
uðu bílstjórum, sem þurfa ekki að
vera í verkfalli, að gegna störfum.
„Fólk getur misst af flugferðum eða
orðið af dýrum ferðum vegna svona
aðgerða svo það geta myndast háar
skaðabótakröfur,“ sagði Helgi.
Verða að leggja niður störf
Lára V. Júlíusdóttir, hæstarétt-
arlögmaður, segir að allir þeir sem
sinna starfi sem heyrir undir kjara-
samning Eflingar og verkfallsboðun
félagsins nær til, verði að leggja
niður störf í dag hvort sem þeir eru í
öðrum félögum eða utan stéttar-
félaga.
Samtök atvinnulífsins (SA) hafa
sagt verkföll Eflingar aðeins ná til fé-
lagsmanna stéttarfélagsins. Segja
samtökin það liggja fyrir að fullyrð-
ingar um að verkföll nái til þeirra
sem ekki hafa aðild að félagi sem hef-
ur boðað verkfall, eigi enga stoð.
Þetta mat SA gildir þó aðeins ef við-
komandi einstaklingur er félagi í
öðru stéttarfélagi sem semur við við-
eigandi vinnuveitenda um laun og
starfskyldur hans, að sögn Láru.
„Ef hópbifreiðastjóri er ekki í
félagi sem hefur boðað verkfall – þeir
geta verið í stéttarfélagi í Keflavík,
Grindavík eða félaginu fyrir austan –
ef þessi félög hafa ekki boðað verkföll
og þau semja fyrir hópbifreiðastjóra,
þá geta þeir keyrt áfram. Ef þeir eru
hins vegar ekki í öðru félagi og vinna
á grundvelli Eflingar-samningsins,
eiga þeir að leggja niður störf,“ út-
skýrir hún.
Lára segir þetta byggjast á
túlkun ákvæðum laga um stéttar-
félög og vinnudeilur eins og þau hafa
verið framkvæmd frá setningu lag-
anna 1938. „Hins vegar er greinin
ekki sjálf alveg skýr, en þetta bygg-
ist á dómaframkvæmd.“
Boðvald stéttar-
félaga nær til
félagsmanna
Áhrifasvið verkfallsboðana umdeilt
Helgi
Jóhannesson
Lára V.
Júlíusdóttir
Skólaakstur fellur niður í Reykjavík í dag vegna verkfallsins sem skall
á í nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg sem send
var í gærkvöldi. Samkvæmt tilkynningunni mun akstur í og úr skóla,
akstur í sund og akstur í íþróttir falla niður. Frístundaakstur er hins
vegar á vegum hvers og eins íþróttafélags og eru aðstandendur vin-
samlegast beðnir um að vera í sambandi við viðkomandi félag varð-
andi íþróttaæfingar.
Segir jafnframt í tilkynningunni að sundkennsla muni víða falla nið-
ur. Akstursþjónusta fatlaðra nemenda verður með óbreyttu sniði. Að
lokum eru foreldrar og aðstandendur nemenda hvattir til að sameinast
um akstur til og frá skóla þar sem það á við.
Skólaakstur fellur niður
VERKFALLIÐ HEFUR ÁHRIF VÍÐA
Verkföll og kjaradeilur