Morgunblaðið - 22.03.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2019
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Hágæða sláttutraktorar frá
40 ár
á Íslandi
Sterkir og
notendavænir
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Mikill samdráttur í humarveiðum
hefur mikil áhrif á rekstur fyrir-
tækja á Höfn í Hornafirði, Þorláks-
höfn og Vestmannaeyjum. Ólafur
Marteinsson, framkvæmdastjóri
Ramma hf., sem stundar humar-
veiðar frá Þorlákshöfn og vinnslu í
landi, segir ljóst að höggið sé þungt.
Ákveðið hefur verið að heimilt
verði að veiða 310 tonn af humri á
þessu fiskveiðiári, sem er margfalt
minni afli en heimilt hefur verið að
veiða síðustu ár. Síðasta haust
veiddu humarbátarnir tæplega 50
tonn af heimildum ársins og því er
eftir að veiða aðeins 262 tonn í upp-
hafi vertíðar nú og verða veiðar
stöðvaðar þegar því marki er náð.
Útgerðir humarbáta hafa rætt sam-
an um skipulag veiða til að lágmarka
skaðann sem myndi hljótast af
ólympískum veiðum.
Humarkvóti hefur ekki verið
gefinn út fyrir þetta ár heldur tekur
ákvörðun um afla mið af því að
ónýttar heimildir voru 705 tonn í
upphafi þessa fiskveiðiárs, skv. upp-
lýsingum úr sjávarútvegsráðu-
neytinu. Ákvörðun um veiðar ársins
er til eins árs og alls óljóst hvernig
stofnstærð og nýliðun þróast á
næstu árum.
Ráðgjöf Hafrannsóknastofn-
unar fyrir humarveiðar í ár var upp
á 235 tonn og er ákvörðun ráðherra
um leyfilegar veiðar í ár því lítillega
umfram ráðgjöfina. Aflamark síð-
asta fiskveiðiárs var 1.150 tonn, sem
reyndar náðist ekki.
Bakbeinið í Þorlákshöfn
„Fyrir starfsfólk okkar, til sjós
og lands, og Ramma í Þorlákshöfn
er þetta mikið áfall. Humarveiðar og
-vinnsla hafa verið meginverkefnið í
átta mánuði á hverju ári og bakbein-
ið í rekstri okkar í Þorlákshöfn. Á
þessu ári má gera ráð fyrir í mesta
lagi tveggja mánaða humarveiðum
og -vinnslu. Við erum að vinna að því
þessa dagana hvernig brugðist verð-
ur við en það er ljóst að höggið er
þungt,“ segir Ólafur Marteinsson,
framkvæmdastjóri Ramma.
Humarafli hefur dregist saman
síðustu ár þrátt fyrir litlar breyt-
ingar í sókn. Í svartri skýrslu Haf-
rannsóknastofnunar frá því í lok jan-
úar segir að fyrirliggjandi gögn
bendi til að nýliðun sé í sögulegu lág-
marki og að árgangar frá 2005 séu
mjög litlir. Verði ekki breyting þar á
megi búast við áframhaldandi
minnkun stofnsins.
Auk þess að leggja til hámarks-
afla upp á 235 tonn svo fylgjast megi
með stærðarsamsetningu og dreif-
ingu stofnsins, lagði stofnunin til að
allar humarveiðar yrðu bannaðar í
Jökuldjúpi og Lónsdjúpi til verndar
uppvaxandi humri. Til að minnka
álag á humarslóð lagði Hafrann-
sóknastofnun einnig til að veiðar
með fiskibotnvörpu yrðu bannaðar á
afmörkuðum svæðum í Breiða-
merkurdjúpi, Hornafjarðardjúpi og
Lónsdjúpi. Ráðherra hefur gefið út
reglugerðir þar sem farið er að til-
lögum um lokanir á svæðum.
Þungt högg í humar-
veiðum og -vinnslu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Blikur á lofti Um 40 manns hafa starfað í humarvinnslunni hjá Ramma í Þorlákshöfn yfir vertíðina. Á myndinni
flokkar Anna Truchel humar, en að baki henni er flæðilínan þar sem afurðum er raðað í öskjur.
Fá að veiða 262 tonn Ónýttar heimildir voru 705 tonn
Svört skýrsla
» Í ráðgjöf Hafró kemur fram
að humarafli tvöfaldaðist frá
árinu 2004 til ársins 2010 þeg-
ar hann náði 2.500 tonnum.
» Síðan hefur aflinn minnkað
og var 728 tonn árið 2018, sem
er minnsti afli frá upphafi veiða
árið 1957.
» Sókn í stofninn hefur verið
nokkuð stöðug frá árinu 2009
en afli á sóknareiningu er nú í
sögulegu lágmarki.
» Útgefið aflamark hefur
ekki náðst síðustu tvö fisk-
veiðiár.
Tveir farþegar sem komu með ferj-
unni Norrænu til Seyðisfjarðar síð-
ast liðinn þriðjudag voru stöðvaðir
á leið inn í landið, skv. upplýsingum
lögreglunnar á Austurlandi. Annar
þeirra framvísaði fölsuðum skilríkj-
um og var hann handtekinn og í
framhaldi tekinn til yfirheyrslu hjá
lögreglu. Í ljós kom að um var að
ræða stolin og breytt eða fölsuð
skilríki. Var maðurinn dæmdur í 30
daga skilorðsbundið fangelsi í Hér-
aðsdómi Austurlands daginn eftir.
Óskaði maðurinn þá eftir hæli hér á
landi og er mál hans komið í ferli
hjá yfirvöldum.
Einnig kom í ljós að hinum mann-
inum hafði verið vísað af Schengen-
svæðinu og var honum vísað frá Ís-
landi og til baka til Danmerkur.
Stöðvaðir við
komu með
Norrænu
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Þetta byrjaði með því að starfs-
menn kvörtuðu undan óþægindum
og urðu sumir þeirra veikir. Í kjölfar
þess var ákveðið að láta skoða
málið,“ segir Hildur Ingvarsdóttir,
skólameistari Tækniskólans, í sam-
tali við Morgunblaðið.
Greint var frá því á mbl.is í
fyrradag að fundist hafa gró og
sveppahlutar í Vörðuskóla, austan
við Hallgrímskirkju á Skólavörðu-
holti í Reykjavík. Voru það starfs-
menn Ríkiseigna sem framkvæmdu
skoðun á húsnæðinu, en þeir eru
sagðir hafa haft nokkrar áhyggjur af
ástandi hússins um skeið. Eftir að
upp komst um hugsanlegt myglu-
vandamál í skólanum var tekin
ákvörðun um að rýma húsnæðið og
flytja starfsemi annað. „Við erum
heppin að því leyti til að við búum yf-
ir kennslustofum annars staðar sem
við getum nýtt. Það eru því allir
ánægðir með að flytja upp í Sjó-
mannaskólahúsið, það er fallegt
hús,“ segir Hildur.
Gluggar skólans lekir
Helgi Vignir Bragason, sviðs-
stjóri byggingasviðs hjá Ríkis-
eignum, segir ómögulegt á þessari
stundu að gera nánari grein fyrir
umfangi vandans.
„Það á eftir að koma í ljós hvað
við þurfum að gera í kjölfar rým-
ingar. Þau ætla að reyna að flytja út
sem allra fyrst og þá förum við inn,
en Mannvit hefur séð um þessar
rannsóknir fyrir okkur,“ segir hann
og bætir við að vitað sé um leka-
vandamál í tengslum við glugga.
Starfsmenn kvörtuðu
undan óþægindum
Gró og sveppahlutar hafa fundist í Vörðu-
skóla Flytja sem fyrst í Sjómannaskólann
Skjáskot/ja.is
Mygluhús Gamli Vörðuskóli er nú í hópi þeirra skóla sem glíma við myglu.
Mikill viðbúnaður björgunarsveita
var í gær þegar neyðarkall barst
frá togskipinu TFRX/Degi 5 sjó-
mílur vestur af Hafnarfirði á öðr-
um tímanum í gær. Leki kom upp
í skipinu og voru björgunaraðilar
kallaðir til. Fimm manns voru um
borð í skipinu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni komu að að-
gerðinni sjóbjörgunarsveitir frá
höfuðborgarsvæðinu og Suður-
nesjum, varðbátur og björgunar-
bátar varðskipsins Þórs, sem og
þyrla Landhelgisgæslunnar.
Skömmu síðar tilkynnti áhöfnin
að svo virtist sem hún hefði náð
stjórn á lekanum. Um klukkan
14.30 var búið að dæla sjó úr
vélarrúmi skipsins. Dráttarbátur-
inn Hamar tók skipið í tog og
kom með það til Hafnarfjarðar
síðdegis.
Björgunarbátar Landsbjargar
og Þórs fylgdu skipunum áleiðis
til hafnar í öryggisskyni.
Viðbúnaður þegar leki
kom að togskipi í gær