Morgunblaðið - 22.03.2019, Blaðsíða 11
Ljósmynd/Verzlunarfjelag Árneshrepps
Árneshreppur Þar verður brátt
opnuð heilsársverslun.
„Það er talsverður áhugi á þessu.
Það bárust sex til átta umsóknir
og fyrirspurnir eftir að við þreif-
uðum fyrir okkur á Facebook, en
nú ætlum við að birta formlega
auglýsingu í blöðununum og þá
skýrist betur hve margir hafa
áhuga á þessu starfi,“ segir Arin-
björn Bernharðsson, stjórnar-
formaður Verzlunarfjelags Árnes-
hrepps. Félagið, sem stofnað var í
síðasta mánuði til að reka verslun
allan ársins hring í hreppnum,
sem er hinn fámennasti á landinu,
leitar nú að starfsmanni til að ann-
ast daglegan rekstur verslunar í
Norðurfirði.
Hluthafar í verslunarfélaginu
eru 70 og hlutafé fjórar milljónir
króna. Stefnt er að því að hefja
starfsemi í vor með takmörkuðum
afgreiðslutíma þó til að byrja með
en fullri lengd í sumar. Íbúar í Ár-
neshreppi eru nú 38, en 15 til 18
manns hafa dvalist þar í vetur.
Mikill fjöldi ferðafólks er hins veg-
ar á þessum slóðum að sumarlagi.
gudmundur@mbl.is.
Verslun í Norðurfirði í vor
Talsverður áhugi á umsjón með verslun í Árneshreppi
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2019
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Verð 3.990 kr.
Bolir
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir ökuskírteinið,
passann, ferilskrána o.fl.
Góð passamynd
skiptir máli
Engar tímapantanir
Skjót
og hröð
þjónusta
MEIRIHÁTTARMARS
Í FÓÐURBLÖNDUNNI
20%
ÚTSALA
AFSLÁTTUR25%
ÚTSALA
AFSLÁTTUR
20%
ÚTSALA
AFSLÁTTUR
15%
ÚTSALA
AFSLÁTTUR
ALL MIN STEINEFNABLANDA
STALDREN OG SAG 18 KG
STEINAR & STAMPAR
ALLIR STAMPAR OG SALTSTEIN-
AR SEM VIÐ BJÓÐUM UPP Á
ERU Á TILBOÐI HJÁ OKKUR
LÝSI OG KETOGLYKHNOKKI OG ÞOKKI
LIFELINE
20%
ÚTSALA
AFSLÁTTUR
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á WWW.FODUR.IS
ÖLL TILBOÐ GILDA Í VERSLUNUM OKKAR & Í VEFVERSLUN
Ársreikningur Isavia
» Hagnaður félagsins nam um
4,2 milljörðum eftir skatta á
síðasta ári. Rekstrartekjur voru
um 41,7 milljarðar á árinu.
» Heildareignir félagsins námu
um 79,8 milljörðum í árslok
2018. Eigið fé Isavia var um
35,2 milljarðar og skuldir þess
um 44,5 milljarðar.
» Gjaldfallnar kröfur fóru úr 1,6
milljörðum króna 30.6. 2018
upp í 2,6 milljarða 31.12. 2018.
Stefán Einar Stefánsson
Stefán Gunnar Sveinsson
Viðskiptakröfur Isavia á hendur við-
skiptavinum sínum stóðu í tæpum
5,9 milljörðum króna um síðustu ára-
mót. Höfðu þær aukist um ríflega 2
milljarða króna frá áramótum 2017.
Þetta má lesa úr ársreikningi félags-
ins fyrir árið 2018, sem birtur var ný-
lega. Þar kemur einnig fram að
rekstrartekjur ársins 2018 hafi verið
um 41,7 milljarðar króna og jukust
þær um 3,8 milljarða á milli ára.
Hagnaður ársins nam um 4,2 millj-
örðum króna, og jókst hann um 313
milljónir frá árinu 2017. Heildar-
eignir félagsins jukust þá um tæpa
7,3 milljarða á árinu en þær námu
um 79,8 milljörðum króna í lok árs-
ins 2018, samanborið við 72,5 millj-
arða í árslok 2017. Eigið fé félagsins
var um 35,2 milljarðar í árslok 2018
og skuldir um 44,5 milljarðar. Þar af
voru langtímaskuldir um 35,7 millj-
arðar.
Viðskiptakröfur jukust
Í ársreikningi félagsins eru við-
skiptakröfurnar sundurliðaðar eftir
því hvort þær eru ógjaldfallnar eða
komnar yfir gjalddaga. Samkvæmt
þeirri sundurliðun jukust ógjald-
fallnar kröfur milli ára um 1,2 millj-
arða króna og stóðu þær í 3,2 millj-
örðum í árslok 2018.
Þá höfðu kröfur sem komnar voru
fram yfir gjalddaga, sem nam frá
einum og upp í 90 daga, aukist um
159 milljónir króna og stóðu þær í
tæpum 1,4 milljörðum króna. Hins
vegar jukust kröfur sem voru komn-
ar 91 til 180 daga fram yfir gjalddaga
mun meira, eða um ríflega milljarð
króna. Námu þær 1,1 milljarði
tæpum í árslok 2018 en höfðu aðeins
verið 74 milljónir við árslok 2017.
Innlendar kröfur hækkuðu
Séu gjaldfallnar viðskiptakröfur
félagsins teknar saman námu þær
2,6 milljörðum í árslok 2018 en höfðu
numið 1,7 milljörðum króna í árslok
2017. Miðað við árshlutareikning
Isavia fyrir fyrri hluta ársins 2018
virðast gjaldfallnar viðskiptakröfur
hafa aukist um ríflega milljarð, fóru
þær úr 1,6 milljörðum tæpum um
mitt ár 2018 í rúma 2,6 milljarða í lok
sama árs.
Í skýringum með ársreikningnum
kemur fram að innlendar viðskipta-
kröfur Isavia hafi numið um fimm
milljörðum króna í árslok 2018, en
þær námu um 2,9 milljörðum í árslok
2017. Innlendar kröfur félagsins
hækkuðu því um rúma tvo milljarða
á milli ára. Þá voru erlendar við-
skiptakröfur félagsins um 833 millj-
ónir í árslok 2018, en voru um 645
milljónir í árslok 2017.
Vanskil jukust
um milljarð
á hálfu ári
Hagnaður Isavia 2018 um 4,2 millj-
arðar Heildareignir 79,3 milljarðar
Morgunblaðið/Hari
Aðalfundur Björn Óli Hauksson forstjóri í ræðustól.