Morgunblaðið - 22.03.2019, Page 14
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Rétt fyrir hádegi hinn 5. nóvember í
fyrra barst tilkynning í gegnum
Kauphöll Íslands um að stjórn Ice-
landair Group hefði gert samning
um kaup á öllu hlutafé í WOW air.
Kaupin voru hins vegar gerð með
fyrirvara um samþykki hluthafa-
fundar Icelandair, samþykki Sam-
keppniseftirlitsins og niðurstöðu
áreiðanleikakönnunar. Miðuðu við-
skiptin við að kaupverðið næmi allt
að 3,6 milljörðum króna.
Sléttum þremur vikum síðar barst
loðin tilkynning frá Icelandair þess
efnis að ólíklegt myndi teljast að allir
fyrirvarar við kaupin yrðu uppfylltir
fyrir hluthafafund sem boðaður hafði
verið vegna kaupanna þann 30.
nóvember. Degi fyrir þann fund var
svo tilkynnt að fallið hefði verið frá
kaupunum. Í ljós kom að staða
WOW air var mun erfiðari en fyrir lá
þegar viðræður hófust.
Snýr sér til Bandaríkjanna
Töldu þá margir að öll sund væru
lokuð fyrir Skúla Mogensen, stofn-
anda, eiganda og forstjóra félagsins.
Hann kom flestum þó að óvörum
þegar hann tilkynnti að bandaríski
fjárfestingarsjóðurinn Indigo Part-
ners, hefði fengist að borðinu sem
mögulegur fjárfestir í félaginu. Voru
það talin stórtíðindi enda er sjóður-
inn áhrifafjárfestir í fluggeiranum
og hefur m.a. haft afgerandi aðkomu
að flugfélögunum Wizz air og Fron-
tier Airlines. Heimildir Morgun-
blaðsins herma að yfirlýsing Skúla
þess efnis að hann hefði um nokkurt
skeið átt í viðræðum við Indigo Part-
ners um mögulega aðkomu að félag-
inu, hafi lagst þungt í forsvarsmenn
Icelandair sem töldu þá yfirlýsingu
ganga í berhögg við fyrri yfirlýsing-
ar eiganda WOW air. Sú afstaða átti
eftir að draga dilk á eftir sér síðar,
þegar Skúli leitaði að nýju eftir við-
ræðum við Icelandair Group. Urðu
undirtektir þá litlar vegna þess sem
kallað hafði verið „svik“ í herbúðum
Icelandair.
En áhrifin af hremmingum WOW
air voru ekki einskorðuð við flug-
félagið sjálft. Þannig voru starfs-
menn flugþjónustufyrirtækisins Air-
port Associates á Keflavíkurflugvelli
kallaðir til starfsmannafundar þann
29. nóvember. Þar var tilkynnt að
237 starfsmönnum félagsins yrði
sagt upp vegna yfirvofandi sam-
dráttar í þjónustu við WOW air.
13. desember var tilkynnt að
WOW air hefði sagt upp 111 fast-
ráðnum starfsmönnum auk þess sem
aðgerðir félagsins til endurskipu-
lagningar næðu til 240 lausráðinna
starfsmanna sem hverfa myndu frá
félaginu einnig. Af sama tilefni var
tilkynnt að fækkað yrði í flugflota fé-
lagsins og að horfið yrði frá þeirri
stefnu að hafa Airbus A330 breiðþot-
ur í þjónustu þess.
14. desember bárust svo upplýs-
ingar um stöðuna og að Indigo Part-
ners lýsti sig tilbúið að leggja WOW
air til allt að 75 milljónir dollara,
jafnvirði 9,3 milljarða króna.
Minnihlutaeigandi í WOW
Miðaði samkomulagið á þeim tíma
við að Indigo myndi kaupa lítinn hlut
í félaginu en leggja félaginu til svo-
kallað forgangslán að fyrrnefndri
fjárhæð sem í fyllingu tímans mætti
breyta í hlutafé. Þó var ljóst að
möguleg aðkoma Indigo Partners
var bundin við minnihlutaeign í fé-
laginu þar sem íslensk lög og skuld-
bindingar kveða á um að meirihluta-
eign í flugfélögum sé í höndum aðila
innan Evrópska efnahagssvæðisins.
Fyrirhuguð kaup Indigo voru hins
vegar háð nýju samkomulagi við
kaupendur skuldabréfa sem lagt
höfðu félaginu til 6,7 milljarða króna
þremur mánuðum fyrr, eða um miðj-
an septembermánuð. Var gert ráð
fyrir að þeir gæfu eftir hluta af rétt-
indum sínum til að liðka fyrir við-
skiptunum. Gengu þeir að þeim
kröfum en þeir áttu að nýju eftir að
koma að borðinu undir afarkostum.
Var nú unnið hörðum höndum að
því að koma félaginu á réttan kjöl og
þannig bárust fréttir um það rétt
fyrir jól þess efnis að WOW air hefði
selt flugtíma sína á Gatwick-flugvelli
í London. Sú aðgerð skilaði félaginu
hundruðum milljóna króna í lausafé
og létti fjárhagslegum byrðum af fé-
laginu líkt og skil á nærri helmingi
flugflota þess höfðu gert viku fyrr. Í
þeirri aðgerð var vélum félagsins
fækkað úr 20 í 11. Síðar átti enn eftir
að höggva í flotann og eftir standa
níu vélar hjá félaginu í dag.
Viðræður dragast á langinn
Drógust viðræður milli Indigo
Partners og WOW air á langinn og
sífellt hefur rekstur félagsins
þyngst. Þóttu það nokkur tíðindi
þegar félaginu tókst ekki að greiða
starfsfólki sínu út laun síðasta dag
febrúarmánaðar. Var það skýrt frá-
vik frá verklagi fyrirtækisins og talið
til marks um lítið lausafé í félaginu.
Skömmu síðar greindi Vísir frá því
að félagið hefði ekki staðið í skilum
með lífeyrisiðgjöld starfsfólks í þrjá
mánuði.
Falast eftir ríkisábyrgð
Á miðvikudaginn síðasta var
greint frá því í ViðskiptaMogga að
Skúli Mogensen hefði gengið á fund
stjórnvalda og óskað eftir ríkis-
ábyrgð á frekari lánveitingum til
WOW air. Mun viðskiptabanki fé-
lagsins, Arion banki, hafa sett slík
skilyrði fyrir fyrirgreiðslu til félags-
ins. Heimildir ViðskiptaMoggans
herma að stjórnvöld hafi tekið
dræmt í málaleitan forstjórans.
Þann sama dag greindi Markaðurinn
frá því að óformlegar þreifingar
væru í gangi milli Icelandair Group
og WOW air um að hefja viðræður að
nýju. Upplýsingar Morgunblaðsins á
þeim tíma voru hins vegar þær að
engar viðræður væru í gangi.
Enginn áhugi væri fyrir því á vett-
vangi Icelandair að taka þann þráð
upp að nýju eftir „svikin“ í nóvem-
ber, eins og það var orðað.
Í dag setjast félögin tvö að borð-
inu. Það er með öllu óljóst til hvers
þær viðræður leiða. Mikið vatn er
runnið til sjávar frá því að upp úr
slitnaði á síðasta ári. Atburðir síð-
ustu vikna vitna þó um þá staðreynd
að Skúli Mogensen hefur spilað út
fleiri trompum af hendi en flestir
hefðu trúað að til væru í stokknum í
raun.
Flóknir samningar
á síðustu mánuðum
WOW air hefur staðið tæpt en enn er reynt til þrautar
Morgunblaðið/Hari
Ljósin kveikt Ljós voru í höfuðstöðvum WOW air í gærkvöldi. Tilkynning um viðræðurnar barst á tíunda tímanum.
Veldisvöxtur
» WOW air var stofnað árið
2012 af Skúla Mogensen.
» Félagið fór jómfrúarflugið til
Parísar 31. maí 2012.
» Félagið tók yfir rekstur Ice-
land Express sama ár.
» Fyrsta árið voru farþegarnir
111.400
» Annað árið 421.000
» 2014 voru þeir 495.000
» 2015 voru þeir 730.000
» 2016 fjölgaði þeim í
1.660.000
» 2017 voru þeir 3.000.000
» Í fyrra voru þeir 3,5 milljónir
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2019
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2019 RAM 1500 Rebel
Litur: Flame red, svartur að innan.
Glæsilega útbúinn off-road bíll.
5,7 L HEMI, 390 hö. 8 gíra sjálfskipting, hæðarstillan-
leg loftpúðafjöðrun, lok á palli.
VERÐ
12.390.000 m.vsk
2018 RAM 3500 Laramie
Litur: Svartur (brilliant black), dökk grár að innan.
Black apperance pakki.
35 Dekk Ekinn 17.000 km.
6,7L Cummins, Aisin sjálfskipting, loftpúðafjöðrun,
heithúðaður pallu, fjarstart, 5th wheel towing pakki
VERÐ
8.530.000 m.vsk
2018 Ford F-150 Lariat
Litur: Hvítur og brúnn / brúnn að innan. Einnig
til í Ruby red. Mojave leður sæti, bakkmyndavél,
heithúðaður pallur, sóllúga, fjarstart, 20” felgur o.fl.
3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra,
375 hestöfl, 470 lb-ft of torque.
VERÐ
10.990.000 m.vsk
2019 GMC 3500 Sierra SLT, 35
Litur: Summit white, svartur að innan. 6.6L Duramax
Diesel, 445 HÖ, 2019 Módel, 35 breyttur. Vel útbúinn
bíll t.d. upphitað stýri, sóllúga, BOSE hátalarakerfi,
dual alternators, upphituð og loftkæld sæti, Z71-pakki
heithúðaður pallur og kúla í palli (5th wheel pakki) o.lf.
VERÐ
11.640.000 m.vsk
Sjóðastýringafélag Landsbankans,
Landsbréf, hagnaðist um 844
milljónir króna í fyrra, saman-
borið við 1.113 milljónir árið
2017. Samdrátturinn nemur ríf-
lega 24%. Tekjur félagsins námu
ríflega 2 milljörðum króna og
drógust saman um 13% frá fyrra
ári. munar þar helst um umsýslu-
og árangurstengdar þóknanir.
Námu þær í fyrra 1,9 milljörðum
króna en tæplega 2,3 milljörðum
ári fyrr.
Rekstrargjöld félagsins jukust á
sama tíma og fóru úr 910 millj-
ónum í ríflega 972 milljónir.
Þannig jukust laun og launatengd
gjöld um 85,8 milljónir. Hjá félag-
inu starfa 20 manns. Annar
rekstrarkostnaður dróst saman og
nam 389,6 milljónum, samanborið
við 411 milljónir tæpar árið 2017.
Landsbréf eru með um 155
milljarða í stýringu og 12 þúsund
einstaklingar og lögaðilar eiga
hluti í sjóðum þess.
Hagnaður
Landsbréfa
minnkar
Tekjurnar dragast
saman um 13%
22. mars 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 116.79 117.35 117.07
Sterlingspund 154.59 155.35 154.97
Kanadadalur 87.51 88.03 87.77
Dönsk króna 17.757 17.861 17.809
Norsk króna 13.672 13.752 13.712
Sænsk króna 12.711 12.785 12.748
Svissn. franki 116.86 117.52 117.19
Japanskt jen 1.0463 1.0525 1.0494
SDR 162.71 163.67 163.19
Evra 132.53 133.27 132.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 162.6919
Hrávöruverð
Gull 1303.0 ($/únsa)
Ál 1907.0 ($/tonn) LME
Hráolía 67.66 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á