Morgunblaðið - 22.03.2019, Page 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2019
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Björgunarmenn reyndu í gær að bjarga um
15.000 manns sem voru í bráðri hættu í Mós-
ambík vegna óvenjuskæðra flóða sem hafa
valdið miklu manntjóni í sunnanverðri Afríku.
Um 350 lík hafa fundist í Mósambík, Simbabve
og Malaví en óttast er að meira en þúsund
manns hafi látið lífið.
Embættismenn Matvælaáætlunar Samein-
uðu þjóðanna sögðu í gær að gert hefði verið
ráð fyrir því að um 600.000 manns þyrftu á að-
stoð að halda vegna flóðanna en sú tala gæti
hækkað í allt að 1,7 milljónir. Skortur er á mat-
vælum og hreinu drykkjarvatni og óttast er að
sjúkdómar á borð við malaríu og kóleru breið-
ist út á svæðunum þar sem neyðin er mest, að
sögn hjálparstofnana.
Flóðin fylgdu fellibyl, sem gekk yfir sunnan-
verða Afríku á fimmtudaginn var, og urðu til
þess að stór svæði eru umflotin vatni. „Þús-
undir manna eru á þökum húsa og í trjám og
bíða eftir björgun,“ hefur fréttaveitan AFP eft-
ir Caroline Haga, talsmanni Alþjóðasambands
félaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans.
„Tíminn sem við höfum er að renna út. Fólkið
hefur núna beðið eftir björgun í meira en þrjá
daga. Því miður getum við ekki bjargað öllum í
einu, þannig að börn, barnshafandi konur og
slasað fólk eru í forgangi.“
„Ástandið er mjög slæmt. Við höfðum ekkert
að borða frá því á fimmtudaginn var og þar til í
dag,“ hefur AFP eftir 24 ára konu sem var
bjargað í grennd við borgina Beira. „Við sofum
undir beru lofti, allt eyðilagðist, húsin okkar
eyðilögðust, allt er farið, við höfum ekki fundið
neitt nýtilegt.“
Rúm hálf milljón manna býr í Beira og
hjálparstofnanir segja að aðeins séu um
tveggja eða þriggja daga birgðir af hreinu
vatni í borginni.
Vegir lokuðust og brýr eyðilögðust
Vindhraðinn mældist 49 m/s í fellibylnum
sem skildi eftir sig slóð eyðileggingar í Mósam-
bík, Simbambve og Malaví. Honum fylgdi mik-
ið úrhelli og flóðin eru mest í Mósambík þar
sem ár frá grannríkjunum renna til sjávar,
m.a. vestan við Beira, nálægt landamærunum
að Simbabve.
Björgunarmenn og starfsmenn hjálpar-
stofnana hafa ekki enn komist á öll hamfara-
svæðin vegna þess að margir vegir stór-
skemmdust og brýr eyðilögðust.
Ekki viðbúin flóðunum
Hjálparstofnanir í Afríkulöndunum segja að
þær hafi verið viðbúnar fellibylnum en ekki
flóðunum. John Mutter, sérfræðingur í lofts-
lagsmálum við Columbia-háskóla í Bandaríkj-
unum, segir að slíkt óveður sé sjaldgæft á þess-
um slóðum og það skýri að nokkru leyti hversu
mikið manntjónið varð. Stjórnvöld í Mósambík
og Simbabve séu ekki undir það búin að takast
á við slíkar náttúruhamfarir.
Vísindamenn segja að fellibylurinn og flóðin
sem fylgdu honum séu á meðal skæðustu
veðurtengdra náttúruhamfara á suðurhveli
jarðar, að sögn The Wall Street Journal.
Náttúruhamfarirnar ollu miklu efnahags-
legu tjóni í Afríkuríkjunum þremur sem eru á
meðal fátækustu landa heims og hafa verið
mjög háð aðstoð erlendra ríkja.
Hundruð þúsunda
manna þurfa hjálp
Reynt að bjarga nauðstöddu fólki af húsþökum
og trjám á flóðasvæðum í sunnanverðri Afríku
200 km
Flóð í sunnanverðri Afríku
Heimildir: ERCC/relief.web/WFP
HARARE
LILONGWE
S I M B A B V E
S A M B Í A
S U Ð U R -
A F R Í K A
M Ó S A M B Í K
M A L A V Í
Chimanimani
Beira
MANICA
SOFALA
Nampula
ZAMBEZIA
INHAMBANE
> 600 mm
400 - 600
200 - 400
100 - 200
50 - 100 mm
Sjö daga úrkoma
til 18. mars
Um 140
lík hafa fundist og
a.m.k. 200 er saknað
920.000 manns hafa
orðið fyrir skaða;
82.000 hafa flúið
heimkynni sín,
að sögn WFP
Tala látinna nú: 217
350.000 manns
eru í hættu að sögn forseta
landsins, Filipe Nyusi
Lýst var yfir neyðarástandi
og þriggja daga þjóðarsorg
á þriðjudaginn var
200.000 manns
hafa orðið fyrir skaða
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) telur að allt að 1,7 milljónir manna geti þurft á aðstoð að halda
Búist er við átta metra
háum öldum og sjávar-
flóðum næstu daga, að
sögn forsetans
Indlandshaf
Ófærir vegir
Vegir sem eru
illfærir
AFP
Allt á floti Fólk veður vatn á götu í bænum Búzí í miðhluta Mósambík. Mannskæð flóð hafa
verið í Mósambík og grannríkjunum Simbabve og Malaví vegna úrhellis sem fylgdi fellibyl.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Leiðtogar Evrópusambandsríkj-
anna 27 sem verða eftir þegar Bretar
ganga úr sambandinu samþykktu í
gær að bjóða Theresu May, forsætis-
ráðherra Breta, að fresta útgöngu
Breta fram til 12. apríl, en þann dag
verða Bretar að gera upp við sig
hvort þeir vilja taka þátt í Evrópu-
þingkosningunum 23.maí næstkom-
andi.
Fari svo að neðri deild breska
þingsins samþykki í næstu viku að
staðfesta samkomulagið sem May
gerði við sambandið í lok síðasta árs,
verður fresturinn framlengdur til 22.
maí til að ganga frá öllum lausum
endum.
Upphaflega áttu Bretar að ganga
úr sambandinu hinn 29. mars næst-
komandi, eða á föstudaginn í næstu
viku. Neðri deildin hefur hins vegar
fellt samkomulag ríkisstjórnarinnar
við Evrópusambandið um útgöng-
una í tvígang með miklum mun. Þá
hafnaði þingið einnig að yfirgefa
sambandið án samnings. May óskaði
því eftir því við leiðtogafund Evrópu-
sambandsins að Bretum yrði veittur
tímafrestur til 30. júní svo hægt yrði
að komast hjá samningslausri út-
göngu.
Emmanuel Macron Frakklands-
forseti sagði í gærkvöldi að þetta
væri síðasti möguleikinn fyrir Breta
til þess að samþykkja samkomulag-
ið, annars yrði útgangan án samn-
ings.
May völt í sessi?
Breska dagblaðið Daily Telegraph
greindi frá því í gærkvöldi að mikil
óánægja væri meðal óbreyttra þing-
manna Íhaldsflokksins og að þeir
krefðust þess að May segði af sér
sem leiðtogi flokksins. Þá væru fjár-
hagslegir bakhjarlar flokksins farnir
að halda að sér höndum.
Þá væru „svipur“ þingflokksins
óánægðar með ræðu May í fyrradag,
þar sem hún kenndi breska þinginu
um glundroðann sem hefði skapast.
Hermdu heimildarmenn blaðsins að
May hefði með ræðu sinni stórskað-
að tilraunir þeirra til þess að fá
stuðning frá nokkrum þingmönnum
Verkamannaflokksins við samkomu-
lagið umdeilda.
May fær frest
fram í apríl
Mikil óánægja innan Íhaldsflokksins