Morgunblaðið - 22.03.2019, Síða 17

Morgunblaðið - 22.03.2019, Síða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2019 Yfir götuna Myndarleg hesthúsabyggð er í Víðidal, nálægt ytri mörkum höfuðborgarsvæðisins. Þar má jafnan sjá hesta og menn fara um malbik til móts við minna snerta náttúru Elliðaárdalsins, hvernig sem viðrar. Hari Nú um stundir er fyrirsjáanlegt að mál- efni sem tengjast skip- un dómara við Lands- rétt haldi áfram að hafa áhrif á starfsemi dómstólanna sem og almenna þjóðfélags- umræðu. Málefni þetta er hægt að nálgast úr mörgum áttum en í þessari grein vil ég ein- göngu víkja að umsögn dómnefndar um skipan dómara frá því í maí 2017. Hæpin niðurstaða Frá öndverðu hefur mér þótt ill- skiljanleg sú niðurstaða dómnefndar um skipan dómara að nákvæmlega fimmtán umsækjendur af 33 hæfum umsækjendum um dómarastöður við Landsrétt hafi talist hæfastir. Hvernig gat nefndin öðlast slíka þekkingu á færni allra umsækjenda að rétt væri að raða nákvæmlega 15 einstaklingum á meðal hæfustu um- sækjendanna? Fyrir alla sem hafa innsýn í íslenska lögfræðiheiminn, og hafa sæmilegan skerf af heil- brigðri skynsemi, hlýtur að vera augljóst að ýmsir umsækjenda utan hins 15 manna hóps voru a.m.k. jafn hæfir og ýmsir þeirra sem voru inn- an hans. Til þess verður einnig að líta að það er fátítt að skipa fimmtán dómara í einu vetfangi og í slíku skipunarferli hlýtur að eiga að vera byggt á því að samsetning dómsins í heild sinni sé rökrétt og eðlileg. Nærtækt hefði því verið að gefa ráð- herra, sem bar stjórnarfarslega ábyrgð á ákvörðuninni, að velja á milli ákveðins fjölda umsækjenda sem ekki var með málefnalegum hætti hægt að gera upp á milli. Hæstiréttur og dómur sögunnar Nú hef ég vart ástæðu til að ætla ann- að en að nefndarmenn í dómnefndinni, sem lét umsögn sína í té, fyrir um tveim árum hafi unnið sitt verk eins ær- lega og kostur var. Sú niðurstaða nefndar- innar hins vegar, að gefa ráðherra engan kost á vali á milli jafnhæfra umsækjenda, var illa ígrunduð. Þótt Hæstiréttur hafi talið þá niðurstöðu nánast alveg lausa við annmarka, vona ég að sagan dæmi þennan hluta Landsréttarmálsins á annan veg. Að lokum um valdmörk Með reglulegu millibili er þörf á því fyrir stétt eins og lögfræðinga að minna sig á að þeim er ekki ætlað að taka sér vald sem samkvæmt stjórn- skipun landsins er falið lýðræðislega kjörnum fulltrúum. Mikilvægi þessa ætti einnig að vera til staðar þegar kemur að skipun dómara. Eftir Helga Áss Grétarsson » Við skipun 15 lands- réttardómara í maí 2017 hefði verið eðlilegt að ráðherra hefði haft rúmt svigrúm við val á milli umsækjenda sem voru jafn hæfir. Helgi Áss Grétarsson Höfundur er dósent við lagadeild Háskóla Íslands. hag@hi.is Af einum anga Landsréttarmálsins – óskeikul dómnefnd? Þess var minnst mánudaginn 18. mars að fimm ár voru liðin frá því að Rússar inn- limuðu Krímskaga. Vladimír Pútin Rúss- landsforseti heimsótti skagann í tilefni dags- ins og tók þátt í að opna orkuver við gleðisnauðar skyldu- athafnir, megi marka sjónvarpsmyndir. Vestræn ríki lýstu landránið brot á alþjóðalögum og fordæmdu það hvert fyrir sig og sameiginlega. Gunnar Bragi Sveinsson, þáv. utan- ríkisráðherra, tók strax eindregna afstöðu með þvingunaraðgerðum Vesturlanda. Hann fór einnig til Úkraínu og áréttaði andmæli gegn fullyrðingum Pútins um að valda- rán hefði verið framið í Kænugarði. Undrun vakti hve harkalega Rússar tóku á Íslendingum með banni á innflutning íslenskra sjávarafurða til Rússlands. Hefur verið haft eftir rússneskum stjórn- arerindrekum að för Gunnars Braga til Kænugarðs og yfirlýs- ingar hans þar hafi reitt Pútin til reiði. Þeir hafi þess vegna sætt annarri meðferð en Færeyingar. Í fimm ár hefur íslenskur fiskur ekki verið seldur til Rússlands. Það sama á ekki við um háþróuð, ís- lensk tæki til fiskvinnslu. Kaup Rússa á slíkum búnaði héðan fellur að þeirri skoðun að innflutnings- bannið á fiski megi að nokkru rekja til stefnu Pútíns um að Rússar verði sjálfum sér nógir í fiskveiðum Á hitt hefur einnig verið bent að vegna gengisfalls rúblunnar, um helming gagnvart doll- ar á fimm árum, hafi Pútín engan áhuga á að dýr, erlend matvæli berist til rússneskra neytenda og ýti undir óánægju þeirra með versnandi eigin kjör. Í Úkraínu hafa um 13.000 manns fallið í valinn á undanförum fimm árum vegna árekstranna við Rússa. Spenna ríkir enn og samningar um frið hafa reynst haldlitlir. Pútin naut mikilla vinsælda vegna hörku og valdbeitingar gegn Úkraínumönnum. Síðan hefur hall- að undan fæti og nú er hann óvin- sælli en nokkru sinni frá árinu 2006. Í nýlegri könnun lýstu 32% ánægju með hann. Víðtæk áhrif Spennuáhrifin af rússnesku yfir- gangsstefnunni gagnvart Úkraínu ná langt út fyrir tvíhliða samskipti Rússa og Úkraínumanna. Þau teygja sig um alla Evrópu og í vax- andi mæli til norðurslóða og út á Norður-Atlantshaf. NATO-ríkin í næsta nágrenni Rússlands hafa öll óskað eftir við- veru herafla frá aðildarríkjum bandalagsins innan landamæra sinna. Herfylki hafa verið send til Eystrasaltsríkjanna og Póllands. Ríkisstjórnum landanna finnst þó ekki nóg að gert. Þetta á til dæmis við um pólsku stjórnina sem biðlar til Donalds Trumps Bandaríkja- forseta og vill fast aðsetur banda- rískra hermanna í landi sínu í virki sem kennt yrði við Trump. Þá hafa Finnar og Svíar treyst tengsl sín við Bandaríkjastjórn og NATO með samningum og þátt- töku í heræfingum. Í grein sem Mikheil Saakashvili, fyrrv. forseti Georgíu, birti á vefsíðu Foreign Po- licy í Bandaríkjunum föstudaginn 15. mars, spáir hann því að Pútin reyni að endurheimta vinsældir sín- ar með atlögu að Finnum eða Sví- um, ekki árás heldur hertöku land- skika eða eyju, t.d. Gotlands. Norðmenn hafa samið um við- veru bandarískra landgönguliða á tveimur stöðum í Noregi. Er það breyting á afstöðu þeirra til dvalar erlendra hermanna í landi sínu. Þá berast æ fleiri fréttir um áherslu bandaríska varnarmála- ráðuneytisins á nauðsyn þess að styrkja stöðu Bandaríkjanna á norðurslóðum. Þess er sérstaklega getið að með þátttöku flugmóður- skipsins Harry S. Trumans í her- æfingunni Trident Juncture í októ- ber 2018 hafi orðið þau þáttaskil að bandarískur herfloti hafi í fyrsta sinn í um það bil 30 ár farið norður fyrir heimskautsbaug. Þegar flugmóðurskipið sigldi til norðurs nálægt Íslandi 20. septem- ber 2018 var flogið með utanríkis- ráðherra, þingmenn og embættis- menn og þeim boðið að kynnast aðgerðum um borð. Undanfari NATO-æfingarinnar miklu var hér á landi í október. Skotland í skotlínu Sama dag og Pútín fagnaði land- vinningum sínum á Krímskaga sendi Landhelgisgæsla Íslands frá sér tilkynningu um að þá um morg- uninn hefðu „tvær óþekktar flug- vélar sem hvorki höfðu tilkynnt sig til flugumferðarstjórnar né voru með ratsjársvara í gangi“ komið inn í loftrýmiseftirlitssvæði NATO hér við land. Flugu tvær orrustu- þotur ítalska flughersins, sem eru hér á landi við loftrýmisgæslu, til móts við vélarnar til að auðkenna þær. Voru þetta tvær rússneskar sprengjuflugvélar af gerðinni Tupo- lev Tu-142 (Bear F). Þær voru utan íslenskrar lofthelgi. Um ferðir Rússa í nágrenni Nor- egs, Íslands og Skotlands er fjallað í grein sem birtist í The Scotsman laugardaginn 16. mars eftir tvo for- ráðamenn bandarísku hugveitunnar sem kennd er við Henry heitinn Jackson, öldungadeildarþingmann í Bandaríkjunum, Andrew Foxall og James Rogers. Þeir telja Rússa hafa áhuga á að koma ár sinni fyrir borð, leynt og ljóst í Skotlandi, og segja meðal annars: „Í kalda stríðinu var líklega ekki fylgst betur með neinu hafsvæði í heiminum en GIUK-hliðinu, al- þjóðlegt gildi þess stórminnkaði eftir hrun Sovétríkjanna. Nú þegar Rússar hafa sótt í sig veðrið að nýju hefur mikilvægi þess end- urnýjast og Bretar burðast við að ná vopnum sínum að nýju. Þá er þess að geta að Kremlverjar hafa aldrei misst áhuga sinn á Trident [bresku kjarnorkukafbátunum]. Í þessum mánuði gerðist það að rússneskt herskip fór inn í Moray Firth og varð breski flotinn að senda skip á vettvang til að fylgjast með ferðum þess. Hvað eftir annað hafa rússneskar flugvélar lagt leið sína að lofthelgi Skotlands og hafa breskar Typhoon-þotur frá Lossie- mouth neyðst til að fara í veg fyrir þær og fylgja þeim á brott. Áhugi Kremlverja á Skotlandi er ekki takmarkaður við hernaðarlega þætti heldur er hann mun lúmsk- ari. […] Rússnesk stjórnvöld hafa þegar þróað hátækni og aðferðir til að sundra og ná undirtökum í evr- ópskum smáríkjum, þar má nefna markvissa hvatningu til spillingar; afskipti af kosningum; beitingu samfélagsmiðla til að móta almenningsálitið; netárásir; og upplýsingafalsanir. Dæmi eru um að sumum þessari aðferða hafi ver- ið beitt í Skotlandi. […] Árið 2016 setti Sputnik, gjallar- horn Kremlverja, breskar höfuð- stöðvar sínar niður í Edinborg. Ári síðar fékk Alex Salmond, fyrrv. fyrsti ráðherra Skotlands, eigin þátt á RT, áróðursstöð rússnesku ríkisstjórnarinnar. […] Skoski .þjóðarflokkurinn boðar að sjálfstætt Skotland gangi í NATO í sömu andrá og flokkurinn er andvígur veru breskra kjarn- orkukafbáta í skoskum fjörðum. Þó eru það einmitt þessir sömu kafbát- ar sem skapa kjarnorku-fælingar- mátt NATO í Evrópu. Þetta mundi leiða til sérkennilegrar niðurstöðu: ráðandi flokkur í sjálfstæðu Skot- landi mundi vinna gegn NATO jafnhliða því að óska eftir vernd bandalagsins. Hitt væri verra, flokkurinn mundi grafa undan ör- yggi annarra smáríkja – frá Eist- landi til Íslands – sem treysta einn- ig á NATO.“ Eftir Björn Bjarnason » Spennuáhrifin af rússnesku yfir- gangsstefnunni gagn- vart Úkraínu ná langt út fyrir tvíhliða samskipti Rússa og Úkraínu- manna. Björn Bjarnason Höfundur er fv. ráðherra. Áhrifin frá Krímskaga á Norður-Atlantshafi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.