Morgunblaðið - 22.03.2019, Page 23

Morgunblaðið - 22.03.2019, Page 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2019 ✝ Þórunn Sig-urðardóttir fæddist í Reykja- vík 12. maí 1927. Hún lést á Land- spítalanum hinn 7. mars 2019. Foreldrar Þór- unnar voru Sig- urður Þorsteins- son hafnar- gjaldkeri, f. 20. janúar 1895, d. 6. júlí 1977, og Kristjana Ólafía Einarsdóttir húsfreyja, f. 12. mars 1897, d. 4. júní 1954. Þórunn átti eina alsystur, Ernu, f. 19. september 1930. Þórunn átti þrjú hálfsystkini sammæðra. Þau Jónu Guðrúnu Gunnarsdóttur, f. 21. desember 1916, d. 7. nóvember 1980. Gunn- ar Gunnarsson, f. 3. febrúar 1919, d. 16. október 1953. Ernu Gunnarsdóttur, f. 6. september 1920, d. 4. desember 1928. f. 18. desember 1953, d. 19. september 2015. Þau skildu. Seinni maki Óttar Guðmunds- son, f. 29. apríl 1948. Þau skildu. Börn hennar eru Þóra Jensdóttir og Helga Þórunn Óttarsdóttir. 3) Þóra, f. 17. desember 1958, d. 10. janúar 1970. 4) Sigurður, f. 19. september 1960. Maki Arndís Björnsdóttir, f. 23. maí 1955. Börn þeirra eru Þórunn og Björn. Þórunn og Einar bjuggu í Reykjavík að undanskildum árunum 1979 til 1986 er þau bjuggu í Kaupmannahöfn. Þórunn starfaði í Blóðbank- anum á yngri árum en sinnti síðan húsmóðurstörfum. Þórunn var mikill bridge- spilari og spilaði alla ævi við æskuvinkonur sínar. Þórunn var íþróttakona á yngri árum og spilaði handbolta og stund- aði skíðamennsku. Þórunn tók mikinn þátt í erilsömum störf- um eiginmanns síns alla tíð. Þórunn starfaði með Kven- félaginu Hringnum. Útför Þórunnar fer fram frá Neskirkju í dag, 22. mars 2019, klukkan 15. Þórunn ólst upp á Bergstaðastræti 77 í Reykjavík. Hún gekk í Landa- kotsskóla, Mennta- skólann í Reykja- vík og Húsmæðra- skóla Reykjavíkur. Maki 7. október 1948 Einar Ágústsson, f. í Hallgeirsey 23. september 1922, d. 12. apríl 1986, alþingismaður, ráðherra og sendiherra. Börn þeirra eru 1) Helga, f. 21. júlí 1949, d. 29. september 1994. Maki Daníel Sigurðsson, f. 25. október 1945. Börn þeirra eru: a) Einar Þór. Börn hans eru Bjarni Benedikt, Helga Rut og Tinna Lind. b) Hildigunnur, maki Árni Garðarsson. Börn þeirra eru Róbert Andri og Óðinn Rafn. 2) Kristjana Erna, fyrri maki Jens R. Ingólfsson, Elskuleg tengdamóðir mín hefur fengið hvíldina. Við hittumst fyrst í Bretlandi, þar sem við síðar áttum eftir að eiga margar góðar stundir sam- an. Ég var þá að hitta kærastann og mér tilkynnt að Þórunn vildi hitta þessa stúlku. Ættarhöfð- inginn hafði sitt fram. Mér var tekið opnum örmum. Síðan þá hefur ávallt verið kært á milli okkar. Þórunn hafði lifað viðburða- ríku lífi þegar ég kem í fjölskyld- una. Hún var Reykjavíkurmær sem átti ættir sínar að rekja til Borgarfjarðar. Henni fannst það fegurst allra sveita. Þórunn kynnist ung manni sínum, Einari Ágústssyni, fv. ráðherra. Þau eignuðust fjögur börn. Helgu, Ernu, Þóru og Sigurð. Þórunn helgaði sig heimilinu þar sem Einar sinnti annasömum störfum í heimi stjórnmálanna. Þórunn fór ekki varhluta af áföllum í lífinu. Einar féll frá langt um aldur fram. Hann var henni harmdauði. Þá hefur Þór- unn kvatt dætur sínar, Þóru að- eins ellefu ára af slysförum og Helgu fjörutíu og fimm ára úr veikindum. Þórunn var skemmtileg og hnyttin kona. Hún hafði sterkan persónuleika og skoðanir á mönnum og málefnum. Hún lét það óspart í ljós og ef einkason- urinn reyndi að þagga niður í henni var svarið gjarnan „er ekki málfrelsi hér“. Þórunn var mikil félagskona. Fannst fátt skemmtilegra en ef eitthvað stæði til og var þá hrókur alls fagnaðar. Eftir að við Siggi fluttumst til London var hún tíður gestur á heimili okkar. Það var dásam- legt að vera með henni í borg- inni. Hún naut þess að kíkja í versl- anir. Ekki var verra ef eitthvað fallegt datt í poka. Hún hafði ánægju af að fara í leikhús, söfn og prófa veitingastaði. Í einni ferðinni lenti hún í smáævintýr- um. Ég var ekki heima og Siggi þurfti að bregða sér frá í stutta stund. Þórunn fékk fyrirmæli um að vera heima. Þegar Siggi kemur heim þá situr mín skömmustuleg heima. Hún hafði ekki staðist mátið enda sjálfstæð kona og farið í göngutúr. Fyrr en varði var hún komin í mótmælagöngu við pakistanska sendiráðið. Þar kom að henni lögregluþjónn og vildi vita hvað hún væri að gera í göngunni. Í þetta skiptið fékk hún lögreglu- fyld heim! Fyrir mér var hún einstök amma og fjölskyldukona. Hún sparaði ekki ráðleggingarnar um uppeldi og á sinn skemmti- lega máta lagði hún okkur lífs- reglurnar. Þegar barnabörnin voru yngri þá voru heimsóknir á Þorragötuna tíðar. Þar undu þau sér vel og ýmislegt brallað. Oftar en ekki fylgdi svo sundferð. Það var líka mikil upplifun fyrir barnabörnin að dvelja með ömmu í sumarbústað hennar í Stíflisdal. Þórunn hvatti börnin óspart til að fá lánaða hesta í út- reiðartúr. Skauta á vatninu og baða sig í læknum. Hin síðari ár eru ógleyman- legar stundir heima hjá okkur Sigga á Íslandi. Þá hittumst við gjarnan fjölskylda mín og Sigga. Það var kært á milli þessara tveggja fjölskyldna sem hafa stutt hvor aðra í gegnum lífsins ólgusjó. Síðustu árin dvaldi Þórunn á Sóltúni. Þar fékk hún góða umönnun. Ég vil sérstaklega þakka Ernu mágkonu minni og dætr- um hennar Þóru og Helgu Þór- unni fyrir einstaka umhyggju og ræktarsemi í hennar garð síðast- liðin ár. Þegar vorið nálgast kveð ég Þórunni með miklum söknuði og hlýju. Vorið var hennar uppá- haldstími, sérstaklega þegar vorboðarnir mættu fyrir utan gluggann hennar. Nú er hún sjáf flogin burt til samfundar við Einar og dæturnar Þóru og Helgu. Blessuð sé minning ættar- höfðingjans. Þín tengdadóttir, Arndís. Í dag kveðjum við ömmu mína og nöfnu, Þórunni Sigurðar- dóttur. Söknuðurinn er mikill en það er gott að hún hefur hlotið hvíld- ina. Ég veit hún nýtur sín á nýj- um stað með þeim ástvinum sem farnir eru á undan henni. Ég var svo heppin að fá vera mikið með ömmu þegar ég var lítil og hún hafði góðan tíma af- lögu. Hún sá um mig að miklu leyti, sótti mig í leikskólann, við spiluðum, fórum ófáar ferðir í Húsdýragarðinn og ég gisti hjá henni. Hún kenndi mér bæði að synda og stinga mér, sem ég er þakklát fyrir, þótt það hafi kost- að ferðir í útiklefann í öllum ís- lenskum veðrum. Hún var engin venjuleg amma. Hún hvorki bak- aði né prjónaði, eins og aðrar ömmur sem ég heyrði um, held- ur drakk púrtvín, kenndi okkur bæði brids og borðsiði með harðri hendi og lét okkur borða alvöru íslenskan mat. Amma mín var ákveðin og föst á skoðunum sínum og hún hataði alla logn- mollu. Amma var fyndin með beittan húmor og tók öllu gríni vel. Hún var aldrei viðkvæm og hélt áfram með grínið af bestu list. Við gátum talað um hvað sem er og hún hafði skoðun á öllu. Það var þægilegt að tala við hana og hún var frábær hlustandi. Við höfðum báðar áhuga á skíðum og ræddum það mikið. Henni þótti reyndar ekki nógu fínt að barna- barnið hennar væri líka á snjó- bretti en hún sætti sig þó við það. Amma var minn helsti stuðn- ingsmaður í öllu sem ég tók mér fyrir hendur. Hún hafði alltaf trú á því að ég gæti gert allt sem ég vildi og hún hvatti mig áfram. Ef aðrir í fjölskyldunni reyndu að grínast á minn kostnað kom hún mér strax til varnar. Hún vildi allt fyrir mig gera og engu skipti hversu ómögulegt verkefnið var og langt utan hennar áhrifa- svæðis. Henni fannst við vera jafn gamlar og bauð mér alltaf að líta í fataskápinn sinn hvert svo sem tilefnið var. Sumarið verður viðburðaríkt. Sjötta langömmubarnið hennar, nýjasti prins fjölskyldunnar, fæðist og ég útskrifast úr lækn- isfræði sem hún hafði lengi beðið spennt eftir. Það verður erfitt að hafa ekki ömmu sína hjá sér á þessum stundum en ég veit að hún fylgist með úr fjarlægð og verður með okkur í anda. Ég er þakklát fyrir allar stundirnar okkar saman og að hafa fengið að eiga ömmu Þór- unni. Helga Þórunn Óttarsdóttir. Elsku amma okkar var alveg einstök kona. Þegar við vorum lítil, þá stakk pabbi oft upp á því að búa til lista eða jafnvel skjal með sögum af ömmu, því þær voru margar og ótrúlegar. Svo fyndin var amma, skemmtileg, stjórnsöm og sér- vitur. Við tókum okkur aldrei til, en allar þær minningar sem við hefðum sett á listann rifjast upp fyrir manni nú þegar elsku amma er búin að loka augunum. Amma hlýtur að hafa gefið barnabörnunum svona tólf ein- tök af Njálssögu yfir árin. Henni fannst mjög mikilvægt að við vissum allt um sögu okkar. Hún hafði líka sérstakar áhyggjur að þessi barnabörn sem áttu heima í útlöndum myndu ekki vita sögu sína, en það var óboðlegt. Á leið- inni upp í sumarbústað með ömmu var alltaf skyndipróf – ef meðlimir bílsins gátu ekki nefnt fjöllin á leiðinni þá var mikið fussað og sveiað yfir því. Þegar við keyrum þessa fallegu leið í dag þá minnist við alltaf ömmu þegar við nefnum fjöllin. Fáir sem við þekkjum kunna að meta landið eins og amma. Hún var mikil útivistarkona og hvatti okkur alltaf í fjallgöngur, á skíði og að ónáða bóndann á næsta bæ og biðja hann um að fá lánaða hesta í reiðtúr. Amma var líka mikil sundkona og mætti í laug- ina á nánast hverjum einasta morgni. Að sjálfsögðu fórum við með henni um helgar. Sama hvernig veðrið var, þá kom ekki til greina að nota inniklefann. Amma vildi allt fyrir mann gera, þó á sinn eigin hátt. Þegar við gistum hjá henni þá var manni þjónað eins og konungs- fólki. Hún eldaði oft grjónagraut með slátri og blóðmör eða fræga laxinn hennar sem hún teiknaði á með tómatsósu fyrir yngstu barnabörnin. Fyrir háttinn splæsti hún oft tásunuddi en það var hörð regla að maður mátti ekki stíga fæti út úr rúminu eftir nuddið því að þá festist fitugt krem í parketinu. Í hverri ein- ustu heimsókn þá datt henni allt- af í hug að lána manni eitthvað sem henni fannst okkur endilega vanta. Oft var það eldgamla hjól- ið hennar eða regnkápa. Hún reyndi oft að troða Bjössa í gönguskóna sína. Þegar hann var kominn í stærð 45 þá loksins áttaði hún sig á því að hennar skór, sem voru nr. 36, myndu ekki gera mikið fyrir hann. Við gerðum oft grín að henni fyrir svona lagað en hún tók bara þátt í því. Enda átti ættarhöfðinginn alltaf seinasta orðið. Það mikilvægasta sem amma átti var fjölskyldan hennar. Fjöl- skylduboðin voru mörg og það er döpur tilhugsun að hún verði ekki lengur við enda borðsins að predika visku sína eða tilkynna sínar skoðanir. Við söknum hennar mikið og erum þakklát fyrir allt sem hún gerði fyrir okkur og kenndi okkur. Við er- um heppin að amma okkar hafi verið svona sterk og einstök fyrirmynd. Þórunn Sigurðardóttir og Björn Sigurðsson. Kynni okkar Þórunnar hófust þegar við vorum í sama bekk í Landakotsskóla, þá um 10 ára gamlar. Vinátta okkar hefur því staðið í yfir 80 ár. Meðan eig- inmenn okkar voru á lífi var samgangur okkar hjónanna mik- ill bæði hér heima og einnig er þau bjuggu erlendis. Þau voru gestrisin heim að sækja. Þórunn var mikil húsmóðir og kom fram með glæsibrag við hlið Einars í hans opinbera starfi bæði hér heima og erlendis. Þórunn var með sterkustu konum sem ég hef kynnst. Áföllin í lífi hennar voru mörg og alvarleg og marg- ur hefði brotnað, en hún stóð uppi sterk eins og klettur. Eftir að við urðum ekkjur ferðuðumst við hér heima og til útlanda, tvær saman eða í hópi. Í um 60 ár spiluðum við saman í bridgeklúbbi. Við bjuggum í sama eldriborgarahúsi í mörg ár svo við vorum í miklu sambandi alla tíð. Ég mun sárt sakna vin- konu minnar. Vertu kært kvödd. Elín Guðmannsdóttir. Stundum hef ég staðið mig að því að vita ekki hvað mömmur vinkvenna minna heita því þær eru alltaf kallaðar mamma. En ég veit að sú mamma sem við kveðjum í dag hét Þórunn Sig- urðardóttir. Afkomendur henn- ar nefndu hana gjarnan fullu nafni. Þetta myndi Þórunni Sig- urðardóttur ekki líka, sagði ein- hver, þetta er nú eitthvað fyrir Þórunni Sigurðardóttur, sagði annar. Þórunn var skemmtileg kona sem vildi vera meðal fólks, sýndi áhuga, talaði um hvað sem var við hvern sem var og lét við- mælendum sinum finnast þeir gáfaðir og skemmtilegir. Eins og flestir sem ná háum aldri upplifði Þórunn ýmiss kon- ar andstreymi. Sagt er að ekki séu lagðar meiri byrðar á fólk en það þolir. En hvernig er það mælt? Og hver leggur þessar byrðar á fólk? Þórunn missti móður sína ung, dóttur á tólfta ári í slysi, manninn sinn um ald- ur fram, aðra dóttur úr krabba- meini og son vinahjóna sem hún var að passa. Er þetta eitthvað sem einhver þolir? Samt var hún ekki bitur, örlaði ekki á sjálfs- vorkunn. En hún var ósátt við guð. Henni fannst hann hafa svikið sig. Það er líka allt í lagi að vera ósáttur við guð. Ef hann er sá sem sagt er að hann sé, þá þolir hann það. Þórunn glímdi við heilsubrest síðastliðin ár. Lengst af bjó hún á sínu fallega heimili á Þorragöt- unni og var hrókur alls fagnaðar bæði þar í húsinu og í fjölskyld- unni. Þegar halla tók verulega undan fæti flutti hún á hjúkr- unarheimilið Sóltún. Allan þenn- an tíma hefur Erna vinkona mín verið hennar stoð og stytta, gert henni kleift að vera sjálfstæð eins lengi og mögulegt var, hjálpað henni og sinnt fallega og vel. Þegar ég var lítil sagði ég við mömmu mína að þegar ég yrði stór og hún yrði lítil þá ætlaði ég að gera svona og svona. Mest af því voru hótanir í mótmælaskyni við uppeldisaðferðir sem hugn- uðust mér ekki. Ég hótaði því að þegar hún yrði lítil og ég yrði stór þá myndi ég alltaf setja hana snemma í rúmið og hún fengi ekki að vera eins lengi úti og hinir krakkarnir og að hún yrði alltaf að klára matinn sinn. Svo rann þetta af mér og rifj- aðist ekki upp fyrr en áratugum seinna þegar ég var raunveru- lega orðin stór og hún lítil. Samband mæðra og dætra er oft flókið. Dætur reyna að losna undan stjórnsemi mæðra sinna og ætla að verða öðruvísi mæð- ur. Einn daginn segja þær eitt- hvað og dauðbregður því þær hljóma eins og mamma. En sú grundvallarbreyting á valda- stöðu sem verður þegar móðir og dóttir skipta um hlutverk get- ur verið snúin. Það er ekkert sem býr okkur undir það að verða eins og mamma mömmu sinnar. Sem er samt að reyna að stjórna. En Erna gerði þetta ákveðið og fallega. Samskipti þeirra voru hreinskilnisleg, hvorug velktist í vafa um vilja hinnar. Málin voru rædd og leidd til lykta. Fjölskyldan var þeim báðum allt, þær misstu mikið en þær áttu líka mikið og kunnu að meta það. Erna mín, þú getur staðið keik á þessum tímamótum og verið stolt af þeirri elsku sem þú sýndir mömmu þinni þegar hún var orðin lítil og þú stór. Ég votta mína innilegustu samúð og óska Þórunni góðrar ferðar á fund fólksins síns. Hildur Helgadóttir. Þórunn Sigurðardóttir beina okkur þegar við fórum að taka okkar fyrstu skref í djúpu lauginni með enga kúta. Eftir að við systkinin urðum eldri hittum við afa oft í sundi á kvöldin, en þar var hann fastagestur alla daga eftir vinnu. Sundhöllin og úra- búðin á Skólavörðustíg voru hans staðir, þar naut hann sín best og kynntist mörgu góðu fólki. Þær minningar sem afi skilur eftir sig handa okkur að geyma eru ekkert nema góðar og skemmtilegar. Afi var elsku- legur, duglegur, hjálpsamur og munum við hafa það að leiðarljósi í lífinu. Það var aldrei tími þar sem afi gat ekki hjálpað til í því sem við systkinin tókum okkur fyrir hendur hvort sem um var að ræða lærdóm í skóla, íþróttir eða bara góð ráð eða hvatningu til að takast á við daginn. Við eyddum miklum tíma með afa hvort sem það var heima, í sumarbústaðnum á Stokkseyri eða í búðinni á Skólavörðustíg. Við systkinin eigum öll okkar minningar með honum sem er dýrmætur fjársjóður og við mun- um aldrei gleyma. Elsku afi Dassi, hvíldu í friði. Andri Már Bjarnason, Sigþór Árni Bjarnason, Tekla Ósk Bjarnadóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir amma og langamma, HALLA RAGNHEIÐUR GUNNLAUGSDÓTTIR, Syrðri-Tjörnum, Eyjafjarðarsveit, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 15. mars. Útför hennar fer fram frá Grundarkirkju laugardaginn 30. mars klukkan 14. Gylfi Ketilsson Helena Björk Magnúsdóttir Magnús Rúnar Magnússon Hjördís Halldórsdóttir ömmu og langömmubörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÚN AÐALBJARNARDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, lést þriðjudaginn 19. mars. Útför auglýst síðar. Þorgerður Jónsdóttir Steingrímur Þórðarson Viðar Hrafn Steingrímsson Lena Karen Sveinsdóttir Sigrún Steingrímsdóttir Nikulás Árni Sigfússon og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTJANA SÆUNN ÓLAFSDÓTTIR Sævargörðum 14, Seltjarnarnesi, andaðist á krabbameinsdeild Landspítalans laugardaginn 16. mars. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 27. mars klukkan 15. Kristján Jónsson Ólafur Jón Kristjánsson Kristín Davíðsdóttir Hafdís Kristjánsdóttir Jón Jónsson Guðbjörg Ruth Kristjánsd. Birgir Rafn Ásgeirsson Kristín Sif Kristjánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.