Morgunblaðið - 22.03.2019, Qupperneq 26
G
eir Rögnvaldsson fædd-
ist 22. mars 1949 í
Reykjavík. „Ég ólst upp
í Hlíðarhverfinu og lék
því með knattspyrnu-
félaginu Val.“ Hann var í sveit í
Lundi í Þverárhlíð í Borgarfirði í sjö
sumur.
Geir tók stúdentspróf frá Mennta-
skólanum við Hamrahlíð 1970 en
stundaði nám með hléum í Vínarborg
á árunum 1970-72 og seinna við Há-
skólann í Lundi í Svíþjóð 1976-79 og
lauk fil. kand. prófi í leiklistar-
fræðum. Hann lauk námi til kennslu-
réttinda árið 2002 og MA-prófi í
menntunarfræðum árið 2012.
„Ég hef starfað sem kennari, sjó-
maður, leikstjóri, fiskútflytjandi,
áfengisráðgjafi bæði í Krýsuvík og á
geðdeild Landspítalans. Þá hef ég
verið leiðsögumaður á hverju sumri
frá 1991. Lengstan hluta starfsævi
minnar hef ég verið framhaldsskóla-
kennari og þá lengist Borgarholts-
skóla.“ Geir fór á eftirlaun um ára-
mótin 2017/2018 en er í leiðsögn af og
til. „Ef það er eitthvert starf sem hef-
ur breytt viðhorfum mínum til lífsins
þá er það áfengisráðgjöfin. Maður
sér réttlætið alveg í nýju ljósi. Refs-
ingin verður á köflum svo afkáraleg
útlegging á réttlætinu. Er til dæmis
endilega rétt að stinga útigangsmann
í fangelsi þegar aðrar leiðir gætu
reynst betur? Hann hættir ekkert að
brjóta af sér við það. Réttlætið er
Geir Rögnvaldsson framhaldsskólakennari – 70 ára
Árið er 1991 Geir ásamt börnum sínum sem eru frá vinstri: Rögnvaldur, Klara, Helga, Ragnheiður og Sigríður.
Áfengisráðgjöfin
breytti sýninni á lífið
25 árum seinna Börnin ásamt Geir heima í Fossvogsdalnum í Kópavogi.
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2019
DRAUMAEIGN Á SPÁNI
Nánar á www.spanareignir.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
adalheidur@spanareignir.is
Sími 893 2495
Ármúla 4-6, Reykjavík
Karl Bernburg
Viðskiptafræðingur
karl@spanareignir.is
Sími 777 4277
Ármúla 4-6, Reykjavík
• 3 svefnherbergi – 2 baðherbergi
• Fataherbergi – Tæki í eldhúsi fylg ja
• Sérgarður með einkasundlaug
• Sameiginlegur sundlaugargarður
• Fallegt útsýni
• Flott hönnun – vandaður frágangur
• Golf, verslanir, veitingastaðir í göngufæri
HÚSGÖGN AÐ EIGIN VALI FYRIR
Ikr. 500.000,- fylg ja með í kaupunum
Alg jör GOLF paradís
Verð frá 45.000.000 Ikr.
(339.000 evrur, gengi 1evra/133Ikr.)
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001
GLÆSILEGAR GOLFVILLUR
LA FINCA golfvöllurinn
Fallegt umhverfi – stutt frá flugvelli
Lis Ruth Klörudóttir, verkefnastjóri í Laugalækjarskóla ogdönskukennari þar, á 40 ára afmæli í dag. Hún er búin aðvinna í skólanum í þrettán ár og sem verkefnastjóri í þrjú ár.
„Ég er verkefnastjóri yfir upplýsingaverinu og sé því um alls kon-
ar tölvumál og samþættingu verkefna. Þetta er hjarta skólans.“
Ruth situr í stjórn Félags dönskukennara og er að sigla í fjórða
árið sitt þar. „Það eru bæði framhaldsskólakennarar og grunnskóla-
kennarar í félaginu og við reynum að gera dönskukennslu hátt und-
ir höfði. Danskan á rosa sterkar rætur í mér og mér þykir afskap-
lega vænt um hana. Ég bjó í Danmörku í tvö ár sem krakki og
amma mín er dönsk, er að hálfu leyti frá Vestur-Indíum og hálfu
leyti frá Danmörku.“
Áhugamál Ruthar eru hreyfing, útivera og samvera með fjölskyld-
unni. Þegar blaðamaður talaði við hana var hún að undirbúa risa-
stóra veislu fyrir fjölskyldu og vini sem verður haldin í kvöld. Það
verða þó engin ferðalög í tilefni af þessum tímamótum. „Við fjöl-
skyldan erum búin að ferðast svo mikið undanfarið að við ætlum
eyða sumrinu hérna heima og vera mikið á Akureyri þar sem
mamma mín og stjúpi búa.“
Sambýlismaður Ruthar er Lúðvík Aron Kristjánsson, sölumaður
hjá Járni og gleri, en hann verður líka fertugur á árinu. Börn þeirra
eru Karen Lind sem verður 12 ára í næsta mánuði og Aron Logi sem
verður níu ára í maí.
Brosmild Ruth ásamt börnunum sínum, Aroni Loga og Karen Lind.
Þykir afskaplega
vænt um dönskuna
Ruth Klörudóttir er fertug í dag
Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.