Morgunblaðið - 22.03.2019, Side 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2019
• Gamli lykillinn
virkar áfram
• Vatns- og
vindvarinn
Verð: 39.990 kr.
LYKILLINN ER Í SÍMANUM
Lockitron Bolt gerir snjallsímann þinn að öruggum lykli
til að opna fyrir fjölskyldu, vinum eða öðrum gestum
þegar þér hentar og hvaðan sem er.
Þægilegt og öruggt. Þú stjórnar lásnum og fylgist með
umgengni í símanum. Hægt er til dæmis að opna fyrir
börnunum eða iðnaðarmönnum tímabundið án þess að
fara heim eða lána lykil.
Lockitron Bolt snjalllásinn fæst í Vélum og verkfærum.
Sölumenn okkar taka vel á móti þér.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er alveg hægt að rökræða við
fólk án þess að allt fari í hund og kött. Láttu
það eftir þér að njóta en vertu samt á varð-
bergi gegn því að detta í leti.
20. apríl - 20. maí
Naut Þetta er ekki verri dagur en hver ann-
ar til að reyna eitthvað nýtt í eldhúsinu. Ekki
láta ginnast þó að tilboðin streymi inn um
lúguna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur oft óskað þess að þú
værir skipulagðari. Líttu á björtu hliðarnar
og þá sérðu að margt er í góðu lagi. Þú
kynnist manneskju sem á eftir að hafa mikil
áhrif á líf þitt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú átt á hættu að verða fyrir
barðinu á manneskju sem á mjög erfitt um
þessar mundir. Byggðu samband þitt ekki á
sandi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Í dag er gott að ræða við vini. Hikaðu
ekki við að falast eftir aðstoð, ef þú kemst
ekki yfir allt saman ein/n með góðu móti.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú skalt alls ekki liggja á skoðunum
þínum ef eftir þeim er leitað. Sýndu lipurð
og léttleika þegar þú víkur þér undan verk-
efnum sem þú ert beðin/n um að taka að
þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú hefur sterka löngum til listsköpunar.
Fjárhagsleg tækifæri birtast en þú ferð þér
að engu óðslega. Gleðin tekur völd í þínu lífi.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það kann að vera að fjármálin
séu þér þyngri í skauti en þú vilt vera láta.
Oft er gott að ylja sér við blik minninganna.
Misstu samt ekki sjónar á framtíðinni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hlutirnir rúlla fínt núna og því er
rétti tíminn til að leggja til hliðar: peninga í
banka, mat í búrið. Aðrir ættu að fylgja þínu
fordæmi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það getur hindrað mann að halda
of fast í hlutina. Láttu ekki góðvildina hlaupa
með þig í gönur. Heppnin eltir þig á röndum
þessa dagana.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það gefur lífinu lit að upplifa eitt-
hvað nýtt og spennandi. Farðu varlega og
það mun skila þér meiru þegar til lengri
tíma er litið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gerðu þitt til þess að gömul vina-
bönd trosni ekki. Hvíldu þig aðeins á hinum
stranga dómara sem er innra með þér. Allir
hlutir kosta sitt en það er forgangsröðin
sem skiptir máli.
Ég mætti karlinum á Lauga-veginum á horni Skólavörðu-
stígs og Laugavegar og heyrði að
hann var að tauta „myglusveppur“
hratt og með áherslu á fyrsta at-
kvæðinu. Það skýrðist brátt hvers
vegna eftir að við höfðum heilsast
og ég spurt tíðinda. Þá hnykkti
hann höfðinu skáhalt aftur á bak
til vinstri og sagði:
„Hvort sé ræktunarmaður í
Ráðhúsinu?“ –
Ég rölti oní bæ framhjá náðhúsinu
að Tjörninni hvar
ég fékk tafarlaust svar:
Það er risa-myglusveppur
– á Ráðhúsinu!
Með tautinu var hann að ná
þeirri framsögn sem gæfi limrunni
þá hrynjandi að hún hljómi eins
og hún sé rétt kveðin því að
óneitanlega er orðið „risamyglu-
sveppur“ fyrirferðarmikið í svo
knöppu ljóðformi sem limran er.
Ég reyni að koma til móts við
hann með því að síðasta hendingin
er í tveim línum!
Ólafur Stefánsson sagði mér, að
„Veröld fláa sýnir sig“ sé eftir Vil-
hjálm Hölter, tómthúsmann í
Skuggahverfinu. Þá skrifaði Reyn-
ir Pálmason frá Hjálmsstöðum
mér og sagði að vísan „Næðir fjúk
um beran búk“ væri eftir Pál Guð-
mundson á Hjálmsstöðum. Hann
saknaði þess að sjá ekki meira eft-
ir Pál í vísnaþáttum mínum og lét
fylgja eina hestavísu sem sungin
er í Hestavísum eftir Jón Leifs:
Hálsi lyfti listavel,
löppum klippti vanginn,
taumum svipti, tuggði mél,
tölti og skipti um ganginn.
Í æviminningum Páls, „Tak
hnakk þinn og hest“ er þessi
hringhenda um Hroll:
Stekkur Hrollur breiðan bý
bara skolli fljótur.
Þegar kolli öl er í
er hans hollur fótur
Sigurlín Hermannsdóttir yrkir á
Leir og er góð mannlýsing:
Löngum ævi hans var hörð,
harla fátt til nytja.
Tíndi lífsins lambaspörð
lét svo þar við sitja.
Ólafur Stefánsson bætti við frá
eigin brjósti:
Tóbak reykti, reifst við frúna,
rétti varla úr bakinu.
Kvölds og morgna mjólkaði kúna,
mæddur af leku þakinu.
Pétri Stefánssyni þótti „leiðinda-
veður“ á miðvikudag:
Enn er vindur ekki hlýr,
ei mun snjóa leysa.
Veðrið er í vetrargír,
víða stormar geisa.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Myglurisasveppur
Í klípu
„ÉG ELSKA ÚTSÝNIÐ LÍKA – nema þegar
þaÐ stingur í augun.”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞÚ ERT MEÐ MJÖG, MJÖG VEIKAN
HJARTSLÁTT!”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... heimsókn
frá yndislegu
barnabörnunum.
ÉG HEF EKKI ÁHYGGJUR AF
VERALDLEGUM MÁLUM!
EÐA
HVAÐ …
ÉG VAR AÐ HUGSA UM
EINHVERJA AÐRA VERÖLD
ÞÚ ÆTTIR
ÞÁ AÐ FARA
ÞANGAÐ
ÉG GERI HÉR MEÐ TILKALL TIL ÞESSA
LANDS Í NAFNI HRÓLFS HRÆÐILEGA!
ÉG GERI HÉR MEÐ TILKALL TIL SKATTFJÁR
Í NAFNI KONUNGS ÞESSA LANDS!
Það var mikið grín og mikið gamanhjá Víkverja um síðustu helgi.
Hann skellti sér ásamt maka og
vinnufélögum á árshátíð og skemmti
sér vel.
x x x
Það gefur lífinu alveg einstakan litað klæða sig upp, hitta vinnu-
félaga og eftir atvikum maka þeirra í
afslöppuðu andrúmslofti til þess eins
að hafa það gaman saman. Ekki
skemmir nú heldur góða árshátíð að
fá bragðgóðan mat borinn fram á fal-
legan hátt og njóta hans með
skemmtilegum borðfélögum.
x x x
Maður er manns gaman og þaðsannast oft á árshátíðum sem og
annars staðar. Leyndir hæfileikar
samstarfsmanna koma í ljós í ræðu-
höldum og blaðaútgáfu þar sem góð-
látlegt grín sem vonandi engan særir
er gert að samstarfsmönnum. Í
skemmtiatriðum þar sem metnaður-
inn er svo mikill að sýnd eru árs-
hátíðarskaup. Ósérhlífnir vinnu-
félagar taka að sér að semja, leik-
stýra, taka upp og klippa efni auk
þess að leika í skaupinu ásamt öðrum
samstarfsmönnum. Það er mat Vík-
verja, sem telur sig hafa nokkuð gott
skynbragð á húmor, að árshátíðar-
skaupið hafi kroppað vel í hælana á
áramótaskaupi RÚV.
x x x
Árshátíðarskaupið gengur út á þaðað spegla vinnustaðinn og sam-
starfsfélagana á húmorískan hátt
með það að markmiði að særa engan.
Hvort það takist alltaf er ekki gott að
segja.
x x x
Eins og Víkverja er siður kafarhann ofan í málin þegar hann tel-
ur þess þörf. Víkverji veltir því upp
hvað sé góður húmor eða húmor yfir-
leitt. Hvað sé særandi húmor og af
hverju fólk taki húmor misjafnlega.
x x x
Með MeToo-byltingunni, um-ræðunni um einelti og meiri um-
ræðu um tilfinningar hefur vaknað
þörf umræða og vangaveltur um hvað
megi og hvað ekki og það er Víkverji
ánægður með. vikverji@mbl.is
Víkverji
Og þetta er traustið sem við berum til
hans: Ef við biðjum um eitthvað eftir
hans vilja, þá heyrir hann okkur.
(Fyrsta Jóhannesarbréf 5.14)