Morgunblaðið - 22.03.2019, Síða 30

Morgunblaðið - 22.03.2019, Síða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2019 AF LJÓSMYNDUN Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Margar mikilvægar og merkar upp- finningar sem kynntar voru til sög- unnar á 19. öld áttu eftir að hafa af- gerandi áhrif á líf fólks upp frá því og heiminn eins og við þekkjum hann í dag. Ein sú allra merkasta var kynnt á frægum sameiginlegum fundi Frönsku vísindaakademíunn- ar og Akademíu fagurra lista í París 19. ágúst árið 1839 en það var ljós- myndatæknin. Þar sýndi og kynnti uppfinningamaðurinn Louis- Jacques-Mandé Daguerre (1787- 1851) tækni sem hann hafði unnið að því að fullkomna í nokkur ár, það hvernig mætti frysta veruleikann og þar með ásýnd manna varanlega í tvívíðri mynd. Þessa undursamlegu tækni byggði Daguerre á uppfinn- ingum alkemistans Nicéphore Niépce (1765-1833) sem þeir höfðu farið í samstarf um en Niépce hafði tekist nokkrum árum áður, þegar árið 1826 eða 27, að festa myndir á málplötur með tækni sem hann kall- aði heliography. Og þar með skapað fyrstu þekktu ljósmyndirnar. En Niépce lést sex árum áður en ljós- myndatæknin var formlega kynnt af hinum séða Daguerre, sem hafði þá tryggt sér einkaleyfi á aðferðinni og gefið hana franska ríkinu, gegn rausnarlegum eftirlaunum til dauðadags. Reyndar var breskur hefðar- maður, William Henry Fox Talbot (1800-1877) að nafni, þá þegar búinn að ná að frysta ljósmynd með ann- ars konar tækni, sem byggðist á negatífri pappírsfilmu – en hann hafði ekki kynnt tæknina formlega og varð því annar í kapphlaupinu, ef svo má segja. Þessi saga fæðingar ljósmyndunarinnar er í raun æsi- spennandi og engin leið að rekja hana hér. En eftir nokkur ár tók hugmynd Fox Talbot þó ljósmynda- gerð alveg yfir, því miklum mun skynsamlegra var að nota filmur við að mynda – glerplötur tóku fljótlega við af pappírsnegatífum – því þá mátti fjöldaframleiða myndir. Tæknin sem kennd var við Dagu- erre – fyrsta ljósmyndatæknin nefnist nefnilega daguerreo-týpa Gersemar með aðferð Daguerre Ljósmyndasafn Íslands/Þjóðminjasafn Söguleg Sveinbjörn Egilsson rektor í daguerreo-týpu sem tekin var af honum af óþekktum ljósmyndara í Kaup- mannahöfn árið 1850, í ferð hans til borgarinnar í kjölfar Pereatsins svokallaða í Lærða skólanum. Eins og þorri daguerreo-mynda er þessi lítil, aðeins 8x6,1 cm, en gengið frá henni í glæsilegum ramma. (og hefur verið nefnd sólmynd á ís- lensku) – gat bara af sér eina staka mynd sem ekki var unnt að fjölfalda nema með eftirtöku. Og hún var dýr, enda myndin gerð á fægða silfurplötu sem ljósnæm himna var borin á. En daguerreo-týpur eru einhver fallegasta ljósmyndatækni sögunnar; myndirnar eru einstak- lega skarpar og upplifunin við að horfa á og skoða vel með farnar myndir frá fyrstu árum miðilsins er heillandi. Myndirnar eru litlar, yfir- leitt bara nokkrir sentímetrar á kant, og fægður bakgrunnurinn er eins og spegill; áhorfandinn skoðar fyrirmyndina og horfist í augu við sjálfan sig um leið. Fyrstu ljósmyndir sem teknar voru á Íslandi eru tvær daguerreo- týpur sem franski vísindamaðurinn Alfred Legrand Cloizeaux (1817- 1897) tók sumarið 1845 í Reykjavík, yfir Grjótaþorp og upp í Þingholt. Þær myndir eru varðveittar í safni í París. Og fáar daguerreo-týpur hafa varðveist hér á landi. Í Sarpi, hinu sístækkandi menningarlega gagna- safni safna á netinu, hefur verið sett upp afar athyglisverð vefsýning með daguerreo-týpum á Íslandi og er nú í fyrsta skipti hægt að skoða þær á einum stað. Inga Lára Bald- vinsdóttir, sem stýrir Ljósmynda- safni Íslands innan Þjóðminjasafns, og er fremsti sérfræðingur þjóðar- innar í ljósmyndun fyrri tíma hér á landi, fylgir sýningunni úr hlaði með texta um myndirnar. Það kemur fram að tilefni sýningarinnar er að nú eru 180 ár síðan ljósmyndatækn- in var kynnt til sögunnar, með þess- ari aðferð Daguerre. Vitað sé um innan við 30 ljósmyndir hér á landi sem teknar voru með þeim hætti; 21 slík mynd er varðveitt í Ljósmynda- safni Íslands, tvær á Landsbóka- safni – Háskólabókasafni, tvær á Ljósmyndasafni Reykjavíkur og þá er vitað um fáeinar í einkaeigu. Í til- efni af afmælinu hefur verið unnið að frekari skráningu á þessum myndum og jafnframt skráðar eftir- tökur þriggja daguerreo-týpa í frönskum söfnum og fimm papp- írsmyndir sem gerðar voru eftir daguerreo-týpum sem ekki hafa varðveist. Tveir Íslendingar lærðu Inga Lára segir Íslendinga fyrst hafa kynnst aðferð Daguerre við myndatökur hjá erlendum mönnum í Danmörku, „þar sem þeir voru við nám eða sinntu erindum í starfi eða einkalífi, og á Íslandi, þangað sem ferðamenn komu með ljósmyndavélar með sér. Daguer- reo-týpur voru teknar um allan heim og flestar þeirra voru af fólki. Samhliða stækkandi borgarastétt í Evrópu óx markaður fyrir manna- myndir og þó að daguerreo-týpur væru framan af dýrar voru þær ódýrari heldur en málaðar smá- myndir sem áður höfðu verið eftir- sóknarverðar sem stöðutákn og minjagripir. Þegar frá leið lærðu tveir ís- lenskir ljósmyndarar að taka ljós- myndir með þessari aðferð, þeir Helgi Sigurðsson og Siggeir Páls- son, sem báðir áttu eftir að verða prestar. Engar frummyndir eftir þá hafa varðveist,“ skrifar Inga Lára. Heillandi myndir og fallegar Óhætt er að hvetja fólk til að skoða sýninguna á íslensku dagu- erreo-týpunum í Sarpi en ljósmynd- unum fylgja góðar upplýsingar um fólkið á myndunum, ef það er þekkt, um tökustaði og annað. Sumar myndanna eru illa farnar en ef silfurplöturnar hafa ekki verið í þéttum hylkjum hefur fallið á þær og þær rispast en afar fagurlega var venjulega búið um myndir af þessu tagi, í flauelsklæddum öskjum og undir gleri. Nokkrar hér eru líka frábærlega fallegar, til að mynda sú þekkta mynd af Sveinbirni Egils- syni, rektor og þýðanda, sem hér má sjá og hefur verið felld í afar skrautlegan gylltan ramma. Myndin af Benedikt Gröndal skáldi, syni hans, er ekki síður merkileg eða myndin af hinum kempulega Bjarna Jónssyni rektor sem var tekin árið 1845. Ekki er síður heillandi mynd- in af Þóru Melsteð frá 1846. Þessar viðkvæmu daguerreo- týpur eru meðal helstu myndrænna gersema þjóðarinnar og vert er að þakka fyrir að geta notið þeirra nú á þessari forvitnilegu vefsýningu. » Þessar viðkvæmudaguerreo-týpur eru meðal helstu myndrænna gersema þjóðarinnar … Sólmynd Óþekkt kona í mynd eftir Christian Ludvig Qvist, ljós- myndara í Álaborg, tekin um 1850. Bræður Páll Melsteð sagnfræð- ingur og Halldór, cand.phil. og amt- skrifari, myndaðir í Kaupmanna- höfn af óþekktum manni 1855-1857. Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is GLÁMUR Dvergarnir R Dvergurinn Glámur er 35 cm á hæð, vegur 65 kg og er með innsteypta festingu fyrir 2“ rör Öflugur skiltasteinn fyrir umferðarskilti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.