Morgunblaðið - 22.03.2019, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MARS 2019
Capernaum er þriðja myndlíbanska leikstjóransNadine Labaki. Áður hef-ur hún sent frá sér Cara-
mel (2007) og Where do we go now?
(2011) sem voru sýndar á kvik-
myndahátíðum víða um heim og
hlutu prýðilega dóma. Með Caper-
naum stígur Labaki hins vegar
fram sem fullmótaður listamaður og
þykir sanna að hún er einn þeirra
leikstjóra í listabíósenunni sem vert
er að fylgjast grannt með.
Capernaum segir frá hinum 12
ára gamla Zain, (reyndar veit hann
ekki hvenær hann á afmæli er 12 er
nærri lagi) sem býr í Beirút. Í upp-
hafi myndar er hann staddur í rétt-
arsal, þar sem hann er að kæra for-
eldra sína fyrir að fæða sig inn í
þennan grimmúðlega heim. Réttar-
höldin ramma inn söguna, sem er
sögð gegnum endurlit, þar sem við
sjáum aðdraganda þess að Zain
ákvað að höfða þetta undarlega mál.
Zain býr í ömurlegu húsnæði
ásamt foreldrum sínum og fjölda
systkina. Hann gengur ekki í skóla
og vinnur þess í stað sem sendill í
lítilli sjoppu. Eigandi sjoppunnar
heitir Assad og hann er líka eigandi
íbúðarinnar sem fjölskylda Zains
býr í „frítt“, þ.e.a.s. í skiptum fyrir
að börnin vinni fyrir hann. Zain er
elstur systkinanna og heldur
verndarhendi yfir þeim. Hann held-
ur mest upp á systur sína Sahar,
sem er einu ári yngri og sýnir henni
mikla væntumþykju. Þegar Assad,
sem er fullorðinn karlmaður, gerir
sig líklegan til þess að biðja um
hönd hinnar 11 ára Sahar reynir
Zain allt sem í hans valdi stendur til
að koma í veg fyrir hjónabandið.
Eftir afar dramatísk fjölskylduátök
strýkur Zain að heiman og endar á
götunni. Við fylgjumst með honum
draga fram lífið við skelfilegar að-
stæður.
Zain er heillandi persóna. Gagn-
rýnandi Variety hitti naglann á
höfuðið þegar hann kallaði per-
sónuna „smávaxinn James Dean“.
Hann er hvatvís, hortugur og kjaft-
for með eindæmum en hefur samt
gríðarstórt hjarta. Hann má ekkert
aumt sjá og þrátt fyrir að vera alls-
laus og rauninni í engri stöðu til að
bjarga neinum reynir hann hvað
hann getur að hjálpa náunganum.
Aukapersónurnar eru líka áhuga-
verðar, sérstaklega Rahil sem skýt-
ur skjólshúsi yfir Zain þegar hann
er á götunni. Flestir leikararnir í
eru ófaglærðir, sem kemur virkilega
vel út og leikstjórinn sýnir að hún
getur náð stórfínni frammistöðu út
úr leikurum sínum.
Merking titilsins er glundroði eða
kaos. Það á svo sannarlega við af
því það ríkir algjört kaos í heimi
myndarinnar, allt er óútreiknanlegt,
ef það má reikna með einhverju er
það að allt sem mögulega getur far-
ið á versta veg, fer á versta veg.
Kvikmyndatakan leysist upp í kaos
á köflum, sér í lagi á dramatískum
og tilfinningaþrungnum augnablik-
um. Sviðsmyndin endurspeglar líka
þennan glundroða, fátækrahverfi
Beirút birtast hér sem hrár og
hrottalegur martraðarruslahaugur
þar sem endrum og sinnum glittir í
þekkt alþjóðleg merki eins og Pepsi
Cola, sem keyrir upp ádeiluna. Það
þarf vart að taka fram að Caper-
naum er ádeilumynd sem beinir
ljósi að tvískinnungnum í nútíma-
samfélagi og stærsta heimsósóma í
veröldinni, vanrækslu og ofbeldi
gegn börnum.
Þrátt fyrir að það sé mikið myrk-
ur í myndinni er hún ekki fullkom-
lega niðurdrepandi allan tímann,
þarna birtast uppörvandi augnablik
þar sem persónurnar sýna hver
annarri mikla væntumþykju og
stuðning. Fátækt fólk verður víst að
vera gott við hvað við annað, fyrst
enginn annar er það. En auðvitað er
það er ekki nóg.
Þetta er svo sannarlega krefjandi
áhorf, fólk má búast við því að
ganga út með rembihnút í hjartanu
og marbletti á réttlætiskenndinni.
En eins og allir listunnendur vita er
fjör ofmetið, hluti af því sem maður
sækist eftir í listaverkum er að vera
dembt inn í framandi menningu og
að fá að kynnast fólki úr gjörólíkum
aðstæðum, sama þótt þær séu
skelfilegar. Þótt Capernaum sé
þung eins og grjót og að horfa á
hana sé eins og að kremjast undir
valtara, er það samt sem áður
endurnærandi því myndin er gríð-
arlega vönduð og hún virkar sem
þörf áminning.
Með hjartað í hnút
Glundroði Merking Capernaum er glundroði, sem á vel við af því það ríkir algjört kaos í heimi myndarinnar, allt er
óútreiknanlegt og það sem mögulega getur farið á versta veg mun að öllum líkindum gera það.
Bíó Paradís
Capernaum bbbbn
Leikstjórn: Nadine Labaki. Handrit:
Nadine Labaki, Jihad Hojeily, Michelle
Keserwany. Kvikmyndataka: Chri-
stopher Aoun. Klipping: Konstantin
Block, Laure Gardette. Aðalhlutverk:
Zain Al Rafeea, Yordanos Shiferaw, Bo-
luwatife Treasure Bankole, Hatita Iz-
zam. 126 mín. Líbanon, 2018.
BRYNJA
HJÁLMSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
Ástríkur og leyndardómur
töfradrykkjarins
Ný teiknimynd um Ástrík og fé-
laga, talsett á íslensku. Eftir að
Sjóðríkur seiðkarl telur að tími sé
til kominn að treysta varnir þorps-
ins og heldur í ferðalag með Ást-
ríki og Steinríki til að finna
hæfileikaríkan ungan seiðkarl sem
hann getur treyst fyrir leyndar-
málinu að baki töfradrykknum.
Leikstjórar eru Alexandre Astier
og Louis Clichy. Enga samantekt á
gagnrýni er að finna enn sem kom-
ið er.
Us
Ný kvikmynd eftir leikstjórann
Jordan Peel sem sló í gegn með
frumraun sinni Get Out fyrir tveim-
ur árum. Us er spennuþrungin
hrollvekja sem segir af hjónunum
Gabe og Adelaide sem eru í fríi og
á leið á ströndina með börnum sín-
um tveimur, Zoru og Jason. Þar
ætla þau að hitta vini sína og njóta
lífsins en þegar dularfullir tvífarar
þeirra fara að gera þeim lífið leitt
breytist sú áætlun heldur betur.
Aðalleikarar eru Lupita Nyong’o,
Winston Duke og Elisabeth Moss.
Metacritic: 80/100
The Music of Silence
Saga ítalska söngvarans Andreas
Bocelli sem fæddist með augn-
sjúkdóm og varð blindur 12 ára að
aldri. Bocelli lærði á fjölda hljóð-
færa og jókst áhugi hans á söng
með ári hverju. 14 ára fór hann
með sigur af hólmi í sinni fyrstu
söngkeppni og er í dag heims-
þekktur söngvari. Leikstjóri er
Michael Radford og með aðal-
hlutverk fara Antonio Banderas,
Jordi Mollà og Toby Sebastian.
Metacritic: 25/100
Í Bíó Paradís standa nú yfir taív-
anskir kvikmyndadagar og má
finna dagskrá þeirra á biopara-
dis.is.
Bíófrumsýningar
Gaulverjar, tví-
farar og Bocelli
Martröð Úr kvikmyndinni Us sem
frumsýnd verður í dag.
Þriðja kvikmyndin um ótrúleg
ævintýri vinanna Bill og Ted, Bill &
Ted 3: Face the Music, verður frum-
sýnd á næsta ári en önnur myndin
kom út árið 1991, Bill & Ted’s
Bogus Journey. Munu leikararnir
Keanu Reeves og Alex Winter snúa
aftur í hlutverkum félaganna sem
slógu í gegn í grínmyndinni Bill &
Ted’s Excellent Adventure árið
1989. Handrit þriðju myndarinnar
var klárað árið 2011 og hefur því
legið lengi ofan í skúffu. Leikar-
arnir eru nú báðir komnir vel á sex-
tugsaldurinn og Reeves orðinn
kvikmyndastjarna en Winter er öllu
minna þekktur.
Gaurar Alex Winter og Keanu Reeves í
hlutverkum Bill og Ted í fyrstu myndinni.
Bill og Ted koma
saman á ný
Bandaríska leik-
konan Julianne
Moore átti að
fara með eitt af
aðalhlutverkum
kvikmyndarinn-
ar Can You Ever
Forgive Me? en
var sagt upp
vegna þess að
hún vildi fá að
vera í fitubún-
ingi, þ.e. búningi sem léti hana líta
út fyrir að vera mjög feit. Vefur
breska ríkisútvarpsins BBC greinir
frá þessu og hefur eftir enska leik-
aranum Richard E. Grant sem fer
með eitt af aðalhlutverkum kvik-
myndarinnar. Þá vildi Moore líka
fá að vera með gervinef og var
leikstjóri myndarinar, Nicole Ho-
lofcener, alfarið á móti því líkt og
fitubúningnum. Við hlutverki
Moore tók leikkonan Melissa
McCarthy.
Rekin út af fitu-
búningi og nefi
Rekin Julianne
Moore.
Sameinar það besta í rafsuðu
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288