Morgunblaðið - 23.03.2019, Qupperneq 1
L A U G A R D A G U R 2 3. M A R S 2 0 1 9
Stofnað 1913 70. tölublað 107. árgangur
MIKILÚÐLEG
ÞÖGN MILLI
NÓTNA
ÞAÐ HELSTA
Í SAMTÍMA-
HÖNNUN
NÚNA NORRÆNT 46SUNNA 49
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Um 2.300 manns tóku þátt í sólar-
hringsverkfalli Eflingar og VR sem
lauk eina mínútu í miðnætti í gær-
kvöldi. Verkfallið beindist að hótel-
um og rútubílstjórum og tóku verka-
lýðsfélögin sér kröfustöður meðal
annars fyrir utan Hús atvinnulífsins
og ýmis hótel á höfuðborgarsvæðinu.
Sögðu forkólfar verkalýðsfélaganna
að grunur léki á að verkfallsbrot
hefðu verið víðs vegar í gangi.
Á heimasíðu Eflingar kom fram að
greiðslur úr verkfallssjóði félagsins
væru háðar „hógværri kröfu“ um
þátttöku í verkfallinu.
Ríkissáttasemjari boðaði í gær til
fundar á mánudaginn í kjaradeilu
Eflingar, VR, VLFA, LÍV, Fram-
sýnar og VLFG við Samtök atvinnu-
lífsins eftir að sáttafundur á fimmtu-
daginn stóð fram á kvöld.
Tugmilljónatjón fyrir hótelin
Bjarnheiður Hallsdóttir, for-
maður Samtaka ferðaþjónustunnar,
segir að það hafi að mestu leyti geng-
ið vel að halda starfseminni gang-
andi hjá þeim fyrirtækjum sem urðu
fyrir barðinu á verkföllunum
„Það var þegar orðið töluvert tjón
af þessu því að hótelin þurftu að loka
fyrir bókanir þegar ljóst var í hvað
stefndi,“ segir Bjarnheiður og bætir
við að það hafi orðið tugmilljónatjón
af verkfallinu fyrir hótelin. „Þá
þurftu rútufyrirtækin að aflýsa
dagsferðum og annað, þannig að
tekjutap varð af því.“
Hún bætir við að samskipti við
verkfallsverði hafi að mestu gengið
ágætlega, þrátt fyrir að ágreiningur
framhaldið. „Þó að það hafi gengið
vel að halda starfseminni gangandi í
einn sólarhring, þá verður það erf-
iðara í næstu viku,“ segir Bjarnheið-
ur, en VR og Efling hafa boðað til
tveggja daga verkfalls á fimmtudag
og föstudag í næstu viku.
Bjarnheiður segir að róðurinn
þyngist bara vegna verkfallanna og
því voni allir að samningar náist fyrir
þann tíma. Hún segir að því lengur
sem deilurnar dragist á langinn,
þeim mun meiri hætta verði á lang-
varandi skaða á orðspori Íslands
sem ferðamannastaðar. „Þetta kem-
ur óorði á áfangastaðinn og við höf-
um áhyggjur af því inn í framtíðina,“
segir Bjarnheiður.
Um 2.300 manns tóku þátt í sólarhringsverkfalli Eflingar og VR Sáttasemjari
boðar til fundar á mánudaginn Ásakanir um að verkfallsbrot hafi verið víða
MGrunur um verkfallsbrot víða »6
hafi verið milli atvinnurekenda og
verkalýðsfélaganna um það hverjir
mættu vinna. „Ég held að það hafi
ekki farið í nein leiðindi neins
staðar,“ segir Bjarnheiður og bætir
við að ágreiningurinn verði að fara í
réttan farveg, það sé félagsdómur
sem skeri úr um það.
Bjarnheiður segir miklar áhyggj-
ur innan ferðaþjónustunnar um
Tjónið þegar töluvert
Morgunblaðið/Eggert
Verkfall Þátttakendur í verkfallinu tóku sér kröfustöðu meðal annars fyrir utan Hús atvinnulífsins.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Viðræður um mögulega aðkomu Icelandair að
rekstri WOW hófust formlega í gær. Félögin hafa
gefið sér fram yfir helgina til að ljúka viðræðunum,
en á mánudaginn þarf WOW air að standa skil á
150 milljóna króna vaxtagreiðslu vegna skulda-
bréfa sem félagið gaf út í september síðastliðnum.
Gengi Icelandair hækkaði um 5,8% í kauphöllinni í
gær, en tilkynningin um viðræður félaganna barst í
fyrrakvöld eftir að markaðir höfðu lokað.
Ekki hefur verið rætt við ríkið um aðkomu
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði í
samtali við mbl.is í gær að stjórnvöld væru upplýst
um viðræðurnar. „Það er eðlilegt, því að ef þær
ganga eftir þá mun koma til aðkomu stofnana
stjórnvalda, svo sem Samkeppniseftirlitsins og
Samgöngustofu sem veitir flugrekstrarleyfi,“ sagði
Katrín.
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveit-
arstjórnarráðherra, tók í sama streng í samtali við
Morgunblaðið. „Við höfum fylgst mjög grannt með
þessu máli og séð þessi óveðursský hrannast upp í
fluginu,“ segir Sigurður. „Núna er þetta í höndum
þessara tveggja markaðsfyrirtækja og ríkisvaldið
hefur einfaldlega sagt að þetta sé með vitund okkar
og við munum auðvitað hjálpa til ef hægt er, en það
hefur ekki verið rætt við okkur um neina sérstaka
aðkomu,“ segir Sigurður Ingi.
Hann segir að það hafi aldrei komið til tals að
ríkisvaldið myndi setja fé inn í rekstur flugfélag-
anna. „Og satt best að segja þegar við vorum að
meta kerfislega mikilvæg fyrirtæki, þá eru flug-
félögin og í þessu tilviki WOW air auðvitað mikil-
væg, ekki síst fyrir efnahagslífið og ferðaþjón-
ustuna, en ekki með þeim hætti eins og menn
töluðu um bankana hér áður fyrr.“
Sigurður bætir við að Ísland sé ekki eina landið í
heiminum þar sem flugfélög hafi lent í erfiðleikum.
„Þetta er grimmur samkeppnisheimur og það hafa
mörg flugfélög í öðrum löndum lent í vandræðum,
sum hver hafa orðið gjaldþrota og sum hver hafa
lifað með einhverri aðkomu ríkisvaldsins, og við
höfum verið að læra af því að það hefur tekist mis-
vel og reynum að falla ekki í sömu gryfju.“ »22
Flugfélögin ræðast við um helgina
Gengi hlutabréfa í Icelandair hækkaði um 5,8% í gær Ríkisvaldið hefur
fylgst mjög náið með stöðunni og er reiðubúið að liðka fyrir ef hægt er
Morgunblaðið/Eggert
Flugfélög Icelandair og WOW air hafa gefið sér
fram yfir helgi til að ljúka viðræðum sínum.
Útlendinga-
stofnun hefur rit-
að sveitar-
félögum víða um
land bréf til að
kanna áhuga
þeirra á að gera
þjónustusamning
við stofnunina
um húsaskjól og
félagslega þjón-
ustu við umsækj-
endur um alþjóðlega vernd. Hælis-
leitendum hér á landi hefur fjölgað
ört að undanförnu og þarf þess
vegna að útvega fleiri búsetuúr-
ræði fyrir þá.
Fyrstu þrjá mánuði síðasta árs
voru hælisleitendur 138, en nú eru
þeir þegar orðnir 203. Fram kom á
Alþingi að kostnaður við mála-
flokkinn gæti aukist um 2 milljarða
á þessu ári. »10
Hælisleitendum
fjölgar verulega
Hæli Leitað úrræða
fyrir hælisleitendur.
A
ct
av
is
91
10
13
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
„Stórbrunar sem við lentum í við
Miðhraun í Garðabæ og Hvaleyrar-
braut í Hafnarfirði í fyrra ýttu
rækilega við okkur varðandi eld-
varnir. Þessir eldsvoðar voru af
þeirri stærðargráðu að við réðum
hreinlega ekki við þá. Ég var orð-
inn hræddur um öryggi minna
manna og það er ískyggilegt,“
sagði Jón Viðar Matthíasson,
slökkviliðsstjóri Slökkviliðs höfuð-
borgarsvæðisins (SHS).
Rætt er við Jón Viðar og Bjarna
Kjartansson, sviðsstjóra hjá SHS,
um aukna áherslu á að reglum um
eld- og brunavarnir sé fylgt. »14
Aukin áhersla lögð
á eldvarnir hjá SHS
Eldur Tveir stórbrunar urðu í fyrra.