Morgunblaðið - 23.03.2019, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 23.03.2019, Blaðsíða 43
á Tjörn alls níu konur sem dvöldu mislengi. Þessum konum sinnti Vig- dís samhliða búverkum allt til ársins 1987 þegar þau hjónin fluttu suður. Þau keyptu hús á Borgarholtsbraut 44 og fengu leyfi hjá Kópavogsbæ til að starfrækja þar sambýli og bjó all- nokkur fjöldi kvenna hjá þeim um árabil. Nokkrar þeirra fluttu síðan með henni í Gullsmára þegar hún keypti þar íbúð árið 1995, en byggt var sambýli í sömu blokk. Þá var Vig- dís 66 ára og í fyrsta skipti á ævinni gat hún einbeitt sér eingöngu að sjálfri sér og áhugamálum sínum en Róbert lést árið 1990. Vigdís gekk í Félag eldri borgara, var þar í ferðanefnd og var farar- stjóri í mörgum ferðum á þess vegum. Hún var einnig í ferðanefnd húsmæðraorlofsins og fór í margar ferðir með þeim. Hún hefur farið í ótal ferðir með Ferðaþjónustu bænda og heimsreisu með Ingólfi Guðbrandssyni ásamt fjölda ferða á eigin vegum bæði innanlands og utan. Hún gekk í leikfélagið Nafn- lausi leikhópurinn og var einn af stofnendum íþróttafélagsins Glóðar. Auk þess stóð hún ásamt þremur vin- konum fyrir Skvettuböllum sem vin- sæl voru meðal eldri borgara. Hún er einnig í kvenfélaginu Freyjunni í Kópavogi. Í dag tekur Vigdís virkan þátt í starfi eldri borgara í Digraneskirkju og er í sjálfboðavinnu hjá Mæðra- styrksnefnd Kópavogs. Hún nýtur þess að lesa bækur og fá fólkið sitt til sín en barnabörnin og barnabarna- börnin eru orðin 67 talsins. Vigdís heldur upp á afmælið í saln- um Gullhömrum í Grafarholti, kl. 14- 18 í dag og vonast hún til að sjá sem flesta af ættingjum, vinum og sam- ferðafólki. Hún vill engar gjafir, en á staðnum verður samskotabaukur og mun allt sem í hann kemur renna óskipt til Alþjóðlegu barnahjálpar- innar. Fjölskylda Eiginmaður Vigdísar var séra Róbert John Jack, f. 5.8. 1913, d. 11.2. 1990, prestur og prófastur á Tjörn á Vatnsnesi. Foreldrar Róberts voru Robert Jack, f. 17.2. 1886, d. 17.9. 1957, járnsmiður í Glas- gow og Mary Louisa Vennard, f. 2.7. 1883, d. 7.4. 1974, húsfreyja á sama stað. Fyrri maki sr. Róberts var Sigurlína Guðjónsdóttir, f. 15.2. 1908, d. 2.3. 1952, húsfreyja. Stjúpbörn Vigdísar: 1) Davíð Wallace, f. 25.6. 1945, d. 30.6. 2017, flugvirki í Garðabæ, maki: Bergdís Ósk Sigmarsdóttir skrifstofumaður. Þau eiga tvo syni og sex barnabörn; 2) María Lovísa, f. 28.8. 1946, hús- móðir í Svíþjóð. Hún á þrjú börn og sjö barnabörn; 3) Róbert Jón, f. 15.9. 1948, rafvirkjameistari og bygginga- vertaki í Reykjavík, maki: Sigrún Jóna Baldursdóttir, fótaaðgerða- fræðingur og sjúkraliði. Þau eiga þrjú börn og sex barnabörn; 4) Pétur William, f. 21.12. 1950, d. 31.10. 1983, bifvélavirki í Stykkishólmi, maki: Elín Guðmundsdóttir húsmóðir. Þau eiga þrjár dætur og tíu barnabörn. Börn Vigdísar: Sonur Vigdísar og Ólafs Guðmundssonar var Erlingur Jóhannes, f. 20.4. 1950, d. 12.8. 1967. Börn Vigdísar og Róberts eru 1) Ella Kristín, f. 14.6. 1954, hjúkrunarfræð- ingur í Noregi, maki: Skúli Torfason tannlæknir. Þau eiga sex börn og átta barnabörn; 2) Anna Josefine, f. 25.7. 1958, kennari í Reykjavík, maki: Guðmundur Sigþórsson fram- kvæmdastjóri. Þau eiga þrjú börn og sjö barnabörn; 3) Jónína Guðrún, f. 3.3. 1960, rannsóknarlögreglumaður í Reykjavík. Hún á tvær dætur; 4) Sigurður Tómas, f. 12.9. 1963, ferða- málafrömuður í Reykjavík, maki: Anna Guðrún Gunnarsdóttir hjúkr- unarfræðingur. Þau eiga þrjá syni; 5) Sigurlína Berglind, f. 2.2. 1965, kenn- ari í Reykjavík, maki: Birgir Birgis- son rafverktaki. Þau eiga fjögur börn og tvö barnabörn. Bræður Vigdísar voru Arnfinnur Ingi, f. 28.9. 1930, d. 8.10. 2011, versl- unarstjóri í Reykjavík; Kjartan Trausti, f. 22.9. 1939, d. 12.4. 2015, fararstjóri, og Jón Erlingur, f. 6.10. 1942, d. 22.6. 1944. Foreldrar Vigdísar voru Sigurður Jónsson, f. 11.6. 1903, d. 29.6. 1997, vegavinnuverkstjóri á Akranesi, og Kristín Jónsdóttir, f. 27.12. 1900, d. 12.4. 1992, húsfreyja og smábarna- kennari á Akranesi. Guðmunda Vigdís Sigurðardóttir Jack Guðbjörg Jóhannsdóttir húsfreyja á Hamri Guðmundur Jónsson bóndi á Hamri á Barðaströnd Elín Guðmundsdóttir húsfreyja á Eyri Kristín Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja og smábarnakennari á Akranesi Jón Arnfinnsson bóndi á Eyri í Kollafirði, Gufudalssveit Anna Finnsdóttir húsfreyja á Eyri Arnfinnur Björnsson bóndi og hreppstjóri á Eyri Jón Finnsson bóndi og hreppstjóri á Hjöllum í Gufudalssveit Kristján Jónsson bóndi og hreppstjóri á Skerðingsstöðum í Reykhólasveit Sigurður Kristjánsson prófastur og kennari á Ísafirði Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands Helga Pálsdóttir húsfreyja á Næfranesi Bjarni Jónsson bóndi á Næfranesi í Dýrafirði Sigurlína Bjarnadóttir húsfreyja á Skálanesi Jón Einarsson bóndi á Skálanesi í Gufudalssveit, A-Barð. Ingibjörg Gísladóttir húsfreyja í Fremri- Gufudal og á Skálanesi Einar Sveinsson bóndi í Fremri-Gufudal og á Skálanesi Úr frændgarði Vigdísar Jack Sigurður Jónsson vegavinnuverkstjóri á Akranesi ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019 TILBOÐSDAGAR 50% AFSLÁTTU R ALLT AÐ 3.356 Áður: kr. 4.795 3.356 Áður: kr. 4.795 1.998 Áður: kr. 3.995 1.498 Áður: kr. 2.995 998 Áður: kr. 1.995 4.196 Áður: kr. 5.995 -30% -30% -30% -50% -50% -50% Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888 OPIÐ ALLA DAGA Mán. til fös. kl. 9–18. Laugard. kl. 10–16. Sunnud. kl. 12–16 Hjalti Þórarinsson fæddist 23.mars 1920 á Hjaltabakka íTorfalækjarhreppi, A-Hún. Foreldrar hans voru hjónin Þórarinn Jónsson, f. 1870, d. 1944, alþingis- maður, hreppstjóri og bóndi á Hjaltabakka, og Sigríður Þorvalds- dóttir, f. 1875, d. 1944, húsfreyja. Hjalti lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1941. Hann las læknisfræði við Háskóla Ís- lands og lauk kandidatsárinu sínu 1950. Almennu læknanámi lauk Hjalti í Wisconsin í Bandaríkjunum 1952. Hann lauk sérfræðinámi í brjóstholsskurðlækningum við Uni- versal Hospital, Madison, Wisconsin í Bandaríkjunum 1954. Hjalti sneri heim og varð sérfræð- ingur og yfirlæknir handlækninga- deildar Landspítalans. Hann var frumkvöðull á sviði brjóstholsskurð- lækninga og einnig varðandi með- ferð á berklum. Hjalti var bæði kennari og í skólastjórn Hjúkrunar- skóla Íslands og var skipaður pró- fessor við læknadeild Háskóla Ís- lands árið 1973 og gegndi þeirri stöðu til 1990. Hjalti gaf út tvær bækur „Hrað- skeytlur og fréttaljóð“ (1997) og „Glefsur – Minningabrot úr ævi og starfi læknis“ (2006) auk fjölda fræðigreina. Hjalti hafði mikinn áhuga á ljóða- gerð, Íslendingasögum og varðveislu íslenskrar tungu. Hann var með- limur í Lionsklúbbnum Ægi og starf- aði ötullega með honum, og er hann Melvin Jones ævifélagi. Hjalti hafði mikinn áhuga á íþróttum og fylgdist ætíð vel með þeim. Hann stundaði m.a. golf, bridge og skák. Einnig stundaði hann mikið laxveiðar ásamt fjölskyldu og vinum, aðallega í Laxá á Ásum sem tilheyrir að hluta til jörðinni þeirra, Hjaltabakka. Eiginkona Hjalta var Alma Anna Þórarinsson, (fædd) Thorarensen, f. 12.8. 1922, d. 9.7. 2011, svæfingar- læknir og yfirlæknir. Börn þeirra eru Þórarinn, Oddur Carl, Sigríður, Hrólfur og Gunnlaug. Hjalti lést 23. apríl 2008. Merkir Íslendingar Hjalti Þórarinsson Laugardagur 90 ára Guðrún Björg Björnsdóttir 85 ára Henry Þór Henrysson Ingibjörg Þorleifsdóttir 80 ára Anna Björk Stefánsdóttir Bylgja Tryggvadóttir Guðjón Hallur Hallsson Kristinn Helgason Oddbjörg Ögmundsdóttir Pétur Stefánsson Selma Bjarnadóttir 75 ára Elmer Hreiðar Elmers Guðmunda Halldórsdóttir Rut Rebekka Sigurjónsdóttir Sigríður Malmquist 70 ára Drífa Hraunfjörð Hugadóttir Einar Þórarinsson Guðjón Sigurbergsson Magnús Jóhannesson Ragnheiður Þórarinsdóttir Stefania Bednarek 60 ára Anna Sigríður Markúsdóttir Auður Guðmundsdóttir Árni Jakob Stefánsson Berglind Hanna Ólafsdóttir Bóas Dagbjartur Bergsteinsson Erla Ósk Sigurðardóttir Færseth Eyjólfur Valgeir Harðarson Friðrik Ólafsson Hákon Birgisson Helgi Baldvinsson Ingigerður Hjaltadóttir Jóna Sigurlín Harðardóttir Jón Magnússon Kolbrún Baldursdóttir Kristján Einarsson Ólafur Harðarson Ólöf Kristín Guðnadóttir Pétur Gunnarsson Steinunn Guðrún Jónsdóttir Sveinn Árnason Tadeusz Dariusz Kopka Örn Sævar Júlíusson 50 ára Ester Sigfúsdóttir Guðni Hörðdal Jónasson Heimir Erlingsson Janusz Bartnicki Linda Björk Hávarðardóttir Lovísa Sigurðardóttir Peter E. J. De Lepeleer Renáta Pétursson Róbert Jóhann Haraldsson Sigrún Þórisdóttir Sigurður Guðmundsson Sigurður Styff Skúli Sigurðsson Teitur Atlason Tómas Einarsson Yngvi Rafn Gunnarsson 40 ára Agnar Tómas Möller Alma Rut Kristjánsdóttir Ásgerður Arna Sófusdóttir Bára Kolbrún Gylfadóttir Berglind Kvaran Ævarsdóttir Birna Ólafsdóttir Birna Ósk Ingadóttir Dominik Wozniak Gregor Vajdic Guðni Guillermo Gorozpe Halldóra G. Steindórsdóttir Hákon Zimsen Hrannar Örn Sigursteinsson Ingibjörg Gunnarsdóttir Ingibjörg María K. Gorozpe Maren Davíðsdóttir Maria Fineza M. António Skarphéðinn Sæþórsson Svava Huld Erlingsdóttir Tamara Melanie Kocan Unnur Helga Jónsdóttir Vladimir Samardzija Örn Ingi Björgvinsson Sunnudagur 90 ára Vigdís Jack 85 ára Ágúst Valfells 80 ára Ingibjörg Jónína Björnsdóttir Skúli Svavarsson 75 ára Gunnþóra Sigfúsdóttir Jósef Leósson Ólafur Jóhann Hauksson Þorbjörg Júlíusdóttir 70 ára Elínbjörg Bára Magnúsdóttir Elísabet Guðmunda Kabel Guðmundur Elíasson Guðný Svavarsdóttir Hafliði Aðalsteinsson Helga Margrét Reinhardsdóttir Matthías Garðarsson Sigtryggur Jónsson 60 ára Albert Einarsson Arna Hulda Jensdóttir Björg Elsa Sigfúsdóttir Björn Þ. Kristjánsson Davíð Björnsson Guðrún Richardsdóttir Hrafn Stefánsson Kristín Jóna Þórarinsdóttir Oddur Helgi Halldórsson Ólína Margrét Ásgeirsdóttir Páll Halldór Sigvaldason Ragna Margrét Bergþórsdóttir Örn Stefánsson 50 ára Aliosha Romero Anna Benidiktsdóttir Daði Hreinsson Giedra Meskauskiené Guðmundur Þór Pétursson Gunnar Thomas Guðnason Gunnar Viðar Gunnarsson Haraldur Eyjar Grétarsson Helgi Samúel Guðnason Ingibjörg Pálsdóttir Jóhann Kristján Birgisson Jóhann Rúnar Guðmundsson Marilou Pialan Villacorta María Bjarney Leifsdóttir Marlon Espana Valendez Sigurður Ingi Hermannsson Sjöfn Bragadóttir Slobodan Kovacevic Stefán Þór Stefánsson Yean Fee Quay 40 ára Atli Már Erlingsson Ásthildur Valtýsdóttir Eyrún Sigurðardóttir Halla Hafbergsdóttir Homero Manzi Gutierrez Laufey Sveinsdóttir Sigurður Þór Haraldsson Tomasz Tomalak Til hamingju með daginn mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.