Morgunblaðið - 23.03.2019, Page 6

Morgunblaðið - 23.03.2019, Page 6
Magnús Heimir Jónasson Arnar Þór Ingólfsson Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að grunur sé um ýmis verkfallsbrot eftir sólarhringsverk- föll VR og Eflingar í gær. „Ég held því miður að það séu ým- is verkfallsbrot í gangi víðs vegar. Það sem við gerum er að skrá allt niður og förum svo yfir málin með okkar fólki,“ sagði Sólveig. Hún var ásamt öðrum félagsmönnum Efling- ar í verkfallsvörslu þegar blaðamað- ur náði af henni tali. Gengu verkfalls- verðir um alla króka og kima á hótelum til að athuga hvort allt væri með felldu. Starfsfólk á 40 hótelum lagði niður störf á miðnætti á fimmtudag og lauk verkfallinu á mið- nætti í gær. Að öðru leyti sagði Sól- veig verkfallið hafa gengið vel. „Við fórum í kröfugöngu og vorum með kröfustöðu fyrir utan hótel og end- uðum svo fyrir utan Hús atvinnulífs- ins. Það gekk allt mjög vel og mikill hugur í fólki. Svo erum við með verk- fallsvörslu um allt.“ Spurð um hvern- ig hafi gengið að manna verkfalls- vörsluna segir Sólveig það hafa gengið vel. „En þetta er svo víðfeðmt þannig við skulum sjá hvernig geng- ur.“ Salvör Lilja Brandsdóttir, hót- elstjóri á Grand hóteli, fylgdi verk- fallsvörðum Eflingar um hótelið. Hún sagði að allt hefði gengið vel í gær. Ferðamenn kvörtuðu lítið Ferðamenn í anddyri Grand hótels virtust ekki kippa sér mikið upp við verkfall hótelstarfsfólks sem hófst á miðnætti. Allt virtist með kyrrum kjörum á meðan verkfallsverðir Efl- ingar gengu um svæðið. Þeir ferða- menn sem Morgunblaðið ræddi við sögðust allir hafa fengið morgunmat í morgun. Einn hópur frá Singapúr sagðist hafa fengið skilaboð um að rútuferð þeirra hefði verið frestað en það hefði verið vegna veðurs en ekki verkfalls. Engar ferðir á flugvöllinn Guðjón Ármann Guðjónsson, for- stjóri Hópbíla, segir í samtali við Morgunblaðið að allt hafi gengið nokkuð vel í gær. „Það voru engin meiri háttar áföll,“ segir Guðjón. Stór hluti bílstjóra hjá Hópbílum er í verkfalli en þó ekki allir. „Við fórum ekkert út á flugvöllinn í dag [í gær] og náðum við nánast ekkert að sækja fólk og koma því á milli staða.“ Hann segir að ferða- menn hafi almennt verið mjög já- kvæðir gagnvart þessu og sýnt stöð- unni skilning. Sundurliðun ekki birt Guðjón segist vita til þess að fjöldi félagsmanna í VR, sem vinna sem hópferðabílstjórar, hafi óskað eftir því að fá sundurliðun á verkfalls- kosningu VR án árangurs. Er þar verið að óska eftir sundurliðun á kosningu hótelstarfsfólks og hóp- ferðabílstjóra. Af þeim sem kusu í verkfallskosningu VR kusu einungis 52% þeirra að fara í verkfall en 45% kusu gegn verkfalli. „Mönnum fannst þetta það tæpt og það lægi ljóst fyrir að öðru hvoru megin hefði verið kosið á móti verkfalli. VR hefur ekki viljað birta þessi gögn eða nið- urstöðurnar. Það er mjög sérstakt ef meirihluti starfsmanna VR hjá rútu- fyrirtækjum hefur sagt nei við verk- falli að fólk sé þvingað í verkfall af VR,“ segir Guðjón. Morgunblaðið hafði samband við Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, og óskaði eftir sundurliðun meðal hótelstarfsfólks og hópferðabíl- stjóra. Ragnar sagði að kjörstjórn væri með þær upplýsingar og að VR hefði birt allar þær upplýsingar sem félagið hygðist birta. Spurður hvort annar hópurinn hefði mögulega kosið gegn verkfalli sagði Ragnar að hann hefði séð sundurliðun á kosningunni. Öll atkvæði voru sett í sama hatt. VR og fleiri verkalýðsfélög fund- uðu stíft með Samtökum atvinnulífs- ins í fyrradag um mögulega lausn á kjaradeilunni. Spurður gat Ragnar ekki svarað því hvaða tilboð væri á borðinu en ríkissáttasemjari hefur lagt fjölmiðlabann á deiluaðila. Einhverjar ábendingar höfðu bor- ist um hugsanleg verkfallsbrot í gær að sögn Ragnars, en VR var með bæði starfsmenn og sjálfboðaliða sem fóru á milli þeirra fyrirtækja og hótela sem verkföllin tóku til. „VR hefur ekki farið í verkföll í 31 ár þannig að við erum svona aðeins að dusta rykið af því, en þetta gengur bara vel. Það hefur ekkert komið upp á – og þá er ég að tala um eitthvað sem gæti flokkast undir átök, sem við viljum að sjálfsögðu forðast,“ sagði Ragnar í samtali við mbl.is í gær. Grunur um verkfallsbrot víða  Hópferðabílstjórar og hótelstarfsfólk Eflingar og VR í sólarhringsverkfalli í gær  Kröfustöður fyrir utan hótel og Hús atvinnulífsins  Grunur um verkfallsbrot  Verkfallsverðir fylgdust grannt með Morgunblaðið/Árni Sæberg Í þvottaherberginu Sólveig Anna var meðal verkfallsvarða. Hún fór um þvottaherbergið á Grand hóteli til að athuga hvort einhver væri að störfum. 6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019 Kjaradeilur „Við erum bara nýkomnar. Við komum hingað í gær,“ sögðu Hue og Belle, hótelgestir á Grand hótel Reykjavík. Spurðar hvort verk- fallið hefði haft einhver áhrif á þær sögðu þær svo ekki vera. Þær fengu morgunmat á hótelinu í gær og höfðu ekki orðið varar við verkföllin. Þær voru ekki með neinar skipulagðar hópferðir á þessum fyrsta degi og ætluðu að nýta daginn til að rölta um miðbæinn. Urðu ekki varar Ferðamennirnir Hue og Belle á Grand hóteli. Chong og Jocelyn frá Singapúr sögðu að verkfallið hefði ekki haft áhrif á dvöl þeirra enn sem komið væri. Þau gæddu sér á kaffi og kök- um í anddyri Grand hótels þegar blaðamaður náði af þeim tali. Ferðalangarnir höfðu fengið morg- unmat um morguninn á hótelinu og ekki tekið eftir neinu. Þau áttu skipulagða hópferð með rútu í gær en henni var frestað vegna veðurs en ekki verkfalls. Engin áhrif enn Róleg Chong (t.v) og Jocelyn (t.h) nutu sín yfir kaffibolla í í anddyri Grand hótels. Á heimasíðu Eflingar kemur meðal annars fram að greiðsla úr verk- fallssjóði sé háð „hógværri kröfu“ um þátttöku viðkomandi í verk- fallsvakt eða skyldum viðburðum. Morgunblaðið setti sig í samband við skrifstofu Eflingar vegna þessa og bar þetta undir einn af þjónustu- fulltrúum félagsins. Sá kannaðist ekki við þessa kröfu og vísaði þess í stað á Viðar Þorsteinsson, fram- kvæmdastjóra Eflingar. Sagði hann félagsmenn eiga að kannast við kröfu um hógværa þátttöku. „Þessu hefur verið miðlað, meðal annars beint til félagsmanna í gegnum trúnaðarmenn. Ég hef ekki orðið var við annað en að fólk sé almennt upplýst um þetta,“ segir hann. Spurður af hverju verið er að setja þessa kröfu svarar hann: „Efl- ing hefur ekki farið í verkfall ára- tugum saman og þetta er bara ákvörðun sem var tekin í stjórn vinnudeilusjóðs að eðlilegt sé að út- hlutunin sé með hógværri kröfu um þátttöku í einhvers konar aðgerð.“ Í tilfelli bílstjóra voru þeir beðnir um að mæta á fund í Vinabæ og kvitta fyrir nærveru. Hótelstarfs- menn voru beðnir um að taka þátt í kröfustöðu við hótelin. „Meginreglan þegar kemur að aðild að verkalýðsfélögum er að jafnræðis sé gætt í hvívetna en þetta er eitthvað sem er algjörlega á vettvangi hvers stéttarfélags fyrir sig,“ segir Lára V. Júl- íusdóttir, lögmaður og sérfræð- ingur í vinnumarkaðsrétti. Lára vitnar í aðra grein laga um stéttar- félög og vinnudeilur þar sem fram kemur að félögin hafi forræði á sín- um málum. „Það er ekki hægt að vísa til þess að þetta sé brot á ein- hverjum landslögum eða slíku. Það eru engin lög sem ná yfir þetta, “ segir hún. khj@mbl.is, freyr@mbl.is Greiðsla úr sjóði er háð þátttöku fólks Morgunblaðið/Árni Sæberg Verkfall Greiðsla úr verkfallssjóði er háð kröfu um þátttöku fólks. Bryndís Hlöð- versdóttir ríkis- sáttasemjari hef- ur boðað til næsta fundar í kjaradeilu Efl- ingar, VR, VLFA, LÍV, Framsýnar og VLFG við Sam- tök atvinnulífsins á mánudaginn klukkan 10. „Það var niðurstaða mín eftir samtal við aðila að við myndum hittast á formlegum fundi á mánu- daginn kl. 10, en að helgin verði nýtt hjá samningsaðilunum hverj- um heima hjá sér í frekari undir- búning fyrir þann fund,“ segir Bryndís. Hún kveðst vera ánægð með sáttafundinn á fimmtudag, sem stóð fram á kvöld. „Að því leyt- inu til var þetta góður fundur, án þess að við séum þó komin á leiðar- enda. Við erum ekki komin þangað,“ segir ríkissáttasemjari. Bryndís Hlöðversdóttir Fundað á mánudagNjóttu þess að hlakka til Afbragðs þjónusta og frábær verð Lúxuslíf með VITA 5 stjörnu hótel á Bodrum 2. júní, 8 nætur – hálft fæði frá169.900 kr. á mann miðað við tvo í tvíbýli Salmakis Resort  Prótínríkt og gott venær sem er!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.