Morgunblaðið - 23.03.2019, Blaðsíða 33
MESSUR 33Á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019
FALLEG OG VÖNDUÐ
LEIKFÖNG
úr náttúrulegum efnivið,
tré og silki
ERUM FLUTT
!
á Nýbýlaveg
8
– Portið
Nýbýlavegi 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna,
verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið.
Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent
12in Wall fan Hi-line Sabre Plate
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Hreint loft og vellíðan
Það borgar sig að nota það besta
VENT–AXIA VIFTUR
AKUREYRARKIRKJA | Maríumessa kl. 11.
Prestur er Hildur Eir Bolladóttir. Klassíski kór
Akureyrarkirkju syngur. Organisti er Sigrún
Magna Þórsteinsdóttir. Sunnudagaskóli í Safn-
aðarheimilinu kl. 11. Umsjón Sonja Kro og Jón
Ágúst Eyjólfsson. Guðsþjónusta á Hlíð kl. 14 og
Lögmannshlíð kl. 15.15. Prestur er Hildur Eir
Bolladóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnu-
dagaskóli kl. 11. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir
altari og prédikar. Organisti er Peter Maté.
Félagar úr kirkjukór Árbæjarkirkju leiða
safnaðarsöng. Sunnudagaskólinn á sama tíma
í safnaðarheimilinu í umsjá Önnu Sigríðar og
Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Messukaffi.
ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Kristný Rós Gústafsdóttir djákni leiðir sam-
verustund sunnudagaskólans og Sigurður
Jónsson sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir
altari. Kór Áskirkju syngur, organisti er Bjartur
Logi Guðnason.
Passíusálmarnir eru lesnir á föstunni í Áskirkju
á þriðjudagsmorgnum til föstudagsmorgna kl.
10.30, tveir sálmar í senn. Opið hús eldri borg-
ara í Ás- og Laugarnessóknum í Áskirkju á
fimmtudögum kl. 12-15.
ÁSTJARNARKIRKJA | Laugardagur.
Fermingarmessa kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju
syngur undir stjórn Keiths Reed. Friðrik Karls-
son leikur á gítar. Prestar kirkjunnar, sr. Arnór
Bjarki Blomsterberg og sr. Kjartan Jónsson,
þjóna.
Sunnudagur. Messa kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju
syngur undir stjórn Keiths Reed tónlistarstjóra.
Prestur er Kjartan Jónsson. Hressing og sam-
félag á eftir.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli í
Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón með stundinni
hafa Sigrún Ósk og Þórarinn. Blúsmessa kl.
17. Stuðsveitin FJÖR!!! hefur leik tuttugu mín-
útum fyrir athöfn. Sr. Hans Guðberg leiðir
stundina.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
er Magnús Björn Björnsson. Organisti er Örn
Magnússon. Kór Breiðholtskirkju syngur.
Sunnudagaskóli kl. 11. Steinunn Þorbergs-
dóttir og Steinunn Leifsdóttir stjórna. Alþjóðlegi
söfnuðurinn í Breiðholtskirkju ICB kl. 14. Prest-
ur Toshiki Toma.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnastarf kl. 11. Umsjón
Daníel Ágúst, Sóley Adda, Jónas Þórir og Pálmi.
Messa og biskupsvísitasía kl. 14. Biskup Ís-
lands, Agnes M. Sigurðardóttir, prédikar og vísi-
terar söfnuðinn ásamt prófasti, sr. Helgu Soffíu
Konráðsdóttur, og biskupsritara, Þorvaldi Víð-
issyni. Kór Bústaðakirkju syngur, organisti er
Jónas Þórir. Messuþjónar aðstoða.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Gunnar
Böðvarsson og vinir Digraneskirkju sjá um tón-
listina. Prestur er Bára Friðriksdóttir. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma í kapellu.
DÓMKIRKJA Krists konungs, Landakoti |
Messa á sunnud. kl. 8.30 á pólsku, kl. 10.30 á
íslensku, kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö. kl. 8, lau.
kl. 16 á spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Biskup Ís-
lands, Agnes M. Sigurðardóttir, vísiterar
dómkirkjusöfnuðinn og prédikar, dóm-
kirkjuprestar þjóna. Kári Þormar og Dómkórinn.
Barnastarf á kirkjuloftinu, bílastæði við Alþingi.
Kaffi og kleinur eftir messu.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA | Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Jón Ómar Gunn-
arsson þjónar og prédikar, kór kirkjunnar syng-
ur undir stjórn Matthíasar Harðarsonar. Sunnu-
dagaskóli á sama tíma, í umsjá Mörtu og
Ásgeirs. Kaffi og djús eftir stundina. Meðhjálp-
ari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl.
14. Séra Hjörtur Magni Jóhannsson leiðir
stundina. Hljómsveitin Mantra og Sönghóp-
urinn við Tjörnina leiða tónlistina ásamt Gunn-
ari Gunnarssyni organista. Fermingarbörn og
fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæta.
GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Stefanía
G. Steinsdóttir þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir
söng undir stjórn Valmars Väljaots organista.
Sunnudagaskóli kl. 11. Fjölskyldudagur. Jesú-
leikrit í boði barnastarfs Glerunga. Umsjón
Sunna Kristrún djákni og leiðtogar, tónlistar-
maður Birkir Blær. Kvöldguðsþjónusta kl. 20.
Krossbandið leikur lög KK og Ellenar. Prestur er
Stefanía Steinsdóttir. Lesarar: Hildur Hauks-
dóttir og Aníta Jónsdóttir. Kaffi eftir stundina.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar. Kór
Grafarvogskirkju syngur og organisti er Hákon
Leifsson. Sunnudagaskólinn er á sínum stað á
neðri hæð Grafarvogskirkju kl. 11. Dans,
söngvar og skemmtilegar sögur. Pétur Ragn-
hildarson hefur umsjón og Stefán Birkisson
leikur á píanó.
GRAFARVOGUR – kirkjuselið í Spöng | Sel-
messa kl. 13. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir leið-
ir. Hilmar Örn Agnarsson er organisti og Vox
Populi syngur.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er
María Ágústsdóttir, organisti er Ásta Haralds-
dóttir. Félagar úr Kirkjukór Grensáskirkju leiða
söng og messuhópur þjónar. Heitt á könnunni á
undan og eftir messu. Miðvikudagur 27. mars:
Samverustund í kirkjunni kl. 17.30. Leifur
Breiðfjörð glerlistamaður segir frá gluggum
Grensáskirkju. Létt máltíð á eftir í safnaðar-
heimili kr. 1.000. Skráning í síma 528 4410 í
síðasta lagi fyrir hádegi 26. mars.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðs-
þjónusta kl. 14 í hátíðasal Grundar. Prestur er
Auður Inga Einarsdóttir heimilisprestur.
Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar
Waage organista.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjón-
usta og barnastarf kl. 11. Prestur er Karl V.
Matthíasson, organisti er Hrönn Helgadóttir og
kór Guðríðarkirkju syngur. Barnastarf í umsjá
Böðvars og Bryndísar Böðvarsdóttur. Meðhjálp-
ari er Guðný Aradóttir og kirkjuvörður er Lovísa
Guðmundsdóttir. Kaffisopi í boði eftir mess-
una.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11. Boðunardagur Maríu.
Sr. Jón Helgi Þórarinsson þjónar ásamt sr. Þor-
valdi Karli Helgasyni. Hilmar Örn Agnarsson
leikur á orgelið og stýrir söng félaga í Barböru-
kórnum. Fjölbreytt dagskrá í sunnudagaskól-
anum með Bylgju, Sigríði og Jess. Hressing á
eftir. Aðalsafnaðarfundur kl. 12.15. Venjuleg
aðalfundarstörf. Veitingar.
HALLGRÍMSKIRKJA Saurbæ | Ferming-
armessa kl. 14 sunnudag 24. mars. Prestur er
Jón Ragnarsson. Kirkjukór Saurbæjarpresta-
kalls leiðir söng. Organisti er Zsuzsanna Budai.
Meðhjálpari er Ágústa Kristjánsdóttir.
HÁTEIGSKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11.
Sr. Ása Laufey Sæmundsdóttir og sr. Eva Björk
Valdimarsdóttir þjóna og Guðný Einarsdóttir
organisti spilar. Tónlistarnemendur Guðnýjar
Einarsdóttur koma fram og fermingarbörn lesa
bænir. Samskot renna til Hjálparstarfs kirkj-
unnar.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðsþjónusta kl.
11. Kór Hjallakirkju leiðir söng undir stjórn Láru
Bryndísar Eggertsdóttur organista. Prestur er
Sunna Dóra Möller. Markús og Heiðbjört sem
sjá um sunnudagaskólann.
HREPPHÓLAKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón-
usta kl. 11. Barnakór Flúðaskóla syngur undir
stjórn Önnu Þórnýjar Sigfúsdóttur. Umsjón: sr.
Óskar, Stefán organisti og Jóna Heiðdís djákna-
nemi.
HVALSNESSÓKN | Fjölskyldumessa í Safn-
aðarheimilinu í Sandgerði kl. 17. Barnakórinn
syngur undir stjórn Birtu Rósar Sigurjónsdóttur.
Sigurgeir Sigmundsson leikur undir.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma og
barnastarf kl. 13. Ræðumaður er Meredith Kat-
hleen Neumann frá Minnesota, en hún hefur
rekið eigið ráðgjafarfyrirtæki sem fjölskyldu- og
hjónabandsráðgjafi. Kaffi að samveru lokinni.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Englamessa kl. 11.
Kór Keflavíkurkirkju syngur Missa de Angelis
undir stjórn Arnórs Vilbergssonar organista. Sr.
Fritz Már Jörgensson þjónar ásamt messuþjón-
um. Sunnudagaskóli á sama tíma. Eftir stund-
ina er boðið upp á súpu og brauð í Kirkjulundi.
Miðvikudaginn 27. mars kl. 12 er kyrrðarstund í
Kapellu vonarinnar. Súpa í Kirkjulundi eftir sam-
veruna.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 Sr.
Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari.
Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku
Mátéová, kantors kirkjunnar. Sunnudagaskól-
inn verður á sama tíma í safnaðarheimilinu
Borgum.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barnastarf
kl. 11. Guðbjörg Jóhannesdóttir sóknarprestur
þjónar ásamt messuþjónum. Félagar úr Fíl-
harmóníunni leiða sönginn undir stjórn og undir-
leik Sunnu Karenar Einarsdóttur. Sara Gríms og
Hafdís Davíðsdóttir taka á móti börnunum í
barnastarfinu. Léttur hádegisverður að messu
lokinni.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Arn-
gerður María Árnadóttir og Kór Laugarneskirkju.
Sr. Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir altari og pré-
dikar. Sunnudagaskóli á meðan. Kaffi og sam-
vera í safnaðarheimilinu á eftir. Betri stofan Há-
túni 12 kl. 13. Helgistund með sr. Davíð Þór og
Arngerði.
26.3. kl. 20: Kyrrðarbæn. Kristin íhugun.
27. 3. kl. 14, Félagsheimilið Dalbraut 18-20.
Helgistund með sr. Davíð Þór og Arngerði Maríu.
28.3. kl. 9.30-11.30: Foreldrasamvera á Kaffi
Laugalæk. Kyrrðarstund og opið hús í Áskirkju
kl. 12.
Mosfellskirkja í Grímsnesi | Föstumessur
öll miðvikudagskvöld á föstunni kl. 20.30. Sr.
Egill Hallgrímsson og sr. Kristján Valur Ingólfs-
son annast þessar stundir.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11.
Sameiginlegt upphaf. Prestur er Skúli S. Ólafs-
son. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safn-
aðarsöng. Organisti er Steingrímur Þórhalls-
son. Umsjón barnastarfs Katrín Helga
Ágústsdóttir, Margrét Heba Atladóttir og Ari
Agnarsson. Samfélag og kaffisopi á Torginu eft-
ir messu.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarðvík | Ferm-
ingarmessa kl. 10.30.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Fermingarguðsþjón-
usta og barnastarf 24. mars kl. 14. Prestur er
Pétur Þorsteinsson. Messugutti er Petra Jóns-
dóttir. Óháði kórinn leiðir messusvör og söng
undir stjórn Kristjáns Hrannars. Fermd verða
tvö ungmenni. Ólafur Kristjánsson tekur vel á
móti öllum. Athugið að ekki verður boðið upp á
maul á eftir athöfninni.
ÓLAFSVALLAKIRKJA á Skeiðum | Messa
kl. 14. Jóna Heiðdís Guðmundsdóttir djákna-
nemi prédikar og þjónar fyrir altari ásamt
sóknarpresti. Kirkjukórinn syngur undir stjórn
Þorbjargar Jóhannsdóttur.
SALT kristið samfélag | Sameiginlegar
samkomur Salts og SÍK kl. 17 alla sunnudaga
í Kristniboðssalnum Háaleitisbraut 58-60.
Ræðumaður: Haraldur Jóhannsson. Barna-
starf. Túlkað á ensku.
SELFOSSKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Súpa í safnaðarheimili á eftir. Axel héraðs-
prestur þjónar. Kór kirkjunnar syngur, organisti
er Ester Ólafsdóttir. Sunnudagaskóli á sama
tíma í umsjón Jóhönnu Ýrar og leiðtoganna.
Súpa og brauð í safnaðarheimilinu gegn vægu
gjaldi að messu lokinni. Nemendur úr Tónlist-
arskóla Árnesinga spila í messunni.
SELJAKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11.
Guðsþjónusta kl. 14, sr. Bryndís Malla Elídótt-
ir prédikar og þjónar fyrir altari, Kór Seljakirkju
leiðir almennan safnaðarsöng, molasopi að
messu lokinni.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorg-
unn kl. 10. Sveinn Jónsson fuglaáhugamaður
talar um Biblíuna og fuglana. Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Sóknarprestur þjónar.
Organisti kirkjunnar leikur á orgelið. Leiðtogar
sjá um sunnudagaskólann. Félagar úr
Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða almenn-
an safnaðarsöng. Kaffiveitingar og samfélag
eftir athöfn í safnaðarheimilinu.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA | Messa sunnu-
dag kl. 11. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir söng.
Organisti er Rusa Petriashvili. Prestur er Sig-
ríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari er Jó-
hann Grétar Einarsson. Eftir messu er boðið
upp á kaffi og kökur í safnaðarheimili.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa sunnu-
dag kl. 11. Egill Hallgrímsson sóknarprestur
annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón
Bjarnason.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Blá messa í tilefni af
mottumars í Útskálakirkju kl. 20. Samstarf við
Krabbameinsfélag Suðurnesja. Sagt frá félag-
inu, Styrmir Geir Jónsson segir reynslusögu,
Keith Reed við píanóið. Kirkjukórinn syngur.
Sameiginleg messa fyrir öll Suðurnes. Prestur
er Sigurður Grétar Sigurðsson.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Hans
Guðberg Alfreðsson prédikar og þjónar fyrir
altari. Félagar í kór Vídalínskirkju syngja og
organisti er Jóhann Baldvinsson. Sunnudaga-
skólinn á sínum stað. Djús og kaffi í safn-
aðarheimilinu að lokinni messu.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Tónlistar-
guðsþjónusta kl. 11. Gamlir Fóstbræður
syngja undir stjórn Árna Harðarsonar. Sunnu-
dagaskólinn kl. 11. Aðalsafnaðarfundur verð-
ur haldinn í safnaðarheimilinu að guðsþjón-
ustu lokinni. Dagskrá: Venjuleg
aðalfundarstörf.
ORÐ DAGSINS: Jesús
rak út illa anda
(Lúk. 11)
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Svarfaðardalur Tjarnarkirkja.