Morgunblaðið - 23.03.2019, Page 42

Morgunblaðið - 23.03.2019, Page 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019 Loksins fáanlegir aftur á Íslandi www.velaborg.is | Járnhálsi 2-4 | 110 Reykjavík | Sími 414-8600 LYFTARARNIR Til á lager Að eiga þess kost að vinna í þágu fjöldans á vettvangi borgar-stjórnar finnst mér frábært tækifæri. Í raun er þetta beintframhald af fyrri störfum mínum sem sálfræðingur þar sem ég vann mikið með til dæmis börnum, þolendum eineltis og hælisleit- endum. Ég brenn fyrir að geta bætt samfélagið,“ segir Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, sem er sextug í dag. Af því tilefni ætlar hún að bjóða fjölskyldu, ættingjum og fólkinu sem næst henni stendur í afmælisboð og ætlar að verja fyrri hluta dags í undirbúning þess. Kolbrún, sem á fjögur alsystkini og tvö hálfsystkini föðurmegin, er úr Vesturbænum í Reykjavík og eftir stúdentspróf frá Verzló var hún í þrjá vetur kennari austur á Stokkseyri. „Þar fékk ég næði til að hugsa og hugleiða hvað ég vildi. Niðurstaðan varð sálfræðinám hér heima og eftir það fór ég til Bandaríkjanna og tók þar tvær meistaragráður,“ segir Kolbrún sem að námi loknu hóf sálfræðistörf hér heima. Hefur unnið m.a. við skóla, heilsugæslu og verið með eigin stofu í 30 ár. „Ég tel mig hafa átt farsælan feril og vonandi getað hjálpað mörg- um. Þá er til nokkurs unnið. Í verunni er ég pólitísk og vil hafa áhrif á umhverfi mitt. Ég er baráttukona, er þrautseig í því sem ég ætla mér. Hef sterka réttlætiskennd og stend með sjálfri mér,“ segir Kolbrún sem á tvær uppkomnar dætur; Karen Áslaugu hagfræðing sem er fædd 1980 og Hörpu Rún lögfræðing sem er þrítug. Eiginmaður Kol- brúnar er Jón Guðmundsson plöntulífeðlisfræðingur. „Við erum með stórt land austur á Rangárvöllum, erum þar með sumarhús og gestahús og hefur Jón ræktað þar tugi þúsunda plantna af mörgum tegundum. Okkur finnst hvergi betra að vera en eystra, sérstaklega á sumrin með allri fjölskyldunni,“ segir Kolbrún. Morgunblaðið/Þórður Borgarfulltrúi Vil hafa áhrif á umhverfi mitt, segir Kolbrún. Vil bæta samfélagið Kolbrún Baldursdóttir er sextug í dag G uðmunda Vigdís Sigurð- ardóttir Jack fæddist 24. mars 1929 á Skála- nesi í Gufudalssveit við Breiðafjörð en flutti 9 ára ásamt foreldrum sínum og bræðrum til Akraness. Hún gekk í Barna- og Gagnfræðaskóla Akra- ness. Vigdís sinnti ýmsum sumar- störfum frá 11 ára aldri, vann m.a. sem barnapía hjá Ingu móðursystur sinni, var sendill á símstöðinni á Akranesi og vinnukona í Reykjavík hjá Önnu Þorkelsdóttur og Teiti Þórðarsyni. Hún var ráðskona fyrir vegavinnuflokk föður síns, var kaupakona á Syðri-Grund undir Eyjafjöllum og í Arnarbæli í Gríms- nesi. Einnig vann hún ýmis ráðs- konustörf bæði í Reykjavík, Kópa- vogi og á Akranesi, auk þess sem hún vann á saumastofu Begga fína í Tjarnargötu. Vorið 1949 gerðist Vig- dís vinnukona í Hvalstöðinni í Hval- firði og vann hún þar í tvö sumur. Þegar Vigdís var 23 ára gerðist hún ráðskona hjá séra Róbert Jack í Grímsey, en hann var þá nýorðinn ekkjumaður með fjögur börn. Vigdís og Róbert giftu sig ári seinna og um haustið sama ár héldu þau hjónin til Kanada þar sem Róbert var prestur í tvö ár. Árið 1956 gerðist séra Róbert prestur að Tjörn á Vatnsnesi í Vestur-Húnavatnssýslu og bjuggu þau þar í yfir 30 ár. Árið 1972 var biðlað til presta landsins að hýsa fólk sem var að bíða eftir að komast inn á stofnun. Komu Vigdís Jack, húsmóðir og bóndi – 90 ára Myndarhópur Vigdís ásamt hluta af barnabörnunum, en barnabörnin og barnabarnabörnin eru orðin 67 talsins. Tekur enn þátt í sjálfboðaliðastörfum Ferðalag Ferðanefnd eldri borgara í Kópavogi, Vigdís ásamt Boga og Ástu. Borgarnes Krist- ín Lind Estrajher fæddist 4. júní. 2018 á Akranesi. Hún vó 4.064 g og var 51 cm að lengd. Foreldrar hennar eru Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir og Pavel Estrajher. Nýr borgari Íslendingar Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.