Morgunblaðið - 23.03.2019, Síða 45

Morgunblaðið - 23.03.2019, Síða 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. MARS 2019 & 585 8800 Áratuga reynsla og þekking í fasteignaviðskiptum Kringlunni 4-6 | 103 Reykjavík | híbýli.is 37.500.000,- Vel staðsett í grennd við Háskólann 69,1 m2 Góð 3ja herbergja íbúð í kjallara á vinsælum stað við Lynghaga. Lynghagi 10- 107 Reykjavík 98.900.000 Efri sérhæð - 4ja herb. 179,2 m2 Stórglæsileg sex herbergja efri sérhæð á eftirsóttum stað við Grenimel í Vesturbænum. Eignin er samtals 179,2 m2, þar af bílskúr 24,4 m2. Grenimelur 47, 107 Reykjavík Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864 8800 Þórður S. Ólafsson löggiltur fasteignasali Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865 8515 Opið hús mánud. 25. mars. 17:00 til 17:30 71.000.000,- Fjölbýli 4ra herb - 143 m2 Langalína 20, 210 Garðabær Glæsileg 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í nýlega byggðu (2016) lyftuhúsi við Löngulínu í Garðabæ. Mjög gott aðgengi er að íbúðinni sem og bílastæði og geymslu sem henni fylgja. Grenimelur 29, 107 Reykjavík Mikið endurnýjuð hæð, 99 m2 Falleg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja hæð í þríbýlishúsi við Grenimel.Þvottahús innan íbúðar. 55.900.000,- Opið hús sunnud. 24. mars 13:30 - 14:00 Opið hús þriðjud 26. mars. 17:00 til 17:30 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ef eitthvað gengur ekki að óskum hefur þú allt sem þarf til þess að finna út úr því hvert vandamálið er og laga það. Að því loknu áttu skilið að gera þér glaðan dag. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú hefur haft áhyggjur að undanförnu og mátt ekki láta kvíðann ná tökum á þér. Gefðu þér tíma til þess að hitta ástvini. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Eitthvert ætlunarverk þitt gengur ekki. Ræddu málin við þá sem þú treystir til að gefa þér heillarík ráð. Illu er best af lok- ið. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú hefur afskaplega gaman af því að leika þér með börnum og fullorðnum. Ef þú trúir því ekki að fyrirhöfnin verði til þess að þú eignist betra líf, er ekkert sem hvetur þig til verka. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Nú verður þú að hrökkva eða stökkva því ekkert annað getur þokað málum þínum áfram. Biddu aðra um að segja álit sitt á hugmyndum þínum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þér finnst sumar ákvarðanirnar sem þú tekur núna heldur furðulegar, en þér finnst þú leidd/ur áfram. Hamingjan fæst ekki keypt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Láttu ekki skapið hlaupa með þig í gönur því þá gæti illa farið. Dagurinn hentar engan veginn til að taka ákvarðanir varðandi lánamál. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú verður að leggja þig alla/n fram til þess að geta staðið við allar þínar skuldbindingar. Ekki láta áhyggjur annarra hafa svo mikil áhrif á þig að þú sinnir ekki þínum málum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Gefðu þér tíma til þess að setj- ast niður og slappa af milli átaka. Ekki of- metnast þó þú fáir mikið hól. Það er erfitt að detta af stallinum. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er alveg óvitlaust að leggja örlítið til hliðar og eiga varasjóð ef eitthvað óvænt kemur upp á. Sýndu hugrekki og vertu óhefðbundin/n og nýjungagjarn/gjörn. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er engin skömm að því að leita sér aðstoðar þegar verkefnið er marg- þætt og flókið. Treystu hugboði sem þú færð. Notaðu fínu fötin þín oftar. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ánægjulegir atburðir hafa gerst í lífi þínu og þú vilt deila þeim með öðrum. Mundu samt að blanda ekki saman atvinnu og einkalífi. Sem endranær er gátan eftirGuðmund Arnfinnsson: Um hana’er spurt, hvort þekkir þú. Þessi manni gefin er. Jafnan kennd við járn er sú. Jafnframt tignarheiti ber. Harpa á Hjarðarfelli svarar: Frúin í Hamborg er fjörugur leikur. Frúr eru giftar konur allar. Járnfrúin Thatcher japlaði steikur. Jafnan hefðarfrúr eru snjallar. Guðrún Bjarnadóttir leysir gát- una þannig: Ég þekki sko alveg þessa frú, sem þrekna manninum giftist! Sú járnfrú með hörku heilabú hitti frú Agnes’og lyftist. Þessi er lausn vikunnar hjá Helga R. Einarssyni: Heima í Hamborg á sú. Hagsýn er mörg við sitt bú. Bretlandi Thatcher var trú og tigin er hefðarFRÚ. Hér kemur svo frúarlausn Helga Seljan: Ávarpa í lotning skal flotta frú, föstnuð löngu var karli sú. Merkt við járnið hún Margrét var, May er nú íhaldsins hefðarsvar. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Víst frúna í Hamborg þekkir þú. Þessi kona nefnd er frú. Margrét járnfrú margfræg sú. Margrét frú í Danmörk nú. Þá er limra: Er frúin var háttuð í holunni við hlið á eiginmanns rolunni, hún meydóm sinn treindi, hve mjög sem hann reyndi, þar til hann geispaði golunni. Síðan kemur ný gáta eftir Guðmund: Sólin rís í austurátt upp á loftið fagurblátt, er hugurinn skírist smátt og smátt smíða ég gátu á minn hátt. Vafinn hann um hálsinn er. Í hálsi líka finna má. Fjall, sem hátt við himin ber. Harla stór er fuglinn sá. Þennan gamlan húsgang kenndi faðir minn mér: Kuldinn bítur kinnar manns, kulnar jarðarfræið, ekki er heitur andi hans eftir sólarlagið. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Á fótum skal frú þekkja Víkverji reynir yfirleitt að lesa sértil um staði sem hann ferðast til. Bæði vill hann vita eftir hverju hann eigi að slægjast, hvort sem það snýst um mat og drykk, listasöfn eða staði. Í þessum efnum koma ferðahand- bækur og dagblöð í góðar þarfir, skilji hann á annað borð málið, sem talað er í landinu. x x x Víkverji hefur komist að því að þaðgetur veitt öðruvísi innsýn að þefa uppi skáldsögur, sem gerast á staðnum og hafa reyfarar reynst honum best. Þegar Víkverji fór til Bangkok rakst hann á bækur Johns Burdetts um rannsóknarlögreglu- manninn Sonchai Jitpleecheep. Í bókunum má lesa um skuggahliðar þessarar milljónaborgar, spillingu, viðhorf Taílendinga til útlendinga og fá innsýn í hvernig kaupin gerast á eyrinni. Víkverji veit að hann getur ekki notað sögurnar og lýsingarnar úr bókum Burdetts í heimilda- ritgerðir, en þær myndu tæplega ná flugi ef höfundurinn hefði enga þekkingu á landi og þjóð. x x x Annað dæmi er bækur JespersSteins um hinn harðsoðna lög- reglumann Axel Steen, sem gefur sig allan í verkefnið, en er að mörgu leyti tæpur, á erfitt með að hemja skapið og löngunina í fíkniefni. Þær gerast að mestu á Norðurbrú í Kaupmannahöfn og getur verið skemmtilegt að hafa á náttborðinu þegar leiðin liggur um Kaupmanna- höfn þótt lýsingarnar séu ekki allar fyrir viðkvæma. Víkverji var nýverið í Kaupmannahöfn og gekk þá í gegn- um Örsted-garðinn. Um kvöldið leit hann í eina af bókum Steins og viti menn, á fyrstu blaðsíðunum var lík veitt upp úr tjörninni í garðinum. x x x Víkverji þekkir einnig til í Bostonog hefur einmitt lesið nokkra reyfara um einkaspæjarann Spenser eftir Robert B. Parker. Spenser leysir margvísleg mál í þeirri borg. Í einni bókinni stóð Víkverji Parker að því að telja götur í borginni upp í vitlausri röð. Þóttist hann þá vera orðinn ansi hagvanur á heimaslóðum höfundar. vikverji@mbl.is Víkverji Þess vegna skulum við, meðan tími er til, gera öllum gott og einkum trúsyst- kinum okkar. (Galatabréfið 6.10) Fasteignir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.